Morgunblaðið - 08.07.1915, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Veggfóður
(Betræk)
kom nú með „Vestu“ á
Laugveg 1,
urum og Tyrkjum. Önnur var sii
að Tyrkir væntu ófriðar af þessum
nágrönnum sinum þá og þegar og
hefðu í því skyni treyst viggirðingar
Adríanopels eins og kostur var á og
aukið þar setuliðið að miklum mun.
Ef svo er, þá er það þeim mun ó-
skiljanlegra að þeir hafi yfirgefið
borgiua. Hin sagan er sú, að Tyrkir
hafi boðið Búlgurum borgina, vildu
þeir ganga í lið með sér. Vita
menn það að Búlgnrum leikur mik-
ili hugur á henni og er því eigi
loku fyrir það skctið að þeir hafi
nú ákveðið að ganga að boðum
Tyrkja. En hvað verður?
' ' ■■■—.. ■» I ----
»T DAGBðfflN í=r-a
Afmæli í dag:
Sigríður Jacobssen, húsfrú
Sigurborg Jónsdóttir, verzlk.
Einar Sveinsson, trósm.
Sólarupprás kl. 2.23 f. h.
Sólarlag — 10.39 síðd.
Háflóð í dag kl. 3.51
og i nótt — 3.18
Veðrið í gær:
Vm. n. andv. hiti 9.7.
Rv. logn, hiti 12.0.
ísaf. logn, þoka, hiti 7.5.
Ak. n.v. andv., þoka hiti 15.3.
Gr. logn, hiti 4.0.
Sf. logn, þoka, hiti 8.3.
Þórsh. F. logn, hiti 11.7.
Póstar á morgun :
Ingólfur til Garðs.
Póstvagn kemur frá Ægissíðu. —
Austanpóstur frá Vík.
Sterling á að koma frá útlöndum.
Búðum var flestum lokað kl' 4 í
gær í tilefni af hátíðahöldum kvenna.
Nýtt vikublað byrjar að koma út
hér í bænum næstkomandi laugardag.
Heitir það »Dagsbrún«, blað jafnaðar-
manna, og ritstjóri þess verður Ólafur
Friðriksson.
Sterling kom til Vestmanneyja í
fyrrinótt. Fór þaðan aftur síðdegis í
gær og er væntanlegur hingað snemma
i dag.
Gulifoss fer til útlanda í dag. Með-
al farþega Jul. Schou kaupm., Jensen-
Bjerg kaupm., Capt. Trolle, ungfrú
Þórunn Thorsteinsson, Sigtr. Eiríksson
stúdent, Jóhannes Sigurðsson prent-
ari o. fl.
íþróttafólag Reykjavíkur hefir æf-
ingu í kvöld á íþróttavellinum kl. 8l/2.
Nýjar bækur.
II.
Iðuun, nýr flokkur i. hefti.
Ritstjórn: Ágúst H. Bjarnason, Einar
Hjörleifsson, Jón Ólafsson.
Vér höfðum lengi beðið þessarar
bókar með tilhlökkun. Nú er hún
komin. Og það verðum vér að segja
að vel er af stað farið. Efnið er fjöl-
breytt og bókin skemtileg.
Fyrst er »Gleðilegt sumar*, dálítill
ljóðbálkur eftir Guðmund skáld
Guðmundsson — kunningi Reyk-
vikinga, því hann hefir verið leik-
inn hér í vor. Þá kemur »Katrín í
Ási«, ágæt saga eftir Jóhann Bojer
og ágætlega þýdd. Það hefir Ágúst
H. Bjarnason prófessor gert. Ann-
ars hefir hann lagt mestan — og
vér viljum segja beztan skerfinn til
þessa heftis. Þá er saga eftir
Christian Krogh og hefir Einar
Hjörleifsson þýtt. Hún heitir »A-ha!«
og satt að segja finnum vér ekkert
»púður« í henni, nema ef vera skyldi
þetta eina A-ha!
Agúst Bjarnason ritar því næst
stutta en snjalla hugvekju um hina
líðandi stund og síðan kemur upp-
haf að langri ritgerð eftir sama um
heimsmyndina nýju. Skulum vér
geyma oss að tala um hana þangað
til hún hefir birzt öll.
Þá koma »Endurminningar« Jóns
Ólafssonar. Er þetta upphaf — endur-
minningar úr barnæsku og eigi nema
hrafl, svo sem skilja má. En skemti-
lega eru þær ritaðar eins og von
var slíks manns og víða mjög hnitti-
lega að orði komist. Tvær sögur
segir höf. þar af afa sínum, sem
nefndur var »Lyga-Gvendur«. Sá
galli er á annari sögunni að óvíst
mun um faðernið eins og að svo
mörgum slíkum sögum. En aðra
sögukunnum vér eftir »Lyga-Gvönd«,
sem sýnir ágætlega skáldskapargáfu
mannsins.
Hann kvaðst einu sinni hafa ver-
ið á ferð ofan af héraði að vetrar-
lagi. Skall þá á hann niðaþoka og
vissi hann eigi fyrri til en hann
var kominn upp á Areyja-tind, sem
er hátt og snarbratt fjall fyrir botni
Reyðarfjarðar. Nenti hann eigi að
snúa við og krækja inn í dalinn
þangað sem vegurinn liggur ofan i
fjörðinn, en gerði sér hægt um hönd
og stakk þumalfingrinum aftur milli
fóta sér og rendi sér á honum nið
ur i fjarðarbotn. Einhver viðstaddur
efaðist um þetta og spurði hvort
honum héfði ekki sárnað fingurinn
»0-jæja, eg spýtti i hann stöku
sinnum«, sagði »Lyga-Gvendur.«
Þetta er nú útúrdúr, en sagan er
svo skemtileg, að vér gátum eigi
setið á oss að segja hana í sam-
bandi við þetta. Annars vitum vér
að »Endurminningar« Jóns verða
lesnar með ánægju og væntum vér
þó meira af næstu köflum.
Sigurður Guðmundsson magister
ritar um »Rústir« — andlegar og
líkamlegar. Er það hugvekja er hann
flutti fyrir Ungmennafélaga hér í
Agætar
Áppelslnur
nýkomnar til
Jóns Hjartarsonar <fc Co.
bænum. Þá ritar Jón Ólafsson grein
er hann nefnir »Peningum fleygt í
sjóinn«. Þörf hugvekja og tímabær.
Er hún um það að hér skuli stofn-
uð vátrygging á islenzkum botn-
vörpungum, eu eigi látið viðgangast
það sleifarlag sem nú er, að hundr-
uðum þúsunda sé fleygt í sjóinn,
— til útlendra vátryggingafélaga.
í bókinni eru og ritdómar, lausa-
vísur og gott kvæði eftir Jakob-
Thorarensen.
Erl. símfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezku utanríkisstjórninni
í London.
Skýrsla Sir John French.
London, 7. júlí.
Sir John French skýrir þannig frá
6. þ. m.:
Síðan síðasta skýrsla var birt hefir
engin breyting orðið á vígvellinum
hjá oss. Stórskotahríðar hafa verið
við og við. Hafa Þjóðverjar notað
mikið af gassprengikúlum einkum
hjá Ypres. Óvinirnir hafa gert átta
sprengingar á ýmsum stöðum í víg-
línu vorri án þess skotgrafir vorar
yrðu fyrir nokkrum skemdum.
A hinn bóginn sprengdum vér í
loft upp 50 metra af fremstu skot-
gröfum óvinanna fyrir norðan Neuve
Chapelle 13. júni.
Neðanjarðargöng sem Þjóðverjar
ætluðu að grafa undir stöðvar vorar
hrundu saman fyrir howitzerkúlum
vorum og fótgönguliðssveit eyðilagði
þau síðan algerlega.
Fáeinir Þjóðverjar lifðu kúluhríð-
ina af en voru reknir úr göngunum
og þar fundu vorir menn eina ónýta
vélbyssu. Vér mistum fátt manna
og fótgöngusveitin kom aftur til
skolgrafanna er hún hafði eyðilagt
jarðgöngin.
Loftskeyti frá Þýzkalandi 5. þ. m.
sem hermir að þeir hafi rekið af
höndum sér áhlaup á Pilken-vegin-
um og mist fátt manna, er líklega
gert til þess að látá berast út það
se.n þeir segja um þetta.
Að morgni h. 5. þ. m. gerði lið
Þjóðverja áhlaup á varnarvirkin hjá
Ypres—Roulers járnbrautinni, eftir
að þeir höfðu skotið á þau í tvær
stundir, en vér tókum stöðvarnar
aftur undireins með gagnáhlaupi.
Vér náðum 200 metrum af skot-
gröfum óvinanna yzt i vinstra her-
armi, voru þeir fyrir noðan Ypres.
Tókum vér þar 80 fanga. Frakkar
vinstra megin við oss aðstoðuðu oss
til þessa sigurs með stórskotahríð
og skotgrafafallbyssum.
Breytið til, gerið geinln
hiísin að nýjum,
þá fá þau þennan hreina og bjarta
blæ, sem einkennir öll hús máluð
með
Hall’s
Distemper
Fæst i
Verzl. Björn Kristiánssoö
og
S hjá Slippfélaginu.
Hestar
2 reiðhestar (vekringar) og 1 vagn-
hestur eru til sö!u til kl. 12 í dag
hjá Gísla Eiríkssyni
Vatnsstig 8.
Ódýrt kjöt.
Næstu daga verður svartfugl selduf
hjá Jóni Bjarnasyni Laugavegi 33 '1
stærri fuglinn á o 20 og smærri
fuglinn á 0.15.
Appelslnr
njkomnar i yerzlun
Guðm. Olsen.
í nijólkursölunni
í Bröttugötu 3
fæst nú góð mjólk og góður rjóm>
allan daginn.
Þeir sem kynnu að vilja gerast
fastir kaupendur nú, fá mjólkina *
haust þegar mjólkureklan veiður >
bænum.
Sími 517.
*tfinna ^
Stúlku vantar nú þegar að LaU
ási.
Þ r i f i n og dngleg
þegar á kaffi-og raatsöl„„«„_____
Kristin Dablsted-
Kanpakona áskast á gott be
Húnavatnssýsln. Fær hest úkeyp’8 /9SoiV
leiðir. Semja má við Friðrik 0
Islandsbanka.