Morgunblaðið - 25.03.1917, Side 2
2
MOKGUNBLAÐIB
Jóhann Ólafsson úr Jirmanu Jóhann Olafsson
& Co., er nú staddur t New-Yotk og annast öll inn-
kaup fyrir kaupmenn og kaupfélög. Pantanif verða
símaðar vestur. Finnið
Jóh. Ólafsson & Co.,
Lcekjargötu 6 B. Símar 520 og ji.
Ert. simfregmr
Opinber tilkynning frá brezltu utan-
rikisstjórninni í, London.
London, 23. marz.
Þegar Bapaume féil, létu Þjóðverjar und-
an síga á svæðinu milii Monchy, sem er
nærri Arras, til stöðvar fyrir norðan Sois-
son, og bjðrguðum vér þá stóru svæði af
hernumdu landi. Margar eru tilgátur manna
um tilgang Þjððverja með þessari hernað-
araðferð. Skothríðin bak víð herlínuna
faendir á, að undanhaldið gangi lengra en
til Hindenburg-línunnar og viðnámið verði
veitt við Lille. Aðstaðan var þanníg, að
sóknin var hraðari að sunnanverðu en að
norðan, og hörfuðu þvi Þjóðverjar meira
undan þar en að norðan, og vinningurinn
því meiri þar; en að norðanverðu var
mótstaðan harðari. Frá hernaðarsjónar-
miði er eyðilegging vega og járnbrauta
leyfileg, en ekkert getur réttlætt þá miklu
eyðilegging bak við herlinuna. Ef orsðkin
erj önnur en hrein villimenska virðist það
aðvörun um, hvaða hátterni Þjóðverjar
ætli sér að viðhafa á undanhaldi sinu i
Norður-Frakklandi. Hraði sá, sem var á
flóttarekstrínum, hefir þegar orðið til þess,
að breyta ýmsum áformum Þjóðverja, og
það er eigi líklegt að þeim takist að stöðva
sig hérna megin við St. Quinticn, enda
þótt þeir beiti afturliði sfnu óspart. Samt
sem áður hafa þeir hægt á sér um und-
anhaldið, með þvi að gera grimmileg
gagnáhlaup, og eins hefir þeim viljað það
til happs, að hrfðar hafa verið.
Veðratlan hefir eígi leyft neinar miklar
hernaðarframkvæmdir Rússa; er eigiannað að
frétta en það, að Þjóðverjar hafa gert á-
rásir nyrst á herlínunni. Hafa þær allar
mistekist nema ein og óvinirnir beðið
mikið manntjón.
Rúmenar hafa orðið að láta sér nægja
að gera smáárásir hjá Sereth.
Á herstöðvum ítala hefir verið látlaus
stórskotahrið og hafa ítalir náð þar góð-
um árangri. iafnótt og snjóa leysir gera
ítalir skotgrafaútrásir og eru þeir þar
miklu fremri Austurríkismönnum, sem ekk-
ert skyn kunna á þessháttar viðureign.
Vorviðureign hafin hjaSaloniki til þess að ná
landinu norður- og norðvestur af Monastir.
Frakkar, Bretar og ítafir sækja fram i
áttina til Resna. Er þar yfir erfiða fjall-
vegu að fara, og hefir þeini miðað áfram
á ýmsum stöðum og reynt varnarstöðvar
óvinanna. Skamt frá Monastir veitti þeim
vonum betur, tóku þeir þar þorp og þús-
und fanga.
Frá Mesopotamia.
Maude hershöfðingi ann Tyrkjum engrar
hvildar. Hrekur hann herleifar þeirra á
undan sér norður frá Bagdad upp með
Tigris og norðvestur upp með Biala. Aftur
ylkíngar Tyrkja eru nú 40 milur fyrir
norðan Bagdad og er barist á 20 milna
svæði. Hjá Diala tóku Bretar Bahriz og
hörfa óvinirnir undan í áttina til Khanikin,
En Rússar hafa tekið Harumabad, 20 mílum
fyrir vestan Kermanshah eg hafa ráðist
inn í Tyrkjalönd í nánd við Sakniz. Tyrk-
ir hörfa undan i áttina til Bagdad og
nokkur hluti hers þeirra hefir verið ein-
angraður og hrakinn upp til fjalla.
í Armeníu hafa Rússar tekið Van
Alliabad og hörfa Tyrkir stöðugt undan.
Um sjóheraað.
Ummæli Sir i. lellicos.
Nokkru áður en það varð kunnugt
að Þjóðverjar ætluðu að hefja hinn
rnikla kafbátahernað sinn, komst
Sir }ohn Jel'ico svo að orði í ræðu,
sem hann hélt.
Á dögum Napoleons hófu her-
skip skothríð á 8oo metra færi. En
nú hefja hin stóru herskip skothríð
á 22000 metra færi (eða ii sjó-
mílna færi) og á 18000 metra færi
er skothríðin orðin full-hættuleg.
Tundurskeyti, sem skotið er ofan-
sjávar, getur farið ioooo metra og
og sprengt skip í loft upp og f>ess
vegna er það nauðsynlegt fyrir skip-
in að hafa færið lengra en svo, að
tundurskeyti geti grandað þeim. En
nú er sýnið oft svo — sérstaklega
í Norðursjó — að ilt er að berjast
á lengra færi en ioooo metrum, og
þar sem flotunum fylgja misjafnlega
margir tundurspillar — en þeim er
aðallega ætlað að komast í tundur-
skeytafæri við hin stóru skipin — þá
geta menn nokkuð gizkað á það
hve mikil ábyrgð hvílir á yfirflota-
foringjanum, sérstaklega þegar ilt er
sýni, Því að hvenær sem tundur-
spillar komast í færi við hin stóru
skipin, þá er þeim hætt.
Kafbátarnir hafa líka mikið breytt
sjóhernaðinum, því að vegna þeirra
og tundurdufla, er nú eigi lengur
hægt að herkvía strendur eins og í
gamla daga. Auk þess verður að
gjalda varhug við þessum nýju vopn-
um hvar sem er.
Kafbátar og tundurdufl hafá stöð-
ugt neytt hafnbannsflota vorn til
þess að færa sig lengra og lengra á
burtu. Þrátt fyrir þettahafa Þjóðverjar
að eins einu sinni hætt flota sínum
svo langt að oss gæfist færi á því
að berjast við hann,
í brezka flotanum eru nú 4000
skip ails, og verða þau víða að vera.
Norður í Hvítahafi hjálpa þau Rúss*
um, um þvert og endilangt Atlanz-
haf eru þau á sveimi og suður í
Kyrrahafi eru þau }apönum til styrkt-
ar. í Miðjarðarhafinu hjálpa þau
Frökkum og ítölurn. 1 Austur-
Afriku hafa þau orðið miklu liði og
einnig í Mesopotamia og Rauða-
hafi.
Og eigi má gleyma flotadeild
þeirrí, sem hér er heima og gætir
þess, að engar vörur komist til
óvinanna. Hún rannsakar að jafnaði
80 skip á hverri viku.
Kaupskip vor hafa flutt rúmlega
7 miljónir hermanna, ásamt öllum
þeim fallbyssum og hergögnum, sem
herinn hefir þurft að hafa, síðan
hófst. Og flotipn hefir varið þau
fyrir árásum herskipa og kafbáta.
Sú hætta, sem kaupskipaflota vor-
um stendur af kafbátum Þjóðverja,
hefir aldrei verið meiri en nú og
vér verðum að beita allri orku vorri
til þess að verjast henni. Vér mun-
um fá henni afstýrt — um það ef-
ast eg eigi. En vér verðum að fylla
Jarðarför Jóninu Ingibjargar Jónsdóttur
fer fram mánud. 26. þ. m. kl. 12 frá fri-
kirkjunni.
Aðstandendur hinnar látnu.
þau skörð sem höggvist hafa í flota
vorn og þar erum vér algerlega
komnir upp á skipasmíðastöðvamar.
Símfregnir,
Sauðárkróki í gær.
Hér er altaf einmunatíð, logn
og bliðviðri á hverjum degi. Snjó
hefir allan leyst og jörð orðin svc
þýð, að farið er að vinna að jarða-
bótum. Er það líklega eins dæmi
hér á Norðurlandi á þessum tíma
árs. —
Frá Anstfjörðnm.
Seyðisfirði, 3. marz.
Gæðaiíð hefir verið hér á Aust-
urlandi síðan um áramót, nærri óslit-
in blíðviðri og stillingar. Þó hafa
víða orðið lítil jarðarnot vegna þess
að sojór er jafnfallinn og frosið
hefir annan daginti þó hlánað hafi
dálítið af og til. — Á Upp-Héraði,
einkum í Fljótsdal, er nærri auð
jörð í bygð, en aftur á móti ísalög
mikil og jarðlítið á Út-Héraði — I
Fjörðnnum, einkum þegar suður-
eftir dregur, er mjög lítill snjór. —•
A sumum stöðum, þar sem beit-
ar hefir minst notið, er all mjög far-
ið að skota í hey manna, og er tvi-
sýnt um að heyforði endist ef illa
skyldi vora. En hvernig sem vorið
kann að verða tná búast við því að
marz bregði ekki vana sínum, held-
ur verði enn mesti snjóamánuðurinn á
Anstfjörðum.
Borgarnes 50 ára
Afmælisgjöf
Hínn 22. þ. mán. átti Borgar-
neskauptún 50 ára afmæli. Vat'
þá samkoma haldin í barnaskóla'
húsinu. Hélt sr. Einar Friðgeirs'
son ræðu fyrir minni Borgarness
en Jón alþm. á Haukagili talaði
fyrir minni héraðsins.
Skeyti barst frá Thor Jensen
og konu hans um það að Þ»u
gæfu kaupstaðnum 10 þús. &'■
að afmælisgjöf gegn því að Þ°rP‘
ið og héraðið legði fram 5 ÞuS'
kr. Á að verja því fé til fram
fara í Borgarnesi og verður Þa
ákveðið af nefnd manna, sem
kjörin er til þess. Um 4000
hafa safnast þar efra.