Morgunblaðið - 08.07.1915, Blaðsíða 1
Fimtudag
8.
julí 1915
MORGUNBLADID
2. artrangr
243.
tölublað
Ritstjórnarsími nr. 50O
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
Isafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusimi nr. 499
BI0|
Reykjavlkur | DI f|
B iograph-Theater
Talsímí 475.
Svartklædda
hefndarkonan
Afar-áhrifamikill og fallegur
sjónleikur i 6 þáttum 120 atr.
Aðalhlutverkið leikur hin heims-
fræga leikkona Itala
Mlle Maria Carmi.
Þessi dýra mynd er útbúin hjá
Cines-félaginu i Róm sem bjó
til hina heimsfrægu mynd Quo
vadis?
Aðgöngumiðar að þessari mynd
kosta 6o og 35 aura.
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
g"- Bezta dag- og kvöldkaffé. —
"ljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—nVa
Ðuglegan pílí,
til snúninga, 15—16 ára
gamlan, vantar mig nú
[ar.
G. KiríkNN.
Reyktur lax
°g
nýr selungur
fæst í
Ishúsinu.
J6f). Tlorífaf.
**'ojið' einungis um:
Vacht
Fána
l°rlíkið viðurkenda, og tegundirn-
,j,*Bouquet«, »Roma«, >Buxoma<,
*» »Et, >D«, »C«,
niðursoðna
grænmeti,
Bald
ur
ö?ktíkið á8æta> { $ kil°8r- sPor"
)U1°guðum pappa-ílátum,
^uwel
heildsöl„ f™, v-.
bökunar-
feiti.
JTlóforisfa og 4 sfúlhur
til fiskvinnu vantar R. Johanson kaupmann á Reyðarfirði.
Þeir, sem leituðu upplýsinga í fyrradag um þessa atvinnu geri svo
vel að tala við mig i dag milli kl. 3 og 4.
Kaup og kjör mjög aðgengilegt.
Björn Guðmundsson,
Aðalstræti 18.
Sími 384.
sölu fyrir kaupmenn, hjá
O. Cipikss, Reykjavík.
Þingsetning.
—.—
Sú er venjan hér að þing hefst
með guðsþjónustu í dómkirkjunni.
Síra Eggert Pálsson frá Breiðaból-
stað steig í stólinn í gær. Lagði
hann út af orðum Páls postula í
Kolossubréfinu:
Hvað sem þér gerið, þá vinnið af
alhuga eins og Drottinn ætti í hlut,
en ekki menn. — En sá, sem rangt
gerir, skal fá gjöld fyrir það, sem
hann gerði rangt og þar er ekki
manngreinarálit. —
Að lokinni guðsþjónustu gengu
þingmenn í fylkingu, tveir og tveir
saman vestur i þinghúsið og gengu
þeir fyrstir ráðherra og sira Eggert
Pálsson en þá hver af öðrum, 37
alls, og vantar því þrjá, sem enn
voru ókomnir til bæjarins. Það
voru þeir Pétur ]ónsson frá Gaut-
löndum, Magnús Kristjánsson, Akur-
eyri og Karl Einarsson, Vestmanna-
eyjum.
Fyrir utan stóð manngrúinn á
báðar hendur — og hefir þó stund-
um verið fjölmennara. En er síð-
asti þingmaðurinn skrapp inn ár
dyrunum ruddust þeir að sem vildu
fá aðgang og varð þröng í dyrun-
um. Lögreglumenn og dyraverðir
reyndu að gæta reglu og slysalaust
komust allir inn er þess óskuðu.
Þingmenn skipuðu sér þá í sæti
í sal neðri deildar, svo sem venja
er. Lýsti Einar ráðherra Arnórsson
því yfir, að alþingi íslendinga væri
sett og las upp boðskap frá konungi
viðvikjandi stjórnarskrá og fána og
heillaósk til íslenzku þjóðarinnar í
tilefni af staðfestingu þessara mála.
Var siðan hrópað húrra fyrir kon-
ungi.
Aldursforseti alþingis, Eirikur
Briem prófessor stjórnaði þá forseta-
kosningu sameinaðs þings. Hlaut
þar kosningu sr. Kristinn Daníelsson
með 19 atkv. (Hannes Hafstein
hlaut,i4 atkv.). Settist hinn ný-
kjörni forseti í forsetasæti og ávarp-
aði þingið nokkrum þakklætisorðum
fyrir þann mikla sóma, sem sér
væri sýndur. Varaforseti sam. þings
var kosinn sr. Sigurður Gunnarsson
prófastur með 20 atkv., en skrifarar
þeir sr. Sig. Stefánsson með 33
atkv. og Magnús Pétursson læknir
með 27 atkv.
Þá var kosin 5 manna nefnd til
þess að prófa kjörbréf þingmanna,
en starf þeirrar nefndar mun undir
vanalegum kringumstæðum vera
fremur litilfjörlegt.
Allar kosningar fóru fram skrif-
lega, margir seðlar voru auðir og
nokkrir vitlausir, t. d. vildi einn
kjósa Pétttr Finnbo^ason(H) i kjör-
bréfanefndina og annar Hannes Hann-
esson(H). En þetta vonandi smávenst
af fulltrúunum þegar þeir fara aftur
að venjast Ioftinu i þingsölunum.
Forseti sam. þings las síðan upp
3 símskeyti sem konur á Stokkseyri
Eyrarbakka og Húsavík hðfðu sent
alþingi — þakklæti fyrir aukin rétt-
indi kvenna.
Þingmenn skiftu sér nú i deild-
irnar og fóru þar fram kosnningar.
/ neðri deild hlaut forsetatign 01-
aýur Briem með 20 atkv., varafor-
setar Pétur Jónsson og Guðmundur
Hannesson og skrifarar þeir Eggert
Pálson og Björn Hallsson.
/ eýri deild varð Stefán Stefánsson
forseti, kosinn í einu hljóði og vara-
forsetar fósef Björnsson og Karl
Einarsson og skrifarar þeir Björn
Þorláksson og Steingrímur jónsson.
Eftir kosningar þessar var fundum
slitið.
Jiv2tif)áfíðin>
Austurvöllur var allur fánum
•^skreyttur snemma í gær i tilefni af
kvenhátíðinni, sem halda átti þar
siðdegis.
Klukkan hálf fimm söfnuðust kon-
ur saman i Barnaskólagarðinum.
Voru þar bæði ungar konur og full-
orðnar, börn og gamlar kerlingar.
Hélt nú allur þessi sægur í skrúð-
fylkingu niður á Austurvöll og fór
lúðrasveit í fararbroddi.
Gengu smátelpur fremstar og
fyltist Austurvöllur skjótt, en uti
fyrir stóðu karlmennirnir — og
margar konur líka — og horfðu á
þessa dýrð.
Klukkan sex fór sendinefnd fimm
kvenna á fund alþingis og færði því
fagurt ávarp. Hafði fröken Ingibjörg
H. Bjarnason orð fyrir þeim, en
aðrarnefndarkonur voru þær frú
Briet Bjarnhéðinsdóttir, frú Elin
NYJA BIO
Systurnar
Sjónieikur i tveim þáttum eftir
IULES MARAY,
leikinn af leikurum Pathé Fréres
félagsins í París.
Aðalhlutverkið leikur hin þekta
leikkona
jfr. Napierkowska.
Myndin er með eOlilegum litum.
K. F. U. M.
Jarðrækt. Fjðlmennið.
Stephensen, frú Kristín Jakobsson og
frú Þórunn Jónassen.
Þingmenn hlýddu standandi á er-
indi nefndarinnar og siðan þökkuðu
þeir báðir forseti sameinaðs þings
og ráðherra og óskuðu að aukið
frelsi kvenna mætti verða þeim og
landinu til aukinnar gæfu. Að þvi
loknu hrópuðu þingmenn ferfalt
húrra fyrir íslenzkum konum.
Eftir það var gleðskapur allmikill
á Austurvelli — söngur, ræðuhöld
og hljóðfærasláttur — og hátíðinni
lauk í Iðno seint um kvöldið.
Búlgaría
fer á stúfana.
í ensku blaði frá 27. júni eru
þessar fréttir hermdar frá Búlgaríu:
Allir búlgarskir þegnar í Salonika
og Cavalla hafa verið kallaðir til
vopna. Ákafleg ókyrð er nú i öllu
landinu og konungur sjálfur og M.
Radoslavow forsætisráðherra eiga nú
daglega fundi með foringjum helztu
flokka i landinu og þingmönnum.
Búlgarskir menn, sem heima eiga
í ítaliu hafa fengið tilkynningu um
það, að vera reiðubúnir að koma
heim í herinn hvenær sem kallið
kemur.
Mælt er að Tyrkir hafi yfirgefið
Adríanopel og flutt herlið sitt til
Chatalja.
Engan efa telja bandamenn á því
að Biilgarar muni snúast á sveif
með sér. Á hinn bóginn virðist
það einkennilegt að Tyrkir skuli
hafa flutt lið sitt fri Adrianopel,
ef þeir óttuðust áras af hálfu Búlg-
ara. Adrianopel er bezt víggirt allra
borga í Tyrklandi, enda varð hiin
Búlgurum torsótt árið 1912. Það
virðist nú svo sem Tyrkjum veiti
eigi af öllum sinum vígjum og
ósennilegt að þeir gefi þau upp or-
ustuiaust.
Tvennar sögur hafa farið af Biilg-