Morgunblaðið - 10.07.1915, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Jlýkomið
i VQrzíunina i cfléalsfrœfi 12:
Ymislegt niðursoðið. Af kjötréttum: Lobscause, Gulash, Forloren Skil-
padde o. fl. Franskar Sardinur. Ostar ýmsar tegundir. fuitafeiti.
The. Þurkuð Epli og Aprikosur. Riisínur. Sveskjur. Möndlur. Sukkat.
Kardemomme. Hjartarsall o. fl. til bökunar.
Þvottasápa og Þvottaduftið góða. Asiur. Edik. Soya. Sultutau.
Altaf nóg til af Öli og Gosdrykkjum.
(ímsjónarmaður
hafnarinnar í Rvfk
verður ráðinn frá 1. október næstk.
Arslaun kr. 2000.00, er fari upp í kr. 3000,00
eftir eitt ár.
Umsóknir sendist bæjarstjórn fyrir 15. ágúst.
Borgarstjórinn í Reykjavik 8. júlí 1915.
K. ZIMSEN.
r——D A6BÖRIN. ZZZZS
AfmæJi í dag:
Asa Haraldsdóttir húsfrú.
Hólmfr. Gísladóttir skólastj.
Sofía Siguröardóttir húsfrú.
Þórunn Jóhannesdóttir húsfrú. ,,
Arni S. P. Hallgrímsson járnsm.
Arni Jónsson járnsteypum.
Carl Finsen umboðsm.
Páll Matthíasson skipstj.
Einar Thorlacius pr. Saurbæ.
Gísli Kjartansson pr. Sandfelli.
f. Joh. Calvin 1509.
Sólarupprás kl. 2.29 f. h.
Sólarlag — 10.35 síðd.
Háflóð í dag kl. 4.23
og í nótt — 4.43
Ingólfur fer til Borgarness á morgun.
Messað á morgun í fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 12 síra ÓI. Ól. í frí-
kirkjunni í Rvík kl. 5 síra ÓI. Ól.
Engir þingfundir voru haldnir í
gær. Aftur á móti voru flokksfundir
— og höfum vór heyrt að hiti hafi
verið mikill í fulltrúunum sumum.
Skýrsla um starf landssímans 1914
er komin út.
St. HeJens, leiguskip kolaverzl.
Björns Guðmundssonar, kom hingað í
fyrradag hlaðið kolum, eftir 9 daga
ferð frá Sidney f Nova Scotia.
Verkamenn hafa undanfarna daga
verið að hreinsa sl/ið úr Tjörninni.
Gott er það.
Botnvörpungarnir eru nú sem 65-
ast að hverfa á burt til síldveiða fyrir
Norðurlandi. Isinn kva<$ vera að mestu
leyti farinn.
Hestur fældist í gær á Laugaveg-
inum inni við Rauðará. Tveir kven-
menn sátu í vagninum, sem hesturinn
gekk fyrir, og fóllu þær báðar til jarð-
ar. Önnur meiddist ekkert, en hin
marðist töluvert/
Herlán Breta.
í nýjustu brezkum blöðum, sem
oss hafa borist, frá 27. f. m. er
sagt frá því að Bretar ætli nú að
taka nýtt herlán. Verður þetta her-
lán með öðru fyrirkomulagi en
tíðkast hefir um rikislán Breta.
Er svo ráð fyrir gert, að ríkir
sem fátækir geti skrifað sig fyrir
hlutum i láninu og borgað með
póstávisunum ef upphæðin nemur
ekki 100 sterlingspundum. Enn-
fremur geta þeir, sem vilja taka þátt
i láninu, borgað sinn hluta smátt og
smátt í sumar, «en 30. okt. á alt
féð að vera innborgað. Rikið greiðir
4V2 % vexti á ári af láninu og lán-
ið endurgreiðist á 20 árum frá
1925 — 1945.
Nýji fjármálaráðherrann, Reginald
M'Kenna, fær alment lof á Bret-
iandi fyrir það hvernig hann hefir
hagað lántökunni, og fjármálamenn
telja að rikið muni fá nieð þessu
móti 700—1000 miljónir sterlings-
punda.
----■ ... 1 o:o...............
10,000 loftför.
Daglegar árásir á
Þýzkaland.
Rithöfundurinn H. G. Wells hefir
hvatt til þess að smiðuð yrði i skyndi
10 þúsund loftför til þess að gera
daglegar árásir á Þýzkaland. Hann
staðhæfir að með þessu móti muni
hægt að leiða ófriðinn bráðlega til
lykta og eru honum margir sam-
mála. Þykjast menn sja, að ef hin-
ar gríðarstóru vopnaverksmiðjur
Krupps væru lagðar í auðn, þá
mundi bolmagn Þjóðverja þrotið.
M. Bleriot, hinn frægi franski
flugmaður og flugvélasmiður, segir
að það sé auðvelt að smíða svona
margar flugvélar á skömmum tíma.
Hann segir að ein verksmiðja geti
smíðað þær á 33 vikum, en ef allar
verksmiðjur í Frakklandi legðu sam-
an og eigi væri smiðuð nema ein
tegund flugvéla mundi verkið ganga
tiltölulega miklu hraðar.
Einkennileg tilviljun.
Texti sá, sem sira Eggert Pálsson
valdi sér í ræðunni i dómkirkjunni i
gær áður en þing var sett, var nið-
urlagið á þriðja kapítula i Kolossu-
bréfinu. En upphafið á þeim kapí-
tula er svo:
Þér konur, verið undirgefnar mönn-
um yðar eins og sómir þeim, sem
Drotni tilheyra.
Það er einkennileg tilviljun þetta,
að einkunnarorðin sem valin eru á
fyrsta þinginu eftir að konur hafa
fengið kosningarrétt, skuli vera niður-
lag þess kapítula, sem hefst með
því, að brýna fyrir konunum að
sækjast ekki eftir jafnrétti við menn
sína.
Elendinus.
Verzlun Svía og Breta.
Fiegnir hafa komið um það, að
Bretar hafi í hyggju að banna allan
vöruflutning til Sviþjóðar og yfirleitt
hætta viðskiftum við Svía. Ef þetta
er satt, þá er það all alvarlegt mál.
Sænskir kaupmenn leggja þó lítinn
trúnað á þetta, því vörur þær, sem
þeir flytja út, geta þeir jafnt selt
hvort Bretar kaupa þær eða eigi.
Nægur markaður er fyrir þær í
Þýzkalandi.
Annars halda menn helzt að fregn
þessi sé sprottin af því að smjör-
sending frá Svíþjóð var stöðvuð f
Kaupmannahöfn vikutíma samkvæmt
fyrirmælum frá Bretlandi. Var það
um sama leyti og þýzki kafbáturinn
stöðvaði »Venus« og neyddi skip-
stjóra til þess að kasta matvælafarmi
sínum fyrir borð. Gæti stöðvun
smjörsendingarinnar staðið í sam-
bandi við það.
^Jinna ^
Þ r i f i n 0g dngleg stúlka óskast ntt
þegar á kaffi- og tnatsölnhúsið Laugav. 25.
Kristin Dadlsted. • y
S t ú 1 k a til morgunverka óskast tttt
þegar. R. v. á.
S t ú 1 k a óskast i vist helzt strax.
_________________ R. v. á.
Yólastjóra vantar á eimskip með
130 hesta vél.
Uppl. hjá A. V. Tulinius, Miðstræti 6
Beauvais
Leverpostej
er bezt.
Póstur frá Ameriku.
Sökum þess að póstur sá, sem
sendur er ti! Norðurlanda frá Ame-
ríku yfir England hefir verið
opnaður þnr, hefir yfirpóstmeistari
Bandaríkjanna ákveðið að pósturinn
skuli hér eftir sendast beina leið.
Halda rrjenn að þetta sé gert að
undirlagi sænska ræðismannsins í
Washington.
Pósturinn til Danmerkur, Svíþjóð-
ar og Noregs verður því framvegis
sendur með skipum Norsku-Ame-
ríkulínunnar og skipum Sameinaða
félagsins. Noregur og Danmörkr.
græða á þessu fyrirkomulagi, því
bæði fá þau þóknun frá Bandaríkj-
unum fyrir það og í öðru lagi spara
þau útgjöld til Englands sem milli'
liðs.
Með þessu nýja fyrirkomulagi fef
Norðurlandapóstur frá Ameríku 2 —
3 á viku.
— mo 9 ------—
Frá útlöndum.
Ráðherraskifti i Rússlandi.
Eins og getið hefir verið áður, hefir
hermálaráðherra Rússa, Soukhom-
limoff sagt af sér. Keisarinn hefir
skipað fótgönguliðs-hershöfðingja
Palivanoff fyrir hermálaráðherra fyrst
um sinn.
Tilræði við Morgan. Ame
ríkska auðkýfingnum, J. Morgan, var
nýlega sýnt banatilræði. Hann særð-
ist þó iítið eitt og er nú á batavegi-
Illræðismaðurinn var handsamaður,
en fleygði sér út um glugga á fang'
elsinu og beið bana.
Ófriðarlok. Það er haft eftir
Vilhjálmi Þýzkalandskeisara, að ófriðm
um mnni verða- lokið í oktober. Þ^
eiga Þjóðverjar að hafa gersigr^
bandamenn. Þelta stendur ef 11
vill í sambandi við það, að Þjóð
verjar búa sig nú af kappi undir a
íefja höfuðsókn á vestri vígstöðvunuú1-
þurkar miklir hafa gengið í ^°r
egi og Sviþjóð í vor og sumar
og hefir horft.til vandræða. En
íefir gert vætur og hyggja menn
rætist eitthvað úr með uppskeru.