Morgunblaðið - 28.05.1915, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Hótanir bandamanna.
Fiéttaritari »Lokalanzeiger« í Aþenu-
borg segir svo um mánaðamótin.
Eítir áreiðanlegum fréttum hefi eg
komist að raun um það, að liðssam-
dráttur bandamanna í Hellusundi er
eingöngu til þess ætlaður að hræða
Tyrki. Það er alveg nákvæmlega
sama aðferðin og þeir notuðu í
marzmánuði. Eftir þeirra eigin sögu-
sögn áttu þeir þá yfir 150 þúsund-
um landgönguliðs að ráða og að
þessu sinni þykjast þeir einnig hafa
150 þúsundir. Sannleikurin er samt
sem áður sá, að í marzmánuði höfðu
bandamenn að eins 3 5 þúsundir
hermanna hjá Hellusundi, en nú
hafa þeirdregið þar saman 50 þúsundir.
Þennan her geta þeir aukið í 80
þúsundir, þó eigi með öðru móti
en því að veikja mjög herinn í
Egyptalandi. Meginþorri þess hers,
sem þeir nú hafa þarna, er nýlendu-
lið, sem enginn dugur er í.
Galdra-Loftur.
Fréttasnápur Politikens hefir ný-
lega átt tal við Victor Sjöström
leikara, um nýtt hlutverk, sem hann
hafði þá með höndum. Talið berst
að starfsemi hans í vetur og segir
Sjöström að hann hafi ferðast um
Svíþjóð og leikið »Theodor þreyttac
og »Galdra-Loft*.
— Það eru ærið ólík hlutverk,
segir blaðamaðurinn.
— Já, eigi verður því neitað.
— Hvert þeirra féll yður betur
í geð ?
— Eg hafði mjög mikið ^aman
af því að leika Theodor, en eg vil
þó langt um heldur leika Loft.
Þjóðverjar geta ekki lánað
meira lið.
Brezkur rithöfuudur, Hilaire Belloc,
sem hefir ritað mikið um ófriðinn,
segir í blaðinu »Land and Water«,
6. þ. m. að ef Ítalía lendi í ófrið-
inum muni þeir þegar í stað senda 1
miljón hermanna gegn Austurríki.
Hann kveður ítali hafa nógar fall-
byssur og tiltölulega miklu meiri
skotfærabirgðar en heri hinna stór-
veldanna. Að líkindum mundi her
þeirra mæta einhverri mótáþyrnu
fyrst í stað, en svo mikils liðsmun-
ar mundi kenna, að ítalir|gætu brot-
ist inn í landið. Segir Belloc, að
ekki geti hjá því farið, að ófriðurinn
muni taka miklum stakkaskiftum ef
ítalir hefjist handa. Austurríki verð-
ur fyrir fyrsta skellinum. Þjóðverjar
munu ekki senda her á móti Itöl-
um, því þeir geta ekki lánað Aust-
urríkismönnum meira lið.
------ D AGBÓRIN. E=3
Afmæli í dag:
Sigríður Björnsdóttir, jungfrú.
Sigríður Clements, húsfrú.
Ásgr. Eyþórsson, kaupm.
Einar Gunnarson, ritstj.
Guðm. Oddgeirsson, bankam.
Lárus Hjaltested, bústjóri.
Kristján V. Guðmundsson, verkstjóri.
T u n g 1 f u 11 8.35. e. h.
Sólarupprás kl. 2.41 f. h.
S ó I a r 1 a g — 10.11 síðd.
HáflóS í dag kl. 4.5
og í nótt — 5.29
Veðrið í gær:
Vm. logn, þoka, hiti 7.4.
Rv. s. andvari, regn, hiti 8.7.
ísaf. v. stinningskaldi, hiti 10,0.
Ak. s. kaldi, hiti 13.0.
Gr. s. kul, hiti 9.6.
Sf. s.v. gola, hiti 11.9.
Þórsh., F. v. kaldi, hiti 8.0.
Lækning ókeypis kl. 12—1 í
Austurstræti 22.
Eyrna-, nef- og hálslækning ókeyp-
is kl. 2—3 Austurstr. 22.
Póstar á morgun:
Ingólfur til Akra og kemur þaðan
aftur.
Pollux á að koma norðan um land
frá Noregi.
Ól. Ólafsson kaupmaður, eigandi
H. P. JDuus verzlunar hér í bænum,
kvað liggja mjög veikur suður í Kaup-
mannahöfn, þar sem heimili hans er.
Flora kom til Seyðisfjarðar i fyrra-
kvöld. Hafði Pollux beðið þar eftir
Flóru til þess að taka við farþegum,
sem norður ætla að fara; en Flora
heldur beina leið til Noregs.
Rán, Baldnrog Maí komu í gær af fisk-
veiðum austan af Hvalbak fullfermdir
af ágætis fiski.
Snorri goði og Marz komu af fisk-
veiðum i gær og höfðu aflað ágætlega.
Kolaverð lækkaði um 55 aura
sk.pundið í gær, úr 8.75 kr. niður í
kr. 8.20.
Ólafur læknir Finsen á Akranesi
og kona hans, hafa orðið fyrir þeirri
sorg að missa lítinn dreng, sem þau
áttu, Bjarna að nafni. Hann dó á
fimtudaginn.
Ólafur Árnason kaupmaður var
fluttur hingað til bæjarins í gær-
morgun frá Eyrarbakka. Hafði hann
degi áður tekið sjúkdóm, sem kvað
vera mjög sjaldgæfur — kyrtlabólga í
lífinu. Konráð hóraðslæknir Konráðs-
son flutti Ólaf hingað, fyrst á fjór-
hjóluðum vagni niður á Hveravelli, en
f bifreið þaðan hingað. Gat sjúklingur-
inn setið uppi í bifreiðinni, en morfin
varð hann að fá til þess að lina kval-
irnar. Guðm. prófessor Magnússon gerði
þegar holskurð á Ólafi. Gekk hann
mjög vel, en eigi mun þó Ólafur úr
allri hættu.
Jarðskjálftakippur allsnarpur varð
hór í bænum í gær kl. tæplega 2.
Júliette,
Nýja Bio hefir undanfarin kvöld
sýnt óvenju fagra mynd, sem Julietta
heitir. Er það eigi svo mjög efnið,
heldur »rammi« myndarinnar, sem
hlýtur að vekja aðdáun allra. — Vér
*minnumst þess eigi að hafa séð fyr
á kvikmynd jafn mikla náttúrufegurð
og birtist manni á þessari mynd.
Er það og sizt að kynja þar eð hún
er leikin í þeim héruðum er fræg-
ust eru fyrir fegurð i Evrópu —
Suður Frakklandi og Sviss. Það
eykur og eigi lítið prýði myndar-
innar, að hún er öll með eðlilegum
litum. Fegurstur þykir oss sá kafli
myndarinnar er sýnir ferðalagið um
Sviss, ýmist uppi undir jökulkrýnd-
um fjallatindum eða niðri í skrúð-
grænum dölum, þar sem árnar henda
sér i fossum stall af stalla en til
beggja handa standa hávaxin tré,
sem lauga laufkrónur sínar i foss-
úðanum.
Bio-unum er oft legið á hálsi fyr-
ir það að þau sýni lélegar myndir.
Það getur vel verið rétt. En vér
sjáum eigi betur en að þau eigi
þakkir skilið þegar þau sýna jafn
fagrar myndir og Juliette er.
Uppreisn í Tripolis.
í vetur hafa sífeldar smá-uppreisnir
verið í Tripolis og hafa ítalir haft
talsvert lið þar syðra.
Snemma í þessum mánuði var her-
sveit send frá Sirte gegn uppreisnar-
mönnum, sem voru skamt þaðan í
burtu. í hersveit þessari voru 800
hvitra hermanna og 5600 innfæddra
manna. Er í bardagann kom, gerð-
ust 4000 hinna innfæddu manna lið-
hlaupar og gengu i lið með upp-
reisnarmönnum. Fluttu þeir með
sér fallbyssur, úlfalda og allskonar
hergögn. Tók nú bardaganum að
halla á ítali, og hörfuðu þeir undan.
Féllu af þeim 19 foringjar, en 43
særðust. Af liðsmönnunum féllu
300—400 manns.
ítalir segja að uppreisnir þessar
séu að kenna þýzkum sendlum, er
sitji þar suðurfrá hjá höfðingjum i
Afriku og æsa þá upp gegn yfirráð-
um hvítra manna.
Stjórnin sendi þegar i stað nýtt
lið suður eftir.
Þeir, sem þurfa að t-rúka timbur
seinnipart sumars og í haust, ættu
að tala við undirritaðan áður en
„ Guflfoss"
fer, nú um mánaðamótiO'
ftrtti Jónssort,
Sími 104. Laugavegi 37. Simi 104*
■■■!■■■
Tilbúinn
áburður
fæst hjá
Jes Zimsen.
beztar og ódýrastar hjá
Glausensbræðrum.
Boltar
nýkomnir til
Jóns Hjartarsonar
& Co.
Hafnarstræti 4.
Skófatnaður
beztur
hjá
Clausensbræðruni'
Líkkistur
fást vanalega tilbúnar á
Hverfisgötu 40. Sími
Helgi Helgason.