Morgunblaðið - 02.07.1915, Side 1
^ðstudag
2.
3lil£ 1915
MORGDNBLADIO
2. árgangr
237.
tölublað
Ritstjórnarslmi nr. 500
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
Bezta dag- og kvöldkaffé. —
úljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—n1/*
K. f, u. m.
Valur, knattspyrnuæfing i
kvöld kl. 8»/«.
Mætið stundvíslega.
Aukafundur
í Lestrarfélagi kyenna
í dag kl. 6
á lesstofn félagsins.
^°nur beðnar að fjölmenna.
Stjórnin.
Fundur
verður haldinn í
Kvenréttindafélaginu
^studaginn 2. júlí kl. S */3 síðdegis
í Iðnó.
Aríðandi mál á dagskrá. Allar fé-
^gskonur beðnar að mæta.
Stjórnin.
i k a
ritvélarnar ern þær
, einu sem hafa verið
f reyndar hér á landi
að nokkrnm mun.
Þær eru framúr-
skarandi endingar-
góðar.hávaðalitlar,
léttar að skrifa á
og með islenzkn
stafrófi sem er rað-
að niður sérstak-
lega eftir þvi sem
hezt hentar fyrir ís-
»ltaf . w w lenzku. Skriftin er
hNta"sJ^om,e8a sýnileg, frá fyrsta til
hj.kW ;■ a‘8’ °K vélin hefir alla kosti, sem
' ávaif U,r ritvél hefir. Nokkrar
‘yrirliggjandi hér á st&ðnum.
fyrir ísland,
6. Eii'íkss, Reykjavik.
Kr. 200
Vilhjálmur Finsen. | ísafoldarprentsmiðia | Afgreiðslusimi nr. 499
=* ....................
Ófriðarmy ndir.
Nýjar afbragðs myndir frá herjum allra ófriðarþjóðanna.
Þar á meðal hin fræga kvikmynd:
Orusta í Vogesafjöllum.
í opinberum skeytum frá brezku utanríkisstjórninni og
sem birtast í Morgunblaðinu, stóð þessi klausa 18. febrúar:
»Franskir fjallahermenn unnu mikið hreystiverk, er
þeir tóku 937. hæðina hjá Hartmannsweilerkopf«.
Myndin er af þeirri orustu og
hún er eönn.
Er það hin eina kvikmynd, sem til þessa hefir náðst af
virkilegri orustu og hefir hún hlotið fádæma lof í brezkum
blöðum.
Nýja Bio tókst það að ná í myndina þótt eigi væri
hlaupið að því, og sýnir hana í kvöld og næstu kvöld.
Fiskiþinsið
heíst næstkomandi laugard.
(3. júlí) kl. 12 á hád.
í Goodtemplarahúsinu.
Stjórnin.
Ritstjóri:
+
Jarðarför J6ns yfirdómara Jenssonar
fer fram á laugardaginn, 3. júli, og
hefst kl. 12 með huskveðju á heimili
hins látna, Þingholtsstræti 27.
í verzlunina
á Frakkastíg1 7
komu með E.s. Gullfossi margar
góðar tegundir af
Reyktóbaki og Cigarettum.
Ennfremur:
Vindlar, Rjól og Skraa
o. fl. o. fl.
Alt sérlega gott og ódýrt.
Sími 286.
Erl. simfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Kaupmannahöfn, i. júlí.
Þjóðverjar og Austurríkismenn
hafa vaðið inn í Rússland norðan
við Lemberg.
Svartfellingar hafa tekið Skutari.
Rússneska þingið (duman) hefir
verið kvatt saman.
Fregnin um það, að ítalir ætli að
taka þátt í herferðinni gegn Tyrkj-
um, er enn eigi staðfest opinberlega.
Prestskosningin
á ísafirði fór þannig, að síra Magnús
fónsson er löglega kosinn prestur
með 468 atkvæðum. Alls voru greidd
867 atkvæði og féllu þau þannig á
aðra umsækjendur:
Síra Pál Sigurðsson Bolungarvík 198
cand. theol. S. Á. Gislason 104
síra Ásg. Ásgeirsson Hvammi 70
— Páll Stephensen Holti 18
— fón Árnason Bíldudal 9
— Sig. Guðmundsson Ljósavatni
ekkert.
Erl. simfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezkn ntanríkisstjórninni
í London.
London, 30. júní.
Útdráttur
úr opinberum skýrslum Rússá 26.-29. júni.
Ákafar orustur hafa staðið í norð-
ur Póllandi, en óvinirnir hafa verið
hraktir með miklu manntjóni. Val-
kestir dauðra manna lágu fyrir fram-
an skotgrafir vorar og nokkra menn
tókum vér höndum. Sókn Þjóðverja
í sunnanverðu Póllandi hefir ekki
náð tilgangi sínum og eigi fært þeim
neinn sigur.
í gagnáhlaupum vorum hjá Zoikiow
og Lemberg í Galizíu handtókum
vér nær 2000 manns.
Aköf orusta stóð hjá Dniestr. Að
kvöldi 26. júni tóku hersveitir vorar
að láta undan síga hjá Gnilalipa.
Óvinirnir hafa reynt af öllum mætti,
með grimmilegum áhlanpum að gera
undahhald okkar að flótta, en hefir
mishepnast það algerlega og beðið
feikna mikið manntjón.
London, 30. júní.
Útdráttur
úr opinberum skýrslum Frakka
26.-29. júní.
Alla þessa daga stóð stórskotaliðs-
orusta í Arrashéraði. Að kvöldi hins
26. júní náðu Þjóðverjar fótfestu á
200 metra löngu svæði á veginum
milli Ablain og Angres. Þaðan voru
þeir hraktir síðar og sóttum vér
fram á því svæði.
í Argonnehéraði gerðu Þjóðverjar
ákaft áhlaup, en voru brotnir á bak
aftur. A hæðunum hjá Meuse, hjá
skotgröf þeirri, er kend er við Ca-
lonne, stóð áköf orusta 26. og 27.
júní og endaði hún með höggor-
ustu. Þjóðverjar jusu á oss logandi
vökva og reyndu að ná aftur fremstu
skotgröf sinni, sem vér nú vörðum.
Voru þeir hraktir aftur með miklu
manntjóni og höldum vér enn allri
fremstu skotgröf þeirra og nokkr-
um hluta af næst fremstu skotgröf.
í Vogesafjöllum sóttu Þjóðverjar
fram í nánd við Metzeral, en að
morgni 29. júni höfðum vér tekið
aftur allar þær stöðvar, sem vér
höfðum áður náð austan við Met-
zeral.
Að morgni 27. júní tókst einum
flugmanna vorra að kasta 8 sprengi-
kúlum á Zeppelinskála í Friedrichs-
haven. Engin skýrsla er fengin um
skaða þann, er hann hefir valdið.
Annarsstaðar gengur alt í sama
þófinu.
Viðureignin á Gailipoliskaga.
London 30. júní.
Eftirfarandi skýrsla frá Sir Jan
Hamilton hershöfðingja um viður-
eignina á Gallipoliskaga var birt 30.
júni: