Morgunblaðið - 30.11.1915, Síða 2

Morgunblaðið - 30.11.1915, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ H. P. Duus A-deild. Hafnarstræti Kápur og Treyjur, Alklæði og VetrarsJöI. er félagið hefir til meðferðar. Eins og- því hefir verið hngað getur ekki gengið lengur. 3. Félagið veitir ýmsa styrki, sem eru meiningarlausir. T. d. vil eg nefna túnasléttu styrk og styrk til smjörgerðarbúa. Báðar þessar styrk- veitingar voru — máske — nauðsyn- legar fyrst, en nú er tíminn fyrir löngu kominn að fella þær burtu. Enginn maður sléttar 1 dagsláttu í túni sínu vegna þess að hann á von á þessum styrk, hann gerir það af miklu heilbrigðari hvötum. Þessir styrkir mynda stóra upphæð og þeim peningum væri betur varið á öðru sviði. Við bændur viljum heldur ekki launa ráðunaut til að sitja í »Socia- listiskuc-verkmannafélagi í Reykjavik. Hans verksvið er annarsstaðar. Það er aðallega tvent, sem riður á fyrir bóndann: Jarðræktin og hús- dýraræktin. Það þýðir ekkert fyrir bónda uppi í sveit, að heyja mikið og gott fóður, ef gripir hans eru svo ófullkomnir, að ekki borgar sig að láta þá umsetja fóðrið. Búnaðar- félag Islands lætur það framfara við þröskuld sinn, sem ódæði má nefna, gagnvart húsdýraræktinni. Til Reykja- víkur og í nánd Reykjavíkur eru vald- ar hinar beztu kýr, sem völ er á, hingað og þangað að á landinu. Mér er kunnugt um að kýr þessar eru úr fyrsta og bezta flokki kúa hér á landi, en samt er hver kálfur skor- inn og móðirin, þegar hún er útlif- uð — sem von er til, án þess að hafa yngt sig upp. Þetta fer fram við þröskuld Búnaðarfélagsins. Þetta kalla eg áhugaleysi. — Óþolandi. — Gæti félagið ekki komið á fót, smá nautgriparæktaíbúi, t. d. 10—20 kúm. Jú, með mjög litium kostnaði. Kýrn- ar eru valdar hingað hver fram af annari og alt drepið niður. Þetta þarf nauðsynlega að bæta og er eng- um skyldara að leggja mál þar til en þeim mönnum, sem sitja í Bún- aðarfélaginu. Annað niðurdrep fyrir búnaðinn fer fram við dyr félagsins, og er það engu betra en hið fyrra. Sér- staklega i Gullbringusýslu hafa hin- ar stærstu og ágætustu jarðir OTÖið tyrir því að falla í eign þeirra manna sem hafa gert þær ómögu- legar til ábúðar. Sumar svo mjög eyðiiagðar og aðrar pressaðar með álögum af eigandanna völdum. Að félagið geti ráðið bót á síðastnefndu, segi eg erfitt, en skilt væri því að koma með tillögu í þá átt. Þetta horfir til alvarlegra vandræða fyrir alla þjóðina. Landið er blátt áfram eyðilagt af eigendum þess. FiðurogDúnn gufuhreinsað, lyktarlaust. Tilbúinn Sængurfatnaður. Það er þess vert fyrir bændastétt- ina að hún athugi meðferð fjár þess sem henni er veitt af opinberu fé. Eg skal taka það fram að hér á eg ekki við neina óráðvendni heldur óráð. Eg bið alla muna það, að mér sýnist svo sera eg hér hefi skrifað. Geir Guðmundsson. Bessastöðum. -------- C3S5 DAÖBOfflN. C=> Afmæli í dag: Guðm. Guðmundsson verzlunarm. Har. Níelsson prófessor. Jónas Andrósson verzlunarm. d. Karl XII. 1718. Friðfinnur Guðjónsson Lauga- v e g 4 3 B, selur fjölbreytt og smekk- leg a f m æ 1 i s k o r t. Sólarupprás kl. 9.44 f. h. S ó I a r 1 a g — 2.49 e. h. Háflóð i dag kl. 11.6 f. h. og kl. 12.14 e. h. Veðrið í gær. Mánudaginn 29. nóv. Vm. a. stormur, hiti 5.6 Rv. a. sn. vindur, hiti 5,5 íf. n.a. stormur, 3.5 Ak. n.v. andvari, hiti 2.0 Gr. a. st. gola 0.0 Sf. logn, hiti 2.6 Þh. F. logn, hiti 6.5. Lækning ókeypis kl.12—1, Kirkju- stræti 12. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2. Tannlækning ókeypis kl. 2—3 Kirkjustræti 12. Ingólfnr Arnarson kom af fiski- veiðum í gær, eftir nær hálfs mánaðar útivist. Aflaði hann fremur lítið, 20 til 25 smálestir. — Hafði verið fyrir Vesturlandi. Leiðrétting. í greininni um Lands- spítalasjóðinn í sunnudagsblaðinu hefir fallið úr ein setning. Þar stóð að »kon- ur þær, sem að þessu máli standa, eru ekki svo barnalegar«, en átti að vera: »svo barnalegar að halda það, að fjár- söfnun þessi megni af eigin ramleik að reisa Landsspítala«. 80 ára verður í dag frú Jakobína Thomsen, ekkja Gríms Thomsens. — Verður henni í tilefni af afmælinu hald- ið samsæti í Iðnó í kvöld af nánustu ættingjum og vinum. Sterling kom til Vestmanneyja í gærmorgun. Veður var þar ilt, og gat skipið ekkert aðhafst þar fyrir stormi og brimi. Þorst. Júl. Sveinsson skipstjóri, sem verið hefir leiðsögumaður Fálkans undanfarið, sigldi utan á Fálkanum um daginn. Hans mun vera von aftur hingað um jólaleytið. Pétur Ólafsson konsúll og Arreboe Clau8en fóru til útlanda á Gullfossi í fyrrakvöld. Clausen verður starfsmað ur á skrifstofu Eimskipafélagsins í Leith. Oft og þrásinnis höfum vór bent á það, að setja þyrfti ljósker á Btaura þá, sem reknir eru niður í höfuina, skamt frá steinbryggjunni. Bjuggumst vór við því, að því yrði kipt í lag, en svo hafa nú liðið vikur og dagar, að það hefir ekki verið gert. Er það kostnaðurinn við ljósið, sem aftrar mönnum frá því 1 Borgar það sig bet- ur að menn hvolfi fyrst undir sór og farist vegna ljósleysisins þarna ? Lá nú við sjálft að svo yrði í fyrrakvöld. En eigi vitum vér enn hvort það er næg viðvörun. Gangverð erlendrar myntar í bönk- unum er nú: Sterlingspund 17.60 Mörk 74.50 Frankar 64.00 Florius 1.60 Dollars 3.90 Póststjórnin. í fyrrakvöld fóru hóð- an tvö skip, Gullfoss kl. 9 til Aust- fjarða og útlanda og Botnía til Yest- fjarða kl, 11 síðd. Hafði burtfarar- tími skipanna verið auglýstur rækilega á afgreiðslustöðunum við steinbryggj- una, svo flestir munu hafa vitað um það. Jafnan hefir það verið venja að póstur só sendur um borð, einni stundu áður en skipið fer, og munu flestir hafa reitt sig á, að svo mundi verða gert í fyrradag. En það hefir vakið almenna gremju manna, að i þetta skifti var pósti í bæði skipin skilað um kl. 6. síðd., þ. e. 3 stundum áður en Gullfoss fór, en 5 stundum áður en Botnía fór. Hvernig stendur á þessu t Állir geta sóð, að þetta er ótækt og má ekki koma fyrir aftur. Það er nógu bölvað að menn verða að skila af sór bögglapósti um 20 stundum áð- ur en póstar fara, þó ekki só farið að þröngva fólki til þess að skila almer.n- um brófum mörgum stundum áður en pósturinn eða póstskipið fer. Vór viljum enn einusinni minna póst- stjórnina á, að pósthúsið er til fyrir fólkið, en fólkið ekki til fyrir það. Sterling fór kl. 3 í gærdag frá Vestmanneyjum og er væntanleg hingað snemma í dag. „Ef eg Yffipi forseti“ Roosevelt talar um Wilson. Fréttaritari franska blaðsins »Petit Journal* hefir átt tal við Mr. Roose-' velt nýlega og fórust honum þá meðal annars orð á þessa leið: — Eg held að árásimar sem brezku blöðin hafa beint að Sir Edward Grey séu of svæsnar. Bandamenn hafa lengi verið of bjartsýnir uffl hugsunarhátt Balkanrikjanna og þá sérstaklega Búlgaríu. Stjórnmála- kænskan (the diplomacy) er aðallega í því fólgin, að efna loforð sín og lofa ekki meiru en maður getur efnt. Roosevelt fórust svo orð um af- stöðu Bandaríkjanna i þessum ófriði: — Þjóðverjar hafa kæruleysislega troðið undir fótum rétt hlutlausra þjóða og það hafa Bandaríkin bent þeim á og fengið þá til að viður- kenna. Þetta er brot á alþjóðarétti. Bandaríkjunum hefir eigi tekist að standa við þau loforð. sem þau gáfu er þau undirrituðu friðarsamþyktina i Haag. Ef eg hefði verið forseti þegar Lusitania var sökt, eða þegat herferðirnar voru farnar gegn frið' sömum íbúum Parísar og Lundúnar þá mundi eg ekki hafa setið aðgerð- arlaus. Það var og sjálfsögð skylda vor. En hinn núverandi forseti lét tækifærið fara fram hjá og hummaði fram af sér að láta til sín taka ræki' lega, eins og þeir Lincoln eða WaS' hington mundu hafa gert. Roosevelt gat þess ennfremnr að Bandaríkjuuum hefði sézt yfir skyldu, er þau ættu að rækja fyf,í sjálfs sín hönd, á þann hátt að styrkj* * 3 * S * * * * * eigi nógu vel þjóðarvarnir. ÞeitD hefði sézt yfir það, að þau ættu hafa þann flota er gerigi næst*11 mesta flota heimsins. Erl. simfregnir. Kaupmannah. 29. nóv. Kitchener hafði heimuleg er' indi til Aþenuborgar, en eí nú tarinn til Róms. Þjóðverjar tilkynna að Serhar séu algerlega brotnir á ^ aftur. Herteknir serbnesk* menn eru 100 þúsundir. Serbneski herinn er flúlí] til Albaníu. 1 H. P. Duus A-deild. Hafnarstræti Tvisttau, Sængurdúkur, Gólf-, Borð- og Divanteppi. 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.