Morgunblaðið - 03.06.1915, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.06.1915, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ávalt fyrirliggjandi, hjá Grasfra fæst hjá Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. G. EIRIKSS, Reykjavík. Einkasali fyrir ísland. 5 duglega verkamenn og 1 matsvein vantar í förina til Jan Mayen. Semjið viö Jörg*en J. Hansen, hjá Jes Zimsen. Rokstad skálinn í Hamrahlíð er til solu með mjög góðu verði. Sem- jið sem fyrst við eigandann Emil Rokstad Bjarmalandi. „Sanifas‘ er eina Gosdrykkjaverksmiðjan á íslandi sem gerir gerilsneydda Gosdrykki og aldina safa (saft) úr nýjum aldinum. Sími 190. Óskari Halldórssyni Klapparstíg 1 B. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Sími 497. Ullar-prjóna- tuskur keyptar hæzta verði gegn peningum eða vörum Vöruhúsinu. H.f. ,Nyja lðunn( kaupir ull og allskonar tuskur fyrir hæsta verð. VÁTfjYGGINÖAÍi Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. DÖGMKNN Sveinn Björnsson yfird.lögm Frlklrkjuveg 19 (Staðastað). Slmi 202. Skriístofutími kl. io—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6 Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabócafélag. Den Kjöbenhavnske Söassurauce Forening limn Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. A. V, Tulinius Miðstræti 6. Talsími 254. Brunatrygging — Sæábyrgð. Strí ðs vatr y ggin g. Skrifstofutími 9—n og 12—3. Eggert Claessen, yfirréttarmála- fiutningsmaður Pósthússtr. 17, Venjulaga haima 10—II og 4—5. Simi 16. Olafur Eárirsson yfird.lögm. Pósthússtr. 19. Sími 215. Venjulega heima 11 —12 og 4—$. Det kgl octr. Brandassurance Co. Kaupmannahöfn vátryggir: hus, húsgögn, alls- konar vöruforða 0. s. frv, gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjaid. ' Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h. í Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen) N. B. Nielseu. Jón AsbjÖrnsson yfid.Iögm. Austurstr. 5. Sími 435. Venjulega heima kl. 4—^/a. Guðm. Olafsson yfirdómslögm. Miðstr. 8. Sími 488. Heima kl. 6—8. Bjarni 1». Johnson yfirréttarmálaflutningsmaður, Lækjarg. 4. Heima 12—1 og 4—5. Sími 263. Carl Finsen Laugaveg 37, (uppi) Brunatryggingar. Heima 6 x/4—7 7*. Talsími 331. Silfurlands nótt. Skáldsaga. nm ræningja í ræningjalandi 11 eftir Övre Richter Frich. Framh. Þá sást á litið trýni út úr rottu- gatinu og t^ö lítil augu skygndust um herbergið. Það var eins og aug- un stækkuðu þegar þau sáu molana. Rottan skreið fram úr holunni og réðist á molana — reif þá i sig með afskaplegri græðgi. —------ Svo sneri hún sér við til þess að láta félaga sina vita um þennan ágæta mat.---------- Það var seinasta drengskaparbragð hennar.-------Hún valt út af, spark- aði ofurlítið með löppunum og lá svo grafkyr. — — — — Sjáðu Natascha, mælti Delma. Þeir hafa ekki einungis skothylki og knífa, en einnig launbólf fyrir launvopnin. — — Mér þykir kaffi gott, en eg kæri mig ekkert um stryknin. Og um leið sópaði Delma kaffibollunum ofan af borðinu, þreif upp marghleypu sína og réðist á mexikanska liðsforingjann. Sjötti kapítuli. Marqhleypa í karlmannshcndi. Hvaða vopn er hættulegra í hendi hugrakks manns heldur en marg- hleypa ? Og nú réðist Jacquez Delma, hinn alræmdi stjórnleysingi, einn á móti heilli sveit mexikanskra her- manna, sem allir höfðu alvæpni. En Frakkinn vissi hvað hann fór. Hann vissi að ekkert gat komið þessum hálfviltu mönnum meira að óvörum heldur en fifldirfska. Líf hans lék nú á þræði, en sumum mönnum er nú þann veg farið, að þeir vilja heldur deyja en láta þá menn, sem þeir hata, svínbeygja sig. Natascha reis á fætur. Hún var föl, en i augum hennar mátti lesa aðdáun fyrir manninum, sem stofn- aði sér i svo tvísýna hættu. Hún vissi hvað hún átti að gera. Hún hafði tvær marghleypur og í þeim fimtán skot handa óvinunum og eitt handa sjálfri sér. Liðsforinginn stóð kyr og gapti af undrun, en froða vall um munn- vik hans.--------Það var eins og dauðþreyttur hundur, sem fitjar upp á trýnið og urrar áður en hann bítur. — — — Enginn hreyfði sig. — — Það var steinhljóð inni. — — Allir horfðu á hinn litla mann, sem kom gangandi yfir gólfið. — — Þá kvað við skot, hást og grimdarlegt, eins og urr í tígrisdýri.----------- Það var eins og allir vöknuðu af svefni. Urðu nú þau köll og óhljóð þarna inni, eins og mörgum villu- dýrum hefði lent þar saman. Mexi- kanarnir þvældust hver fyrir öðrum, því allir vildu ná til vopna sinna. ------Hvar voru byssurnar? Mitt á meðal þeirra stóð Rodri- guez liðsforingi. Hann hafði dregið sverð sitt úr sliðrum, en þar við sat. Hann bablaði eitthvað og teygði sig á tær. Svo lokaði hann augun- um og hneig niður. — — Blóð lagaði úr brjósti hans. Þegar púðurreykurinn var horfinn voru þau einnig horfin Delma og Natascha. Þau höfðu þrifið ferða- töskur sínar og þotið út á stöðvar- stéttina. í húsagarði stóð hesturinn hans Gonzales enn og beið.----------Það var ljótur og horaður jálkur með ákaflega stórum eyrum. Delma stökk á bak og setti Nat- ascha fyrir aftan sig. Farangurinn hengdi hann yfir hnakknefið.------ Klárinn frísaði af ánægju, sneri sér við og fór á spretti upp stigana, sem lágu til fjallanna. Hann þráði augsýnilega að komast aftur á hag- ana hjá hinni helgu lind. Það mátti ekki síðar vera. Að baki sér heyrði Delma öskrin í Mexikönunum, sem reyndu að ná hestum sínum með snörum. Þeir sendu nokkur skot á eftir flótta- mönnunum, en Mexikanar eru eng- ar skyttur. Kúlurnar þutu fram hjá þeim Delma og hesturinn hans Gonzalez, sem oft hafði heyrt kúlu- þyt áður, jók rásina sem mest mátti hann. — — Það var alveg ótrúlegt hvað skepnan gat hlaupið hratt og það voru engar líkur til þess að hermennirnir mundu nokkurn tíma ná flóttamönnunum.----------- Hitinn var næstum óþolandi. Hann hvíldi yfir sléttunni eins og þykkur feldur. Það bærðist eigi hár á höfði og sólin var hæst á lofti. Hermennirnir hættu eftirreiðinni. Morgunverðurinn beið þeirra og svo var alt of heitt úti.-----Bara að útlendi hundurinn deyi úr hungri og þorsta I---------

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.