Morgunblaðið - 09.04.1916, Side 7

Morgunblaðið - 09.04.1916, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 er bezta át-súkkulaði í heimi. Fæst hjá kaupmönnum. Búið til af Tobler, Berne, Sviss. GES? DA0 3ÓRIN. Afmæli í dag. GuSrún Teitsdóttir, jungfrú. Halldóra Þórarinsdóttir, húsfrú. Guðm. Egilsson, kaupm. Pétur Bjarnason, skipstj. Sólarupprás ki. 5.21 f. b. S ó 1 a r i a g — 7.40 e. h. Háflóð í dag kl. 9.41 f. hád. og kl. 10.10 e. hád. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2. (Myndasafnið er í Alþingishúsinu opið á sama tfma). Náttúrugripasafnið opið kl. V/2— 2 V,- Veðrið í gær: Laugardaginn 8. apríl. Vm. n.v. stormur, hiti 1,1. Rv. n. kaldi, hiti 0,7. íf. n.a. snarpur vindur, hiti 2,2. Ak. n. gola, hiti 0,0. Gr. n.n.a. kaldi, frost 1,5. Sf. n.a. stinnings kaldi, hiti 2,1. Þh. F. s.v. stinniugs kaldi, hiti 5,1. Rigmor, eitt af Lauritzsens-skipunum kom hingað í gær með kolafarm frá Bretlandi. Fylla fer í dag frá Hafnarfirði til útlanda. Gullfoss kom í gser til Hafnarfjarð- kr frá Vestfjörðum. Lá skipið þar í gaerdag, en er væntanlegt hingað í dag sHemma. Skipið hrepti ill veður á ^estfjörðurn og hefir tafist töluvert við Kð. Bjarni Björnsson. Troðfult hús hjá honum < gærkvöldi. Ætlar Knn að endurtaka skemtun sfna í Kiðja sinn í Bárunni í kvöld. Er Bjarni 4 förum hóðan með Gullfossi í miðri v>ku. Morgunblaðið kostar framvegis 5 f lausasölu. Sunuudagsblöðin °8ta 10 aura. ^ ^nðsþjónustur f dag, 5. sunnudag föstu. (Guðspj. Gabrfel engill send- Lúk. L, 39—56). í dómkirkj- g1"1' kl. 12 síra Jóhann Þorkelsson, kl. ^8ha Bjarni Jónsson. í fríkirkjunni *2 8fra Ólafur Ólafsson, kl. 5 * Baraldur Níelsson. Steinbryggjan. Viðgerðinni á henni er uú nær lokið. Goðafoss fór frá Leith í gær. Flora. Ekkert hefir frózt um það, að Flóra só farin frá Stornoway enn- þá. Fráleitt mun skipið koma hingað fyr en í vikulokin. Ættarnafn hefir Einar Indriðason bankaritari tekið og fengið staðfestingu tjórnarráðsins fyrir. Heitir hann hér eftir : Einar Viðar. Jón frá Vaðnesi hefir um tíma flutt verzlun sína á Laugaveg 13, f hús Siggeirs Torfasonar. Er Jón að láta reisa steinsteypuhús á lóð sifini við Laugaveg nr. 23, og flytur þangað aftur að smíðinni lokinni. Hjónaband. í gær voru gefin sam- an í hjónaband f Kaupmannahöfn þau Páll Sæmundsson aðstoðarmaður í fjár- málaráðaneytinu danska og ungfrú Magnea Guðmundsdóttir Jakobssonar hafnarvarðar. Hótanir Þjóðverja. Fréttaritari »Daily MaiD í New- York segir að fréttaritari »The Ame- rican«v hafi það eftir flotamálastjóin Þjóðverja, að þeir hafi nú fundið ráð til þess, að ónýta kafbátanet Breta, og ef þýzka stjórnin fáist til þess að skeyta engu orðum Bandaríkjanna, þá muni kafbátarnir sökkva á hverj- um mánuði skipum, sem bera mil- jón smálesta, og einangra Bretland miklu rækilegar en Þýzkaland sé nú einangiað. Utan af landi Frá Sauðárkróki er símað, að þar sé nú góð tíð, en snjór er mikill fram til sveita. í Blönduhlíð er nú farið að taka svo rnikið að þar er komin dágóð jörð. Sögusagnir hafa gengið um það, að hesta hafi nýlega fent í Skaga- firði, en þær eru uppspuni einn, euda fennir hesta sjaldan eða aldrei þegar svona er áliðið vetrar. Það er helzt i fyrstu snjóum, þegar þeir leita sér skjóls þar sem þröng af- drep eru. Bretar missa skip. Þess var getið fyrir skömmu, að Þjóðverjar hefðu opinberlega tilkynt, að loftfar þeirra hafi varpað sprengi- kúlu á eitt brezku herskipanna, sem fóru til Slésvíkurstranda um daginn, og stórskemt það. Það hefir nú komið fram, að skip þetta var brezkt beitiskip, sem bar nafnið »Medusac. Var öllum skipverjum bjargað af brezkum tundurspilli. Spiritisminn. Fyrirspurn. Ef það er rétt, sem spiritistar kenna, að dauðinn sé vinnr manns og tilhlökkun að deyja, þá hiýtur það að vera skynsamlegt að stytta sér lífið. Gaman væri samt að fá að vita fyrst, hvort þetta sé ekki meining þeirra, því þá muna sjálf- sagt margir gera það, til þess að komast inn á þessar fullkomnunar brautir. j ^ > Ritstj. hefir beðið mig að svara háttv. fyrirspyrjanda. Skal það gert með fáum orðum. Spiritistar kenna ekki, að dauðinn tsé vinur allra eða að öllum mönn- um sé tilhlökkunarefni að deyja. Þvert á móti. Umskiftin eru að eins þeim þægileg, sem hafa með líferni sínu hér brotið sem minst gegn lögmálum tilveru sjálfra sín. Hinum, sem verja llfi sínu meira eða minna til að traðka þeim lög- málum, eru umskiftin slæm og mörg- um jafnvel ægileg. Sársaukinn verð- ur þar að kenna þeim það, er þeir ekki lærðu hér — og fyr eða síðar trúa spiritistar að hann gjöri það. Hver þessi lögmál séu, kennir spiri- tisminn líka. Eitt af þeim er það, að hver sem með fullu ráði og rænu stytti sjálfum sér aldur, baki sér með því sára eymd og harmkvæli peqar að loknu verki. í stað þess að flýja sorgir sinar, eykur sjálfs- morðinginn þær. Það er engin til- viljun að lifslöngunin er meðfædd og svo rík. Það er kensla náttúr- unnar um það lögmál sitt, að hver lifi skapað skeið. Það er því fjarri því að spiritism- inn örfi menn til sjálfsmorða. Hann einmitt getur fremur öllu öðru fælt menn frá þeim og er þetta eitt af mörgum dæmum þess, hve heims- þarft erindi hann á, jafnmikið þjóð- armein og sjálfsmorð eru í mörgum löndum. Eg hygg, að spiritisminn ætti fleiri vini og færri mótstöðumenn ef hin holla og heilbrigða trúar- stefna hans og lífsskoðun væri mönn- um kunnari. Menn mundu þá fremur skilja, að svo margir hinna skynsömustu og beztu manna verja tíma og kröftum til að berjast fyrir honum — skilja »áhangendagræðgi« þeirra. En meðan menn ekki hafa nema ófullkomna nasasjón af málinu og ef til vill byggja dóm sinn mest á rangsnúnum eða uppspunnum sög- um af sambandsfundum spiritista eða einblína á sorann, gagnrýningar- skortinn, sem þar kemur stundum ljós, en sem aðallega fylgdi áhang- endum málsins á bernskustigi þess, er ekki nema eðlilegt að menn séu því fráhverfir. En vilji menn kynna sér málið rakile^a, er eg ekki i neinum vafa um, að langflestir hljóta að tala hlytt um það og viðurkenna að gullið skín þar i hrúgum, en sorinn er að eins smáagnir, sem ekki ber nema sárlitið á í samanburði við það. Og þá mucdu menn ekki þurfa að spyrjæ eins og háttv. fyrirspyrjandi. Kr. Linnet. Örfiriseyjar-garðurinn. Eins og menn eflaust muna, hreyfði Jón Þorláksson því hvað eftir annað í bæjarstjórn, að Örfiriseyjar-garður- inn mundi vera of ótraustur. Hafn- arnefnd taldi hann nógu sterkan, en tók þó mál Jóns Þorlákssonar til athugunar, og fékk því framgengt að breytingar voru gerðar á garðin- um, þannig, að hann var hafður nokkuð þykkri en upphaflega var ætlast til, og einnig voru sett styrktarkné, i mlters breið, við hann að innanverðu, með 15 metra millibili. En mitt á milli þessara styrktarknjáa áttu að vera raufar í garðinn, þannig að hann væri i 15 metra bútum. Þetta var gert til þess að garðurinn brotnaði ekki þótt einhver hluti hans kjmni að siga meira en annar. Jóni Þorlákssyni þótti þetta þó eigi fullkomlega hyggilegt. Fann hann þvi það helzt til foráttu, að styrktarknén kæmu mitt á meðal raufanna i garðinn, en rétt hjá rauf- unum væri garðsins þó áreiðanlega mest styrksþörf. Fór hann fram á það að hafnarnefnd reyndi að fá því framgengt við Monberg, að styrktarknjánum yrði fjölgað um helming, og kæmi tvö kné á hvern garðbút. Hafnarnefnd hefir nú átt bréfa- skifti við Monberg síðan, og lagði fyrir bæjarstjórn i fyrrakvöld tilboð Monbergs, og tillögur frá sér um að þeim yrði tekið. Tilboðin eru þau, að garðurinn verði ekki steinlímdur eins langt niður og áður var ráð fyrir gert, en breidd hans að ofan haldi sér. Verður þá að- dragandinn tiltölulega meiri en garð- urinn tiltölulega þykkri heldur en áður. Styrktarknén hafa verið breikk- uð þannig, að þau verða 5 metra breið að neðan og 2 metra breið að ofan, og verða sett þar sem rauf- arnar eru i garðinn. Þykir þetta mikil bót og það sem bezt er — Mon- berg tekur enga aukaþóknun fyrir þetta. Oss skortir auðvitað þekkmgu til þess, að geta dæmt um hvort garð- urinn muni nógu traustur með þessu móti. Það eitt virðist liggja í aug- um uppi, að eins og hann var áætl- aður fyrst muni hann ekki hafa vefíð nógu sterkur. Annars mundi Monberg tæplega hafa verið svona liðlegur í samningum um það að gera hann traustari. Frá Egyptalandi. Brezka liðið, sem þar er, hefir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.