Morgunblaðið - 14.07.1917, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Skriístofa andbanningafélagsins,
Lækjargðtu 6 B
opin hvern virkan dag kl. 4—7 e. h.
Allir þeir sem vilja koma áfengis-
málinu í viðunandi horf, án þess að
hnekkja persónufrelsi manna og al-
mennum mannréttindum, eru beðnir
að snúa sér þangað.
Sími 31.
legt að koma á fót hið allra
fyrsta lánsstofnun, er einvörð-
ungu veiti hentug lán til rækt-
unarfyrirtækja og jarðabóta,
og ef svo reynist, að leggja
þá fyrir næsta reglulegt þing
frumvarp til laga um slíka
láns8tofnun.«
Úr neðri deild í gær.
Þar var til 1. umræðu frumv.
til laga um skiftingu bæjarfógeta-
embættisins í Reykjavík og stofn-
un sérstakrar tollgæslu í Reykja-
víkurkaup8tað.
Aðal-flutningsmaður (Gísli Sv.)
reifaði málið. Taldi hann bæjar-
fógetaembættið svo umfangsmikið
orðið, að einum manni væri ger-
Bamlega ókleift að anna því.
Þessvegna væri hér farið fram á
að skifta núverandi störfum
bæjarfógeta milli tveggja embætt-
ismanna, og skyldi annar þeirra
gegna dómarastörfum og lögreglu-
stjórn, en binn hafa á hendi toll-
stjórn og skattheimtu. Kvað
hann bæjarfógetaembættið svo
tekjumikið orðið, að vel myndi
nægja til að launa bæði embættin.
Forsætisráðherra áleit enga
nauðsyn að skifta embættinu;
það væri ekki ofstórt fyrir einn
mann, þar sem hann gæti haft
sér við hönd fulltrúa eftir þörf-
um. Kvað hann og sama sem
engu létt af dómaranum sjálfum,
þótt þessi skifting kæmist á.
Ætti hann einn að annast lög-
reglustjórnina, auk dómarastarf-
anna, þá myndi hann naumast
geta annað því.
Flutningsmaður kvaðst ekki
furða sig á því, að forsætisráð-
herra hefði ýmislegt að athuga
við frumvarpið, þar sem stjórn-
in hefði ekki orðið til að bera
það fram.
Enn talaði forsætisráðherra og
svo að lokum flutningsmaður, en
að því loknu var málinu vísað
til 2. umr. og til allsherjarnefnd-
ar.
Þessu næst kom til umræðu
frv. til laga um breytingu á að-
flutningsbannslögunum. Breyting-
in liggur í þvi, að helmingur allra
sekta fyrir brot gegn lögunum
skuli renna í sveitar- eða bæjar-
sjóð, þar sem brotið er framið.
Taldi flutningsmaður (Gísli
Sveinsson) líklegt, að þetta ætti
að verða til þess, að bæjarstjómir
og sveitarstjómir legðu sig meira
í framkróka um að koma upp
brotum. Dygði þetta, og væntan-
leg tollgæzla hér í Reykjavík,
i
það, er ráðið er hjá mér, er beðið að koma
til viðtals
mánud. 16. þ. m. kl. 4-6 síðd.
Th. Thorsleinsson.
ekki til þesB að eyða bannlaga-
brotunum, sem mjög mikið væri
nú kvartað undan, eða að minsta
kosti til að minka þau, þá væri
í rauninni ekkert fyrir uppihald
laganna gerandi. Hitt næði engri
átt, sem raddir hefðu heyrst um,
að skipa sérstaka lögreglu. Kostn-
aður við það, ef í lagi ætti að
vera, myndi nema hundruðum
þúsunda króna.
Annars fanst honum menn al-
ment vera of hörundssárir út af
brotum á þessum lögum. öll lög
væru meira og minna brotin, er
menn virtust gera meira veður
út af brotum á þessum lögum
heldur en öðrum lögum. Lög-
brot öll væru ;ill, og því væri
þetta frumvarp fram komið, að
hann vænti að það gæti komið
að nokkru haldi til að fækka
brotunum á þessum lögum. Þeir
þingmenn, sem bæru þessi lög
fyrir brjósti, ættu því að styðja
þessa breytingu á þeim.
Aðrir tóku ekki til máls, og
var frumv. vísað til 2. umr. óg
síðan til allsherjarnefndar.
Úr efri deild í gær.
Eitt mál á dagskrá, frv. Guðjóns
Guðlaugssonar um breytingu á fast-
eignamatslögunum, 2. umr.
Flm. gerði ítarlega grein fyrir frv.,
bæði um greinarmun þann, er hann
vildi gera á skatthæð jarða og húsa,
og svo hækkun á kaupi fasteigna-
matsmanna. Taldi hann það ekki
vansæmdarlaust, að þeir þyrftu að vera
ómagar i starfi sínu. Ræða hans
tók fast að klukkustund.
Eggert ‘Pdlsson vildi sleppa með
öllu skatti af húsum í sveit, en taldi
laun fasteignamatsmanna ekki lakari
eri ýmsra annara starfsmanna þjóð-
félagsins, svo seut sýslunefndarmanna
og í sama streng, um launin, tók
Guðmundur Ólafsson. Flutn.m. þótti
hins vegar sú ástæða léttvæg, að ýms-
ir aðrir starfsmenn þjóðarinnar ynnu
fyrir lítíð eða ekki neitt. Það ætti
ekki fyrir það að vera sjálfsagt af
þinginu að beita nýja starfsmenn,
sem skipaðir væru með nýjnm lögum,
sömu rangindunum.
Auk þess væru störf fasteigna-
matsmanna margfalt vandasamari en
t. d. hreppstjóra-, oddvita- og sýslu-
nefndarstörf.
Fóru allhvcss skeyti milli Guðm.
Ól. og flutningsmanns, einkum út
af því að G. Ó. ympraði á þvi, að
samband væri milli kauphækkun-
artillögu flutningsmanns og þess at-
viks, að hann (flm.) væri sjálfur
fasteignamatsmaður.
Magnús Torfason taldi ákvæði
frumv. viðvíkjandi skattinum ótíma-
bært. Um tilhögun skattsins ætti ekki
að taka neinar ákvarðanir-fyr en mat-
inu værí lokið á öllu landinu og
hægt væri að átta sig á plöggum
matsmanna. Deildu þeir, hann og
flutningsm., og um það, hvort rétt-
ara væri að taka lægrit húsaskatt af
sveitamönnum en »þorpurum«.
M. T. vildi lofa málinu að fara í
nefnd, en óskaði þess, að hún græfi
það svo djúpt, að ekki bólaði á því
aftur á þessu þingi.
Eftir allmikið þras um það, hvort
málið skyldi fara 1 fjárveitinga- eða
landbúnaðarnefnd (sumir nefndu og
allsherjarnefnd) varð ofan á, með
11 : 2 atkv., að vísa því til land-
búnaðarnefndar. 2. umr. var jafn-
framt frestað.
Fnndurinn, sem ekki hafði til
meðferðar nema þetta eina mál, stóð
í i®/4 kl.tíma og minti forseti deildar-
menn á það i fundarlok, að kunna
tungu sinni hóf, kostnaðarins vegna.
Prentun á umræðum þessa fundar
mundi að likindum kosta hátt á
annað hundrað krónur.
DAGBOK
Gangverð erlendrar myntar.
Bankar Fósthús
Dollar 3,55 3,60
Franki 62,00 62,00
Sænsk króna ... 106,00 107,00
Norsk króna ... 103,00 104,00
Sterlingspund ... 16,50 16,50
Mark 50,00 51,50
Seglskip kom hlngafí í gærmorgun
hlaöið allskonar timbri til Arna kaupm.
Jónssonar.
Bærinn var orðinn timburlaus.
Kaupafólk
óskast npp i Borgarfjörð.
Upplýsingar í sima 444.
Kouil þá er lét telpu sækja
blá Cheviot föt til min 5. þ. mán,
(fimtudagskvöld) bið eg gera svo vel
að koma og tala við mig sem fyrst
af vissum orsökum.
Sæunn Bjarnadóttir, Laufásveg 4.
N^rLax
fæst i
Matardeild Sláturfél.
Hafn arstr æti.
Fálkinn fer til útlanda 22. júlí kl.
4 síðdegis.
Measufall er í þjóðkirkjunni í Hafn-
arfirði.
Prófasturinn er í visitasíuferð.
Goðafoss-strandið. í fyrrakvöld fór
héðan mótorkútter Nathan & Olsens,
Harry, áleiðis til Straumnes. Með skip-
inu fóru nokkrir verkamenn frá Kirk
verkfræðingi, ásamt formanni, til þess
að bjarga því sem eftir er af GodafoBS-
strandinu. Hefir Kirk verkfræðingur
tekið að sór verkið, en hann og Eim-
skipafélagið hafa keypt skipið í því
ástandi sem það er í, af vátrygginga-
félaginu. Kaupverðið var 18 þús. kr.
að sögn.
Islands Falk kom hingað í gær-
morgun frá Austfjörðum. Hafði komlð
við í Vestmannaeyjum á hingað leið.
Skipið flutti hingað póst og nokkra
farþega.
Danskur taunlæknir, Eavnkilde að
nafni, kom hingað á Falkanum í gser,
ásamt aðstoðarmanni sínum. Ætlar
hann að dvelja hér um hríð við tann-
lækningar. Hann kom til Færeyja með
Fálkanum í vor og hefir verið þar
þangað til nú.
Messað í dómkirkjunni á morgun
kl. 10 árd. síra B. J. Engin siðdeg-
ismessa.
Lagarfoss ætti að geta komið hing-
að á morgun eða svo, hafi skipið feng-
ið gott veður á leiðinni frá Halifax.
Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari
sem fór héðan til Ameríku fyrir þrem
mánuðum og ætlaði að dvelja þar fram-
vegis, er væntaulegur hingað aftur inn-
an skams. Mun hann ekki hafa þolað
loftslagið þar vestra — hitana, sem um
þetta leyti árs eru þar afskaplegir.
Eitthvað af sæsíma hafði Islands
Falk flutt hingað frá Færeyjum til þess
að nota til Vestmannaeyjasímans. E11
nú mun hans tæplega þörf í bráð.