Morgunblaðið - 04.01.1916, Síða 2

Morgunblaðið - 04.01.1916, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Uppreist i Kina. Þegar það barst lit nú fyrst að Yaan-Shi-Kai ætlaði að taka sér keis- aranafnbót i Kína, urðu allmiklar óspektir þar t landi og þó sérstak- staklega í Shanghai. En fregnir þaðan eru svo óljósar að eigi er að vita hvað satt kann í þeim að vera. Upphlaupsmenn höfðu þó náð með brögðum á sitt vald kínversku beiti- skipi, sem heitir Chao-Ho, og hófu þegar skothríð á vopnabúrið í borg- inni. Varð af mikið tjón, en mann- fall eigi. Tvö önnur herskip, kín- versk, sem einnig voru þar á höfn- inni, tóku nú að skjóta á Chao-Ho, Yuan-Shi-Kai. og náðu skipinu aftur daginn eftir, en upphlaupsmenn komust undan. Eigi er það fullkunnugt hve mikil brögð eru að þessari uppreist, eða hve víðtæk hún er. En sagt er að borg- in Nanking hafi lýst því yfir, að hún væri hér eítir óháð. fapönum hefir litist svo iskyggi lega á skærurnar i Shangha: að þeir hafa sent þangað herskip til þess að gæta réttinda sinna. Þegar keisaraættin veltist úr ríkis- stóli og Yuan-Shi-Kai gerðist forseti hins kinverska lýðveldis í febrúar- mánuði árið 1912, þá var þar hið mesta óstand á öllum hlutum. Her- inn taldist vera 1 miljón manna, en hann var óæfður og liðsforingjarnir misjafnir, enda óánægja mikil i öll- um heinum út af því að hermönn- unum hafði ekki verið goldið kaup lengi. Gripdeildir, rán og uppþot voru daglegir viðburðir með her- mönnunum, en smám saman komst þó heldur betra skipulag á, enda þótt aldrei yrði það gott. Ríkið heör vantað fé og stjórnarfarið hefir ekki verið hið ákjósanlegasta. Því að enda þótt Yuan-Shi-Kai sé dug- legur og vitur maður, þá hefir hann þó þann mikla galla að vilja einn cllu ráða. 7/. P. Duus JJ-deiíd. Hafnarstræti. Nýkomið: Svart Alklæði, sérstaklega góð tegund. Regnkápur svartar og mislitar. Friðarförin. Mr. Ford fór aftur vestur um haf með norska skipinu »Bergensfjord« á aðfangadag. Voru ekki aðrir í för með honum en einn vinur hans og þjónn. Áður en hann fór á stað gaf hann út ávísun fyrir einni miljón króna til þess að friðarmennirnir hinir gætu haldið áfram för sinni. Hann fór vestur um haf aftur vegna þess, að hann sá að sér mundi ekki verða neitt ágengt. Félagar hans höfðu aldrei getað orðið sam- mála, og það kom smám saman upp úr kafinu, að margt var ógert, sem hann hélt að þegar hefði verið gert áður en farið var frá Ameríku. Til dæmis komst hann fljótt að raun um það, að Skandinavar voru deigir til liðveizlu. Jungfrú Schwim- mer, sem hvatti hann mest til far- arinnar, á að miklu leyti sök á þeim vonbrigðum Fords, því hún hafði fullvissað hann um það, að stjórnir Norðurlanda mundu fúsar til þess að hjálpa honum eftir mætti og ganga þegar í stað opinberlega til verks í því, að koma á friðarumleit- unum. En er Mr. Ford varð þess var, að allar dyr voru harðlæstar, féll honum allur ketill í eld. Gunn- ar Knudsen, forsætisráðherra, neitaði því algerlega, að hann hefði gefið jungfrú Schwimmer nokkurt vilyrði um það, að leggja friðarpostulunum lið. Þvert á móti kvaðst hann hafa sagt henni, að ófriðarþjóðirnar mundu berjast til þrautar og málamiðlun mundi að eins verða til þess að gera ilt verra. Hann benti þá og til þess, er þýzki rikiskanzlarinn hafði sagt fyrir skemstu, að Þýzkaland gæti eigi framtíðar sinnar vegna slept hönd- um af Belgiu, vegna þess, að Bretar hefðu lýst því yfir, að þeir berðust til þess að endurreisa sjálfstæði Belgíu. Ef þessu yrði haldið til streitu, þá væri ekki gott að vita, hvernig málum ætti að miðla. — Norsku blöðunum falla þó vel orð i garð Mr. Fords. Fréttaritari nokk- ur, sem átti tal við Mr. Ford í Kristiania segir: — Eg held eg hafi aldrei hitt mann, kominn til vits og ára, sem er jafn barnalegur í sér og hann. Og honum var alveg sama um það, hvað menn segja um skoð- anir hans. Hann sagðist ekki bera neina virðingu fyrir alþjóðalögum og ekki skeyta þeim neitt. Og það var auðheyrt, að hann hafði ekki neina hugmynd um deilumál Evrópu og vandræði. Honum er þann veg farið, að trú hans hefir kent honum að hata allan ófrið og ófriðarviðbún- að, en getur þó ekki gert sér grein fyrir þvi, hvað þetta er samtvinnað, og sér eigi heldur neina orsök til vígbúnaðar. (»Daily Recordc). C33 D AöHófJIN. *=» Afmæli í dag: Jóna Bjarnadóttir húsfrú. Leopoldína Eiríkss. húsfrú. Daniel Jónsson skipstj. Jón Stefánsson skósm. Pótur Sigurðsson trésm. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2. (Myndasafnið er í Alþingishúsinu opið á sama tíma). Lækning ókeypis kl.12—1, Kirkju- stræti 12. Tannlækning ókeypis kl. 2—3 Kirkjustræti 12. Sólarupprás kl. 10.21 f. h. S ó I a r I a g — 2.43 e. h. Háflóö i dag kl. 5.1 e. h. og í nótt kl. 5.25 Veðrið í gær. Mánudaginn 3. janúar. Vm. v. hvassviðri, hiti 0.4. Rv. logn, frost 0.5. íf. n.a. hvassviðri, hiti 0.4. Ak. n.n.a. andvari, hiti 0.0. Gr. — Vantar. — Sf. logg, hiti 0.7. Þh. F. logn, hiti 3.5. Ingólfur fór til Borgarness í gær- morgun með norðan og vestanpóst, og kemur þaðan aftur í dag. Cleopatra. Síðari hluti hinnar fögru myndar var sýndui í Nýja Bíó í gær- kvöld og eins í kvöld. Prentviliur höfðu slæðst inn í fyr- irlestur ungfrú Evu Blytt, þann er birtur var í Morgunblaðinu á gamlárs- kveld. í 16. línu í þriðja dálki stend- ur: »af hollenzkum ættum«, á að vera »af keltneskum ættum«. í öðrum dálki 14. línu að neðan stendur: »hug- sjónaheimur« fyrir »hugsjónahlynur«. Þetta eru lesendur vinsamlegast beðnir að leiðrótta. Ingólfur Arnarson kom af fiskveið- um í gær og hafði aflað ágætlega — 1000 kítt og um 50 smál. í salt. Fisksalan í Bretlandi. Skallagrím- ur seldi afla sinn i Fleetwood fyrir 1840 sterlingspund, Snorri goði fyrir 1080 sterlingspund og Marz fyrir 1250 sterlingspund. Oll skipin munu nú vera á heimleið aftur. Hekla fer héðan til útlanda eftir nokkra daga. Fífill útsprunginn fanst á Stjórnar- ráðsblettinum á nýársdag. Það muö vera sjalagæft hór á landi um ara- mót. Tún hér græn sem á vordegu Klúbburinn. Boðað hefir verið til fundar í Reykjavíkurklúbb. Verður þá tekin ákvörðun um það hvort efnt skuli til dansskemtunar og jólatrós fyrir börn fólagsmanna. Bankamálið. Ekkert nýtt kvað hafa skeð í því síðan. Landstjórnin hefir ekki enn kveðið upp úrskurð sinn. Gullfoss fór frá Leith á nýársdagS' morgun. Væntanlegur hingað á mið- vikudagskvöld. Goðafoss er nú á Seyðisfirði. De Wet látinn laus. De Wet hershöfðingi og 118 menn aðrir, sem settir höfðu verið i fangelsi fyrir föðurlandssvik, voru látnir lausir rétt fyrir jólin. Þetta var gert eftir tilrnælum Buxtons lávarðar á þingi; en gjalda verða þeir sektarfé og lofa þvi að' skifta sér ekki framar af opinberuffl málum, koma eigi til mannfunda og fara eigi burtu úr héraði nema með leyfi yfirvaldanna. De Wet var hraustlegur að sjá,- þá er hann kom úr varðhaldinu og er það þá haft eftir honum fyrst allra orða, að það væri nauðsynlegt að Bretar og Búar gætu átt í friði; hann kvað sér og ekkert í nöp við Hertzog hershöfðingja og álita hann með mestu mönnum Suður-Afrlku. Þakkarguðsþjónusta var haldinn þá er De Wet var slept og var þar sægur manna saman kominn, mest kvenfólk. Sumir efuðust þó um að hér væri rétt að farið, að gefa fang- ana lausa, en þeir, sem bezt skyu bera á málin segja, að Bootha og Smuts muni ekki hafa gert þetta ef þeir álitu það ekki algerlega óhætt. Undir vorri konunglegu hendi og innsigli. Yngstu lcgin okkar eru enn nfflð þessa ráðgátu á nndan konungs' nafninu. Galdurinn er að skilja dönskunai »Under vor kongelige Haand °g Seglc. »Þessu til staðfestu er kcffl' ungsnafn vort, eigin hendi, og in°' siglic. Svo hefir einhver aulabárðurinO ^ »konventunni« í Kaupmannahöf11 gert úr þessu »undir vorri«, og helzt allar götur ofan í gegn. Meinlaust í sjálfu sér og etur ekj11 mat, en hafi manni einu sinni orðiö skapraun að þvi að reka augnn 1 þetta, tekur það sig upp. (»Nýtr Kirkjublað«)-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.