Morgunblaðið - 19.04.1915, Qupperneq 2
2
'MORGUNBLAÐIÐ
Málverkasýning
Einars Jönssonar
opin í seinasta sinn á sumardaginn fyrsta.
Varnarsamband
Norðurlanda.
Síðan konuDgastefnan var í Málm-
haugum í vetur, hafa Rússar verið
að hnýflast út af f>ví að hverju stefndi
á Norðurlöndum. Þann 27. marz
flytur helzta blað þeirra, »Novoe
Vremya« mjög ítarlega grein um
þetta efni og er fróðlegt að sjá að
hverri niðurstöðu blaðið kemst. Það
segir svo:
Þýzkaland hefir reynt að telja
Norðurlöndum trú um að Rússar
væru óvinir þeirra. Þjóðverjar hafa
ekki sett Norðurlöndum stólinn fyr-
ir dyrnar vegna þess að þeir hafa
eigi viljað egna þá til óvináttu við
sig. Konungastefnan í Málmhaugum
hefir sýnt það, að Norðurlönd hafa
myndað varnarsamband. Noregur
og Danmörk hjálpa Svíþjóð ef Rúss-
ar ráðast á landið; Svíþjóð og Nor-
egur hjálpa Danmörk ef Þjóðverjar
skyidu ætla að gleypa hana og Dan-
mörk og Svíþjóð hjálpa Noregi ef
Rússar skyldu ætla að sölsa undir
sig Finnmörk og norðurfirðina.
Þannig er það að þetta varnarsam-
band er að tveim þriðju stofnað gegn
Rússum.
Síðan fer blaðið að ræða um það,
hver ástæða sé til þess fyrir Norð-
urlönd að væna Rússa um það, að
þeir vilji sölsa undir sig einhvern
hluta af Norðurlöndum. Sver það,
og sárt við leggur, að Russum hafi
aldrei komið það til hugar að seil-
ast til landa í Noregi og ná þar
höfnum. Þeir ætli sér eingöngu að
ná höfnum við Eystrasalt og Miðjarðar-
haf. Þannig er það,segir bl., að varnar-
samband þetta er að tveim þriðju
stofnað að ástæðulausu. En að ein-
um þriðja er það eftirtektavert, því
það sýnir það, að Þjöðverjar ætla
sér að gína yfir öllum nyrstu lönd-
um Norðurálfunnar.
Stórskotalið Frakka.
Franska stjórnin gefur út rit um
ófriðinn og er það samstæð heild,
en sitt efnið í hverju heíti. Hið
sjötta er nú nýlega komið út og
íjallar það um fallbyssurnar og stór-
skotaliðið.
Það sem þar er sagt um fallbyss-
urnar gefur ótvírætt í skyn að banda-
menn hafi yfirhöndina á vestri vig-
stöðvunum. í ritinu er komist svo
að orði:
Það er tvímælalaust, að 75 rnilli-
metra fallbyssurnar okkar eru alveg
jafngóðar sem í upphafi ófriðarins,
þrátt fyrir það þótt þær hafi verið
notaðar miklu meira en nokkurn
mann varði. Það kvað meira að segja
svo ramt að skotfæranotkuninni að
til þurðar horfði um eitt skeið. En
nú er þó nokkuð langt síðan að
þeirri hættu varð afstýrt.
Þegar ófriðurinn hófst var verið
að koma umbótum á stærstu fall-
Dyssurnar og því voru þær eigi
jafnokar fallbyssa Þjóðverja fyrst um
sinn. En síðan hafa orðið hausavíxl
á því. Þessi breyting er bæði því að
þakka að stórskeytaverksmiðjurnar
hafa unnið framúrskarandi verk og
eins höfum við tekið varastórskeytin
til notkunar. Þó er eigi svo að
skilja sem að við höfum eytt öllum
okkar stórskeytum, heldur höfum
við margt af því enn ónotað. Fall-
byssunum höfum við breytt og gert
þær sem bezt úr garði, enda hafa
þær reynst flestum eða öllum fall-
byssum betur, og hafa sýnt það aö
þær má hafa i hendi sinni eftir ósk-
um.
Að lokum segir ritið, að fjölda
margar frásagnir þýzkra fanga viður-
kenni og staðfesti þá frásögn um
það hve stórskeyti Frakka séu miklu
betri heldur en óvinanna.
Elisabet Belgadrotning.
Albert konungur gengur sjálfur til
viga með hermönnum sinum, en
drotning hans hefir gerst hjúkrunar-
kona, eins og svo margar aðrar
tignar konur nú á dögmn. Drotn-
ingin er sérlega vel til þessa starfa
fallin því hún hefir numið læknis-
fræði og lauk prófi í henni áður en
hún giftist.
Grávara.
Undanfarin ár hefir grávara stöð-
ugt hækkað i verði — sérstaklega
tófuskinn og eins önnur þau skinn,
sem höfð eru til klæðnaðar handa
tignum konum.
En nú er svo komið, að skinn
þessi hafa fallið í verði um helming
og seljast eigi að heldur. Seinasta
sendingin til Lundúna af grávöru frá
Kanada liggur þar óseld. Þessu
veldur það, að menn reyna á ýmsa
lund að spara, sérstaklega það, sem
þeir geta án verið. Aftur á móti
hefir eftirspurn á úlfaskinnum, kálfs-
skinnum, sauða og geitaskinnum o.
s. frv. aukist um allan helming. Er
það sökum þess, að stjórnir ófriðar-
ríkjanna þurfa á ógrynnum ódýrra
skinna að hatda til ktæðnaðar handa
hermönnum sínum. Kaupa þær alt
sem fæst af þeirri vöru — og hrekk-
ur það þó eigi nándar nærri.
Eins og getið hefir verið í Morg-
unblaðinu áður, hefir refarækt í
Kanada aukist margfalt á síðari ár-
um og reynst afar arðsöm. En nú
er sá atvinnuvegur i kalda koli, að
minsta kosti fyrst um sinn.
Gamanmynd.
í frönsku blaði, sem gefið er út
i Sviss, birtist mynd þessi og fylgdi
henni þessi skýring.
Faðirinn: Hver fjandinn! Enn
einu sinni hafa 20 þúsundir farið til
ónýtís. En hvað er um það að ræða,
maður getur ekki búið til eggjaköku
nema því aðeins að maður brjóti
eggin fyrst.
Elzti sonur hans: Það er deginum
ljósara pabbi, en þú hefir nú samt
ónýtt mörg egg og þó eigi getað
búið til eina einustu eggjaköku.
Menn sjá það sjálfsagt að myndiu
er af Vilhjálmi Þýzkalandskeisara og
krónprinzinum.
m DAGBÓ íý I N
Afmæli f dag:
Sveinn Jónsson, trósmiður.
Afmæliskort selur Friðfinnur Guð-
jónsson, Laugaveg 43 B.
Sólarupprás kl. 4.49 f. h.
Sólarlag — 8.8 síðd.
Háflóð er í dag kl. 8.32 f. h.
og í nótt — 8.54
N. B. Nielsen kaupm. hefir tekið
Godthaabs búðina á horninu á Austur-
stræti og Pósthússtræti á leigu. Ætlar
hann að verzla þar með járnvörur,
viudla og ýmsan annan varning.
Gullfoss fór kl. 10 í gærmorgun
til Hafnarfjarðar. Fjöldi bæjarmanna
— surnir sögðu um 400—500 — fóru
skemtiferð með skipinu.
Veður var hvast og voru margir
sjóveikir á leiðinni. Þegar komið var
inn á Hafnaríjörðinn hófu farþegar
söng og hóldu áfram söngnum unz
skipið lagðist við bryggjuna. Þar tóku
Hafnfirðingar á móti þeim með söng
og síðan stó fram Magnús Jónssou
bæjarfógeti og hólt ræðu. Þá talaði
Sveinn Björnsson og þakkaði viðtök-
urnar og síðan var sungið á eftir.
Hafnfirðingar fjölmentu mjög til
til þess að skoða skipið og dvaldist
þeim þar dægurlangt. — Vörunum,
sem fara áttu til fjarðarins var skipað
þar á land og komst skipið eigi af
stað aftur fyr en undir kvöld.
Ágúst Flygenring kaupm. í Hafnar-
firði varð fimtugur á laugardaginn.
Búist er við að Gullfoss muni
ferðbúinn til Ameríku um 26.
þ. m. eitthvað af farþegum verður
með skipinu, en lítinn flutning hefir
skipið á vestur leið.
Bragi kom af fiskveiðum í t'yrra-
dag. Hafði aflað ágætlega.
Columbns er væntanlegur hingað
þessa daga.
Nokkra undanfarna daga hefir verið
stórt uppboð i verzunarhúsum P. J-
Thorsteinsson & Co. og þar seldur
allskonar búðarvarningur. Seinasti dag-
ur uppboðsins er i dag.
Flora fer norður um land til út-
íanda < dag.
Einar Jónsson málari hefir mál-
verkasýningu sína opna þangað til »
sumardaginn fyrsta. Menn ættu að
nota tækifærið til þess að sjá myndir
hans.
Ofriðarsmælki.
Rússneskir Gyðingar .
Cairo hafa myndað herflokk og berj'
ast nú með bandamönnum
Tyrkjum.
Rússakeisari hefir sæmt Wiet
hershöfðingja Belga St. Andreas-kroö9'
inum.
Þýzkalandskeisari
sæmt von Klúck hershöfðingja
le Mórite orðunni. Kluck er nU
batavegi.
3
Þ i n g i ð í Sidney hefir vei** f
milj. sterlings pund til herkostu*09
Áður hafði það veitt ÍO1/^ miljúu- t
talið að þetta fó muni ekki en
nema til 13. júní í sumar.