Morgunblaðið - 25.10.1916, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Loftskeyti
frá Goðafossi.
í gær barst Eimskipafélaginu
símskeyti frá Groðafossi, sem sent
hafði verið til Cape Race með
loftskeyti. Var skipið 300 sjómíl-
ur austur af Cape Race síðastlið-
inn sunnudag (22. okt.). —
Eftir þessu að dæma hefir
Goðafoss hrept ill veður í hafi,
enda var ekki við öðru að búast
á þessum tíma árs. Líklega kem-
ur Goðafoss til New York á
sunnudaginn.
Mjólkurfélagið
og
verðlagsnefndin.
Eins og kunnugt er, auglýsti
Mjólkurfélag Reykjavíkur verðið,
sem það vildi hafa fyrir mjólk-
ina með viku fyrirvara.
Þessi fyrirvari var til þess að
verðlagsnefndinni gæfist kostur
á að grenslast eftir ástæðunum
fyrir hækkuninni.
En nefndin var ekki að hafa
fyrir því ómaki, heldur setti hún
verðlag á mjólkina út í loftið og
vanrækti þannig þá skyldu, sem
á henni hvíldi að þessu leyti,
því að hún hefir enga heimild til
þess að krefjast þess, að nokkur
maður selji vöru sína undir þvi
verði, sem hún fyrst og fremst
kostar hann og ennfremur að
sanngjörnum ómakslaunum við-
bættum.
Gagnvart kaupmönnum hvað
nefndin aftur á móti gæta þess
vandlega, að leita jafnan upplýs-
inga hjá þeim, áður en hún að-
hefst nokkuð gegn þeim eins og
lika rétt er.
Ennfremur hvað verðlagsnefnd-
inni aldrei hafa komið það til
hugar að krefjast þess af nokkr-
um kaupmanni, að hann seldi
vörur sínar undir verði, sem þær
kosta hann að viðbættum venju-
legum kaupmann8hagnaði.
Eftir þessari reglu, sem er sjálf-
sögð, ber nefndin því að leyfa
hverjum mjólkurframleiðanda að
selja mjólk sína eftir því sem hún
kostar hann.
Að lögbjóða eitt og sama verð
fyrir alla mjólkurframleiðendur
er því út í loftið, því að verð-
lagsnefndin hefir ekki fremur
heimild til þess að krefjast þess
af nokkrum mjólkurframieiðanda,
að hann selji mjólkina undir
framleiðslukostnaði, en hún hefir
heimild til þess að krefjast slíks
af kaupmönnum eða gera vörur
upptækar öðruvísi en að fullt
endurgjald komi fyrir.
Og eins og vitanlegt er, þá er
það margsannað um alla er
kaupa hafa orðið hey, að þeir
Jón Björnsson & Go.
Bankastræti 8.
Með Gullfossi frá Ameríku hefir verzlunin fengið mikið úrval af
mjög haldgóðum
Vefnaðarvörum.
Alklæði, Flúnel, Kjólatau, Léreft bl. og óbl., Nærfatnað kaila og kvenna,
Morgunkjólatau, Húfur barna, Tvinna og Hörtvinna, beztan og ódýrastan
í bænum. Tvisttau, Sirz bezta sængurveraefni. Kvensvuntur.
Sápur og llmvötn í miklu úrvali.
Regnkápur og Gólfteppi,
er altaf bezt að kaupa hjá
J. B. & Co.
geta ekki selt mjólkina á 32 aura
nema með beinu tapi.
Að vísu kann verðlagsnefndin
að vilja neita þessu og vilja lialda
því fram, að hún hafi ekki sett
verðlagið út í loftið.
En þvi til sönnunar að svo sé,
þá er auk þess sem bent heflr
verið á, ennfremur tvent annað,
sem tilgreina má. Fyrst það, að
Mjólkurfélagið svaraði verðlagi
nefndarinnar þegar í stað, með
því opinberlega að gera grein
fyrir sínum málstað, og í öðrulagi
það, að málinu hefir verið áfrýj-
að til landstjórnarinnar, án þess
nefndin hafi enn gert nokkra til-
raun til þess að réttlæta gerðir
sínar.
Með öðrum orðum, nefndin get-
ur ekki hafa haft neitt að byggja
á, þegar hún setti verðlagið á
mjólkina, með því að hún hefði
þá að sjálfsögðu óðara lagt fram
þau gögn sín, ekki að eins sóma
síns vegna, heldur líka til þess
að flýta því, að endir gæti orðið
bundinn á málið af landstjórn-
inni.
Óreiðan á mjólkurmálinu er
þannig ekki mjólkurframleiðend-
um að kenna, með því að þeir
höfðu sín plögg fyrir fram i lagi
og lögðu þau frjálsmannlega bæði
fyrir landstjórn og almenning.
Sá, sem sökina á á allri óreið-
unni, er verðlagsnefndin og eng-
inn annar, með því að hún hafði
fyrir fram ekkert við að styðjast
og verður nú á eftir að leita að
ástæðum fyrir sínum málstað.
En mjólkurframleiðendur hafa
hins vegar siðferðislegan rétt og
skyldu til þess, að láta vera að
selja sína vöru undir sannvirði
eða fyr en fenginn er rökstudd-
ur óhlutdrægur úrskurður land-
stjórnarinnar um áfrýjunina.
Meðhaldsmenn verðlagsnefndar-
innar ættu því að hafa hægt um
sig og láta vera að bera ósannar
sakir á Mjólkurfélagið, eins og
t. d. það, að félagið vilji halda
uppi einokun á mjólkinni. Slíkt
er svo mikil fjarstæða, að enginn
maður með fullu viti ætti að láta
sér slíkt um munn fara, því
mjólkurframleiðendur gera ekkert
og hafa ekkert gert til þess að
hindra nýja menn eða félög frá
því að framleiða mjólk og keppa
við sig. Þar á ofan gerir Mjólkur-
félagið fulla grein fyrir sínum
málstað og leggur hann fyrir
landstjórnina með kröfu um það,
að fá það verð fyrir mjólkina,
sem þeim er nauðsynlegt, ef þeir
eiga ekki með kúgunarverðlagi
af hálfu verðlagsnefndar að vera
þvingaðir til þess að breyta um
búskaparlag, farga kúnum og
koma sér í þess stað upp sauðfé.
Og að þetta sé ekki jafnmikið
alvörumál fyrir bæinn og fram-
leiðendur getur enginn skynsam-
ur maður neitað. Því að eins og
bent hefir verið á, er það ómót-
mœlanleg staðreynd, að kúnum
hefir stórum fækkað frá því sem
var í fyrra, auðvitað af þeirri
einföldu ástæðu, að mönnum hef-
ir verið það skaði að halda í
kýrnar.
En annars er það um einok-
unarásökunina að segja, að Mjókur-
félaginu væri í lófa lagið að láta
mjólkurkaupendur borga miklu
hærra verð fyrir mjólkina en
36 aura.
Sumir af þeim félagsleysingj-
um, sem ekki eru í Mjólkurfé-
laginu, hafa þegar gert þannig
lagaða samninga, að þeir af þeim,
sem eru utan bæjar, selja mjólk-
ina heima hjá sér fyrir 36 aura
og þaðan af meira og flytja hana
síðan til bæjarins fyrir ekkert.
Ymsir, sem fá vilja mjólk, hafa
því farið fram á það við suma
framleiðendur hér í bænum, að
fá hana keypta í fjósunum fyrir
32 aura og boðist síðan til þess
að borga 4 aura og það upp í
8 aura fyrir að fá hana síðan
flutta á gömlu útsölustaðina svo
að þeir gætu vitjað hennar þangað.
En Mjólkurfélagið hefir hreinni
málstað en svo, að það vilji beyta
kaupendum nokkrum brögðum
eða fara í kringum gildandi lög.
Það eina sem mjólkurfélags-
menn vilja, er lögum samkvæmt
að fá rökstuddan úrskurð lands-
stjórnarinnar um málið eða sam-
komulag við hana að öðrum
kósti.
Og verðlagsnefndinni bar sið-
ferðisleg skylda til þess að svara
fyrir sínar gerðir þegarí stað, og
skýra frá því á hverju hún bygði,
þegar hún tók verðlagsákvörðun
sina.
En þetta hefir nefndin ekki
gert og er hún því í sök við
mjólkurframleiðendur, sem eiga
kröfu til þess að þeirra mál-
staður geti orðið rannsakaður af
landsstjórninni, en ekki dreginn
á langinn af verðlagsnefndinni
til þess með því annarsvegar að
gera mjólkurframleiðendum ó-
leyfilegan skaða með drættinum,
af því að mjólkin er vara sem
ekki getur geymst og hins vegar
neyða bæjarbúa til þess að kaupa
niðursoðnu mjólkina og undan-
renningarþurmjólkina af kaup-
mönnunum hærra verði en inn-
lendu nýmjólkina.
Nú er þó von ura að nefndin
leggi loks fram varnir sínar fyr-
ir landsstjórnina, en til þess að
fá því fram komið hefir bærinn
orðið að vera í mjólkursveltu í!
heila viku.
M]oUcurfelagsmaður.
Vér erum ekki samdóma hin-
um háttvirta mjókurfélagsmanni
um sakir verðlagsnefndarinnar í
þessu máli. En oss þótti samt
ekki rétt að synja um upptöku
greinarinnar.
Ritstj.
OSSCS D A O U ÖKIN. C3S»
Afmæli í (lag:
Jónína Ámundadóttir, húsfrú.
IJannes S. Blöndal, bankarit.
Friðfinnur L. Guðjónsson
Laugavegi 43 B, selur tækifæriskort
með íslenzkum erindum. Allir ættu að
kaupa þau til að senda vlnum og kunn*
ingjum.
Sólarupprás kl. 7.50
S ó I a r 1 a g —• 4.32
Háf ÍÓS í dag kl. 4.19
og í nótt kl. 4.36
Veðrið í gær:
Vm. a. stormur skýjaS 6.4
Rv. a. kaldi regn 4.5
íf. sa. kaldi alskyjaS 4.2
Ak s.sa gola hálfhSiSskýrt 3.0
Gr 8. gola skýjaS 1.0
Sf. logn regn 3.1
Þh. F. a. andvari skýjaS 7.1
í gær var aS lokum gert viS gang-
tröSina fyrir framan Nýja Land og
lögS tvöföld helluröS þar sem vilpan
var verzt áSur.
Nýja Bíó. ÞaS er mjög tilkomu-
mikil mynd, sem þar er sýnd nú.
Efni hennar kvaS vera tekiS eftlr sönn-
um atburSum sem gerst hafa í ófriSn-
um mikla. Er þar lýst hugrekki og
göfuglyndi liSsforinga nokkurs, sem
bjargar lífi fjandmanns síns — yfir-
hershöfSinja óvinahersins, sem flæSir
inn yfir föSurlandiS hans ástkæra, sem
hann vildi fórna öllu fyrir. En í
hildarleiknum verSur lítiS úr afreks-
verkum hvers einstaklings og nærri