Morgunblaðið - 20.08.1915, Side 2

Morgunblaðið - 20.08.1915, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ 6 eða 8 krónnr á dag, verði framvegis ekki reiknaðir yfir 5 krónur á dag, sem virðist nægilega hátt, auk ferðakostnað- ar. 6. Að reikningar efnarannsóknar- stofunnar, sem að undanförnu hafa verið mjög á eftir tíman- um, verði heimtaðir svosnemma, að tekjurnar geti komið fram á reikningsári f>ví, sem þær til- heyra. 7. Að sala á niðursuðuverksmiðj- unni á ísafirði verði reynd á þessu ári, og jafnframt verði rannsakað hvort fyrverandi eig- andi ekki er fær um að greiða það, sem á kann að vanta, svo að skuldinni, sem á verksmiðj- unni hvílir, verði að fullu lokið. CSE3 DAÖBÓfflN. Afmæli I dag: Áslaug Stephensen húsfrú. Elisabet Diðriksdóttir húsfrú. Guðrún Skaftadóttir húsfrú. Sigríður Jónsdóttir húsfrú. Helgi Salomonsson kennari. Sólarupprás kl. 4.30 f. h. Sólarlag — 8.31 síðd, Háflóð i dag kl. 1.37 árd. og — 2.27 síðd. Veðrið i gær: Vm. v. kul, hiti 10.0. Rv. s. st. gola, regn, hiti 10.3. If. logn, hiti 13.5. Ak. s. st. gola, regn, hiti 11.5. Gr. s. kul, regn, hiti 8.0. Sf. logn, hiti 12.5. Þh. F. v. kul, hitl 11.7. Póstvagn kemur í dag frá Ægissíðu — og aukapóstur frá Vík. Kjósarpóstur kemur einnig, . Ingólfur kom frá Borgarnesi í gær með norðan og austanpóst. Meðal far- þega Rich. Torfason bankabókari, Ein- ar Hjörleifsson og frú, Pótur Hjalte- sted og frú, Björn Sigfússon frá Kornsá og sonur hans Jón, Sigfús Bjarnarson konsúll og frú, frú Anna Bjarnarson og dóttir, ungfrú Gunnh. Thorsteins- son, Debell forstjórl og frú og Gísli Jónsson kaupm. úr Borgarnesi. Vísarnir á kirkjuklukkunni eru ekki sem áreiðanlegastir. Þegar klukkan slær 5 eða 6 eða eitthvað, eru vísarnir æfin- lega nokkrum mínútum á eftlr þeim tíma. Þessu ætti að koma í lag, því ekki kostar það marga peninga. SterJing fer héðan að líkindum á laugardagskvöldið. Margit, kolaskip, fer héðan senni- lega í kvöld eða í fyrramállð. Gamla prestaskólannm er nú verið að breyta í sölubúð. Hafa smiðir rifið af honum ytri klæðninguua og er hann nú heldur ósélegur. Málverkasýning Kristínar iónsdóttur og Guðm. Thorsteinssons verður opnuð sunnudaginn 15. ágúst, í Barnaskólanum (gengið inn um norðurdyrnar). Sýningin er opin frá kl. 11—6. Inngangur 50 aurar. Hvað er Danolit-málningP Það er nýjasta, bezta en samt ódýrasta málningin til allrar útimálningar Jafngóð á stein, tré og járn. Danolit er búinn til af Sadolin & Holmblad & Co’s Eftf., Kaupmannahöfn. Aðalumboðsmenn Warschau. Þegar Mssar fóru og fjóðverjar konm. Fréttaritari »Chicago Daily News« simar blaði sínu á þessa leið um það, hvernig Rússar yfirgáfu Wars- chau: Fyrsta fregnin um það, að Rússar ætluðu sér að yfirgefa Warschau barst um borgina þann 13. júlí. Þá hafði herstjórnin spurt brezka ræðis- manninn hvað hann þyrfti að fá mörg farbréf handa Bretum þeim, sem í borginni voru. 15. júlí var það auglýst i blöð- unum í Warschau, að borgin mundi yfirgefin 18. júlí, en yfirvöldin biðu eigi svo lengi. Mörg þúsund járn- brautarvagnar streymdu til og frá borginni og fluttu þaðan íólk og farangur austur á bóginn. Meira en helmingur borgarbúa var fluttur á burtu og auk þess mörg þúsund bændur og búalið, sem flúið hafði til borgarinnar og itti hvergi höfði sínu að að halla. Hver einasti hlutur, sem nokk- urt verðmæti var í, var fluttur burtu. Sérstaklega gættu Rússar þess ná- kvæmlega, að skilja ekki eftir nokkra koparögn. Allir símar vorn slitnir niður og vírinn sendur anstur á bóginn og jafnvel kirkjuklukkurnar voru teknar og fluttar burt. Allar þær vélar, sem voru of þungar til flutnings, voru brotnar sundur og brotin flutt á burt, en verksmiðjur allar ónýttar. Öll listaverk og bóka- söfn voru send til Moskva og 3 milj. Sterlingspunda í peningum. Erlendir konsúlar og aðstoðarmenn þeirra, voru sendir til Moskva. 21. júlí var Warschau tæmd öll- um þeirn munum, er ætla mátti að orðið gæti óvinunum að liði, og rúmlega 10 þúsund hús í borginni voru lögð í auðn. Menn, sem höfðu verið miljónaeigendur fáum dögum áður, yfirgáfu borgina sem öreigar. Dagana áður en borgin var yfir- Nathan & Olsen. gefin, hækkaði verð á matvöru tí- falt og enginn vatnsdropi var i borginni, því vatnsdælurnar höfðu verið teknar og sendar burt. Þannig var þá borgin, þegar Þjóð- verjar komu þangað. James Murray. Sir James Augustus Henry Murray fæddist i Suður-Skotlandi 1837; hann andaðist í Oxford 26. f. m. og hafði þá átta um sjötugt. Hann hefir ritað fjölmargt um enska mál- fræði og skozkar-mállýzkur. En það sem gerði hann frægan um allan heim, var það, að Oxford-háskólinn fól honum á hendur að safna til sögulegrar orðabókar enskrar tungu, sem háskólinn ætlaði að gefa út, og að hafa á hendi yfirritstjórn hennar. Þessi mikla orðabók: New Enqlish Dictionary on historical prin- ciples, byrjaði að koma út 1879. Þetta tók hann svo mikinn tíma, að hann sinti ekki öðru upp frá þvi til dauðadags. 1904 hélt háskólinn hon- um mikið gildi, þar sem við voru flestir frægustu vísindamenn landsins i ýmsum greinum. Það var í minn- ingu þess, að þá voru liðin 25 ár frá því er orðabókin byrjaði að koma út. Hann gat þess þá i ræðu, sem hann hélt, að sér væri því miður lítið kunnugt um, hvað gerst hefði í heiminum síðustu 25 árin. Hann hafði ekki haft tíma til að lesa blöð. En þegar hann kæmi þreyttur heim frá dagsverki sinu á kveldin, hefði hann verið vanur að láta dótt- ur sína segja sér frá þvi allra-mark- verðasta, sem hún hafði lesið um daginn. Fyrir nokkuð mörgum ár- um var hann orðinn svo hrumur, að hann varð að fá fri heilt ár og fór þá til Egiptalands sér til hvíldar og heilsubótar. Hann fékk þá nokkra aðstoðarritsjóra og var helztur þeirra próf. W. Craigie. Nú eru að eins eftir óútkomin fáein hefti af orðabókinni (W—Z) og líklegt talið að henni muni verða lokið á 2 árum eða þar um bil. Hún er stærsta orðbókarfyrirtækið ' 0?t sem nokkur þjóð hefir ráðist h hefir þegar kostað margar tnW. Sterlingspunda. ]• ÓL Frá Rússunb gCtt Þegar rússneska þingið var ^ héldn ráðherrarnir hverja ræðunJ fætur annari um ófriðarhorfur0 Voru þeir allir á einu máli u® ; að Rússar þyrftu ekki að kvíða nel°^ Þeir mættu vera alveg örugg'r bandamenn mundu áreiðanlega sig að lokum. Þingmenn tóku þeirra með miklum fögnuði. Þýzk blöð hafa rætt um þe°na, þingfund. »Berliner Tageblatt* se8ir Vér höfum jafnan varað lesen' vora við þvi, að leggja trúnað á I að Rússland æski sérstaks friðar, höfum jafnan bent á hve lítið er dur ti efor marka fregnir, sem koma um r frá Norðurlöndum til Þýzkala° * Jafnvel nú eftir sigra vora í * ^ landi, erum vér þeirrar skoðunat rússneska stjórnin fái haldið vaka0 sigurvon þjóðarinnar og haldið áfr ófriðnum. »Kreuz Zeitungc segir: Þróttur Rússlands er enn óþ°rf' \W inn — það verðum við að v kenna eftir það sem crerst heu gerst 7 þinginu, og það þvi fremur et x er satt sem sagt er, að ræður r herranna hafi vakið fönguð fflilclllI,f en engin mótmæli. Það eru a . líkur til þess að mikill meiri b0 þingsins fylgi stjórninni að málö^ Enginn tekur mark á þvi seffl si er i þinginu í eyru alls heims111 En hitt, að þingið skyldi korna þa°^ ig fram, er augljós vottur uffl P{ þjóðarinnar. Árás á Joffre og Millerand- v gftif Vossische Zeitung hefir þa° fréttaritara sínum i Zurich, að v ^ ave Hervé, hinn æsti jafnaðar®3 ,. í Frakklandi, hafi gefið út pésa tt° urn með skömmnm um þá I ^ hershöfðingja og Millerand bet"111 j, ráðherra. Ásakar hann Mi“e fyrir það að hann skelli allri inni á þá herforingja, sem b011 {) er i nöp við, þegar Joffre skáta fyrirætlunum sínum. Sé þetta 7, til þess að losna við þá lierforlll^j Hervé krefst þess að Mi^e7fj segi af sér, eða þá að hugs® um hag ættjarðarinnar heldur eti \ Það sem mesta eftirtekt ve $ sambandi við þetta mál, er Þ. jpp Gallieni skyldi ekki gera bæklin^j upptækan. Hafði honum verið ) út um alt áður en stjórnin taumana og lét bannfæra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.