Morgunblaðið - 25.10.1916, Blaðsíða 4
4
MOKGUNBLAÐIÐ
"^§1* *********** *^4^
** **
* *
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
**
Rúsínur, Sveskjur
og
þurkuð Epli
— hvergi ódýrari —
í heildsölu
G. GISLASON & HAY
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
**
^* *********** *
Prifin og áreiðanleg
innistúlka
óskast á gott heimili nú þegar. —
Hátt kaup. R. v. á.
^íejnaðarvara
tfíegnfiapur
cJCofujot
og
Stfiótau
við allra hæfi. í heildsölu hjá
Leyndarmál hertogans.
Skáldsaga eftir
Charlotte M. Brame.
Innqanqur.
Hertogaynjan af Castlemay sat ein
í herbergi sínu í Rood Castle. Fáar
konur i Englandi voru jafnokar henn-
ar. Hún var fögur og af göfugum
ættum. Frá því hún lá í vöggu, og
fram til þessa tíma hafði henni eigi
borið nein sorg að höndum og allar
óskir sínar hafði hún fengið uppfylt-
ar. Hún haíði alla þá kosti, er konu
meiga prýða og um langt skeið
var hún drotning samkvæmislífsins.
Maður hennar tilbað hana og hún
hafði hann algerlega í hendi sér.
H.f. Eimskipafélag Islands
E.s. Gullfoss
fer hóöan vestur og noröur um land,
áleiöis til útlanda
í dág kl. 4 síðd.
H.f. Eimskipalólag Islands.
Reiðhjól
eru Iakksmurð.
Ábyrgð tekin á vinnunni.
Hjólhestaverksmiðjan Fálkinn.
Laugavegi 24.
V—-- ■
Tófuskinn
kaupa
Nathan &01sen.
Nyir kaupendur
Morgunblaösins
fá blaðið ökeypis það sem eftir er mánaðarins.
Allir þurfa að lesa MORGUNBLAÐIÐ. Gerist kaupendur þegar í
stað og blaðið verður sent heim á morgnana.
Þau áttu einn son og hann trúði á
hana eins og guð, en var þó jafn-
framt hræddur við hana. Enginn
maður hafði nokkru sinni gert á hluta
hennar. En þennan fagra júlímorgun
stóð hún nú andspænis hinum fyrstu
vandræðum, sem orðið höfðu á lífs-
leið hennar.
Þetta var í fyrsta skifti, sem sorgin
heimsótti hana og hertogaynjan bar
harm sinn eigi vel.
— Sonur minn, tautaði hún.
Einkasonur minnl
Málrómur hennar lýsti sárri sorg
og einlægri ást, um leið og hún
mælti þessi orð. Því að þótt hún
væri kaldlynd og ónærgætin, þá unni
hún syni sínum hugástum.
— Eg verð að gera það, mælti
hún við sjálfa sig. Það er betra nú
heldur en seinna í dag, þegar Her-
bert er við. Hann er svo meirgeðja
að ef hann sæi stúlku gráta þá
mundi hann ekki geta á heilum sér
tekið. Ó, sonur minn I Hún hringdi
lítilli silfurbjöllu, sem stóð þar á
borðinu og þjónn nokkur kom inn.
— Segið jungfrú Wynter, að eg
biðji hana að koma hingað undir-
eins, mælti hún.
Á borðinu hjá henni lá hvítur
vasaklútur og trafknýti og hertoga-
ynjan skifti litum er hún virti það
hvortveggja fyrir sér. Þá heyrði hún
létt fótatak úti fyrir. Varð hún þá
sótrauð og augu hennar leiftruðu.
— Komið inn, mælti hún, þá er
barið var gætilega að dyrum.
Stúlka kom inn — há og p;rann-
vaxin. Augu hennar voru dökkblá
og munnurinn einkar fagur. Hár
hennar var mikið og þétt. Féll það
laust og glóði á það sem á gull sæi.
Hún var i svörtum búningi, viðhafnar-
t
§► VÁ-T £$ YööXN® AP,
sjó- og strídsYátryggiugar,
O, Johnson & Kaaber
Deí l$l octr. Br&ndmni&nce
Kaupm&unaiSiifffi
váttyggir: h«s» ktLBgCgn, all»-
konar vðmíorða o. s. frv. gegst
eSdsvoða fyrir iægsta iðgjald.
Iieimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h
í Austurstr. 1 (Búð L. Nielscnj,
N. B. Niolsen.
Gunnar Egilson
skipamiðlari.
Tals. 479. Veltusundi 1 (uppi)
Sjó- Stríðs- Brunatryggingar
Skrifstofan opin kl. 10—4.
Br una try gg in gar
Hallðór Eiriksson
bókari Eimskipafélagsins.
Hitíist: Hotel Island nr. 3 (6*/»—8)
Sími 585.
Geysir
Export-kaffi
er bezt.
Aðalumboðsmenn:
0, Johnson & Kaaber
Morg-unblaöiö
bezt.
lausum og yfirlitur hennar sýndist
því enn bjartari. Það var dálítið hik
á henni — líkt og hún væri feimin,
þá er hún nálgaðist sæti hertoga-
ynjunnar.
— Þér hafið gert boð eftir mér,
mælti hún með hreinni og hreim-
þýðri röddu.
— Það er rétt, jungfrú Wynter.
Mig langar til þess að tala við yður,
mælti hertogaynjan þóttalega. Hún
benti á vasaklútinn og trafknýtið.
— Viljið þér gera svo vel að líta á
þetta.
Jungfrú Wynter virti þessa hlutí
fyrir sér alveg forviða, en eigi hrædd.
— Getið þér sagt mér hver á
þetta? mælti hertogaynjan.
— Eg, svaraði stúlkan.
— Eruð þér viss um það?
— Já, eg er alveg viss um það.
Fangamarkið mitt er hérna í klútnum.