Morgunblaðið - 10.07.1915, Síða 1

Morgunblaðið - 10.07.1915, Síða 1
laugard. 10. Júlí 1915 HOBGDNBLADID 2. árgangr 245. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslnstmi nr. 499 BIOJ Reykjavíknr 'BIO Biograph-Theater Talstmi 475. Kvenspæjarinn Itölsk njósnarsaga i 3 þáttum. Myndin er að efni og útbúnaði alveg framúrsbarandi og spennandi frá byrjun til enda. Theodor Johnson Konditori og Kafé stærsta og fullkomnasta kaffihús í höfuðstaðnum. Bezta dag- og kvöldkaffé. — Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—--ii*/a Duglegan pilt, til snúninga, 15—16 ára gainlan, vantar mig nú kgar. G. Eiríkss. Hjálpræðisherinn. K1.-8V, í kvöld Kafíiliátíð. Uþplestur úr ævintýrum H. C. ^ndersens (danska). Inng. 25 au. Allir velkomnir. Smjörpappír uýkominn í Hókverzl. ísafoldar Florylin br r~Ser td bökunar, gerir brauðin etrh og er fjórum sinnum Qe' ^eira en venjulegt ger. /hiist óskemt, eins lengi og vill. 0 _ 1 r%retlands Urrs Ba ód,>r a *eks og kökur, er lang elstuast eftir gæðum. Búið til af StoföuðrkI8tfIðÍU Bfeta 1 sinni röð. Íldsölu fyrir kaupmenn, hjá G. Eírikss, Rvík. Ulboð. Tilboð óskast sem fyrst í ca. 9000 kubikmetra uppfyllingu. Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstoiu Bookless Bros Hafnarfirði. Við getum glatt vora viðskiftavini á því að okkar margþráða Dömuklæði er komið aftur, og þrátt fyrir mikla verðhækkun á ullarvörum selst það með að eins 16 aura hækkun pr. meter (10 aura al.) í Austurstræti 1. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. Erl. simfregnir. Opinber tilkynning frá brezkn utanríkisstjórninni í London. London, 8. júli. Frá Hellusundi. Sir Ian Hamilton skýrir frá þvl, að aðfaranótt hins 4. júlí hafi viður- eignin verið mjög hæg að norðan- verðu, en kl. 4 að morgni hófu óvinirnir grimma skothríð á skot- grafit vorar. Notuðu þeir þá allar fallbyssur, sem þeir höfðu haft áður gegn oss og nokkrar nýjar. Skot- hrið þessi hætti þó um sex-leytið og hafði þá eigi gert mikinn usla. Meðan þessu fór fram höfðu tyrk- nesk herskip í sundinu skotið á oss hér um bil 20 sprengikúlum 10 þumlunga; Að sunnanverðu hófu Tyrkir ákafa riflaskothrið um nóttina, en yfirgáfu ekki skotgrafir sínar. Klukkan 4 að morgni hófstórskotalið þeirra grimmi- lega skothríð, svo þess eru ekki dæmi hjá þeim áður. Eyddu þeir að minsta kosti 5000 byssukúlum. Þessi skothrið var þó ekki nema fyrirboði fyrir áhlaupi, sem Tyrkir gerðu á alla víglínu vora og var það viða all-ákaft, sérstaklega þar sem saman koma sjóliðsmannaher- deildin og lið Frakka. Á þeim stað hröktu Tyrkir fremstu liðssveit- irnar kl. 7 árdegis og réðust á nokkurn hluta þeirra stöðva, sem sjóliðsmannadeildin sat í. Eitthvað um 50 Tyrkir komust í skotgröf sjóliðsmannanna, en samt gátu vorir menn haldist þar við. Varaliðið og þeir, sem höfðu hörfað undan, gerðu gagnáhlaup þegar í og hröktu Tyrki út úr skotgröfun- um aftur. Tyrkneskar hersveitir sem gerðu áhlaup hægra megin við 29. herdeid voru því nær strádrepnar með riffla- og vélbyssukúlum. Vinstra megin fylktu Tyrir liði fyrir norðan og austan skotgrafir, sem vér höfðum nýlega tekið og gerðu mörg áhlaup, en þau mishepnuðust öll vegna þess hve lið vort stóð fast fyrir og sakir stórskota vorra. Skothiiðin tók að lina kl. 11 árd. en byrjaði þó aftur við og við. Árás þessi fór því gersamlega út um þúfur, og hún hefir ekki dregið kjark úr liðinu. Vér mistum fátt manna, en hið mesta manntjón, sem óvinirnir hafa beðið upp á siðkastið mun gera þi deiga við að ráðasl fram gegn skotum vorum. ,lvigtut‘ heitir skip, sem danska Grænlands- verzlunin hefir í förum milli Dan- merkur og Grænlands. Það lagði á stað frá Kaupmannahöfn laust eftir miðjan júnímánuð og ætlaði til Græn- lands. En er það kom út í Norð- ursjó, var það stöðvað af brezku her- skipi. Bretar leyfðu því þó innan skams að fara ferða sinna en tóku úr því allan -póst og sendu aftur til Kaupmannahafnar. Þar á meðal voru ýms bréf frá Knud Rasmussen. — Grænlendingar fá nú engan póst fyr en að ári, þvi þetta var seinasta skipið, sem fer þangað á þessu sumri. N Y J A B I O Systurnar Sjónleikur i tveim þáttum eftir 1ULES MARAY, leikinn af leikurum Pathé Fréres félagsins í Paris. Aðalhlutverkið leikur hin þekta leikkona jfr. Napierkowska. Myndin er með eðlilegum litum. Erl. sfmfregnir frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl. Kaupmannahöfn 9. júli. Austurrikskur kafbátur sökti ítölsku herskipi i Adríahafi. Friðarhorfur milli Þýzkalands og Bandaríkjanna ískyggilegar. Svíadrotning. Hún var stödd í Karlsruhe þegar frönsku og brezku flugmennirnir fóru herförina þangað. Ein af sprengi- kúlunum, sem þeir vörpuðu þar nið- ur, kom á höllina þar sem drotning- in átti heima en hún komst þó ósködd undan. Þegar hún kom til Berlínar aftur þóttust menn hafa heimt hana úr helju 02: var henni tekið með kost- um og kynjum. Var gengið í skrúð- göngu til bústaða hennar, ræður fluttar og sungnir þjóðsöngvar Svia og Þjóðverja. Drotningu félst mjög til um þetta vináttuþel borgarbúa. Hlýddi hún á ræðurnar og sönginn frá veggsvöl- um sinum og viknaði við. Áð lok- um bauð hún til sin formönnum faiarinnar og sat lengi að viðræðum með þeim. Bað hún þá bera þýzku þjóðinni árnaðarorð sín og það með að tilfinningar sínar drægju taum Þýzkalands á þessum siðustu og verstu timum. Þótti Þjóðverjum vænt um að heyra svo hlý orð af drotningunni, en Svium gazt miður að þessu. Varð úlfaþytur eigi all- lítill i blöðunum þar heima og þótti þeim drotning hafa gengið feti fram- ar en góðu hófi gegndi fyrir drotn- ingu hlautlauss ríkis. Það hafði áður verið i ráði að taka henni tveim höndum er hún kæmi að sunnan, en blöðin risu nú öndverð gegn þvi. Meðal annars segir Hjálmar Branting ritstjóri í blaði sínu, að eigi að hylla drotn- inguna þegar hún kemur úr ferða- laginu, þá muni jafnaðarmenn hitta einhver ráð til þess að sýna hvað hlutleysisskyldan krefjist af sérhverj- um manni, jafnvel þótt það sé drotn- ing.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.