Morgunblaðið - 11.05.1915, Page 1

Morgunblaðið - 11.05.1915, Page 1
l»riðjudag 11. maí 1915 nOBfiDNBLADID 2. árgangr 186. tðlublað Ritstjómarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja| Afgreiðslnsimi nr. 499 Din Reykjavíkur Rlíl DIU| Biograph-Tlieater |DIU -----1 Talsími 475. ------ Ljómandi fallegur sjónleikur í 3 þáttum, leikinn af afbragðs leikurum frönskum hjá Pathé Fréres í París. K, F. U. M. Biblíulestur í kvöld kl. 81/* Allir karlmenn velkomnir. Theodor Johnson Konditori og Kafé stærsta og fullkomnasta kaffihús i höfuðstaðnum. — Bezta dag- og kvöldkaffé. — Hljóðfærasláttur frá 5—7 Og 9—nVa Conditori & Caíó Skjaldbreið fegursta kaffihús bæjarins. Samkomustaður allra bœjarmanna. Hljómleikar á virkum dögum kl. .9—11V21 sunnudögum kl. 5—6. A.V. Mikið úrval aý áqœtis kökum. Ludvig Bruun. Hérmeð tilkynnist að jarðarför Guð- jóns sái. Jónssonar málara fer fram miðvikudaginn 12. þ. m. frá heimili hans, Skólavörðustíg 20 A, kl. ll'/2 f. h. Vinir hins látna. Vaji der Sanden & Co’s hollenzka vindlar fást hjá öllum kaupmönnum. Sérstaklega skal mælt meðtegundunum»Sanital<og>Globe<. Kg Viiullar lingemann & Co. Khöfn er eina verksmiðja í heimi, sem býr til ekta »GL K.« vindla, »E1 Diplomat« (litla) og »E1 Sol« (stóra) svo og ýmsar aðrar fyrirtaks tegundir af dönskum vindlum. Nestor Gianacli’s °g Westminster Cigarettur ern þektar um allan heim. í heildsölu fyrir kaupmenn, hjá G. Eiríkss, Reykjavik. I H. P. DUUS A-deild. Sýnishorn af nýtízku efnum í • „dragtir“, „ulstera“ pils og kápur frá einhverju stærsta vöruhúsi á Norðurlöndum eru nýkomnar, Pantanir verða afgreiddar með »Sterling« 13. þ. m. Komið í tíma og veljið efnin 1 cJC. <3*. ÍDuus Sími 502 tJl-ÓQÍlÓ. Erl. símfregnir. Opinber tilkynning frá brezku utanríkisstjórninni í London. London, 9. maí. Sir John French hefir sent eftir- farandi skýrslu í dag: Óvinirnir héldu áfram áhlaupnm sinum fyrir austan Ypres i gærkveld. í dag hafa þeir og gert áhiaup, en þeim hefir verið hrundið. Mannfall óvinanna var mjög mikið. Vér höld- um allri herlínu vorri óbreyttri á á þessum stöðvum og höfum styrkt stöðvar vorar. í morgun gerði lið vort áhlaup á stöðvar óvinanna milli Grenier skógar og Festubert. Unnum vér töluvert á í suðaustur, í áttina til Frou- melles. Orusta stendur enn á þessu svæði. Flugmenn vorir hafa gert margar árásir, sem hafa borið góðan árangur. ------------------— Fjalla-Eyvindur. Á sunnudagskvöldið var Fjalla- Eyvindur leikinn r Iðnó. Var þar húsfyllir, eins og nærri má geta og þó urðu margir að hverfa frá. Ann- aðkvöld verður hann aftur leikinn á sama stað, en eigi á uppstigningar- dag. Um Fjalla Eyvind hefir svo margt verið sagt og ritað, að það væri að vera í bakkafullan lækinn, ætlaði maður sér að fara að bæta nokkru þar við. En svo djúpt getur maður þó tekið í árinni, að ekkert annað leikrit, sem hér hefir verið sýnt, hefir náð jafn föstum tökum á hug- um manna, og hafa þó verið sýnd hér inörg ágæt leikrit. Til þessa ber tvent. Fyrst er að telja það, að efnið er tekið úr íslenzku þjóðlífi og fslenzkum hugsunarhætti vafið inn f það. Þess vegna skilja menn það svo vel og betur en flest annað. í öðru lagi er það að telja, að fæst leikrit hafa verið leikin jafnvel hér í bæ og naumast, að i nokkru leikriti hafi aðalleikendurnir, þeir, sem alt veltur á, leyst hlutverk sin svo vel af hendi og í Fjalla-Eyvindi. Hér gerist þess litil þörf að fara að lýsa leik hvers leikanda, því þeir voru tlestir hinir sömu og áður. Þó saknaði maður Bjarna Björns- sonar úr hlutverki Arngrims holds- veika. Þorfinnur Kristjánsson lék það að visu ekki illa, en gerfið var afleitt, andlitið alt eins og urriðaroð, en hendurnar hvitar og faliegar. Þá þótti oss gerfi hreppstjórans eigi jafn gott og áður. Fara honum bartarnir ver en alskeggið. Arnes er likur sjálfur sér og mátti þó gerfið vera betra í þriðja þætti. Það er all óeðlilegt að útilegumaður,sem eyð- ir mestum hluta æfisinnar undir beru lofti upp um fjöll og firnindi, skuli ekki vera neitt útitekinn. Hefir Arnes og stundum verið betur leik- inn en á sunnudagskvöldið. Aðalhlutverkin, sem leikurinn stendur og fellur með, léku þau Helgi Helgason og Guðrún Indriða- dóttir eins og fyr. Og um leik þeirra verður að segja hið sama og áður hefir verið sagt, að hann er ágætur, og hreinasta snild i seinaata þætti. Það fór mikið orð af því hvað frú Dybvad lék hlutverk Höllu vel þegar leikurinn var sýndur í Dagmar- leikhúsinu í Kaupmannahöfn. En það segja þeir menn, sem séð hafa leik frú Dybvad og eins leik frú Guðrúnar Indriðadóttur, að hin sið- arnefnda leiki langt um betur i sein- asta þættinum. En öll áhrif leiks- ins eru undir þvi komin að sá þátt- ur sé vel leikinn. Að þessu sinni var sá þáttur svo vel leikinn af þeim báðum, Helga og Guðrúnu, að vér minnumst þess eigi að hafa séð þau leika jafnvel áður. Enda náðu þau föstum tök- um á öUum áhorfendum, með leik sinum. Var eins og allir stæðu á öndinni og voru sumir grátklökkir. NÝ J A BÍ Ó Tia (tprjónarnir gamanmynd. Hautf f)ár Gamanmynd. Aðalhlutv. le:ka John Bunny og Lolotte. Tfhjnair frá Befgíu Belgiski herinn. Drotningin sem hjúkrunarkona. Tleðanjarðarjárnbrauf Fjalla-Eyvindur verður leikinn miðv.daginn 12. þ. mán. í Iðnó kl. 8 síðd. Aðgöngumiða má panta i Bókverzlun ísafoldar. Maður hreifst ósjálfrátt með, gleymdi öllu öðru en þvi, að maður væri uppi á reginfjöllum i litlum og hrörlegum útilegumannskofa, en úti fyrir hamaðist stórhríð — islenzkur blindbylur. Qg það »ar eins og nistingskuldi færi manni um merg og bein og læsti sig inn að hjartarótum, þegar Halla hljóp út í bylinn, vonleysið og ör- væntinguna. Og maður áttaði sig eigi á því að þetta væri alt saman leikur fyr en tjaldið féll. Þá hurfu törfarnir og leikhúsið lék á reiði- skjálfi af lófataki áhorfenda. Tjaldið hófst aftur og Halla og Eyvindur komu fram. Var þá varla nokkur sá, er eigi klappaði og tvisvar urðu þau að koma fram á leiksviðið til þess að þakka áhorfendum fyrir viður- kenninguna. -------------------- Rafsuða á Seyðisfirðl. Úr bréfi frá Sf. — Nú er búið að ákveða rafmagnssuðu hér í sumar og verður stöðin því látin ganga alt árið hér eftir. Vélarnar eru þó ekki svo magnaðar að a 11 u r bærinn geti enn nötað strauminn til suðu, því að suðuáhöldin eru svo straumfrek, en eitthvað um 20 heimili hafa nú skrif- að sig fyrir suðustraum og er það víst það mesta sem þessar vélar geta fullnægt. En það verður sjálfsagt bætt upp á það bráðlega, ef álitið er að það borgi sig. Ráð var gert fyrir þessu þegar stöðin var bygð, nefnil. ætlað rúm fyrir viðbótarvél og vatns- pípurnai, stíflugarðurinn þannig gerð- ur og að litla breytingu þarf að gera, annað en vélakaup. Menn eru alment mjög ánægðir með raflýsinguna og finst hér ekki sá kofi að ekki sé raflýstur. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.