Morgunblaðið - 15.06.1915, Qupperneq 1
í»riðjudag
15.
Jání 1915
HORGDNBLADID
2. ar£angr
220.
tðiublað
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
Isafoldarprentsmiðja j Afgreiðslusími nr. 499
Trá Temijjum.
Feneyjar (Venedig) er einhver fegursta borg í heimi og áreiðanlega
hin einkennilegasta sem til er. Hún er reist á ótal smá hólmum og þar
eru ekki götur sem i öðrum borgutn, heldur eintóm síki og skurðir.
Fara menn þar efdr á bátum.
í Feneyjum eru íjölmörg listasöfn og dýrindis byggingar. Meðal
hinna fegurstu er Markúsarturninn og furstahöllin, sem sjást hér á mynd
inni. Það verður Itölum óbætanlegt tjón ef austurríkskir flugmenn gera
mikinn usla í Feneyjum á herförum sínum þangað.
Rin Reykjavtknr Dlfl
UIUI Biograph-Theater P«U
Talslmi 475.
Presturinn.
»Karakter«-sjónleikur í 5 þátt.
eftir P. Lykke-Seest.
Aðalhlutverkin leika
Carlo og Clara Wieth,
og frægasti leikaii Noregs
Egil Eide.
Aðgm. kosta: 50, 35 og 15 au.
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
— Bezta dag- og kvöldkaffé. —
Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9— 111/3
Conditori & Caíé
Skjaldbreiö
fegursta kaffihús bæjarins.
Samkomustaður allra bœjarmanna.
Hljómleikar á virkum dögum kl.
‘9—11 ^/2, sunnudögum kl. 5—6.
A.V. Mikið úrval af áqætis kökum.
Ludvig Bruun.
Jarðarför konunnar Kristjönu Kristó- I
fersdóttur fer fram frá Landakots- 1
spitala kl. I ’/2 miðvikudaginn 16. I
þessa mónaðar.
I i fjarveru manns hennar,
Sæunn Jónsdóttir.
Alúðarþakkir vottum við öllum þeim
sem á einn eða annan hátt hafa
auSsýnt hluttekningu við legu, frá-
Jall og jarðarför Ragnheiðar sál.
JJögnvaldsdóttur.
Reykjavik 15. júni 1915
Aðstandendur hinnar látnu.
AJs. Gerdt Meyer Brmm, Bergen
býr til síldarnet, troll-tvinna,
Manilla, fiskilínur, öngultauma
°g allskonar veiðarfæri. Stærsta
ýerksmiðja Noregs í sinni röð.
Arleg framleiðsla af öngultaum-
Utn 40 miljón stykki. Verð
°g gæði alment viðurkend.
^stellini’s ítalska hamp netjagarn,
flhr- og fimm-þætt, með grænum
roiða við hvert búnt, reynist
eftir ár langbezt þess netja-
garns er flyzt hingað.
|
e’ldsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eirikss, Reykjavík.
Erl. slmfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn 14. júní.
Önnur orðsending Bindaríkjanna
til Þjóðverja hefir nú verið birt opin-
berlega. Muo hún naumast valda
friðslitum milli Þjóðverja og Banda-
ríkjamanna.
Þjóðverjar og Austurríkismenn
hafa hafið ákafa sókn að nýju í Gali-
ziu og gengið vel sumstaðar. Aust-
uiríkismenn hafa vaðið inn í Bessara-
bíu (hérað syðst og vestrst á Rúss-
landi).
Rússar hafa unnið sigur hjá Zur-
awno og handtekið þar 16000 her-
menn.
Eldsneytið.
Út af grein i næstsíðasta »Morg-
unbl.« leyfi eg mér að minna á eitt
atriði, sem mér þykir vert að sé at-
hugað.
í fyrra hvatti borgarstjóri með
auglýsingu i blöðunum bæjarmenn
til þess að taka upp mó sér til elds-
neytis. Lítill held eg að árangur
hafi orðið af þeirri hvatningu, og
væri þvl full ástæða til að endurtaka
hana nú og jafnframt gera það, sem
þá hefði átt að gera, nefnilega það,
að borgarstjóri eða fátækranefndin
beittu sér fyrir framkvæmdum í þessu
efni. Eg efast ekki um, að mótak
mundi borga sig, ef það væri fram-
kvæmt á réttan hátt, og því verki
stýrt með ráðdeild. Um mótak hefir
verið nokkuð ritað, og minnist eg
sérstaklega ritgerðar eftir Asgeir efna-
fræðing Torfason. Honum væri
treystandi til að láta í té gagnlegar
upplýsingar um þetta efni, og fleiri
eru þeir víst, sem fúsir væru til að
benda á hvernig þessu verki skuli
haga, svo það verði arðberandi.
Að eg minnist á að borgarstjóri
og fátækranefndin beiti sér fyrir
málið, kemur til af þv:, að mótak
er fremur kostnaðarsamt einstakling-
um. En sú nefnd ætti að þekkja
bæði menn og konur sem óhægt
eiga með erfiða vinnu og eru þurfa-
lingar, en sem þó gætu máski duudað
við að þurka móinn (og pressa, ef sú
aðferð er höfð), ef að eins væri séð
fyrir hæfilegum verkamönnum við
að taka móinn upp.
Og um eitt langar mig til að
spyrjast fyrir:
Er ekki hægt með einfaldri og
ódýrri aðferð að nota koltjöruna úr
Gasstöðinni til uppkveikju, t. d. með
því að blanda henni saman við mó,
i stað þess, eins og sagt er, að láta
hana til einkis gagns renna i sjóinn?
Er enginn af visindamönnum vor-
um fær um að leysa úr þessu svo
að gagni komi ?
A þessum erfiðu tímum verður
hugvit og framkvæmd að sitja í há-
sæti hjá okkur sem öðrum.
A?. J.
NÝ J A BÍ Ó
Hvíta
þrælaYerzlunin.
Ákaflega áhrifamikill sjónleikur
i 100 atriðum, leikinn af Nord-
isk Films Co.
Aðalhlutverkið, stúlkuna sem
selja á mannsali, leikur hin al-
þekta leikkona
frú CLara Wietli.
Þótt nurgar myndir með þessu
nafni hafi verið sýndar hér, er
þessi þó alveg ný og tekur
flestum hinum fram.
Garros.
Eins og menn muna tóku Þjóð-
verjar franska flugmanninn Garros
höndum i Belgíu. Þóttust þeir hafa
veitt vel þar, enda var Garros tal-
inn einhver slyngasti og áræðnasti
flugmaður Frakka.
Þýzkur liðsforingi, sem var við
þegar Garros var tekinn höndum
segir svo frá:
Það var snemma sunnudags. Veð-
rið var framúrskarandi gott, sólskin
og logn. Sáum við þá hvar óvina-
flugmaður kom. Við hófum þegar
skothríð á hann — látlausa skothríð
með riflum og fallbyssum. Hann
flaug yfir járnbrautarstöðina og varp-
aði þar niður sprengikúlu. Ætlaði
hann að hæfa járnbrautarlest, sem
var þar á ferð, en sem betur fór
hlaut lestin engar skemdir.
Við höfðum nú hitt flugvélina
nokkrum sinnum og sáum að flug-
maðurinn neyddist til að lenda.
Hættum við þá að skjóta og tókum
til fótanna til þess að taka manninn
höndum. En þegar við nálguðumst
tókst honum að hefja sig til flugs
aftur, og aftur tókum við að skjóta
á hann. Hann komst eigi lengra
en svo sem tvo kilometra. Þá varð
hann að leita til jarðar aftur.
Við hlupnm aftur á stað eins og
fætur toguðu. Brátt sáum við að
flugvélin stóð í ljósum loga. Flug-
maðurinn hafði vætt hana alla í ben-
zini og kveikt í til þess að hún
skyldi ekki falla í hendur okkar.
Þegar við komum á vettvang var
flugvélin ónýt og flugmaðurinn horf-
inn. Við leituðum þar alt um-
hverfis en gátum ekki fundið hann.
Flugmenn okkar hófu þá leit og
fundu manninn tiltölulega fljótt.
Hann hafði fleygt sér niður i dá-
litla gröf, sem var skamt á brott og
þakið yfir sig með grasi.