Morgunblaðið - 29.04.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.04.1917, Blaðsíða 2
2 MOKGUNBLAÐÍÐ ar fullrökkvað er, sér þar aagilegt eldhaí, svo að bjarmann leggur hátt á himinn. Það er eins og hálf Reykjavík staaði í ljósum loga. Þarna er járnbræðsla; það er Trollhattan sem bræðir. Þarna eru engir eldar. Stórir hálfopnir tréhjallar standa þarna á við og dreif, og sindur mikið um kring. Rafmagnið yljar grjólinu svo, að járnið drýpur úr því sem smjör. Allur þessi bjarmi stafar frá nokkrum slíkum hvitgló- andi smásólum, sem eru svo bjart- ar, að eigi verður í þær horft þótt á löngu færi sé. Fáeinir menn fást við þetta, og er það létt verk og lcðurmannlegt. »Skallagrímur hafði rauðablástur mikinn«, segir í Eglu. Það er nokk- uð hjáleitt, að hugsa sér Skallagrím dunda v ið rafmagnsvélar. En væri hann nú á lífi, mundu framkvæmd- ir >iðjumannsins mikla« og strit hans verða á aðra leið en Egla hermir. Trollhattan hefir umsýslu mikla. Fyrst hafa mennirnir tekið vatn í skipaskurðínn, og það er ekki lítið. Því næst til aflstöðvarinnar, og hún þarf mikils með. Og enn er í mörg smærri horn að lita Og þó sér varla högg á vatni; elfurin er næst- um öll eftir. En þar sem megin- kvíslin ryðst fram, stendur fölur veiklulegur maður í klefa. Með einu handtaki getur hann gert þennan trylda foss mikinn eða lítinn. Menn- irnir hafa leikið svo illa á jötunmn, að hann leggur sjálfur á sig fjötrana. Trollhattan er í ánauð. Fegurð hins ósnortna, óhemjandi afls er horfin honum. »Ognúerhún, gullvæga harpan þín,hjá þeim herrum til fiskvirða metin, sem nafa pað fram yfir hundinn: að sjá að hún verður seld eða étin.« Fár eða enginn mundi fremur en Þorsteinn Erlingsson hafa viljað létta þrautir þeirra sem strita og svelta. En hann vill ekki hleypa verkfræð- ingunum á fossana. Kristján Jónsson var enginn gróða- maður. Hann hugleiðir heldur ekki, hve miklu Dettifoss mundi geta lyft. Þar vill hann drekkja örbirgð sinoi og hörmum, þegar alt um þrotnar. Einari Benediktssyni kemur annað í hug, þegar hann stendur við Dettifoss. Honum er Dettifoss enginn grafreitur, en ótæmandi lind lifs og blessunar. Víst er um það, að i lóuljóðum Þorsteins er kliðurinn annar og ljúfari en í skröltandi vélum. En eins og lóurnar, gera mörg beztu skáldin hvorki að vinna né spinna. En verð- gildi þeirra er heldur ekki >af þessum heimi«. Þar gegnir nokkuð öðru máli — en mér kemur enn í hug Kormak- ur, sem i hamslausri gleði finnur upp á því, að meta Steingerði á landsvísu. Og virðingargerðin sund- urliðuð, eins og í úttektarbók! — Hver sem ætti þá hörpu, að láta þumbaralegar tölur dansa á strengj- unum. En fráleitt hefði Kormákur metið K F, u. m. Y.-D. Fundur kl. 4 i dag. — Allir drengir 10—14 ára velkommr, Kl. S1/^: Almenn samkoma fossinn til fjár, eins og ástmey sina, hina öklaprúðu. — Svíar gera sér alla sína- fossa að féþúfu, og verður þeim ekki láð það. Við Islendingar getum að skað- lausu gefið skáldunum okkar gnægð fossa, að »sækja sér lifandi anda í sinn óð«, að »seilast upp i friðar- bogakossinn*. Bezti, og að mörgu leyti sænsk- asti staðurinn í Svíþjóð heitir í Nesi [Naas). Það er gerandi fyrir þann sem þar hefir verið, að fara um Sviþjóð; hann á hvarvetna kunn- ingja og vini. í Trollhattan er Cron- quist félagi minn; hann er þar kenn- ari. Þar er líka Ika Vadsten á leið til Stokkhólms. í sumar gekk hún á stóreflis tréskóm í trjágarðinum í Nesi, með sjóhatt stundum, og moldugar hendurnar. Stundum á skræpóttum þjóðbúningi ofan úr Dölum. í Nesi var kvennval mikið, en það var allra mál, að engin þar ætti slíkt bros sem Ika — og mold- in fór henni vel. Nú er hún Stokk- hólms-frökenin, á háum hælum, með tösku á handleggnum og fjöður í hattinum. Cronquist leiðir mig í allan sann- leika una skóla og því um líkt í bænum. Ika fer og setur upp ket- ilinn hjá systur sinni. Þegar þangað kemur er borðið þakið blómum og barri, og þar biður gestsins dýrind- isgjöf — 20 aura virði — vandlega vafin í pappír og silkibönd. »Dag- urinn heitir Helgi«, segir Ika og hlær. — Þrátt fyrir rafmagnið, ferðamanna- strauminn og vélaskröltið við Troll- hiittan er gestrisnin hér og viðtök- urnar eins og komið væri að Merki- gili í Skagafjarðardölum. Úti niðar Ttollhuttan og malar húsbændum sínum gull. Þessi þjóð hefir ráð á að vera gestrisin. Hún getur verið glöð og stolt. Hún er löngu komin úr kátnum. Hugur Mörlandans hvarflár þangað sem Dettifoss rymur í auðn og nekt. Sú var tíðin hjá okkur, að stórir menn og sterkir gátu ekki satt hungur sitt, af því að enginn þurfti krafta þeirra með. Sú er tíðin víða hvar enn í dag, ekki sizt þar sem gullkvörnin er harðast knúin. Þegar við leiðutn jötnana að kvörninni, verðum við vonandi slíkir húsbændur, að þeir mali okkur eingöngu ár og frið. — Kanske lumir landið enn á ein- hverju góðu handa fossunum okkar að vinna úr; kanske erum við rík- atí en við vitum. Og það væri að minsta kosti vel, ef náttúran hefði vit fyrir okkur, og breiddi ofan á það sem við t. d. kynnum að eiga af kolum, þangað til við höfum átt- að okkur á hvað við getum gert við þau. Skrifað í Stokkhólmi, um jólin 1916. Helgi Iljorvar. % cJhQnsía < Ensku og dönsku kenni eg undir- ritaður, sem hefi stnndað nám i Englandi og Danmörku. Odýr timakensla. Th. Kjartansson, Hotel Island nr. 7, heima kl. 11—12 og 5—6. Herbergi »möbleret« óskast strex, helzt nál. Miðbænum. R. v. á. 1 * dfmna S t ú 1 k a fyrir heina. óskast til að ganga gestum Uppl. Bræðrahorgarstíg 3 B. £rl. simfregnir Opinber tilkynning frá brezku utan- ríkisstjórninni í London. London, 27. april. För Balfours til Washington er fylgt með miklum áhuga í Englandi og tilkynningunni um það, að Banda- ríkin ætluðu eigi að semja sérfrið, heldur halda uppi ófriðnum þangað til að náð væri hinum mikla jafn- réttis tilgangi, hefir verið tekið með miklum fögnuði. Flotamálastjórnin hefir ákveðið að spítalaskip skuli framvegis sigla merkjalaus, sökum þess að Þjóð- verjar hafa hrakmenskulega hvað eftir annað sökt spítalaskipum þeim, er sigldu undir Genúameakinu. Þegar spítalaskipið La France, sem flutti særða hermenn, brezka og þýzka, var skotið tundurskeyti, urðu Þjóðverjar ærir af ótta, en þrátt fyrir það tókst Bretum að bjarga þeim öllum, nema þrettán. Alþjóðanefnd Rauðakrossins hefir sent þýzku stjórninni kröftugt mót- mælaskjal. Sex þýzkir tundurbátar gerðu til- raun til árásar á Dover að kvöldi hins 20. apríl, en hittu fyrir tvo brezka tundurspilla, Broke og Swift. Tókst þar orusta og skaut Peck, foringinn á Swift, einn þýzka tund- urspillirinn tundurskeyti. Heimskauta- farinn Evans, foringi á Swift klauf annan. A hinum síðartalda þustu Þjóðverjar fram í stafn, en aðrir tundurspillar Þjóðverja skutu beint af handahófi. Gyles miðskipsmaður, úr varasjóliðin hrakti Þjóðverja með sjálfhleðslumarghleypu þangaðtil hann féll, en annar sjómaður rak árásar- mann hans í gegn með byssusting. Broke tókst að losast við hið sökkv- andi óvinaskip og reyndi hann að renna á þann bát Þjóðverja, er síðastur fór, en misti stjórn. Swift elti þann tundurspillinn er fremstur var, þang- að til hann var svo laskaður, að hann stöðvaðist. Tveim eða jafnvel þrem þýzkum tundurspillum var sökt. Báðir brezku tundurspillarnir björguðu mörgum Þjóðverjum en sumir voru þegar dauðir. Vikuna, sem endaði 24. apríl, fjölg- aði mjög skipum sem komu til brezkra hafna og 2585 skip í móti 2379 komu til hafna, en 2Ú21 í mót 2331 skipi fóru. Er þetta vegna þess að hlutlausar þjóðir eru nú af sjálfsdáðum farnar að hætta til siglinga. Fjörutíu brezkum kaup- förum yfir fimtán en undir 1600 smá'. var sökt. Á 27 skip var ráð- ist árangurslaust. Þrír brezkir flugbátar réðust á fimm þýzka tundurspilla hjá Belgíu- strönd hinn 23. apríl. Hæfðu þeir einn þeirra og er það ætlan manna að hann hafi sokkið. í neðri deild þingsins fagnaði Bon- ar Law fyrir hönd stjórnarinnar þeirri tilkynningu bráðabirgðastjórn- ar Rússlands að Pólland skuli énd- urreist og lét þá von í Ijós, að eftir ófriðinn muni hið sameinaða Pól- land halda uppi vináttu við Breta, Hann tilkynti það enn fremur að stjórnin athugaði það nú af kappi hv'ernig mætti jafna írlandsmálin og hélt að það mundi takast að j|fna þau. Alríkis herráðstefnan hefir einurn rómi samþykt þá grundvallarreglu, að hver hluti' ríkisins fyrir sig skal kapp- kosta að gera öðrum hlutum ríkisins sem hægast fyrir, að kaupa og selja vörur, og þó skal takast sérstakt til- lit til hags bandaþjóðanna. Stjórnin hefir 'fallist á samþyktina og brezkur verzlunarbanki (British Trade Bank) hefir verið stofnaður í þeim tilgangi að styðja verzlun og iðnað. Lloyd George sagði í ræðu sem hann hélt í Guildhall, að nú væri gerbreytt hernaðarástandinu og sigur- vissan færi dagvaxandi. Með aukn- um hernaðarforða væri sigur trygð- ur að lokum að minsta kosti. Það væri auðséð, að Þjóðverjar sæu að hverju færi, og þess vegna hefðu þeir í öngþveiti sínu gripið til hins svartasta sjóræningjaháttar á úthöfum. Bezlu mannvitsmenn í Englandi, Frakklandi og Baudaríkjunum, væru að finna ráð gegn kafbátahættunni, og hveit ráðið sem muni tekið, þá verði því haldið fram þangað til hafvörgunum væri komið fyrir katt- arnef. Af kafbátahernaði Þjóðverja stafaði það, að stöðugt þrengdi meira og meira að hlutleysingjum í Evrópu og þess vegna hefðu Spánverjar sent Þjóðverjum hörð mótmæli. í Sví- þjóð hafa orðið áköf uppþot út af matvælaskorti. Meðal Norðmanna fer gremjan vaxandi út af því að Þjóðverjar eyðileggja verzlunarflota þeirra af ásettu ráði og reyna að stöðva viðskifti þeirra við Dan- mörku. Talið er í norskum blöð- um að leynifundir þingsins, sem nú eru haldnir i Kristíaníu, eigi úr því að skera, hvort Norðmenn skuli sitja hjá í friði eða fara í stríðið. Fregnir frá Amsterdam sýna það, að miklu meiri brögð eru að verk- föllunum í Þýzkalandi heldur en fyrst var frá skýrt. Bethmann-Holl- weg hefir gefið út tilkynningu um það, að upphafsmönnunum skuli hegnt harðlega, og Groner, þegn- skyldu-ráðherra, hótar því að senda alla verkfæra verkfallsmenn í herinn. (Frh. á síðu 7).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.