Morgunblaðið - 14.07.1915, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.07.1915, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ skipsins gegnum hafisinn fyrir Norð- urlandi, og ennfremur eina vísu sem Jón Ólafsson rithöfundur hafði kveð- ið á leiðinni út í Flóa á Rán — og bar hún þess fyllilega vott, að ekki hafði norðanáttin og sjógangurinn þjakað skáldið mikið. Klöppuðu menn skáldinu lof i lófa fyrir vis- una, en Hannes Blöndahl var ekki sjálfur viðstaddur. Þá þakkaði forseti sameiuaðs þings, sira Kristinn Daníelsson fyrir mót- tökuna og mintist stjórnar félagsins í skörulegri ræðu. Þar á eftir fylgdu margar ræður, Einar ráðherra Arnórs- son talaði fyrir minni Eimskipafé- lagsins, Eggert Claessen mintist botn- vörpuútgerðarinnar og þakkaði Magn- úsi Blöndahl fyrir lánið á Rán, Þorsteinn Gíslason talaði fyrir hönd blaðamanna, frú Briet Bjarnhéðins- dóttir fyrir unga íslandi, K. Zimsen borgarstjóri fyrir sjómannastétt lands- ins og beindi hann máli sínu sér- staklega til skipstjórans. Þá talaði Emil Nielsen fyrir Júlíusi skipstjóra, Sighv. Bjarnason bankastjóri fyrir framkvæmdarstjóranum og loks þakk- aði Magnús Pétursson skipstjóra fyr- ir hans dugnað að koma skipinu inn á hverja höfn við Húnaflóa — þrátt fyrir isinn. Þá höfðu verið haldnar io ræður alis og dreyfðust menn nú um þil- far og sali til þess að skoða skipið. Goðafoss er lítið eitt minni en Gullfoss en i öllu eins vel vandað og rambygt skip. Rúm fyrir far- þega er þar minna en á Suðurlands- skipinu, en aftpr á móti rúmar Goðafoss töluvert meiri flutning. Skipið er útbúið með nýjum loft- skeytatækjum og eru sumar vél- arnar af þýzkri gerð (Telefunken) en sumar af brezkri gerð (Marconi). Tjáði skipstjóri oss að vélarnar hefðu reynst ágætlega, t. d. hefði hann haft samband við loftskeytastöðina í Bergen þegar skipið var hér við Austfirði. Eru vélar þessar mikið þing en koma að litlum notum fyr en loftskeytalandstöð er kominn hér, hvenær sem það verður. Þjóðminningardagur Frakka er í dag, — Bastilludagurinn. Þá hefir jafnan verið mikið um dýrð- ir þar í landi en nú er því öðru visi farið, eins og áður hefir verið að vikið hér í blaðinu. Þjóðin á nú við þau kjör að búa sem ekki leyfa nokkurn fögnuð — hrygðar og harmatímar eru þar i landi. Hraust- ustu og beztu synir Frakklands hafa fórnað blóði sínu á altari orustu- guðsins, og fleiri verða að falla áður en honum sé fullfórnað. Um þvert og endilangt landið kveður við sorg- argrátur — mæður gráta syni sína, konur menn og meyjar elskhuga. Ekkert þorp, engin bær og engin fjölskylda hefir komist hjá bölvun ófriðarins. Þess vegna getur þjóðin eigi haldið minningardag sinn hátið- legan hversu fegin sem hún vildi. Frá alþingi. Bankalögin, sem bitist var út af á fundi neðri deildar í fyrradag, voru til framhalds i. umr. á fundi deild- arinnar í gær. Enginn tók til máls í þetta skifti, og var frv. vísað til nefndar þeirrar, er áður var kosin til að íhuga framkomin og væntan- leg frumvörp um bankamál. Nafna- kall var viðhaft og sögðu: já B. H., B. S., B. J., B. K., G. E., G. H., H. S., J. J., S. E., Sk. Th., Þ. J, og Þ. B.; nei E. P., E. A., H. H., J. E„ J. M., M. Ó., P. J., S. G„ S. S„ St. St. og Sv. B. — Vildi minni hlutinn vísa málinu til sér- stakrar nefndar. Dagskrá í dag. Efri deild: Tillaga *til þingsályktunar um að skipa nefnd í fjárlögin. Ein umt. Almenn skrásetning á Englandi. Walter Long, ráðherra lagði fyrir þingið 29. f. m„ frumvarp til laga um að allar konur og karlar 15—6 5 ára skuli settar á skrá. Kvað ráðherra frumvarpið komið fram til þess að hagnýta starfskrafta þjóðarinnar sem bezt. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ýmsar spurningar verði lagðar fyrir þá, sem skrásetja á. Meðal annars, á að spyrja karlmennina hvort þeir séu fúsir að ganga í her- iun og konur og karla á að spyrja að því hvort þau vilja takast önnur störf á hendur, en þau hafi nú. Margir telja að frumvarp þetta sé fyrirboði þess, að Bretar muni leiða í lög herþjónustuskyldu hjá sér. Srœnar Baunir frá Beauvais eru ljúffengastar. r—~1 DAÖBÓFJIN. Afmæli í dag: Björn M. Ólsen prófessor. Gísli Gíslason trésmiður. Halldór Jónasson cand. phil. Ólafur Briem, Viðey. W. B. Gottlieb veitingam. Grímur Jónsson cand. theol. Isaflrði. Sólarupprás kl. 2.39 f. h. S ó 1 a r 1 a g — 10.25 siðd. Háflóð í dag kl. 6.17 og í nótt — 6.36 Veðrið í gær: Vm. n. andvari, hiti 7.0. Rv. logh, hiti 7.0. íf. logn, hiti 5.4. Ak. n.n.v. andvari, hiti 2.5. Gr. n. kul, hiti 1.0. Sf. logn, hiti 6.3. Þh. F. Iogn, hiti 8.7. Þingvallaferðir eru nú að hefjast. Flestir fara í bifreið og sitja um kyrt þar eystra í nokkra daga. Nú gengur ein bifreið milli Reykjavíkur og Þing- valla aðeins og er það kostur mikill fyrir ferðamenn. Nýja Bió s/nir þessa dagana »Baskerville-hundinn«. Það er mynd af hinni frægu sögu Conan Doyle, sem birst hefir í íslenzkri þýðingu í »Lög- róttu« og margir hafa orðið hrifnlr af. Myndin er vel leikin, en nokkuð löng. Syning stendur yfir nær tvær klukku- stundir. Gestir í bænum: Jón Björnsson póstafgreiðslumaður í Borgarnesi, Har- aldur Sigurðsson, Kallaðarnesi, Matth. Jochumsson skáld. Farþegar með Goðafossi voru m. a. Matthías Jochumsson skáld og frú hans, Ragnar Ólafsson kaupm. á Akur- eyri, frú Stephensen frá Akureyri, Magnús Jónsson sýslumaður í Hafnar- firði, Guðm. Kamban rithöf. o. fl. Lestrarsalur Alþingis. Erindi frá Hirti Þorsteinssynh stud. polyt., um að honum veröt veittur 1000 kr. styrkur til að ljáka námi við fjöllistaskólann í Kaup' mannahöfn. Erindi frá stjórn Sambands uufíi mennafélaga íslands um að AlþiuS1 hækki styrk þann, er félögin hafs notið undanfarið, upp í 3500 kr. hvort ár næsta fjárhagstímabils. Erindi frá Júlíönu Sveinsdóttur um 800 kr. styrk hvort ár næsta fjárhagstímabils til að stunda málara- nám á listaskólanum í Khöfn. Áskorun frá stjórn Kaupfélags Húnvetninga um bættar strandferðir. Beiðni frá Guðrúnu Jónsdóttur, prestsekkju, um að eftirlaun hennar verði hækkuð. Beiðni frá Eggert Brandssyni, Rvík um 200—300 kr. áriegan styrk. Umsókn frá Birni Jakobssyni uffl 500 kr. styrk hvort ár næsta fjár- hagstímabil til íþróttakenslu. Umsókn frá Theodor Árnasyni um 1200 kr. styrk hvort ár næsta fjárhagstlmabils til hljómlistarnáms. Erindi frá Páli Erlingssyni sund- kennara um 1400 kr. styrk aflands- fé til uppihalds sundkenslu alt árið, með meðmælaáritun borgastjóra Reykjavlkur. Umsókn frá Jóni Þorbergssyni um 2000 kr. styrk til þess að fara utan og rannsaka hrossasölumálið. Erindi frá Magnúsi Guðlaugssynt smáskamtalækni um fjárstyrk fyrif lækningar. Erindi frá ábúendum Skaftafells f Öræfum um fjárstyrk til að girða kringum Bæjarskóg.. Erindi frá 236 alþingiskjósendu® 1 Eyrarbakkahéraði um að Ásgeir lækn- ir Blöndal fái að halda fulln® embættislaunum að eftirlaunum. Áskorun frá sýslunefnd Árnes- sýslu um fjárveitingu til brúargerð- ar á Stóru-Laxá. Beiðni frá Sigurði Erlendssyn* bóksala um 150 kr. árlegan elh' styrk. Erindi frá Árna Gíslasyni, fyrV' pósti, um eftirlaun. Frh. Stór þægindi. Bifreið fer til Þingvalla á hverju® degi kl. 5 síðdegis. Verð sama og f fyrra, 5 kr. aðra leiðina en kr. báðar leiðir. Farmiðar og upP' lýsingar fást á Hverfisgötu 56, niðrn Þar verður opin afgreiðsla allan dag' inn. Pantið helzt deginum dður- Maðurinn sem keyrir bifreiðina ión Sigmundsson. Simi 533. Stúlka óskast nm tima í eldhúB' ið á Yifilssteðum. Uppl. gefur frk, Steinsen- N e ð r i d ei 1 d: 1. Tillaga til þingsályktunar um skipun sjávarútvegsnefndar (23); ein umr. 2. Tillaga til þingsályktunar um skipun nefndar til að íhuga og gera tillögur um dýrtiðarráðstafanir o. fl. (26); hvernig ræða skuli. 3. Tillaga til þingsályktunar um skipun landbúnaðarnefndar (27); hvernig ræða skuli. 4. Tilllaga til þingsályktunar um skipun nefndar til að Ihuga og koma fram með tillögur um lög um þing- sköp 'handa alþingi (29); hvernig ræða skuli. 5. Tillaga til þingsályktunar um skipun nefndar til þéss að íhuga og koma fram með tillögur um strand- ferðir (28); hvernig ræða skuli. Ingólfnr fer til Borgarness á morgun. St. Helens, kolaskip Björns Guð- mundssonar kolaverzlunar, fór héðan í gær áleiðis til Glasgow að sækja kol. Skipið hafði meðferðis nokkra kassa af nýjum laxi, sem selja á í Bretlandi. Gifting. Þórhallur Jóhannesson cand. med. og yngismær Agústa Jó- hannesdóttir. Gefin saman í gærkveldi. Hljómleikar. Haraldur Sigurðsson frá Kallaðarnesi efnir til hljómleika í Bárubúð á föstudaginn. Settur læknir. Þórhallur Jóhann- esson cand. med. hefir verið settur læknir í Þistilfjarðarhéraði frá 1. ágúst næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.