Morgunblaðið - 12.06.1915, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
í verzlun
Björns Guðmundssonar
fæst meðal annars:
Fiskibollur, Lax, Rjúpur, beinlausir Fugiar, Hakkað Boeuf, Kæfa, ,
Leverpostei, Grænar baunir, Sniðbaunir, Vaxbaunir, Tomater, Asparges,
Ávextir í dósum og Sultutau, Fisksósa, Tómatsósa, Asíur og Pikles.
Sírop og Sinnep. Ostar góðir og ódýrir.
Þvotta- og handsápur, og ágætt þvottaduft.
Brent og óbrent kaffi og könnuexportið.
6 tegundir af öli og nóg af gosdrykkjum.
Sæt saft innlend og útlend og m. m. fl:
Góðar og ódýrar vörur sendar til kaupenda, hvar sem er í bænum.
Sími 384.
C=3 DAGBÖRIN. =3
Afmæli f dag:
Elina Sveinsson, ekkjufrú.
M. J. Krogh, húsfrú.
Sigrún Sigurðardóttir, jungfrú.
Stefanía Hjaltested, húsfrú.
Þóra Jónsdóttir, húsfrú.
Þórunn Jónassen, ekkjufrú.
Jón Magnússon, skipstjóri.
Brynj. Jónsson, pr. Ólafsvöíl. 65 ára.
Pótur Jónsson, pr. Kálfafellst. 65 ára.
N ý 11 tungl kl. 5.57 síðd.
Sólarupprás kl. 2.10 f. h.
Sólarlag — 10.46 sfðd.
Háflóð í dag kl. 5.16
og f nótt — 5.33
Veðrið í gær:
Vm. v. kul, hiti 7.7.
Rv. s.v. kul, hiti 8.0.
Ísaf. s.v. kaldi, hiti 7.0.
Ak. s. kaldi, hiti 11.0.
Sf. s.v. hvassvirði, hiti 10.3.
Þórsh., F. v.s.v. hvassviðri 9.5.
Póstar í dag:
Ingólfur til Grindavíkur.
Botnia á að fara til útlanda.
A m o r g u n :
Ingólfur frá Grindavfk.
Keflavíkurpóstur kemur.
Messur í dómkirkjunni á morgun
kl. 12, síra Bjarni Jónsson (ferming
og altarisganga). Kl. 5 síra Jóh.
Þorkelsson.
Fermd verða á morgun í dómkirkj-
unni þrjú börn, sem eru bæði heyrnar-
laus og mállaus.
Messur á morgun < Frfkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 12, síra Ól. Ólafsson,
í Fríkirkjunni f Reykjavík kl. 5, síra
Ól. Ólafsson.
Skipakomur:
O 1 g a, danskt skip með cement til
O. Johnson & Haaber; kom hingað á
fimtudag.
C h r i s t i a n, danskt skip með kola-
farm til Chouillon; kom í fyrradag.
Norden, kolaskip til Mr. Cop-
land; kom í fyrradag.
H e r e d i a , kolaskip, sem Timbur-
og Kolaverzlunin hefir haft á leigu
undanfarið; kom hingað í fyrradag
með kol til Gasstöðvarinnar.
S k j ö 1 d u 1 f, flutningaskip, kom
hingað f fyrradag sem snöggvast. Fór
þegar aftur áleiðis til Vestfjarða.
Þinglesin afsöl:
10. j ú n í.
1. Skiftaforstjórarnir f dánaibúi Guð-
jóns Sigurðssonar selja 8. þ. m.
Oddfellewstúkunni Ingólf nr. 1,
húseignina nr. 14 viö Hafnar-
stræti.
2. Jóhann Jóhanneson selur 12. febr.
1913 Olafi Guðnasyni húseignina
nr. 29 B við Njálsgötu.
3. Guðmundur Stefánsson selur 21.
f. m. hlutafólaginu Kveldúlfi 79,7
fermetra lóð af húslóð sinni nr.
15 við Lindargötu.
Niðursoðið kjöt
írá Beauvais
þykir bezt á ferðalagi.
Sviss.
Það Iand hefir ekki verið öfunds-
vert af legu sinni siðan ófriðurinn
hófst. En nú hefir þó versnað stór-
um síðan Ítalía skarst í leikinn. Er
það nú eins og lítil eyja í storm-
æstu hafi, því alt um kring eru
ófriðarlönd. Þó hafa blöðin þar tek-
ið rólega þessum nýju erfiðleikum.
Þeim farast svo orð:
Ófriðurinn milli ítaliu og Þýzka-
lands-Austurríkis mun hafa mjög
mikilsverðar afleiðingar fyrir land
vort. En það er skylda vor að taka
þeim með jafnaðargeði. Að minsta
kosti hefir ófriðurinn kent oss það,
að gera jafnan ráð fyrir þvi, sem
að höndum qœti borið. Nú er Sviss
umkringt af ófriðarþjóðum. Fyrst
og fremst leggur það oss á herðar
nýjar herskyldur. Nú þarf varnarlið
að vera á suðurlandamærunum, eigi
minna en á hinum landamærunum —
en þar hafa áður verið að eins 4000
manns fyrir til landamæragæzlu.
Það hefir eigi einungis áhrif á
landvarnir vorar að Ítalía tekur nú
þátt i ofriðnum, heldur einnig á
allan aðflutning lifsnauðsynja. Fyrst
um sinn mun óhætt að gera ráð
fyrir þvi, að allar samgöngur við
ítaliu verði teptar. En á hinn bóg-
inn þykjumst vér þess fullvissir,' áð
þegar Ítalía hefir komið föstu skipu-
lagi á allan sinn her, muni hún
veita oss hina sömu vingirni og
aðrar ófriðarþjóðir hafa gert um
margra mánaða skeið. Samt sem
áður verða menn nú alvarlega að
gæta hófs í notkun lifsnauðsynja.
Og svo koma þau áhrif, sem þetta
hefir á fjárhag vorn. Kostnaðurinn
við liðsútboð mun aukast um helm-
ing og landarnæra-varzlan mun hækka
úr 300 í 400 miljónir franka eða
meira.
Italíukomingur.
Viktor Emmanuel, hefir’sjálfur tek-
ið að sér yfirherstjórn flota og hers.
Frændi konungsins, hertoginn af
Genua hefir tekið við ríkisstjórn á
meðan konungur er í hernaðinum.
Kennaraembættið
i heimspeki viB háskólann í Kaup-
mannahöfn.
Siðan prófessor Höffding lét af
því embætti hefir mikið verið um
það rætt, hver koma ætti í hans
stað. Voru þeir einir sex eða sjö
sem sóttu um það, en þeir, sem
næstir stóðu og mest hefir verið
deilt um hvort hljóta skyldu em-
bættið, eru þeir Dr. Anton Thom-
sen og Dr. Starcke. Féllu atkvæði
fyrst jafnt á milli þeirra.
Nú er það mál þó að líkindum
útkljáð. Að minsta kosti telur Poli-
tiken 1. júní engan efa á þvi að
Dr. A. Thomsen verði veitt embættið.
D’Annunzio.
Engum einum manni er það meira
að þakka — eða kenna — að Ítalía
hófst handa gegn fyrri bandamönn-
um sínum, heldur en skáldinu
Gabriele d’Annunzio. Hann ferðaðist
um landið þvert og endilangt og
og hélt hverja æsingaræðuna á fæt-
ur annari. Og þótt stjórnin reyndi
sem lengst að gæta hófs og miðla
málum á friðsaman hátt, þá fékk
hún eigi rönd við reist ákafa lýðs-
ins, sem fylgdi d’Annunzio að mál-
um.
Franska blaðið »Le Matin« skýrir
frá því i símskeyti frá Rómaborg,
að d’Annunzio ælti að gerast sjálf-
boðaliði í sjóhernum. Þar er elzti
sonur hana liðsforingi, en tveir aðr-
ir synir hans eru liðsforingjar f stór-
skotaliðinu. D’Annunzio var áður
liðsforingi i riddaraliðinu.
Eugen erkihertogi
er skipaður yfirhershöfðingi liðs þess,
sem Austurrikismenn senda gegn
ítölum. Hann er talinn einn hinn
bezti hershöfðingi, sem Austurrikis--
menn hafa á að skipa.
Yíirlýsing.
Reykjavík, 10. júní 1915.
Til ritstjóra Morgunblaðsins
Reykjavík.
í Morgunblaðinu frá í dag, birtið
þér, herra ritstjóri, aftan við yfirlýs-
ingu mina i gær útaf árás á Thore-
félagið, samtal við Sæmund Halldórs-
son kaupmann i Stykkishólmi.
í Samtali þessu tekur S. H. það
fram, að umboðsmaður hans i Kaup-
mannahöfn, firmað Chr.-Nielsen,
hafi skrifað honum, að því hafi ver-
ið neitað um rúm i Sterling — af
þvi skipið væri fullfermt. — Jafn-
framt tekur S. H. það fram, að
beiðni Chr. N. um vöruflutninginn
hafi átt sér stað sama daginn sem
Sterling kom til Hafnar frá Reykja-
vík.
Af því auðsætt er, hversvegna
þetta er tekið fram, skal eg upplýsa,
að alt rúm i Sterling fyrir næstu
ferð, þ. e. þá ferð sem S. H. á við,
var fyrirfram pantað áður en skipið'
kom til Kaupmannahafnar og enn-
fremur, að annað firma í Stykkis-
hólmi, sem er vant að fá vörur
sinar með Sterling, i þetta sinn
heldur ekki gat fengið þær fluttar
af sömu ástæðu og S. H.
Að losnaði rúm fyrir 10 tons af
vörum, degi áður en Sterling fór frá-
Höfn, er mjög trúlegt, þvi það kem-
ur þráfaldlega fyrir, að kemur til-
kynning á elleftu stundu til skrií-
stofunnar i Kaupmannahöfn um að
að vörur fari eigi með, sem pantað'
hefir verið rúm fyrir fyrirfram.
Þessa yfirlýsingu krefst eg að
Morgunblaðið birti á laugardag eða
mánudag næstk.
Virðingarfylst
Ó. Benjamínsson
afgreiðslum. Thorefélagstns-