Morgunblaðið - 18.05.1915, Síða 4

Morgunblaðið - 18.05.1915, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ávalt fyrirliggjandi, hjá G. EIRÍKSS, Reykjavík. Einkasali fyrir ísland. Bezta ölið Heimtið það! — o — Aðalumboð fyrir ísland: Nathan & Olsen. Menn gleyma öllum sorsjum þegar menn reykja Special Sunripe Gigarettur! Silfurlands nótt. Skáldsaga um ræningja í ræningjalandi 3 eftir Övre Richter Frich. fulltrúa Noregs á símastaur og láta hann verða þar hrægömmum að bráð, án þess að gera nokkuð til þess að bjarga honum, Eg get eigi betur séð, en að við verðum að vera við því biinir að taka neyðar- kostunum. — Já, en tvær miljónir dala, and- varpaði formaður jafnaðarmanna. Hvað verður þá eftir til þess að efna loforð þau, sem gefin voru við kosningarnar, endurbæturnar miklu. Við sjáum nú þegar í botn á ríkis- fjárhirzlunni og svo bætast þessi út- gjöld við. Hvað munu stjórnleys- ingjar segja? Forsætisráðherrann hristi höfuðið í örvæntingu. — Þetta er þjóðaróhamingja, herr- ar mínir, mælti hann að lokum. En þrátt fyrir hinn sorglega raunveru- leik sögunnar er hún þó næstum kátleg, ef eg mætti svo að orði komast. Það er skylda hvers ráð- herra að láta ekki ræningja stela sér, og stefna ekki föðurlandi sinu í fjárhagsvoða. — — Og sé rétt á litið, þá höfum við meiri þörf þess- ara 2 milj. dala heldur en------------ Hann mælti eigi fleira. Konung- ur hafði hlustað á ræður ráðgjafa sinna með hinni mestu athygli, en greip nú fram í. — Herrar mínir, mælti hann og var mikið niðri fyrir, við skulum ekki gleyma öllu öðru en því að barma okkur. Hér er ekki nema um eitt að velja. Við verðum að senda hinn bezta mann, sem við eigum völ á, til Mexiko, til þess að jafna málið. Og maðurinn verður að leggja af stað þegar í nótt. Hann verður að hafa fult umboð til þess að taka þetta fé að láni og komast að samningum við ræningjana. Og þessi saga má ekki berast lengra. — En maðurinn — hvern fáum við til fararinnar, mælti fjármálaráð- herrann áhyggjufuilur. Við höfum ■ ► UÆI^NA^ Brynj. Bjðrusson tannlæknir, llverílsgötu 14. Gegnir r jálfnr fólki i annari lækninga- r'.c'nnni kl. 10—2 og 4—6. Öll tatitilœknisverk Jratnkvæmd. 7 ennur búnar til og tannqarðar af öllutn (rerðum, og er verðið ejtir vöndun d vinnu og vali d efni. Jón Kristjánsson læknir. Gigt og hjartasjúkdómar. Fysiotherapi. Bókhlöðustíg io, uppi. Til viðtals kl. io—12. Bann, Hér með fyrirbýð eg alla umferð um Bessastaðanes. Sérhver sá sem gerir sig sekan í að ferðast um nefnt nes, skjóta við strendur þess eða láta gripi sína koma þar án míns leyfis, verður lögsóttur að harðasta lagaleyfi. Bann þetta gildir fyrir allan þann tíma sem eg hefi jörðina Bessastaði á leigu. Geir Guðmundsson. Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Sími 497. VÁTííYGGINGAl^ Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabócafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurancc Forening limit Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. A. V. Tulinius Miðstræti 6. Talsími 254. Brunatrygging — Sæábyrgð. Strí ðs vatry ggin g. Skrifstofutími 9—11 og 12—3 Det kgl. octr. Brandassnrance Co. Kaupmannahöfn vátryggir: hus. húsgögn, alls- konar vöruforða o. s. frv. gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjald. Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h. í Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen) N. B. Nielson. Carl Finsen Austurstr. 1, (uppi) Brunatryggíngar. Heima 6 —7^/4. Talsími 331. LfOGMKNN Sveinn Björnsson yfird.lögm. Frfklrkjuveg 19 (Staðastað). Sfmi 202. Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6 Eggert Claessen, yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulega heima 10—11 og 4—5. Sfmi 16. Olafur Lárusson yfird.lögm. Pósthússtr. 19. Sími 215. Venjulega heima 11—12 og 4—3. Jón Asbjörnsson yfid.lögm. Austurstr. 5. Sími 435. Venjulega heima kl. 4—5 Guðm. Olafsson yfirdómslögm. Miðstr. 8. Sími 488. Heima kl. 6—8.___________ Bjarni Þ. Johnson yfirréttarmálaflutningsmaður, Lækjarg. 4. Heima 12—1 og 4—5. Sími 263. nóg af ræðumönnum, en framkvæmd- armenn færri — ja, það er að segja — Eg veit af manni, sem mundi geta ráðið þessu máli til lykta, mælti konungur hægt. Hann er hvorki stjórnmálamaður né leynilögreglu- þjónn. En eg hefi haft tækifæri til þess að athuga hvernig þessi maður hefir tvisvar sinnum látið til sin taka og í hvort tveggja skiftið bjargað þjóðfélaginu frá bráðum voða.------ — Hver er það? Hvað heitir hann? heyrðist hvaðanæfa. — Er hann stórþingsmaður ? mælti forsætisráðherrann. Eða flokkstjórn- maður? — Nei, svaraði konungur gætilega. Það et maður, sem er blátt áfram eins og fólk er flest. Hann er læknir, og heitir Jónas Fjeld. Annar kapituli. Siljurlands nótt. Öll hin mikla mexikanska slétta svaf undir stjörnutjaldinu. Myrkrið lá eins og þykt ullarteppi yfir hinni ómælanlegu vidd. Stjörnuljósið megn- aði eigi að rjúfa myrkrahjúp hita- beltisnæturinnar, sem sveipaði jörð- ina og fól leyndardóma hennar. Það er ekkert eins hljótt hér á jörðu og nóttin suður við hvarfbaug krabbans. Það er eins og andar- dráttur hinnar sofandi náttúru heyr- ist eigi. Alt hvílist í faðmi nætur- innar til þess að safna kröftum fyrir komandi dag.-------Og coyoten, litli sléttuhundurinn, skriður inn í holuna sina og dreymir um rán.------------- — Já — alla dreymir um rán í Mexiko. Landið hefir fengið bölvun fegurðarinnar og auðæfanna í vöggu- gjöf. Öl) saga þess er ræningjasaga, síðan morðinginn hann Fernando Cortez píndi gull og silfur út úr hinum rauðu afkomendum Monte- zumas með glóandi töngum. Aldrei hefir Mexiko notið hvildar. Alt af hafa broddar ágirndarinnar stungið hjarta þess. Það var einusinni maður, sem hélt silfurlandinu i skefjum i heilan mannsaldur. Hann hét Porfirio Diaz og nafn hans verðskuldar það að vera nefnt þegar mestu manna mannkynssögunnar er getið.----------

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.