Morgunblaðið - 24.07.1917, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Síldarvinná.
Enn geta nokkrar stúlkur
fengið sildarvinnu
hjá h.f. Braga á Hjalteyri.
Lysthafar gefi sig fram strax
á skrifstofu íélagsins.
Th. Thorsteinsson.
cfrá ocj með ó&ginum i óag íií 15.
sepí n. R.f íoRum vió sRóverzíunum oRRar
Rl. I að Rvoíói noma a íaugaróogum,
þa Rí. 3 e. R.
p. p. Lárus G. Lúóvigsson,
Lúóvig Lárusson.
Síefán Gunnarsson. Jón Síefánsson.
Cíausensbræður
Jlrreboe Ciausen.
Óvanalegt um þetta leyti.
5. Frv. um löggildingu Bakka i Borg-
fiiði austur; 2. umr.
6. Frv. um heimild fyrir bœjarstjórn
Reykjavíkur til einkasölu á mjólk;
2. umr. ,
7. Frv. um mjólkursölu í Reykjavík;
1. umr.
8. Till. til þingsál. um sölu á ráð-
herrabústaðnum; frh. einnar umr.
9. Frv. til laga um sama efni; 1. umr.
10. Frv. Jör. Br. o. fl. um breytingu
á bannlögunum; 1. umr.
Blómsveigasjóður. Þeir eru farnir
aS tíðkast nokkuð hór á landi, og verða
vafal. miklu fleiri þegar framlíða stund-
ir. Nýstofnaður er einn slíkur sjóður í
Hafnarfirði af hjónunum Jóni Eyjólfs-
syni kaupmanni og Sigurjónu Jóakims-
dóttur. Gáfu þau 500 kr. til sjóð-
stofunarinnar og á að verja tekjum
har.s til styrktar sœngurkonum í
Hafnarfiröi.
Þarflegt og gott fyrirtæki, sem Hafn-
firðingar vonandi sýna tilhlýðilega
rækt.
Borg, skip Kveldúlfsfólagsins, fer
norður til Hjalteyrar í dag.
Austurför þingmanna. Þeir voru
12 alls sem fóru austur yfir fjall á
laugardaginn. Voru það þessir: Sig-
urður Sigurðsson, Stefán Stefánsson frá
Fagraskógi, Pótur Þórðargon, Einar
Árnason, Jón Jónsson, Guðjón Guð-
laugsson, Guðm. Ólafsson, Hjörtur
Snorrason, síra Eggert Pálsson. Þessir
fóiu í þingerindum, en auk þeirra fóru
í heimboð til Gests Einarssonar á Hæli
þeir .Þorleifur Jónsson, Svelnn Ólafs-
son og Þorst. Jónsson.
Kolin í Dufansdal. Ráðstöfun er
nú verig að gera til þess að vinna kol
úr uámunni i Dufansdal. Er vonandi
að það fyrirtækl takist vel, því að ekki
mun veita af að hingað komi íslenzk
kol fyrir haustið og veturinn.
Lögreglan hetlr undanfarna daga
haldiö vörð um borð í mótorskipinu
Úlfur. Er sagt að það só vegna eln-
hverra kassa, sem í eru tollskyldar
vörur, tóbak og konfektbrjóstsykur.
Kafbátar í íshafinu. Siglufjarðar-
blaðið í>Fram« heflr það eftir mönnum
af hákarlaskipi, sem hitti norsk veiði-
skip noröur í íshafi, að skipverjar af
nokkrum skipum hafi orðið að yfirgefa
skipin, þar sem Þjóðverjar hafi ónýtt
vólarnar og skorið seglin.
Borgarafundur
var haldinn í barnaskólagarð-
inum í fyrradag, og hafði stjórn
alþýðuflokksins boðað til hans.
Var fundurinn all-fjölmennur eft-
ir ástæðum, þar sem svo mikill
fjöldi manna er farinn burt úr
bænum.
Jörundur Brynjólfsson alþm.
setti fundinn, en Þorv. Þorvarðar-
son bæjarfulltrúi hóf máls. Næst
honum talaði frú Jónína Jóna-
tansdóttir, einkum um smjörsöl-
una, sem landsstjórnin hefði tek-
ið að sér, en 'léti Sláturfél. Suð-
urlands annast söluna. Félagið
seldi smjörið aðeins í heilum
kvartélum, en við það gætu ekki
nema tiltölulega fáir orðið aðnjót-
andi þeSs. Bar hún loks fram
tillögu um að skora á matvæla-
nefnd að koma því fyrirkomu-
lagi á, að smjörið yrði selt eins
og smjörlíkið, gegn afhendingu
seðla. Var sú tillaga samþ.
Ól, Friðriksson ritstj. vítti mjög
aðgerðir matvælanefndar, og tók
í sama strenginn og frú Jónína.
En Sig. Björnsson lýsti því yfir,
að þessar vörutegundir lægju fyrir
utan verkahring nefndarinnar, og
sannaði hann mál sitt með því
að lesa upp erindisbréf það, sem
stjórnarráðið hefir sett nefndinni.
Ef nefndin ætti að geta ráðstaf-
að afhendingu þessara vöruteg-
unda, yrði að búa út nýtt erindis-
bréf — og létu menn sér það
iynda.
Þá bar Ól. Friðriksson fram
tillögu um að skora á verðlags-
nefnd að láta lækka brauðverðið,
ef það kæmi fram við nákvæma
rannsókn, að verðið væri of hátt
og um að bakaríin yrðu tekin
eignarnámi ef á þyrfti að halda.
Var hún samþykt í einu hljóði.
Mjólkurmálið var einnig til
umræðu. Var skorað á alþingi
að taka til greina tillögu þing-;
málafundar Rvíkur um heimild
fyrir landsstjórnina til þess að
taka að sér einkasölu á mjólk.
Var hún einnig samþykt.
Þá kom loks fram tillaga um
að skora á alþingi að efla bann-
lögin og auka eftirlit með þeim,
og var hún samþykt með ein-
hverjum meirihluta.
Bandarikin
og ófriðurinn.
Það er fyrst og fremst fjármagn
Bandaríkjanna, sem menn búast við
að verði þungt á metunum i þessum
ófriði. Þeir hafa grætt óhemju fjár
við að selja bandamönnum hergögn
og matvæli og nú ætla Bandaríkja-
menn að nota peningana til þess að
berjast sjálfir á vígvöllunum 'gegn
Þjóðverjum. Þegar Bandaríkin kom-
ust inn í ófriðinn var samþykt í
þinginu, að bjóða út 3281 miljón
dollara lán — »friðarlán« sem þeir
nefndu. Og þá upphæð fékk stjórn-
in á nokkrum dögum. Nokkuð af
upphæðinni ætla Bandaríkjamenn að
lána bandamönnum, en mestu verður
varið til beinna herútgjalda þeirra
sjálfra.
Áköf sprenging varð nýlega í tveim
sykurverksmiðjum í New York. Er
talið áreiðanlegt að Þjóðverjar séu
sök í þvi.
0 cySaupsRapur
2 kanarifuglabúr til sölu. Sími
394-
Sendinefnd
til Frakklands.
Bandarikjastjórn hefir nýlega sent
nefnd manna, sérfræðinga á ýmsum
sviðurn, til Frakklands til þess að
Bandaríkjamenn geti séð með eigin
augum hvers Frakkar þurfi aðallega
við sem stendur. Eru meðal nefnd-
armanna margir þektir sérfræðingar,
læknar, fjármálamenn, byggingar-
meistarar, járnbrautarfræðingar o. fl.
sem öllum er ætlað sérstakt starf í
Frakklandi. Er búist við miklum ár-
angri af för þeirra, því vafalaust mun
Bandaríkjastjórnin ekki láta standa á
sér með að senda það sem Frakkar
nauðsynlega þarfnast.
Þýzkir flugbátar fóru nýlega flug-
ferð til eyja Rússa í Eystrasalti og
vörpuðu þar niður fjölda spr«ngi-
kúlna. Allmargir biðu bana og
fjöldi fólks meiddist.
Horfið hefir úr Akurey mórauð
kind með svörtu lambi. Brenni-
merkt R. 5, én lambið með minu
marki: Sýlt.. og gagnfjað'rað hægra,
2 fjaðrir aftan vinstra.
Færi svo að einhver fyndi hana
lifandi eða dauða bið eg hann að
láta mig vita um það.
Engey ao. júlí 1917.
Brytijóljur Bjarnason.
Drengi
vantar til að selja pésa á
götunnm.
Uppl á skrifstofn Isafoldar.
Alvinnu
við skriftir eða verzlun óskar ungur
maður nú þegar.
Ritstjóri vfsar á.