Morgunblaðið - 23.05.1916, Side 1

Morgunblaðið - 23.05.1916, Side 1
í*Hðjudag| ( ÉÉ ^rjLm Wiaí. 19 i6! HOBGDNBL&DID 3. áígangr 199. tðlnblað Ritstiórnarsímí nr. 500| Ritstjórí: Viihjálmnr Finsen. j Isafoldarprentsmiðja|Aforeiðslusími nr. 500 gf a V 1 Ih' j ©3 [1 Akaflega spennandi leynilög- regluleikur í 3 þáttum. Aðalhlutverkir^ leika: Em. Gregers, Vald. Möiler, A. Rehm. Geysir Export-kaffi er bezt. Aðalumboðsmenn: 0. Johnson & Kaaber Gamalt gert nftt. Hjólhestaslöngur og >dekk« eru 8erð sem ný á gúmmiviðgerðarvinnu- st°funni á Lindargötu 34. Bezt að anglýsa i Morgimbl. zWaupsRapur 0 rgel til sölu. Afgreiðslan visar á. Biðjið um: Lipton’s ||eirnsfræga the í pökkum og d(Jsum. Lipton’s sýróp, kjöt- extract, pickles og annað súr- ^eth fisk- og kjötsósur alls- °nar, niðursoðið kjöt og tung- Ur> fæst hjá kaupmönnum um 3lt Hnd. Qlf|oðsm. fyrir ísland 8- Eirikss, Reykjavik. t * Skúli Thoroddsen alþingismaður var fæddur í Haga á Barðaströnd 6. janúar 1859. Voru foreldrar hans Jón skáld Thoroddsen sýslumaður og kona hans Kristín Þorvaldsdóttir úr Hrappsey Sigurðssonar. Móðir Krístínar var Ragnhildur Skúladóttir sýslumanns, Magnússonar sýslu- manns Ketilsonar. Skúli var næstelztur þeirra bræðra fjögra. Misti hann föður sinn níu vetra gamall. Útskrifaðist úr latínu- skólanum í Reykjavík árið 1879. Tók embættispróf í lögfræði við há- skólann í Kaupmannahöfn með fyrstu einkunn öndvert ár 1884. Þá um vorið gerðist hann málaflutnings- maður við landsyfirdóminn í Reykja- vik og samsumars settur sýslumaður í ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti í ísafjarðarkaupstað. Fekk hann veit- ing sýslunnar árið eftir. Vorið 1892 hófust hin nafnkunnu »Skúlamálc vestra, er stjórnin skip- aði réttarrannsókn gegn Skúla sýslu- manni. Var honum siðan vikið frá embætti og saksóttur af mikilli frekju. Lauk svo þvi máli, að hann var sýknaður af öllum ákærum með hæstaréttardómi 15. febrúar 1895, en engu að síður var hann leystur frá embætti vorið eftir. Jafnframt embættinu hafði Skúli gefið sig við kaupfélagsmálum og stofnað síðan sjálfur verzlun í ísa- fjarðarkaupstað og rak hana meðan hann var vestra. — Um aldamótin keypti hann Bersastaði á Alftnesi og fluttist þangað vorið 1901. Bjó hann þar til 1908, að hann reisti hús í Vonarstræti í Reykjavik, flutt- ist þangað og átti þar síðan heima tii dauðadags. Skúli átti jafnan mikinn hlut að opinberum málum. Stofnuðu ísfirð- ingar blaðið »Þjóðviljann« 1886 og var Skúli helztur stuðningsmanna þess. Tók hann að fullu og öllu við ritstjórn blaðsins haustið 1891 og hélt þvi úti síðan til síðustu ára- móta, fyrst vestra og því næst á Bersastöðum og í Reykjavík. — Hann var kosinn fyrri þingmaður Eyfirðinga árið 1890, rúmlega þrít- ugur að aldri, og hefir ávalt verið þingmaður síðan. Kusu ísfirðingar hann til þings árið 1893 og síðan hefir hann jafnan verið endurkosinn. Frá þvf, er sýslan skiftist, yar hann fulltrúi Norður-ísfirðinga, og hafði þar svo óbilanda fylgi, að hann var tvisvar kosinn gagnsóknarlaus,t. Jafnan þótti hann hinn atkvæða- mesti þingmaður og hafði flesta þing- mannskosti í bezta lagi. Skarpur var hann að skilningi, ljós og skil- merkilegur í orði, berorður og hrein- skilinn, ágætlega orðfær; mikill róm- urinn. Manna frjálslyndastur í skoð- unum, fylgdi mjcg fram rétti alþýðu og fremstur allra í flokki kvenrétt- indamálsins. En afskifti hans af mál- um þings og þjóðar voru miklu meiri og margbrotnari en svo, að hér verði rakin. Sat hann i flestum hinum stærstu nefndum á þingi og utan þings og er uafnkunnast starf hans í »millilandanefndinni« sælu, þar sem hann stóð einn uppi að lok- nm í nefndinni, en vann sér jafn- framt ógleymanlegt þakklæti frá mikl- um hiuta þjóðar sinnar. Skúli var eljumaður mikill og af- kastasamur. Má þar til nefna, að hann hafði engan sýsluskrifara, er hann gegndi embætti sínu vestra, þótt það væri umfangsmikið og hann hefði jafnframt fleiri járn í eldinum. A Bersastöðum bjó hann með mik- illi rausn, hýsti stórmannlega og var þar hin mesta gestrisni og höfðings- skapur. Hann var alvörumaður i skap- lyndi, dulur og ómannblendinn, skap- mikill, en þó löngum vel stiltur. I hærra lagi var hann á vöxt, gild- legur á velli og næsta mikilúðlegur. Sópaði mjög að honum og þótti mörgum sem hann mundi likjast allmjög fyrri alda höfðingjum Vest- firðinga. Allmörg hin síðari ár var hann bilaður að heilsu og fóru kraftar hans þverrandi. Þótti hann hressast við meðan á þingönnum stóð, en milli þinga sótti að honum þungi og ágerðist meir pg meir. Hann lagðist banaleguna fyiir lúmnm mán- uði og lá heldur þungt, en fekk hægt andlát. Skúli var kvæntur Theodóru dótt- ur Guðmundar prófasts Einarssonar á Breiðabólsstað á Skógarströnd, ágætri konu; var hún stoð hans og stytta í hvívetna til giftu og gengis. Hún lifir mann sinn. Þeim varð 13 barna auðið og eru 12 á lífi: Unn- ur gift Halldóri lækni Stefánssyni á Flateyri, Guðmundur læknir í Húsa- vík, Skúli cand. jur., Þorvaldur, nú í Vesturheimi, Kristín hjúkrunar- kona í Danmörku, Katrin stud. med.: Jón, Ragnhildur, Bolli, Sigurður, Sverr- ir og María. B. Sv. Bæklingur gerður upptækur. 1 gærmorgun gengu blaðadrengir hér um göturnar með smábækling, sem þeir buðu til sölu. Hrópuðu þeir hátt: »Bedier-hneykslið. Skamm- ir um Frakka og Bretalc Var hér þá kominn pési sá, er Guðbrandur NYJA 310 Vald barnsins Fagur sjónleikur leikinn af fræg- ustu leikurum, svo sem Aage Hertel, Agusta Blad, Robert Schmidt, Christine Holch Barnið leikur: Else Wantzin. Húslilsölu Húsið 5 B í Tjarnargötu ásamt lóð undir stórt hús við Vonarstræti er til sölu. Væntanlegur kaupand semji við G. T. Zoéga. Jónsson hefir ritað og minst hefir verið á fyr, en Einar Gunnarsson er umboðsmaður fyrir eða útsölu- maður að. Bæjarfógeti komstskjótlega ásnoðir um þetta — enda þótt honum hefði ekki verið sendur bæklingurinn til skoðunar — og þótti honum við- sjármikið, að slíkur bæklingur yrði seldur hér, ef efni hans færi eftir þvi, er drengirnir létu. Gerði hann þvi lögregluna út af örkinni til þess að ná i drengina og fá að vita, hver hefði sent þá út í þessum söluerind- um. Komst það fljótt upp og var þá ritið gert upptækt og höfðu diengirnir að eins selt fá eintök. Guðbrandur Jónsson, höfundur pésans, er i þýzkri þjónustu og ein- hvers konar aðstoðarmaður þýzka sendiherrans i Kaupmannahöfn. Þetta mikla hneyksli, sem hann hefir gert að umtalsefni, er það, að franskur maður, sem Bedier heitir, gaf í fyrra út útdtátt úr dagbókum þýzkra hermanna, og þótti Þjóð- verjum sem hann hallaði réttu máli í þýðingum sínum. Vér vitum ekki hvort, Guðbrandur hefir verið enn orðhvassari í garð bandamanna um þetta efni, heldur en þýzku blöðin, þvi að pésann höfum vér ekki séð, og fáum likíega ekki að sjá. Kolaleysið í Danmörku. Danir reyna nú á allan hátt að komast að samningum við ófriðar- þjóðirnar um kaup á ýmsum nauð- synjavörum. Sérstaklega er kola- eklan orðin tilfinnanleg, en nokkuð hefir fengist bætt úr henni með samkomulagi við Þjóðverja. Voru gerðir tveir erindrekar til Berlínar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.