Morgunblaðið - 19.11.1916, Side 2

Morgunblaðið - 19.11.1916, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ félagsins, eins og vér hyggjum að hann eigi að vera, bæði að birgja landsmenn nauðsyrjavörum frá út- löndum — og græða peninga. Þvi fleiri millilandaferðir, því meiri vör- ur og meiri hagnaður. Það er vitanlegt, að eins og ástatt var í lok ársins 1915 gat Eimskipa- félagið ekki annað gert en að taka að sér strandferðirnar. Hefði félagið ekki gert það, mundu margir staðir á íslandi hafa verið sambandslausir sjóleiðina mestan hluta ársins. Og Eimskipafélagið tók ferðirnar að sér fyrir að eins 70 þús. kr. styrk, en það kom brátt í ljós að hann var alt of litill borinn saman við þann hagnað, sem orðið hefði ef skipin hefðu verið í millilandaflutningi. Hér hagar svo til, að það er nauðsynlegt að strandferðum sé haldið uppi. En það er til of rrikils ætlast af Eim- skipjfélaginu, að það sendi h n stóru og dýru skip sin í slíkar ferðir, þar sem félagið hefir ætíð nóg að flytja landa á milli. Hér verður Alþingi að ráða fram úr og það svo tímarflega að hægt sé að koma á reglubundnum strandferð- um sem fyrst á áiinu 1917. Og bót verður aldrei ráðin á þessu fyr en fengið er sérstakt skip, eitt eða tvö, sem eingötigu annast strand- ferðir hér við land. Erl. simfregttir Opinber tilkynning frá brezku utan- ríkisstjórninni í London. London, ódagsett. Vikuskýrsla frá herstöðvum Breta. Frá vesturvígstöðvurmm. Þar gerðu Bretar eina hina sigursælustu árás, sem gerð hefir verið, síðan sóknin hófst hjá Somme. — Var það að morgni hins 13. nóvember, og var áhlaupið gert bæði fyrir norðan og sunnan Ancre. í dimmviðri og þrátt fyrir illan veg, tók um .vér með áhlaupi hinar ramgerðustu stöðvar Þjóðverja á næstum fimm milna löngu svæði. Sunnan við Ancre tókurn vér í fyrsta áhlaupi þorpið St. Pierredivon, sem var ramlega viggírt. Sóttum vér og talsvert lengra fram og náðum þýðingar- miklum stöðvum milli J Schwaben-vígisins og árinnar. Norðan við Ancre sóttu Bret- ar jafnlangt fram, sumsstaðar alt að þvi eina milu. . Beaumont Hamel, sem Þjóðverjar höfðu álitið óvinnandl, var tekið eftir grimmilega orustu, og rétt á eftir var hið víggirta þorp Beaumont norðan árinnar einnig tekið. Norðar sóttum vér einnig fram, nema gegnt Serre. Þar veittu Þjóðverjar hið örðugasta viðnám. Menn geta gert sér i hugarlund, hvað áhlaupið muni hafa verið grimmilegt á því, að vér handtókum nær 6000 menn. Mann- tjón Þjóðverja var auðvitað mikið, en manntjón vort var ekki mikið, þegar tillit er tekið til $ess, bvað vér winum mikið á. Stöðvar þær, er vér tókum, voru nokkur filuti af hinum upphaflegu varnarstifðvum Haínarstræti. Kjólatau Flauel Regnkápur Tvisttau Léreft Prjónavörur Fataefni Möbeltau Silki í siifsi og svuntnr. Nýkomið með Islandi: Svart alklæði, Körfustólar Dömukragar, Svartir bómullarsokkar. Þjóðverja, sem þeir hafa verið að styrkja i tvö ár og hafa gert enn traustari siðan sóknin var hafin hjá Somme. Vér náðum einnig góðum sigri austan við Butte Wallen- court. Bæði fyrir norðan og sunnan Ancre hafa Frakkar staóist gagnáhlaup Þjóðverja af mikilli_hreysti. Höfðu Þjóðverjar þó mikið lið ^og sóttuj' á £sem fastast.^Þjóðverjum tókst að eins að ná fótfestu I skotgröfum, sem Frakkar höfðu nýlega tekið i St. Pierre Vaast skógi og hjá Pressoire. Annarsstaðar var hvert áhlaupið á fætur öðru brotið á bakj aftur með stórskotahríð og vélbyssu- hrið. Manntjón óvinanna var án efa mjög mikið. Frá Salouiki-vígstöövunum. Bæði hjá hlykknum, sem verður á Cerna- ánni og sunnan við Monastir hafa Serbar, FrakkarogRússarháðmiklar orustur og unn- ið talsvert á. Serbar komust á snið við óvini sfna og náðu stað, sem er tæpar tólf milur austan við Monastir. Frakkar og Rússar hafa hrakið óvinina frá aðalvarnar- stöðvunum hjá Kessali og hrakið þá til varnarstöðvanna hjá Bistriza, sem eru 3 eða 4 mílur fyrir sunnan Monastir. Síðan 10. nóv. hafa rúmlega 3000 menn verið handteknir. CSK3 DA0ÖÖEÍIN. CSKl Veðrið í gær Laugardaginn 18. nóv. Vm. a. stormur, hiti 6.5 Rv. a. kaldi, hiti 6.4 ísafj. s. stinnigs kaldi, hiti 8.2 Ak. s. andvari, hiti 5.0 Gr. s.a. stinnings gola, hiti 3.0 Sf. s.v, kaldi, hiti 6.9 Þórsh., F. s.a. kaldi, 6.2 Þinglesin afsöl. 9. nóvember: 1. Gunnar Gunnarsson kaupmaður eelur 8. ágúst síðastliðinn Gísla Halldórssyni húsið nr. 20 B við Grettisgötu. 2. Jón Hafliðason selur 2. f. m. Einari Einarssyni húsið nr. 32 B Hverfisgötu. 16. nóvember: 1. Knud Zimsen selur 14. þ. m. G. Copland húsið nr. 3 við Lækjar- götu, 2>Gimli«. 2. Geir Pálsson selur 5. f. m. Gísla Jónssyni húsið ur. 10 A við Baróns- stíg. 3. -4. H.f. »Græðir« selur 2. f. m. C. Proppé botnvörpuskipið Jarlinn R. E. 189 og C. Proppé selur 31. sama mán. sama skip h.f. »Hákon Jarl«. 5. Torfhilöur Þ. Holm selur 14. þ. m. Jóni Kristjánssyni húsið nr. 36 við Laugaveg. 6. Firmað Copland & Berri (1908) Ltd. selur 11. þ. m. Reykjavíkur- bæ eignina nr. 2 við Barónsstíg (»Sjávarborg«). Styrk úr Styrktarsjóði Friðriks VIII fyrir árið 1915 hefir ráðherra veitt »Lystigarðsfélagi Akureyrar« (250 kr.) til rjáræktar og »Kvenfélagi Svalbarðs- strandar (200 kr.) til skógræktar. Ingólfur var veðurteptur í Borgar- nesi í storminum í fyrradag, og kom ekki hingað fyrri en í gær eftir hádegi. Kvöldskemtun Thorvaldsensfélags- ins er í Bárunni í kvöld. Þar syngur frú Laura Finsen, síra Friðrik Frið- rikssou segir frá Ameríku, ungfrú Frida Magnússon leikur á píanó og Ríkarður Jónsson segir sögu. Efnisskráin er því fjölbreytt og verð- ur sjálfsagt húsfyllir. Ekki ætti það að draga úr aðsókninni að allur ágóði af skemtuninni rennur í barnauppeldis- sjóð félagsins, en það er sjóður, sem er þess verður að hann só stvrktur. Guðsþjónuetur í dag, 22. sunnud. e. trin. (Guðspj.: Tíu þúsundir punda, Matt. 18, 1,—20. Mark. 4, 21,—25.). í dómkirkjunni kl. 12, síra Jóhann Þorkelsson. Kl. 5 síra Bjarni Jónsson (altarisganga). — í fríkirkjunni { Rvík kl. 2, síra ÓI. Ólafsson. Kl. 5, Har. prófesssor Níelsson. Kaffihúsin. Það hefir verið og er talsverð keppni milli kaffihúsanna hér í höfuðborginnl með það að skemta gestum. Og mikill munur er það nú, eða var fyrir nokkrum árum, að nú er skemt með hljóðfæraslætti á hverju kvöldi í kaffihúsunum. Samspil á fiðlu og píanó hefir verið venjulegast, en nú hefir Skjaldbreið bætt við sig »klarinet«-spili og prýðir það mikið að dómi allra kaffihúsa-vina. En hvað kemur svo næst? Skyldu verða mörg ár þangað til að stórt »orkester« verð- ur hér á hverju veitingahúsi 1 Ekki er það víst. Kröfurnar aukast og jafn- frarat aðsóknin. Og hljóðfærasláttur- inn dregur eigi sízt að kaffihúsunum. Er þar skemst á að minnast, að Nýja Land gaf lausa hljóðfæraleikendur sína hórna um daginn til þess að leika suður í Hafnarfirðl á skemtun Hrings- ins. En þá fékk veitingamaðurinn hljóðfærasveit Bernburgs til þess að leika þar í garðinum og var aldrei meiri aðsókn en þá. Flóa-áveitnnefndin fór austur í Árnessýslu í gærmorgun og ætlar að eiga þar fundi með bændum. Hún hefir nú nær lokið starfi sínu. Skipatjón í ágúst. Franska blaðið »Le Temps* skýrir frá því, að kafbátahernað- urinn sé verstur á sumrin. Aldrei hefir jafnmörgum skipum verið sökt sem í ágústmánuði í fyrra, og á þessu ári er ágústmánuður líka hæstur. í ágústraánuði í fyrra söktu þýzku kafbátarnir 103 skipum, sem báru samtals 160,995 smálestir. Bandamenn mistu þá 53 gufuskip, sem báru 134,740 smál. og 29 seglskip, sem báru 3796 smál. Hin skipin áttu hlut- lausar þjóðir. Eftir því sem Bureau Veritas hermir frá hafa þýzkir og austurríkskir kafbátar sökt 102 skipum í ágústmánuði í sumar og báru þau samtals 123,861 smál. Af þeim áttu bandamenn 76 (46 gufuskip samt. 85,075 smál. og 29 seglskip samt. 11,034 smál.). En þetta er fyrsti mánuðurinn síðan kafbátahernaðurinn hófst, að Bretar hafa eigi mist flest skipin. ítalir mistu 36 skip, samt. 43,430 smál., Bretar 27 skip, samt. 41,679 smáh, Frakkar 7 skip, samt. 2816 smál. Skipatjón Jap- ana var samt. 6403 smál. og Rússa 2783 smál. Hlutlausar þjóðir mistu 20 gufuskip, samt. 25,510 smál. og 7 seglskip, samt. 2240 smál. Af þeim áttu Norðmenn flest, þá Danir, þá Grikkir, þá Svíar, þá Hollendingar. Á tundurduflum fórust 2 brezk skip, samt. 1041 smál. og tvö frönsk, samt. 5240 smál. Fleiri skip mistu bandamenn eigi á þann hátt. Norðmenn mistu þrjú skip, samt. 3062 smál. og Svíar eitt, 823 smál, á tundurdufium. Alls hafa þá farist 113 skip í ágústmánuði og báru þau samtals 137,606 smálestir. % Vörumerki Whisky Buchanans. I »Lögbiitingablaðinu« 10. þ. m.,. er tilkynning um það, að James Buchanan & Co. Ltd. í London og Glasgow, hafi látið skrásetja hér á landi tvö vörumerki sín: á Black &; White« og »Read Seal« whiskyteg- undunum, sem þeii framleiða. Það kemur manni óneitanlega nokkuð undarlega fyrir sjónir, að áfengisframleiðendur skuli skrásetja vörumerki sín i »bannlandi*, mundi mörgum virðast það sem ljóst dæmi þess, hvernig bannlögm hafi reynst. En nú vita menn hvernig flösku- miðarnir eiga að vera. Varið yðar á eftitiíkingum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.