Morgunblaðið - 04.06.1916, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
H. P. Dnus Á-deild.
Hafnarstrœti.
Nýkomið með íslandi og Botníu:
Regnkápur svartar og mislitar.
Svart silki í svuntur, slétt, röndótt og rósótt.
Mislitt silki rósótt, margar tegundir.
Allskonar nýungar í Dömukfðgu m.
Heidfaíaefni, Voxdúksfyattar,
JTlorgunkjóíaefni, Prjónavörur,
Uítarteppi, Tataefni mjög ódýrf,
Cýevioí, TUklæði, Svartir bómultarsokkar
og svarfir Skinnýanzkar.
Rdssar fjögur orustuskip (Dread-
noughts) í smíðum og nti meiga
Þjóðverjar búast við því að þau séu
komin á flot. Til þess að halda
Rússum í skefjum verða Þjóðverjar
að nota hin stóru orustuskip sín.
Samkvæmt skýrslum flotamálastjórn-
arinnar þarf fjögur stórskip til þess
að kvía þrjú inni og tvö beitiskip
tii þess að gæta eins í herkví.
Samkvæmt þeirri skýrslu, sem Mr.
Churchill gaf í nóvembermánuði sið-
ast liðnum, áttu Þjóðverjar 2i^ or-
ustuskip þá er ófriðurinn hófst. —
Sennilega hafa þeir bætt við sig sjö
síðan og eiga þeir því nú 28. Atta
þeirra þurfa þeir til þess að halda
Rússum í skefjum, og ef til vill tólf
þegar hin önnur skip Rússa eru
talin. Með öðrum orðum: Þjóð-
verjar eru neyddir til þess að hafa
helming orustuskipa sinna í Eystra-
salti. Að visu hafa þeir nú gert
Libau að athvarfshöfn fyrir kafbáta
sína, en samt sem áður munu þeim
reynast yfirráð Eystrasalts allerfið.
Metaskýrslan.
Hér fara á eftir nokkrar athuga-
semdir við metaskýrsluna (töfluna),
er birtist í Morgunblaðinu 28. maí
síðastl.
Menn komast fljótt að raun um,
er þeir lesa metaskýrsluna, að við
íslendingar erum eigi jafnsnjallir
frændþjóðum vorum í úti-íþróttum
sem skyldi. — Veldur því vitanlega
margt — og skal hér fátt upp telja,
því flestir munu líklega kannast við
þá erfiðleika, sem eru á þvi að æfa
íþróttir hér á landi. En til máls-
bóta skal þó sagt, að stutt er síðan
farið var að iðka hér úti-iþróttir, að
leikvellir eru fáir og fátækir að
íþróttatækjum, og siðast en ekki sizt,
að afarfáir eru þeir, sem iðka iþrótt-
ir að staðaldri. En að staðaldri
verða þeir að æfa sig, er vilja sjá
nokkurn árangur iðju og iðni sinn-
ar. —
Eins og þið sjáið á skýrslunni,
þá erum við ekki svo afarlangt að
baki í 100 stiku hlaupi; sýnist þar
bara vanta herzlumuninn og skerp-
una; en á 200 st. erum við heldur
langt á eftir. Gæta verður .þó þess,
að 200 st. hlaup fer fram á beinni
braut alstaðar annarsstaðar en hjá
okkur Frónbúum; er hér ekki svo
eg viti vö! á 200 st. beinni skeið-
braut; en úr því verður að bæta,
ef við eigum að eignast afreksmenn
á spretthlaupunum (100—300 st.).
Um 400 st. hlaup er það að segja,
að það skeið hefir ekki verið þreytt
hér, en í þess stað 402Y3 st., og
var tíminn éx sek., sem mun verða
nm 60,5 sek. á 4oo st. Bezti tím-
inn á 500 st. hl., sem eg veit um,
er r min. 20,8 sek.
A 800 st. er tíminn og langur;
verður að koma honum niður í 2
mín., ef við hugsum til að þreyta
við nágrannaþjóðirnar á þessari vega-
lengd. Á 1 rastar hlaupi stöndum
við okkur bezt í samanburðinum; en
á i1/^ röst ver en skyldi; 5 rasta
hl. hefir ekki verið þreytt hér, en
tíminn, sem eg hefi leyft mér að
setja þar, var tekinn um leið og 10
rasta hlaupið fór fram, en mundi
náttúrlega vera mikið betri, ef að
eins hefðu verið þreyttar 5 rastir;
veit eg líka, að einn okkar bezti
hlaupari hefir hlaupið 5 rastir undir
17 mínútum. Aftur er ekki í skýrsl-
unni getið um 7,5 rasta hlaup (1
dönsk mila), vegna þess að það eru
bara Danir, sem þreyta 7,5 rasta
hlaup. Tíminn á 1 danska mílu
hér hjá okkur er réttar 28 mínútur.
En hjá Dönum er tíminn á mílunni
25 min. 13 sek. 10 rasta hlaupið,
að þvi ættu íþróttamenn að snúa
sér, því þar má koma tímanum
niður um nokkrar mínútur. Eins
og sést enn fremur á skýrslunni,
þá iðkum við ekki lengri hlaupin,
eins og 20 rastir, Maraþon- og
klukkutíma-hlaupið; vil eg heldur
ekki eggja neinn á að æfa löng hluap,
þvi að þau eru of erfið fyrir okkur
enn þá, sem ekki höfum iðkað hlaup
að neinu ráði.
Þó er eg ekki frá því, að við ætt-
um, er fram líða stundir, að bæta
klukkutíma-hlaupinu á hlaupalista
okkar. Er það hlaupið þann veg,
að íþróttamennirnir þreyta um, hver
komist lengsta vegalengd á 1 kl,-
stund. Eins og sézt á skýrslunni,
eru það rúmar 19 rastir, sem farnar
hafa verið á 1 kl.stund, og er það
vel að verið. — ÖIl hlaup þurfa
náttúrlega mjög mikla æfingu og á-
stundun, en ekki sízt lengri hlaup-
in; verður að æfa þau sérstaklega
rækilega, ef íþróttaroanninum á ekki
að verða mein að.
I grindahlaupinu erum við óþarf-
lega langt á eftir; væri ekki úr vegi
að athuga það nánar. Grindin skal
vera 1,06 st. á hæð, þegar hlaupið
er 110 st., en 0,90 st., ef þreytt er
á 400 st. skeiðbraut. Met á 400 st.
grindahlaupi er jjsek. (1908). Grinda-
hlaup er skemtileg íþrótt, og ættum
við því að leggja betri stund á hana,
en við höfum gert hingað til.
Af úti-íþróttunum er boðhlaupið
einna ákjósanlegast fyrir okkur að
þreyta. Er það ein leiðin, sem fara
á fyrst í stað, til að safna okkur
saman um hlaupa-íþróttina. Hástökk
með atrennu erum við skammarlega
stutt á veg komnir með (að eins
D/a st.). Veit eg um stökkvara, sem
stökkva hærra, en sem þreyta of sjald-
an eða aldrei, og koma því ekki til
greina við metaskýrslur. Sama er
að segja um langstökk. Þrístökk er
ný íþrótt, sem við þó höfum kom-
ist furðanlega fljótt upp á að nema
og iðka. En herða megum við okk-
ur þar sem annarsstaðar. í stangar-
stökki erum við langt á eftir, og er
það skiljanlegt, þar sem að fá tæki
til að iðka það reglulega eru til enn
sem komið er. Væri óskandi, að
úr því rættist hið bráðasta, því stang-
arstökk er kölluð fegursta úti-íþrótt-
in, og er sú iþrótt, er heillar mest
áhorfendurna, og það verðum við
dálítið að hugsa um. Fólk sækir
ekki svo vel leika og kappraunir, sem
haldnir eru. Bezta beggja handa
kringlukastið okkar er bágborið. Sézt
vel á því, að lítið æfum við beggja
handa köst, en vonandi lagast það
einnig með tímanum. Og enn eitt
verður að athuga, að aðeins eitt
íþróttamót héfir verið haldið, þar
sem beggja handa köst hafa farið
fram. Betur stöndum við okkur í
kúluvarpi, og er beggja handa kastið
þar ágætt, borið saman við hægri
handar kastið. Er það óneitanlega
jafnt kast.
Eg hefi með vilja slept hér úr skýrsl-
unni »met« um kappgöngur, bæði
vegna þess, að hér eru lítið iðkaðar
göngur, og eins, að við eigum eng-
in met — (nema á 804% st. og er
það farið á 4 mín. og 15 sek.) —
til samanburðar, á þeim vegalengd-
um, er þeir iðka mest, eins og 1 —
10 rastir.
Um knattkastið er það að segja,
að þa;ð hefir farið hér fram bara einu
sinni og menn litt undir það æfðir,
og því litt að marka þann saman-
Biíreiö
fer austur á Eyrarbakka og Stokks-
eyri kl. n í dag.
Pantið far
/ síma 79.
burð, þar sem og sú iþrótt er ekki
æfð hér á landi svo eg viti og harma
það víst fáir. Frh.
Bennð.
Frá Færeyjum.
Færeyingar eru að hugsa um það,
að reisa minnismerki yfir Rasmus
Christoffer Effersöe, sem andaðist í
vetur. Hefir verið stofnuð nefnd í
því skyni og gengst hún fyrir fjár-
söfnun um allar eyjarnar.
Effersöe var hinn merkasti maður
og brautryðjandi þjóðar sinnar um
langt skeið. Eiga Færeyingar hon-
um mikið að þakka, hvað hagur
þeirra hefir rýmkað á hinum síðari
árum, og allra manna gekk Etfersöe
bezt fram í því, að hefja tungu þeirra
til vegs og virðingar meðal þjóðar-
innar sjálfrar.
Fjóra knattspyrnukappleika hafa
Færeyingar sett sér í sumar, og keppa
þar ýms knattspyrnufélög úr ýmsum
stöðum. Þar gera þeir okkur skömm
— hér fást menn aldrei til þess að
taka upp þann sið, sem er lyfti-
stöng allra iþrótta, að bæir keppi
um frægðina. Hér holast hver sér,
Sameinaðafélagið hefir sent amt-
manninum á Færeyjum bréf, og
skýrir honum frá því, að það neyð-
ist til þess að hækka farmgjöld til
Færeyja vegna þess, hvað skip sín
tefjist þar lengi. Amtmanni fanst,
sem kaupmenn ættu hér helzt til að
svara og sendi því bréfið til »Kaup-
mannaráðs Færeyja*. En kaupmenn
skeltu skuldinni á verkamenn ; sögðu
þá hafa krafist hærri verkalauna fyrir-
yfirvinnu, og þess vegna væri eigi
unnið að affermingu skipa á síð-
kvöldum né um helgar.
<Ss(ga $
Litið, sólbjart herbergi með ágætnm
húsgögnum fæst til leigu nú þegar eða
1. júli. R. v. á.
^Jf cTapaé
Perluband tapað, skilist gegn fundar-
launum á Hverfisgötu 96.
Tapast hefir steingrár hestur, 4 vetra,
frá Vassenda í Seltjamarneshreppi í fyrts'
sumar. Mark: tvírifað í heilt vÍDstra.
Hallur Guðm. .Tónssou-^.
tSSaupsKapuT ^
Möttoll, lítið brúkaður, til sölu. R. ^