Morgunblaðið - 12.04.1915, Side 1
Mánudag
12.
apríl 1015
H0R6DNBLADID
2. árgangr
157.
tölublad
Ritstjórnarsimi nr. 500 | Ritstjóri: Vilhjálmnt Finsen. |ísafoldarprentsmiðia
Keykjavfknr
Biograph-Theater
Tals. 475.
Bio
Hinn dauði sem
drap.
Stór hernaðarsjónleikur í fjórum
þáttum.
Myndin er úr daglegu lííi her-
manna um
ást — hatur og aga
Ágætlega leikið af fallegum og
duglegum leikurum, sem eigi
hafa sést hér áður.
Fjölmennið! því myndin er
framúrskarandi góð — en
börn fá ekki aðgang.
Sýningin stendur yfir á aðra kl.st
Betri sæti kosta 50 aura.
Almenn sæti 30 aura.
Málverkasýning
Einars Jónssonar
opin daglega frá kl. 10—5 á
Vesturgötu 17.
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
•— Bezta dag- og kvöldkaffé. —
Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—nVa
Jarðarför Astu sðl. Guðmundsdóttur
Asi i Garðahreppi, fer fram miðviku-
daginn 14. þ. m. og hefst með hús-
kveðju kl. II f. h. fró heimili hinnar
látnu.
Guðrún Árnadóttir.
Skemfifundur
í kvöld hjá St. Hlín.
Lautinant Kr. Johnsen, vanur fyrir-
Hsari á skemtisamkomum i Khöfn,
Hs Upp kafla úr dönskum æfintýrum.
Allir Templarar velkomnir.
„Unibrella“ og
„Cresce#
viðurkendu þvottasápur fara bezt
með tau og hörund. Notkunar-
leiðarvísir á umbúðunum.
Góðu en
ódýru
sápur og
ylm-vötn
fást hjá
kaup-
mönnum
um alt
land.
Flag
taerfly
j&loderma
%inia
^sápan fræga No. 711
Heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eiríkss, Reykjavik.
Erl. slmfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn, ii. apríl.
Þjóðverjar eru að flytja mikið lið
frá Belgíu og Norður-Frakklandi
austur á bóginn. Þykir liklegast að
sá her verði sendur austr í Karpata-
fjöll til hjálpar Austurríkismönnum,
sem mjög hafa farið halloka fyrir
Rússum. Bretastjórn birtir svar til
Þjóðverja viðvíkjandi skipinu Falaba,
sem kafbátur sökti nýlega. Bretar
þverneita þvi að Falaba hafi ver-
ið vopnað og þeir fullyrða að Þjóð-
verjar hafi ekki gefið farþegum og
skipverjum tækifæri til þess að kom-
ast í skipsbátana áður en skipinu var
sökt með tundurskeyti.
Rússar vinna stöðugt á í Karpata-
fjöllum.
Símfregnir.
Borqarnesi í qœr.
Kvennanámskeið stendur yfir hér
þessa dagana.
Stykkishólmi í %œr.
Á leið til ísafjarðar kom Vesta við
á Sandi til þess að taka þar sjómenn,
sem fara áttu til Vestfjarða. Veður
var afar-ilt. Úr landi fór bátur út í
skipið, en vegna brims tókst ekki
að koma öllum mönnunum yfir á
Vestu. Báturinn náði ekki landi aftur
og rak hann til hafs. Þar náði Vesta
í bátinn og hélt með hann í eftir-
dragi til Patreksfjarðar. Menn hér
álíta, að hefði Vesta ekki náð bátn-
um, mundi hann að öllum líkindum
hafa rekið langt út á naf og allir
mennirnir farist.
Stokkseyri i %œr.
Afli er hér afbragðsgóður þegar á
sjó gefur — 200—300 í hlut af
ágætum fiski.
Besta tíð til lands og sjávar.
Feikna mikið brim hér í dag —
hið mesta, sem menn muna eftir.
< .
Friðarskilmálar.
Brezk kona, Mrs. Ford Smith, hélt
nýlega ræðu um það, hvernig friður
skyldi saminn, ef vel væri. Sagði
hún að Bretar ættu vel að minnast
þess, þegar þar að kæmi, að eigi
hefðu þeir alveg hreinar hendur.
Þeir ættu þvi ekki að setja hinum
sigruðu þjóðum þá afarkosti, að þær
þyrsti enn meira í hefnd en áður,
heldur löfa þeim að jafna sig. Sagði
hún að kvenþjóðin mundi geta Laft
mikil og góð áhrif til þess að þær
málalyktir fengjust.
Brezku blöðin minnast örfáum
orðum á ræðu hennar, og er hálf-
gerður urgur í þeim yfir því að
»talað skuli máli Þjóðverja«, eða
þeim beðið vægðar.
Útflutningsbann á hveiti
frá Bandarikjunum.
í Bandarikjunum hefir mikið verið
um það rætt, að banna útflutning á
hveiti vegna þess að horfur væri á
því, að landið yrði sjálft hveitilaust.
En eins og menn vita hafa verið
flutt þaðan ógrynnin öll af matvöru
síðan ófriðutinn hófst.
Innanríkisráðuneytið hefir þó kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að óþarfi sé
að banna útflutning á hveiti. Úr
áliti hennar skal þetta birt:
Sökum þess að allar líkur eru til
þess að uppskera verði með meira
móti sumarið 1915, þykist stjórnin
geta tekið því með stillingu þótt
birgðir verði eigi miklar næstu þrjá
mánuði. Hver mundi afleiðingin
verða yrði þær litlar? Við höfum
yfrið nóg af matvælum og margt af
því getur gjarna komið í hveitisstað.
Hveiti er eigi meira en i2°/0 af
matvælum þeim, sem eytt er í land-
inu, og er það álíka mikið og egg
og alifuglar. Kjöt og mjólkurafurðir
eru 48°/,,, grænmeti n°/0 og ávextir,
sykur, fiskur og fleira þau 19°/0,
sem eftir eru. Nú sem stendur eru
hér í landinu meiri birgðir en nokkru
sinni áður af mais og öðrum korn-
mat, nautgripum, mjólkurafurðum,
kartöflum og ávöxtum.
Síðan færir stjórnin rök fyrir þess-
ari ályktun sinni og kemst að þeirri
niðurstöðu, að engin minsta hætta
sé á því að matvælaskortur verði i
Bandaríkjunum, enda þótt útflutn-
ingur á hveiti verði jafn mikill fram-
vegis og hann hefir verið.
Norðurlandaþjóðir — að íslend-
ingum meðtöldum — mega fagna
þvi að ekkert varð úr útflutnings-
banni þessu.
Kosningar í Japan.
Almennar kosningar eru nýlega
um garð gengnar í Japan. Stjórnar-
flokkurinn varð í miklum meiri hluta
og er talið að hann muni hafa um
80 atkv. meirihluta í þinginu, þegar
það verður kvatt til funda í þessum
mánuði. Okuma greifi er stjórnar-
formaður, en Kato barón er utan-
rikisráðherra.
Afgreiðslusimi nr. 499
NÝ J A BÍ 6
Blindi
fiðluleikarinn
Skemtilegur sjónleikur í 2 þátt.
Leikinn af ítölskum leikurum.
Góð og ódýr skemtun.
Eimskipafélagið.
Hlutafé
Eimskipafélags íslands 1. april 1915.
Skifting eftir kaupstöðum og sýslum.
Á mann
Kaupstaðir. ÍBi9i8;*'
Kr. Kr. a.
Reykjavík 1 11-97S 8.39
Akureyri og Oddeyri 13.073 6.75
Seyðisfjörður 3.825 6.35
Hafnarfjörður 9.823 6,09
ísafjarðarkaupstaður 5.230 3.08
Norður-Þingeyjarsýsla 9.400 6.25
Barðastrandarsýsla I9S7S 5.96
Suður-Múlasýsla 24.650 5.25
Borgarfjarðarsýsla 12.625 5.08
Vestmanneyjar 7.430 4A4
A ustur-Skaftafellss. 4.900 4.31
Norður-Múlasýsla 9.050 4.00
Suður-Þingeyjarsýsla r4-47S 3.82
Húnavatnssýsla 14.650 O °0 ro
Kjósarsýsla 4.875 3-79
Mýrasýsla 6.473 3-44
Strandasýsla S.6so 2.93
Vestur-Skaftafellssýsla S.450 2.90
Skagafjarðarsýsla 11.650 2.73
Gullbringusýsla 8.175 2.71
Arnessýsla 15.950 2.61
Dalasýsla 4.875 2.26
Snæf.- og Hnappadalss. 8.550 2.22
Rangárvallasýsla 8.525 2.14
Eyjafjarðarsýsla 11.900 2.12
ísafjarðarsýslur 12.875 2.08
Tala hluthafa 5473 (Vestur-ís-
lendingar ótaldir).
Eimskipafélag íslands er óskabarn
og átrúnaðargoð íslendinga — aust-
an hafs og vestan. Ekkert fyrirtæki
hefir átt jafn miklum og almennum
vinsældum að fagna hér á landi, sem
það félag. Sýnir það bezt skýrsla
sú, sem hér er birt og stjórn Eim-
skipafélagsins hefir sent Morgunblað-
inu til birtingar.
En skýrslan sýnir annað og meira.
Hún er yfirlit yfir það, hvað hver hluti
landsins — sýslur og kaupstaðir —
hafa látið af hendi rakna til þessa
þarfa fyrirtækis bæði framlögin í
heild sinni og eins hitt, hve mikið
fé kemur á nef hvert. Verður sam-
jöfnuðurinn nógu fróðlegur og er
góður mælikvarði á áhuga manna í
hverju héraði.