Morgunblaðið - 10.07.1915, Side 1
laugard.
10.
Júlí 1915
HOBGDNBLADID
2. árgangr
245.
tölublað
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen.
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslnstmi nr. 499
BIOJ
Reykjavíknr 'BIO
Biograph-Theater
Talstmi 475.
Kvenspæjarinn
Itölsk njósnarsaga i 3 þáttum.
Myndin er að efni og útbúnaði
alveg framúrsbarandi
og spennandi frá byrjun
til enda.
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
Bezta dag- og kvöldkaffé. —
Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—--ii*/a
Duglegan pilt,
til snúninga, 15—16 ára
gainlan, vantar mig nú
kgar.
G. Eiríkss.
Hjálpræðisherinn.
K1.-8V, í kvöld
Kafíiliátíð.
Uþplestur úr ævintýrum H. C.
^ndersens (danska). Inng. 25 au.
Allir velkomnir.
Smjörpappír
uýkominn
í
Hókverzl. ísafoldar
Florylin
br r~Ser td bökunar, gerir brauðin
etrh og er fjórum sinnum
Qe' ^eira en venjulegt ger.
/hiist óskemt, eins lengi og vill.
0 _ 1 r%retlands
Urrs Ba
ód,>r a *eks og kökur, er lang
elstuast eftir gæðum. Búið til af
StoföuðrkI8tfIðÍU Bfeta 1 sinni röð.
Íldsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eírikss, Rvík.
Ulboð.
Tilboð óskast sem fyrst í ca. 9000 kubikmetra uppfyllingu.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstoiu
Bookless Bros
Hafnarfirði.
Við getum glatt
vora viðskiftavini á því að okkar margþráða
Dömuklæði
er komið aftur,
og þrátt fyrir mikla verðhækkun á ullarvörum selst það með að eins
16 aura hækkun pr. meter (10 aura al.)
í Austurstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Erl. simfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezkn utanríkisstjórninni
í London.
London, 8. júli.
Frá Hellusundi.
Sir Ian Hamilton skýrir frá þvl,
að aðfaranótt hins 4. júlí hafi viður-
eignin verið mjög hæg að norðan-
verðu, en kl. 4 að morgni hófu
óvinirnir grimma skothríð á skot-
grafit vorar. Notuðu þeir þá allar
fallbyssur, sem þeir höfðu haft áður
gegn oss og nokkrar nýjar. Skot-
hrið þessi hætti þó um sex-leytið
og hafði þá eigi gert mikinn usla.
Meðan þessu fór fram höfðu tyrk-
nesk herskip í sundinu skotið á oss
hér um bil 20 sprengikúlum 10
þumlunga;
Að sunnanverðu hófu Tyrkir ákafa
riflaskothrið um nóttina, en yfirgáfu
ekki skotgrafir sínar. Klukkan 4 að
morgni hófstórskotalið þeirra grimmi-
lega skothríð, svo þess eru ekki
dæmi hjá þeim áður. Eyddu þeir að
minsta kosti 5000 byssukúlum.
Þessi skothrið var þó ekki nema
fyrirboði fyrir áhlaupi, sem Tyrkir
gerðu á alla víglínu vora og var það
viða all-ákaft, sérstaklega þar sem
saman koma sjóliðsmannaher-
deildin og lið Frakka. Á þeim
stað hröktu Tyrkir fremstu liðssveit-
irnar kl. 7 árdegis og réðust á
nokkurn hluta þeirra stöðva, sem
sjóliðsmannadeildin sat í.
Eitthvað um 50 Tyrkir komust í
skotgröf sjóliðsmannanna, en samt
gátu vorir menn haldist þar við.
Varaliðið og þeir, sem höfðu hörfað
undan, gerðu gagnáhlaup þegar í
og hröktu Tyrki út úr skotgröfun-
um aftur.
Tyrkneskar hersveitir sem gerðu
áhlaup hægra megin við 29. herdeid
voru því nær strádrepnar með riffla-
og vélbyssukúlum. Vinstra megin
fylktu Tyrir liði fyrir norðan og
austan skotgrafir, sem vér höfðum
nýlega tekið og gerðu mörg áhlaup,
en þau mishepnuðust öll vegna þess
hve lið vort stóð fast fyrir og sakir
stórskota vorra.
Skothiiðin tók að lina kl. 11 árd.
en byrjaði þó aftur við og við.
Árás þessi fór því gersamlega út
um þúfur, og hún hefir ekki dregið
kjark úr liðinu. Vér mistum fátt
manna, en hið mesta manntjón, sem
óvinirnir hafa beðið upp á siðkastið
mun gera þi deiga við að ráðasl
fram gegn skotum vorum.
,lvigtut‘
heitir skip, sem danska Grænlands-
verzlunin hefir í förum milli Dan-
merkur og Grænlands. Það lagði á
stað frá Kaupmannahöfn laust eftir
miðjan júnímánuð og ætlaði til Græn-
lands. En er það kom út í Norð-
ursjó, var það stöðvað af brezku her-
skipi. Bretar leyfðu því þó innan
skams að fara ferða sinna en tóku
úr því allan -póst og sendu aftur til
Kaupmannahafnar. Þar á meðal voru
ýms bréf frá Knud Rasmussen. —
Grænlendingar fá nú engan póst fyr
en að ári, þvi þetta var seinasta
skipið, sem fer þangað á þessu sumri.
N Y J A B I O
Systurnar
Sjónleikur i tveim þáttum eftir
1ULES MARAY,
leikinn af leikurum Pathé Fréres
félagsins í Paris.
Aðalhlutverkið leikur hin þekta
leikkona
jfr. Napierkowska.
Myndin er með eðlilegum litum.
Erl. sfmfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Kaupmannahöfn 9. júli.
Austurrikskur kafbátur sökti ítölsku
herskipi i Adríahafi.
Friðarhorfur milli Þýzkalands og
Bandaríkjanna ískyggilegar.
Svíadrotning.
Hún var stödd í Karlsruhe þegar
frönsku og brezku flugmennirnir
fóru herförina þangað. Ein af sprengi-
kúlunum, sem þeir vörpuðu þar nið-
ur, kom á höllina þar sem drotning-
in átti heima en hún komst þó
ósködd undan.
Þegar hún kom til Berlínar aftur
þóttust menn hafa heimt hana úr
helju 02: var henni tekið með kost-
um og kynjum. Var gengið í skrúð-
göngu til bústaða hennar, ræður
fluttar og sungnir þjóðsöngvar Svia
og Þjóðverja.
Drotningu félst mjög til um þetta
vináttuþel borgarbúa. Hlýddi hún á
ræðurnar og sönginn frá veggsvöl-
um sinum og viknaði við. Áð lok-
um bauð hún til sin formönnum
faiarinnar og sat lengi að viðræðum
með þeim. Bað hún þá bera þýzku
þjóðinni árnaðarorð sín og það
með að tilfinningar sínar drægju
taum Þýzkalands á þessum siðustu
og verstu timum. Þótti Þjóðverjum
vænt um að heyra svo hlý orð af
drotningunni, en Svium gazt miður
að þessu. Varð úlfaþytur eigi all-
lítill i blöðunum þar heima og þótti
þeim drotning hafa gengið feti fram-
ar en góðu hófi gegndi fyrir drotn-
ingu hlautlauss ríkis.
Það hafði áður verið i ráði að
taka henni tveim höndum er hún
kæmi að sunnan, en blöðin risu nú
öndverð gegn þvi. Meðal annars
segir Hjálmar Branting ritstjóri í
blaði sínu, að eigi að hylla drotn-
inguna þegar hún kemur úr ferða-
laginu, þá muni jafnaðarmenn hitta
einhver ráð til þess að sýna hvað
hlutleysisskyldan krefjist af sérhverj-
um manni, jafnvel þótt það sé drotn-
ing.