Morgunblaðið - 21.06.1915, Page 4

Morgunblaðið - 21.06.1915, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Tlýkomið íVörufjúsið stórt úrval af '+T' nýtízku fafaefnutn. Fjölbreytt gerö og litir. Pantanir eru afgreiddar eins íljótt og unt er. Ábyrgst aö fötin tari vel. Vörufjúsið. Nokkrar slúlknr, yanar síldaryerkun. ræð eg enuþá til Siglufjarðar. Hátt kanp i boði. Hallgr. Tómasson Laugavegi 55. Vörzlumaður beitilands Reybjavíkur er Ágúst Pálmason, Vitastíg 13. Talsími nr. 193. Alþingismaður getur fengið sólríka stofu og svefnherbergi, með húsgögnum, io mínútna hægur gangur frá þinghúsinu. (Fæði, ei vill). Ritstj. vísar á. DOGMENN Sveinn Bjðrnsson yfird.Iögm. Fríklrkjuveg 19 (Staðastað). Simi 202, Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6 Eggert Claessen, yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulaga heima 10—11 og 4—6. Simi 16. Olafur Lárusson yfird.lögm. Pósthússtx. 19. Simi 215. Venjulega heima 11—12 og 4—3 Jón Asbjörnsson yfid.Iögm, Austurstr. 5. Simi 435. Venjulega heima kl. 4—5*/,. Gtiðm. Olafsson yfirdómslögm. Miðstr. 8. Sími 488. Heima kl. 6—8. Brynj. Björnsson tannlæknir, Mverflsgötu 14. Gegnir rjálfnr fólki í annari lækninga- s'.cfunni kl. 10—2 og 4—6. Öll tannlœknisverk jramhvcemd. lennur búnar til 0% tanngarðar af ollum srerðum, og er verðið ejtir vondun á vinnu og vali á efni. Guðm. Pétursson massagelæknir Garðastræti 4. Heima 6—8 siðdegis. Gigtarlækning — Sjúkraleikfimi — Böð (Hydrotheraphi) — Rafmagn. VÁTRYGOINGA^ Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. Vátryggið hja: Magdeborgar brunabócafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurance Forening limit. Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. A. V. Tulinius Miðstræti 6. Talsími 234. Brunatrygging — Sæábyrgð. Stríðsvatrygging. Skrifstofutími n—12 og ÝU—41/*' Det kgl. octr. Brandassnrance Co. Kaupmannahöfn vátryggir: hus. húsgögn, nlls- konar vðruforða o. s. frv. gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjald. Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h. í Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen) N. B. Nielsen. Carl Finsen Laugaveg 37, (uppi) Brunatryggingar. Heima 6 */*—7 Vt- Talsími 331. Capf, C. Trofte skipamiðlari. Hverfisgötu 29. Talsími 235- Brunavátryggingar— Sjóvátryggingar Stríðsvátrygglngar. Vátryggið í »General« fyrir eldsvoða Umboðsm. SIG. TH0R0DDSEN Frfkirkjuv. 3. Talsfmi 227. Heima 3—8 Silfurlands nótt. Skáldsaga nm ræningja í ræningjalandi 23 eftir Övre Richter Frich. Framh. Það var fyrirboði þess að æfi hans mundi enda með ósköpum. Hann var einnig skotinn svo sem tíu mín- útna veg héðan. — Jæja, jungfrú minl Við skul- nm nú fara okkur að öllu stillilega og sjá hvað orðið hefir af Lopez. Eg get tæplega án hans verið. Fjeld skreið fram að gjánni og brá upp vasaljósi sínu. Það var svo að sjá sem jörðin hefði haft sérstaka ánægju af því að svelgja Lopez. Gjáin var svo sem tuttugu metra löng, álíka djúp og tveggja metra breið. Mexikaninn lá á botninnm á gjánni hálfur á kafi í mold og leir, en höfuðið stóð upp úr. Hann hafði mist meðvitundina. — Þetta eru einkennilegir dutlung- ar af náttúrunni, mælti Fjeld um leið og hann lýsti um gjána. Eg held helzt að Lopez sé fallinn í ein- hverja gamla gröf, sem menn hafa eigi kært sig um að prýða með bautasteini. — Hvelfingin er að minsta kosti af manna höndum ger, og sýnist vera úr einkennilegum sandsteini. Það getur verið að eitt- hvert holræsi hafi endað hér, en eg hygg þó heldur.... — Gætið yðar! hrópaði unga stúlkan alt i einu. Tvær dökkar verur spruttu upp úr jörðunni og réðust á Fjeld þar sem hanu lá. Hann fekk sár á háls- inn af hnífi, og snaran sem kasta átti um háls hans reyrði að höfð- inu. Árásarmennirnir höfðu augsýnilega elt þau frá húsi Mortimez, orðið hræddir i jarðskjálftanum, en síðar fengið hugrekki til þess að ráðast á Fjeld. Vasaljósið hans vísaði þeim leið. ------ Þá kvað við skot.... Fjeld hafði skotið í gegnum vasann, en eigi hitt. Þá var eins og hann svifi í lausu lofti og stórt högg kom á höfuð hans . . . Svo hrapaði hann niður í gjána til Mexikanans. Einhver annar féll ofan á hann og sandur og möl féll í andlit hans . . . Ljós var kveikt uppi á gjábarminum og illhryssings- legur hlátur kvað við og bergmálaði í hvelfingunni. Fjeld reis upp við alnboga með mestu herkjum og þreifaði fyrir sér með hinni hendinni. Honum þótti vænt um að verða þess var að Ebba Torrell lá þar hjá honum. — Hvernig líður yður jungfrú, spurði hann í hljóði. — Eg held að eg sé ómeidd, svaraði hún. En hvernig líður yður? — Sæmilega illa, mælti Fjeld. En eg get þó séð um sjálfan mig. Verst verður fyrir okkur að komast upp úr þessari ljónagryfju. Þegar birtir er það senDÍlegt að vinir okkar þarna uppi á bakkanum skjóti til marks á okkur. Mér er ver við það. — Það er hræðilegt, mælti hún og dustaði af sér mesta rykið. — Jæja — okkur verður ekki ráðafátt, tautaði Fjeld. Og Ebba Torrell var þess vör, sér til skelf- ingar, að hann hneig niður, Fjeld læknir hafði mist meðvit- undina. Fjórtándi kapituli. Hbndin. Ebba Torrell hafði orðið margs vísari þessa nótt. Atburðirnir höfðo skelft hana fram úr hófi. En hræðls' an er oft hið bezta meðal til þess að stæla þá sem altaf hafa baðað f sólskini. Og niðri í þessari myrku gj þar sem hún lá í rifnum klæðurO hálfgrafin i sandi og leir, vaknað1 hjá henni hinn norræni þróttuf' Hún hafði ekki meiðst neitt og eftif litla áreynslu hafði hún rifið sig upP úr moldarhrúgunni. Þorpararnir höfðu tekið sér bæk1’ stöð skamt frá gjáuni. Hún heyíðl hlátur þeirra, en sá þá ekki. Þe‘( þóttust hafa ráð þeirra Fjelds í hen^1 sér og biðu þess rólegir að dagsðl' Rigningin var nú stytt upp og el0< staka stjörnur sáust blika á himfl' inum. Unga stúlkan þreifaði fyrir 5 { og fann þá andlit Fjelds. LímkeD ur og volgur vöki rann úr enni h30* niður kinnarnar og hún vissi að P3 mundi vera blóð.- Henni varð ráðafátt í fyrstu. in ljósglæta sázt í gjánni. Rét£ . sér heyði hún hrygluhljóð í ^e* kananum, sem lá þar í óviti —' """ En hvað var þetta?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.