Morgunblaðið - 23.11.1916, Blaðsíða 2
2
MORGUMBLAÐIÐ
Hafnarfjarðarbíllinn
nr. 3
fer til Keflavíkur á föstudaginn kl. io árdegis, ef uógu margir
farþegar gefa sig fram.
Upplýsingar hjá
Sæmundi Vilhjálmssyni
bifreiðarstjóra.
Afmælisfagnaöur
V. K. F. Framsóknar verður haldinn sunnudaginn 26. og mánu-
daginn 27. nóvember í Goodtemplarahdsinu kl. 9.
Félagskonur! Vitjið aðgöngumiða í G-T.-hdsið fimtudag og föstu-
dag frá k). 12 til 6'.
Sökum þess að félagið er orðið svo fjölment en hdsrdm Htið, og
sérstaklega þar sem gestir verða, hefir nefndin komið sér saman um að
hafa skemtunina tvö kvöld, með sömu skemtiskrá.
Félagskonur eru vinsamiega beðnar að athuga þetta.
Fiskverkunarstöð.
Sjávarborgareignin hér í bænum með hdsum stakkstæðum, bryggjum
og öðrum mannvirkjum
fæst til leigu
frá 1. febrúar 1917.
Nánari upplýsingar fást hjá borgarstjóranum i Reykjavík, sem tekur
á móti leigutilboðum til 9. desember 1916.
Belgar fluttif úr landi.
Barón Beyens, utanríkisráðherra
Belga, hefir nýlega gefið dt skýrslu
um framferði Þjóðverja i Belgíu og
burtflutning belgiskra þegna. í þeirri
skýrslu segir svo:
Þýzka stjórnin safnar nd saman
öllum verkfærum mönnum í borg-
um og þorpum Bílgiu, svo sem
Alozt, Ghent, Bruges, Courtrai og
Monsto, hvort sem þeir menn hafa
vinnu eða eigi. Eftir eru að eins
skildir kryplingar og bæklaðir menn.
Þdsundum saman eru menn þessir
teknir frá fjölskyldum sinum (d. t.
15000 frá Flandern) og sendir eitt-
hvað burtu. Járnbrautarlestir flytja
þá bæði suður og austur.
Þýzku yfirvöldin verja þessa fram-
komu sina með því, að í Haag-
samþyktinni sé svo fyrir mælt, að
þeir sem hafi lagt undir sig lönd,
séu skyldugir til að halda þar uppi
reglu og gæta friðar. Þeir segja að
atvinnulausir menn meigi ekki verða
öðrum til byrði og verk það, er
þeir eigi að vinna undir umsjá Þjóð-
verja, komi hernaðinum ekkert við.
Þjóðverjar segja að iðnaðarstöðvun
t Belgíu, sé aðallega þvi að kenna
að verkamenn vilji ekki vinna, og
svo þeitn ráðstöfunum Breta, sem
banna allan hrávöruflutning til
Belgíu.
Það er sjálfsagt að geta þess, að
enginn hörgull mundi vera á vinnu
í iðnaðarstofnunum Belgíu, ef Þjóð-
verjar hefðu eigi látið greipar sópa
um alla málma og olíu í verksmiðj-
unum, tekið vélar og lagt háa tolla
á dtflutning til Hollands til þess að
hann stöðvaðist. Og það er nauð-
synlegt að geta þess, að Þjóðverjar
telja það eigi koma hernaðinum við,
að láta menn vinna í grjótnámum
og við kalkbrenslu, þótt sá iðnaður
Ieggi þýzka hernum efni til þess að
smíða vigi og vígstyrkja skotgrafir.
Ef Þjóðverjar ætluðu sér að láta
belgisku verkamennina vinna að vega-
bótum, þá hefðu þeir eigi þurft að
flytja þá burt dr landinu eins og
kvikfénað. En sannleikurinn er sá,
að Þjóðverjar ætla að láta þessa verka-
tnenn koma í stað verkamanna sinna,
sem sendir eru í herinn til þess að
fylla skörðin.
Belgiska stjórnia skýtur máli sinu
líl allra hlutlausra þjóða og mót-
mælir kröftuglega þeirri þrælkun sem
lögð er á belgisku þjóðina, þvert
ofan í alþjóðareglur og manndð-
arlög.
Wilson um ófriðinn.
Wilson Bandaríkjaforseti hélt
nýlega ræðu á fjölmettnri sam-
komu í Cinncinnati í Ohíoríki.
Gat hann þess, hye nauðsynlegt
væri að koma á sambandi milli
sem flestra þjéða að styrjöldinni
lokinni, í þeim tilgangi að hindra
að önnur styrjöld yrði háð í
Norðurálfu. Spáði hann því, að
þetta væri síðasti Norðurálfuófrið-
urinn, sem Bandaríkin mundu
komast hjá að taka þátt í, og því
væri meiri ástæðafyrirBandaríkin
að gera alt sem unt værij til
þess að koma bandalaginu á.
Hann sagðist álíta, að það væri
á stundum engu vandaminna að
vera hlutlaus heldur en að taka
beinan þátt í ófriðnum. —
Brezku blöðin, sem rita tölu-
vert um tölu þessa, líta svo á,
að með þessu hafi Wilson látið í
ljós fasta ákvörðun sína um það,
að taka ekki þátt í núverandi
styrjöld.
CS3 DA0BORIN. C2SZ.
Afmæli í dag:
Elín Guðmundsdóttir, húsfrú.
Kristín Magnúsdóttir, húsfrú.
Málmfríður Björnsóóttir, húsfrú.
Þórdís Guðmundsdóttir, húsfrú.
Guðbjörn Guðmundsson, prentari.
Friðflnnmr L. Guðjónsson
Laugavegi 43 B, selur tæklfæriskort
með íslenzkum erindum. Allir ættu að
kaupa þau til að svnda vlnum og kunn-
ingjum.
Sólaruppráa kl. 9,31
S ó 1 a r 1 a g — 3.2
H á f 1 ó ð í dag kl. 3.54
og 1 nótt kl. 4.15
Veðríð í gær
Miðvikudaginn 22. nóv.
Vm. a. kul, regn, hiti 4.3
Rv. a. kul, hiti 3.4
ísafj. logn, frost, 2.2
Ak. logu, frost 2.6
Gr. logn, frost 2.5
Sf. logn, regn, hiti 2.9
Þórsh., F. a.n.a. hiti 6.8
Fyrirlestrar Háskólanns:
Björn M. Ólsen dr. phil.:
Eddukvæði, kl. 5—6.
Jón Jónsson, dócent:
Verzlunarsaga íslands kl. 7—8,
Alexander Jóhannesson, dr. phil.;
Æfingar í þýzku kl. 7—8.
Guðm. Finnbogason dr. phil.;
Sálarl/fið og vinnan, kl. 9—10 e. h.
Aukaþingið. Gert mun vera ráð
fyrir því, að allmargir þingmannanna
að norðan taki sér far á »íslandi« til
Seyðisfjarðar og bíðl þar eftir Botnín,
sem þá flytur þá hingað. En nokkrir
munu þó veíða að fara landveg til
Reykjavíkur.
<1
Söngfuglar. Tveir söngmenn komu
hingað með Goðafossi frá Ameríku,
Morg*unblaðið
bezt.
k. f. u. M.
A. D. fundus í kvöld kl. 8J/a
Allir ungir menn velkomnir.
þeir Einar Hjaltested og Símon Þórðar-
son. Hafa þeir báðir sungið í New
York. Vonandi fá Reykvíkingar að
heyra söng þeirra einhverntíma á
næstuuni.
Ceres fór frá Færeyjum í gasr
áleiðis til Vestmanneyja og Reykja-
víkur.
Víðir kom til Hafnarfjarðar í gær-
morgun úr Bretlands-för.
Aðalbjörn Bjarnason skipstjóri tók
sér fari með Islandi til Kaupmanna-
hafnar.
Tjörnin. Um daginn þegar Tjörnina
lagði, féll barn um 7 ára gamalt niður
um ísinn rétt fyrir framan afrenslið.
Það tókst að ná barninu upp aftur, en
staður þessi er mjög hættulegur. Það
er sem só opið gat niður í afrenslið,
nægilega stórt til þess að börn geta
farið þar niður um. Endilega þyrfti
að girða fyrir * 1 með vír eða einhverju
öðru, því hæglega getur farið svo að
straumurinn flytji eitthvert barnið
niður í holræsið.
Leikfélag Iíafnarfjarðar tekur
bráðum til starfa. Ætlar það fyrst að
sýna »Skrílinn.« Líklega fær Sjúkra-
samlagið eitthvað af ágóðanum.
Kosningakærnm nokkrum kvað
vera von á. Að vanda verður það
þingið sem sker úr þvi hvort kærurnar
Bkuli teknar til greina eða ekki.
Uppboð. í dag kl. 4 verður upp-
boð haldið í Zimsens porti á ýmsu
dóti, sem bjargast hefir úr botnvörp-
ungnum Marz.
Átta bifreiðar komu hingað á Goða-
fosBÍ frá Ameríku. Eru 6 þeirra 0 v e r-
1 a n dbifreiðar (Jónatan Þorsteinsson)
ein S a x o n-bifreið (Sigfús Blöndahl),
°g ein M a x w e 11-bifreið (Hallgrímur
Benediktsson). Þeim fjölgar óðum bif-
reiðunum hórna, enda hafa þær reynst
fyrirtaks fólksflutningatæki.
Afli er nú dágóður hór í Faxaflóa.
Er róið frá Akranesi þegar á sjó gef-
ur, og komið að jafnan með töluverðan
afla.
Bensfn. Töluvert af bensíni kom
hingað á Goðafossi frá New-York.
Ættu bifreiðarnar ekki að þurfa að
vera aðgerðalausar] vegna bensínskortB
fyrsta kaBtið.
Kanpið Morgunblaðið.