Morgunblaðið - 19.10.1915, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
Westminster
Cigarettur
reykja alkr sem þær þekkja.
Reynið og sannfærist I
Fást hjá kaupmönnuni.
U nglin?
vantar á gufuskipið »Are«, sem
liggur hér á höfninni.
Uppl. hjá
Elíasi Stefánssyni
framkvæmdarstjóra,
Niðursoðið kjöt
frá Beanvais
þykir bezt á ferðalag'L
Líkkistur
fást vanalega tilbúnar á
Hverfisgötu 40. Sími 93.
Helgi Helgason.
en hitt ekki. Það hefir verið gert hér
með einum lögum, sem só bannlögun-
um sælu, öllum landsmönnum bannað
að eignast svo mikið sem flösku af
matarvíni — eftir 1915, vegna nokk-
urra ofdrykkjumanna (sem nú bara
drekka brenslu spíritus í staðinn); allir
vita hvernig þau lög hafa gefist.
Nei, lofum frjálsbornu fólki að ráða
eigum sínum og gjörðum; aðhafist það
eitthvað sem varðar við lög — bregði
þá lögreglan fjótt og skörulega við og
refsi, — en ekki að búa til lög, þótt
ekki væru nema bráðabirgðalög, sem
hefta frelsi manna. I. B.
Með þessari grein er útrætt um
þetta mál hór í blaðinu.
Skipatjón Þjóðverja.
Tjón.^ það, sem Þjóðverjar og
bandamenn þeirra hafa beðið á kaup-
förum sínum fyrsta ár ófriðarins, er
afskaplega mikið. »Journal des De-
bats« birtir nýlega nákvæma skýrslu
yfir skipatjón miðrikjanna. Samkv.
henni hafa Þjóðverjar mist 521 kaup-
för, Austurríkismenn 75 og Tyrkir
56. Skip þau, sem liggja í hlut-
lausum höfnum, eru auðvitað ekki
talin með. —
Fjöldi skipafélaga í Þýzkalandi eru
gjaldþrota og eiga enga viðreisnar-
von.
Metið til fjár nemur tjón þetta
mörg hundruð miljónum króna.
Nokkrir
röskir drengir
geta fengið að selja blöð í dag á
Laugavegi 63 (búðinni).
Knud Rasmussen.
íshafsfarinn þekti, Knud Ras-
mussen, sem margir hér munu
kannast við frá dvöl hans hér á
landi með dönsku stúdentunum
forðum, hefir dvalið í Kaup
mannahöfn síðan í fyrra. Félagi
hans, Peter Freuchen, sem und-
anfarin ár hefir verið í förum
með honum i Grænlandi, er gift-
ur Eskimóakonu og býr í Græn-
landi.
Rasmussen er að undirbúa
nýjan leiðangur norður í höf;
ætlar hann meðal annars að
kanna norðurhluta Kanada. Hefir
hann í sumar átt bréfaviðskifti
við norðurskautsfarann fræga,
Peary, um leiðangur þennan.
Hefir Peary beðið hann koma til
Bandaríkjanna og flytja þar fyrir-
lestra um leiðangurinn. Fer
Knútur nú bráðlega vestur yfir
haf í þeim erindum og þykir
Dönum það heiður mikill að sú
för skuli farin að tilhutun Peary’s
hins heimsfræga.
Smávegis.
Hindenbnrg. Hann er svo sem
kunnugt er, sá maður, sem mest er
talað um allra manna í Þýzkalandi. Ný-
lega var honum reistur minnisv. í Berlín,
götur í borginni hafa verið skírðar um
og nefndar Hindenburgs-götur, bakar-
ar kalla sæta-brauð sín með hans nafni,
sérstök bjórtegund er komin á mark-
aðinn, sem nefnist Hindenburgs bjór
og nú hefir járnbrautarbrú ein afar-
mikil, sem bygð hefir verið yfir Born-
hólmergötu f Berlín, verið nefnd
Hindenburgs-brúin.
Póstkort. Þjóðverjar hafa nú bann-
að að senda nokkur póstkort af bygg-
ingum eða mannvirkjum f Þýzkalandi
til annara landa. Er það til þess að
óvinirnir viti sem minst um staðháttu
og legu bygginga í borgunum, ef ske
kynni að loftför heimsæktu landið.
Gapastokkur. Síðan ófriöurinn hófst
hafa Þjóðverjar tekið upp á því, að
setja fólk, sem eitthvaö hefir gert
fyrir sór í »gapastokkinn«, það er að
segja ekki á sama hátt og gert var
fyr á tímum, heldur með því móti,
að birta nöfn fólksins í blööunum og
á opinberum tilkynningum, sem fest-
ar eru upp á hvert götuhorn.
Þannig hefir verið farið að við kon-
ur, 8em litið hafa of hýru auga til
brezku herfanganna. Þá hafa og nöfn
kvenna, sem hafa látið spákonur spá
fyrir sér, verið birt í blöðunum. Spá-
kerlingarnar kváðu hafa afskaplega
miklar tekjur í Þýzkalandi um þessar
mundir.
Nathan & Olsen
hafa á lager:
Exportkaffi — Kaffikannan. —
Kaffi, brent.
Do. óbrent, ný tegund — polerað Rio nr. 1 og 2.
Chokolade — tnjög góð tegund — Bensdorp —
Melis, höggvinn og steyttur.
Puðursykur.
Mjólk, niðursoðin — »Ideal« —
Vindlar og Vindlingar, margar tegundir.
Spil, margar teguudir.
Seglgarn — fínt og gróft —
Snijorsaít — ekta Lfineburger Salt. —
Fiskilínur.
Grænsápa.
Með »Sterling« kemur:
Rúgtnjöl, gott og ódýrt.
Bankabygg.
Kjöttunnur.
Að eins fyrir kaupmenn og kaupfélög.
Fínar
Tíqaciníljer og' TuSipanar
(Blómsturlaukai).
Laura Jiieísen,
Husfursfræfi 1.
Atvinna.
Duglegur og áreiðanlegur ungling-
ur, um 20 ára, getur fengið góða
stöðu á skrifstofu hér i bænum.
Umsóknir merktar »117« sendist
Morgunblaðinu hið fyrsta.
Beauvais
Leverpostej
er bezt.
Margarine
er lang ódýrast í verziun
ións Arnasonar,
Vesturgöiu 39.
Mikill afsláttur, ef m i k i ð er keypt
í einu.
cTSaupsKapur 0
Hreinar nllar- og prjónatusknr
eru borgaðar með 60 aurum kilóið gegn
vörum í Vöruhúsinu. Vaðmálstuskur eru
ekki keyptar._____________
Morgunkjólar mitið úrval á Vest-
nrgöta 38 niðri.
Morgunkjólar frá 5,50—7,00
hvergi betri né ódýrari en i Doktorshús-
inu, Vesturgötu. Mikið úrval.
Morgunkjólar, íangsjöl og þri-
hyrnur eru ávalt til sölu í Garðastræti 4,
uppi. (Gengið npp frá Mjóstræti 4).
Eæði oghúsnæði óskast vetrar-
langt hjá góðu fólki. R. v. á.
^ *2íinna ^
S t ú 1 k a óskast til morgunverka. R.v.á.
S t ú 1 k a getur fengið góða vist nú
þegar. Upplýsingar flverfisgötn 46.
^ cTapaé ^
V agnhestur, albrúnn, marklaus, níu
vetra, nýlega skaflajárnaðnr hefir tapast
hér fyrir ntan bæinn. Finnandi er vin-
samlegast heðinn að skila honnm á Vita-
stig 9 gegn fundarlaunum.
Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði heilir
tanngarðar og einstakar tennur
á Laugavegi 31, uppi.
Tennur dregnar út af lækni dag-
lega kl. ri—12 með eða án deyf-
ingar.
Viðtalstími io—5.
Sophy Bjarnason.
T a p a s t hefir hudda með peningum í.
Finnandi skili Mðrgunbl. gegn fundar-
launum.
< cffensla
Kensla í þýzku,
ensku og dönskn fæ=t hjá cand. Halldðri
Jónassyni Vonarstr. 12, gengið npp tvo
stiga. Hittist helzt kl. 3 og 7—8.