Morgunblaðið - 20.08.1915, Page 4

Morgunblaðið - 20.08.1915, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Caille Perfection JA bita- og land-mótorar, eru lang-ódýrastir, ein- faldastir og bezt gjörðir. Léttari og fyrir- ferðarminni en nokkrir aðrir mótorar. Avalt íyrirliggjandi bjá. G. EÍPÍkss, Reykjavík, sem gefur aliar frekari upplýsingar viðvíkjandi rnótorum þessum. Frá Landssimanum. Alt að 12 notendur geta fengið beint|[samband við miðstöð landssímans til utanbæjarsamtala. — Afnotagjald 36 kr. á ári fyrir sérstaka línu og áhöld. Menn snúi sér til landssímastjórans. Reykjavík 19. ágúst 1915. O. Forberg. Jioí. Agæt ofnkol sel eg heimflutt á kr. 7.75 skippundið. Kolin eru við Yölnndarbryggiu og verða afgreidd þaðan. ^Jahníinus Cyólfsson. Ýmisleg eldhúsáhðld (emaileruð) sérstaklega til að sjóða i við gas, nýkomín til JSaura tS/iiolsan, (Joh. Hans.ens Enke) Austurstr. 1. Ibúð. 4—5 herbergja íbúð óskast á góð- um stað frá 1. okt. Uppl. gefur Jón Gislason hjá Thore. fflo * °g w P u ■1 mikið úrval, nýkomið í Fronsku verzlunina. Kafft, Sykur og allskonar matvara ódýrust í Verzl. VON, Lgv. 55 Spyrjið um veröið. Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Sími 497. Kanpið Morgunblaðið. VÁTI^YGGINGAj^ Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gislason. _ Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabócafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurance Forening limit. Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. A. V. Tulinius Miðstræti 6, Talsími 254. Brunatrygging — Sæábyrgð. Striðs vatry ggin g. Skrifstofutími 11—12.______ Det kgl octr. Brandassurance Co. Kaupmannahöfn vátryggir: hus, hitsgögu, alls- konar vöruforða o. s. frv. gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjald. Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h. i Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen) N. B. Nielsen. Oari Finsen Laugaveg 37, (uppi) Brunatryggíngar. Heima 6 V*—7 V*. Talsimi 331. Sveinn Björussou yfird.lögm. Frfklrkjuveg 19 (Staðastað). Sfmi 202. Skrifstofutimi kl. 10—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6 Eggert Claessen, yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulaga haima 10—11 og 4—5. Sfmi 16. Olafur Lárusson yfird.lögm. Pósthússtr. 19. Sími 215. Veujulega heima 11—12 og 4— Jón Asbjörnssou yfid.lögm. Austurstr. 5. Sími 43 5. Venjulega heima kl. 4—3%. Guðm. Olafsson yfirdómslögm. Miðstr. 8. Simi 488. Heima kl. 6—8. Grímait. 13 Skáldsaga eftir Katherine Cecil Thurston. Framh. — Eg ? — Eg var tuttugu og fimm ára að aldri þá. Eg var von- góður og stærilátur, en það verður ekki látið í askana. — En fjölskylda yðarf — Seinasti ættingi minn dó þeg- ar eigurnai fóru. — Og vinir yðar? Loder lagði frá sér pípuna. — Eg sagði yður áðan að eg var þá tuttugu og fimm ára, svaraði hann. Er það ekki nægileg skýringf Eg hafði aldrei þurft á vinum að halda meðan alt lék í lyndi, og þegar skifti um veður i lofti, þá breytti það í engu tilfinningum mínum. I stuttu máli: Eg var 25 ára gamall. Hann brosti. — Þegar eg vissi hvernig komið var, seldi eg allar eigur minar nema eitt borð og nokkrar bækur. Eg stakk peningunum í vasana og fór af landi burt án þess að kveðja nokkurn mann. — Hvað lengi voruð þér erlendis f — Sex ár. Á þeim tíma ferðað- ist eg um hálfa Norðurálfu og nokk- urn hluta af Asíu. — Og svof — Nú, svo sneri eg aftur heim til Lundúna. Hann leit harðlega á Chilcote og mælti ennfremur: Þér getið ekki skilið hvers vegna eg hefi fæðst í þennan heim. Mér sjálfum verður og stundum á að efast um það. Chilcoti breytti svip og ætlaði að standa á fætur, en hann hneig aftur niður í stólinn. — Eigið þér enga vinif mælti hann. Og þykir yður ekki vænt um lífið ? Loder leit á hann. — Eg hélt að eg hefði talað nógu skilmerkilega. — En eruð þér yðar eigin hús- bóndi ? , — Maður er aldrei sinn eigin húsbóndi, þegar maður þarf að vinna fyrir mat sínum. Ef forlögin hefðu ekki hagað því á annan hátt, væri eg nú ef til vill stjórnmálamaður og löggjafi en þér ekki. Vonir mínar stefndu einu sinni f þá átt, en bæði vonir og annað ern eign liðna tímans. Hann þagnaði skyndilega og leit á gest sinn. Chilcote sat þar og hnyklaði brýrnar og beit á vörina. Nokkra stund horfði hann til jarðar, en svo leit hann skyndilega upp og horfði beint í augu Loder: — Ef til vill er það hægt að kveðja liðna tímann aftur. V. Það varð stundarþögn inni. Svo slógu þrjár klukkur ellefu samstundis. Chilcote hrökk við og stóð á fæt- ur. Og svo mælti hann eins og hann væri knúður til að tala. — Þér haldið ef til vill að eg sé vitlaus f Loder tók út úr sér pípuna sem hann var að reykja. — Nei, svo djarfur er eg ekki, mælti hann með mestu hægð. Chilcote virti hann fyrir sér eins og hann vildi sjá hvað hinn væri að hugsa um. — Hlustið þér nú á mig, mælti hann svo. Eg kom hingað í kveld til þess að gera yður tilboð. Þegar eg hefi sagt yður frá því, munuð þér hlæja að því eins og mér varð fyrir sjálfum, er mér datt það i hug. En svo mun yður skiljast að það er framkvæmanlegt — og — og —• svo munuð þér fallast á það, eins og eg sjálfur. Hann talaði svo hratt að orðin hnutu hvert um annað. Loder ætlaði að svara, en Chil- cote benti honum að þegja. Á svip hans mátti lesa þráa þann, er ein- kennir sum vesalmenni. — Eg verð aðeins að taka það fram áður, að eg er hvorki ölvaður né geggjaður. Hann horfði beint í augu Loders og reyndi að hafa vald á sér. — Það gengur ekkert að mér —• eg er fullkomlega rólegur. Aftur ætlaði Loder að mæla eitt- hvað og aftur benti Chilcote honum að þegja. — Nei, hlustið á mig. Þér sögð- uð mér áðan brot úr æfisögu yðar. Lofið mér nú að segja yður brot úr minni æfisögu. Þér segið að for- lögin hafi leikið yður grátt. Eg hefi leikið sjálfan mig grátt og það er verra. Mér hafa gefist hin beztu tækifæri til frama, en eg hefi teflt æfitaflinu svo illa að það er ger- tapað. Aftur varð þögn. Svo leit Loder á hann. — Morfin? mælti hann rólega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.