Morgunblaðið - 11.06.1915, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
COBRfl
ágÆta skósverta og skóáburðnr fæst hjá kaupmönn-
um. í heildsölu hjá
G. Eirikss, Reykjavík.
Einkasali fyrir ísland.
2 háseta
vantar á seglskipið »Dagny«, sem fer héðan til Kanada eftir nokkra daga.
Menn snúi sér til
O. Johnson & Kaaber.
Nleð s.s. Steriing
komu nýjar birgðir af stubbasirtsum
í verzL á Frakkastíg 7,
sem, þrátt fyrir verðhækkun, eru seld með sama verði og áður,
á kr. i. 5 S pr. */a kg-
„Sanifas'
er eina Gosdrykkjaverksmiðjan á íslandi
sem gerir
' gerilsneydda Gosdrykki og aldina-
safa (saft) úr nýjum aldinum.
Sími 190.
Silfurlands nótt.
Skáldsaga
nm ræningja í ræningjalandij
18 eftir
Övre Richter Frich.
Framh.
— Areiðanlegan ?
— Já og þá áleit ráðherrann að
þú mundir veia bezt til þess fall-
inn. .
— Hvert ætlar maðurinn að fara?
— Hann þarf að finna Emiliano
Zapata fyrir 24. marz. Þú skilur?
— Er hann með féð meðferðis?
— Það veit eg ekki. En hann
kom einn og bað um áreiðanlegan
fylgdarmann.
— Og ráðherrann-----------?
— Vísaði honum á þig — vegna
þess að þú kynnir dálítið i ensku
og værir heiðarlegur maður.
Þá greip Fernando Lopez »pulque«
krúsina og þeytti henni i gólfið svo
brotin fuku í allar áttir. Og þegar
hann hafði gert það sló hann á lær-
ið og grenjaði. Þá vissu þeir sem
inni voru að nú hló afspringur
Lopez ofursta.
Og svo hlógu þeir einnig.
Tíundi kapítuli.
Fiðvörun.
Flestar stærstu borgir heimsins
hafa tekið í arf einhverja mjóa og
þrönga götu, sem liggur alveg inn
að hjarta þeirra. London á Fleet
Street, Berlín Friedrichstrasse og
Mexiko City Calle Francisko.
Það eru margar götur fegurri en
þessi mjóa verzlunaræð i höfuðborg
Mexikos. En engin er einkennilegri
eða ríkari.
Engin hefðarmær í París er skraut-
klæddari en heldur en hinar fögru
mexikönsku konur og engin Lund-
únadandy kemst í hálfkvisti við
æskulýð silfurlandsins i klæðaburði.
Og lengi verður að leita áður en
maður finnur annað eins óhófígulli
og gimsteinum eins og hér i Callfe
Francisko, þar sem stórborgarbragur
Mexikos brosir við manni frá þús-
und uppljómuðum gluggum. Allar
tungur óma manni í eyrum.
Þar eru þýzk veitingahús, frönsk
brauðgerðarhús, ameríkskar krár og
ítölsk kaffihús — verzlunarinnar
Babylon, sem fær mann til þess að
gleyma því að maður er í byltinga-
þreyttu landi. —---------
Tveir háir og ljóshærðir menn
ruddu sér braut gegn um þyrping-
1^^»* DOGMENN
Sveinn .Bjornsson yfird.iögm.
Frlklrkjuveg 19 (Staðastafl). Sfmi 202,
Skrifsto/utimi kl. 10—2 og 4—6.
Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6
Eggert Claessen, yfirréttarmála-
fiutningsmaður Pósthússtr. 17.
VenjuNya heima 10—11 og 4—5. Sfmi IS,
Olafur Lárusson yfird.Iögm.
Pósthússtr. 19. Sími 215.
Venjulega heirna 11 —12 og 4—5.
Jón Asbjörnsson 5’fid.lögm.
Austurstr. 5. Sími 435.
Venjulega heima. kl. 4—51/,.
Giíðm. ölafsson yfirdómslögm.
Miðstr. 8. Simi 488.
Heima kl. 6—8.
U lla r-prjóna-
tuskur
keyptar hæzta verði gegn peningum
eða vörum
Vftruhúsinu.
Appelslnur
ágætar
Eiiars Áraasonar.
%
una á götunni. Annar var grannur
og á andliti hans mátti sjá að hann
hafði dvalið í mörg ár i hitabeltinu.
Hinn var ákaflega kraftalega vax-
inn, svo það hlaut að vekja eftir-
tekt hvarvetna. Hálsinn og herð-
arnar báru vott um feikna mikinn
líkamsþrótt. Á andliti hans var eng-
inn ákveðinn svipur. ímyndun og
reynsla blandaðist þar saman i hinu
mesta ósamræmi. Ósveigjanleg harð-
neskja og blíða stóðu skráðar ljósum
rúnum í andlitsdrættina. Augu hans
leifruðu — eins og augu þess manns,
sem á mikið og vandasamt starf
fyrir höndum.
Þeir námu stað úti fyrir stóru og
uppljómuðu húsi.
— Hér er það, mælti annar þeirra.
Þetta er veitingahöllin okkar. Það
eru margir menn í Mexiko sem ó-
gjarna geta verið án »Back«. Menn
snæða vel hér, mitt á milli tveggja
stjórnarbyltinga.-------—
— Þér haldið þá að —-------------
— Auðvitað. Hér urðu ráðherra-
deilur í gær. Á morgun verður
stjórnarbylting. Þér megið reiða
yður á það. Þingræðið í Mexiko
er einstakt í sinni röð. Því er oft
haldið uppi með marghleypum og
snörum, þegar mælskan bregst. Þér
komið hingað á óheillastundu, Fjeld
VÁTrjYOGINGÆF^
Vátryggið tafarlaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The Brithish
Dominion General Insurance Co.Ltd-
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
Vátryggið íijá:
Magdeborgar brunaböcafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit. Aða’umboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
A, V. Tulinius
Miðstræti 6. Talsími 254.
Brunatrygging — Sæábyrgð.
Str í ðs vatry ggin g.
Skrifstofutími 9—11 og 12—3.
Det kgl octr. Brandassnrance Co.
Kaupmannahöfn
vátryggir: hus, húsgögn, alls-
konar vöruforða o. s. frv. gegn
eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.
Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h.
i Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen)
N. B. Niolsen.
Cari Fmseu Laugaveg 37, (uppi)
Brunatrygfgingar.
Heima 6 —7 */4. Talsími 331.
Reykið
að eins:
,Cf)airman‘
og ,Uice Cf)air,
Cigarettur.
Fást i öllum betri verzlunum.
læknir. Á morgun eru allar járn-
brautarstöðvar lokaðar og gerðar að
vígjum. Þér verðið að láta yður
nægja með vígi mitt í Calle de
Flamencos.
— Eg er yður mjög þakklátur,
Fossum ræðismaður, en eg verð að
komast burtu úr borginni á einn
eður annan hátt.
Ræðismaðurinn ypti özlum.
— Ekki vildi eg vera í yðar spor-
um, mælti hann. Mannslífið er
ekki tveggja aura virði hér í Mexiko
þegar stjórnarbylting hefst. Hérna
hjá mér eruð þér héi um bil óhult-
ur. Við höfum þrjár byssur og
nógan mat i kjallaranum. En nú
skulum við koma nér inn. Þetta
verður seinasta hátíðarkvöldið hér f
Mexiko City nú um langa hríð.
Þeir gengu inn í hina stóru og
skrautlegu veitingahöll. Þar var fuR
af fólki og hljóðfærasveitir léku
»tango«. Inst inn í horni fundu
þeir að lokum sæti við borðjeitt og
sat þar aðeins einn maður fyrir.
Það var einkeunilegur bragur ^
þessu veitingahúsi. Það small við'
stöðulaust í kampavínstöppunum
hlátur kvað við frá hverju borði.