Morgunblaðið - 30.07.1917, Blaðsíða 1
Mármdag
30.
fúlí 1917
HOBGDNBLAÐID
4. árgangr
265.
tðlublað
Ritstiórnarsimi nr.
500
R'tstjóri:
Vilhj.iimur Fin^en
ísnfoldarprentsmiója
Afgreiðsinsimi nr. 500
3101 Reykjavíkur |R|0
JIUI Biogi'aph-Theater 1MIU
Taisimi 475
Hinn óttalegi
leyndardómur
veitingahússins,
(Easterbrook-málið).
Afarspennandi leynilögreglumynd
í þrem þáttum.
Leikin af frægustu leikurum
Vitagraph-félagsins i New York.
Erí. simfregnir
frá fréttar. Isafoldar og Morgunbl,
Khöfn, 28. júli.
— l»jóðverjar hala tekið
Kolomea.
Rússar yflrgefa Czerno-
vitz, en sækja fram hjá
Sovejeputna.
Erl. simfregnir
Opinber tilkynning frá brezku utan-
ríkisstjórninni i London.
London 27. jtili.
Á frelsisdegi Belga hélt Lloyd
'George ræðu og svaraði þar gremju-
lega ummælum þýzka rikiskanzlar-
ans i ríkisþinginu. Hann sagði að
það væri áreiðanlegt að Belgia mundi
verða gefin frjáls aftur og yrði það
að vera að öllu leyti. Tilboð kanzl-
arans væri falskt sjálfstæði handa
Belgíu, fölsk lýðvaldsstjórn í Þýzka-
landi og falskur friður handa Norð-
urálfu. Kafbátahernaðurinn mishepn-
aðist Þjóðverjum því að vér værum
smám saman að auka framleiðsluna
og skipatjónið færi minkandi. Sið-
ustu tvo mánuði þessa árs hefði
smiði nýrra skipa verið jafnt allri
skipasmið ársins er leið og næsta ár
mundi verða smiðuð sex sinnum
fleiri skip. Bretar hefðu nægar mat-
vælabirgðir til 1917 og 1918 og við-
biinaður um ræktun árin 1918—1919
trygði þeim nægar birgðir, enda þótt
skipatjónið færi vaxandi. Bretar væru
fiisir til þess að semja frið við frjálst
Þýzkaland en gætu eigi samið við
það Þýzkaland sem stjórnað væri af
aðlinum.
í neðri deild brezka þingsins var
tillaga Ramsay Macdonald um það
að Bretar staðfestu friðartillögu þýzka
þingsins, feld [með 148 atkvæðum
gegn 19. Bonar Law sagði að Þjóð-
veijar hefðu farið í stríð vegna þess
að þeir hefðu búist við að vinna mikið.
Það yrði að hrekjiþáútúr Belgiu 04
yrðu þeir að greiða skaðabætur fyrir
unnin spjöll þar. Sama má!i væii
að gegna um Norður-Frakklar.d.
A hernaðarráðstefnu bandimanna,
sem haldin var í Paris hinn 24. júlí
til þess að ræða um Balkan-málefni,
sátu þeir Lloyd George, Balfour, Jelli-
coe, og Robertson og Smuts. »Matin«
segir að nú skyldi tækifærið gripið til
þess að útskýra hernaðaráform banda-
manna, sérstaklega fyrir Rússum og
Austurríkismönnum og Ungverjum.
í neðri deild brezka þingsins bar
Bonar Law fram fjárveitingarfrum-
varp þar sem farið er fram á að
þingið veiti 650 m ljónir sterlings-
punda til herko tnaðar og nema þá
hernaðarfjárveitiugar alls um 5292
miljónum sterlingspunda. Hann sagði
að Bretland gæti staðist slík út-
gjöld og haldið þeim áfram lengur
en óvinir þess. Það inundi ekki
verða fjárskortur sem hamlaði Bret-
um frá því að vinna sigur.
Skýrslan um kafbátahernaðinn vik-
una sem lauk 22. júlí, sýnir það
að 2791 skip hefir komið til brezkra
hafna. 21 brezku skipi, sem báru
meira en 1600 smálestir var sökt,
þar á meðal talin tvö, sem eigi
hafði komið skýrsla um næstu viku
á undan. Þrem skipum minni var
einnig sökt og á 15 skip var
ráðist árangurslaust. »Times« segir
um þetta, að það komi eigi mönn-
um á óvart þótt skipatjónið sé dá-
lítið með meira móti, en árangur-
inn sé þó Þjóðverjum til engrar
gleði, því að þeir hefðu heitið því
að sökkva þrisvar sinnum fleiri skip-
um heldur en þeir hefðu sökt síðan
hinn miskunarlausi kafbátahernaður
hófst.
Lvoff lagði niður forsætisráðherra-
tign í Rússlandi, en Kerensky tók
við af honum.
Þjóðfundur íra, þar sem eru sam-
ankomnir menn af öllum flokkum f
landinu hélt fyrsta fund sinn að Tri-
nity College í Dublin hinn 25. júli.
Sir Horace Plunkett er forseti fund-
arins.
Að morgni hins 22. júlí vörpuðu
nær 20 óvinaflugvélar sprengjum á
Felixstowe og Harwich, en voru
hraktar burtu aftur með öflugri skot-
hríð og flugvélavörnum. Ein flug-
vél var skotin niður og féll í sjó-
inn. 13 menn biðu bana en 21
særðist.
Fréttaritari norska blaðsins »Aften-
posten« i París, hefir haft tal af hin-
um þrem mönnum, er komust af
norska skipinu »Koug Haakonc, sem
þýzkur kafbátur sökti. Skipverjar
voru alls 24. Þessir þrir menn segja
að kafbáturinn hafi skotið á björg-
unarbátana og á skipið miðskipa þar
sem flestir skipverja hefðu safnast
saman. Hroðalegt mannfall hefði
þegar orðið. Kafbáturinn hefði skot-
ið 30 skotum á tíu minútum meðan
hann rendi sér umhverfis skipið. Þil-
farið varð sem blóðvöllur; sumir
mennirnir lágu þar höfuðlausir, en
aðrir limlestir. Að lokum stóðu að
eins þrír uppi.
Þýzkur kafbátur skaut í kaf brezka
skipið Marshion frá Glasgow og
skeytti ekkert beiðnum skipverja um
hjálp, þá er þeir fleyttust á rekaldi
og hákarlar réðust á þá. Allir nema
matreiðslumaður biðu þar hræðilegan
dauðdaga. Foringi kafbátarins horfði
kæruleysislega á þetta i sjónauka.
Frá alþingi.
Nýungar.
Húsaleiqa í Reykjavik.
Allsherjarnefnd efri deildar flytur
nú þá breytingartillögu við húsa-
leigufrumvarpið, eins og það var
samþykt við 2. umr. i efri deild,
að húseigendur megi því að eins
segja upp húsnæði til eigin íbúðar,
að hann hafi verið orðinn eigandi
hússins fyrir 14. mai síðastliðinn.
Frjósemi þingsins.
Aldrei jafnmörg þingmannafrumvörp.
í dag er úti frestur sá er þing-
menn hafa, samkvæmt þingsköpum,
til þess að bera upp lagafrumvörp,
án þess að samþykki deildarinnar
komi td. Þau frumvörp, sem hér
eftir koma frá þingmönnum, eru
fallin, ef deildin neitar um samþykki
sitt til þess, að þau verði tekin til
meðferðar.
Þingmannafrumvörpum hefir því
síðustu dagana rignt niður eins og
skæðadrifu. Þau voru orðin í gær
8f að tölu, eða fleiri en á nokkru
þingi áður, og mun þó vera von á
fleirum. A þinginu 19x3 voru þing-
mann.frumvörp alls 6q og 1915
urðu þau 76, og þótti mörgum nóg
um þá. Af þessum 85 frumvörpum,
sem nú eru skrásett, hafa 2 verið af-
greidd með rökstuddri dagskrá (einka-
sala á mjólk og sameining ísafjarðar
og Evrarhrepps), 1 tekið aftur og 4
feld (2 frv. um fjölgun læknishéraða,
frv. um afnám forðagæzlulaga og frv.
um laxeinkaleyfi).
Stjórnarfrumvörpin eru 22 enn
sem komið er.
Þingsályktunartillögur- eru komnar
fram 16, þar.af 3 um skipun nefnda;
1 þingsál.till. hefir verið afgreidd
með rökstuddri dagskrá og 1 tekin
aftur. Engin tfmatakmörk eru sett
mjm bíó
Ljómandi fallegur sjónleikur
leikinn af Vitagraph-félags ágætis
leíkurum, þar á meðal hinni
fögru leikkonu
Anita Steward,
sem nú er eftirlætisgoð allra
kvikmyndavina fyrir það hve
aðdáanlega vel hún leikur.
Rönneby-áin i Sviþjóð.
Fögur og litskr. náttúrumynd.
JarSarför Jóns J. Jóhanns-
sonar fer fram i dag kl. Ifl/a
frá heimili hans Túngötu 2.
um þingsályktunartillögur, hve nær
megi síðast bera fram, og mun því
von á mörgum i viðbót, ef að vanda
lætur.
Fyrirspurnir hafa komið 3. Einni
þeirra hefir verið svarað.
Engin ályktun er enn afgreidd frá
þinginu og ekkert frumvarp orðið
að lögum. í dag má telja víst að
þingið komi frá sér fyrstu lögunum,
sem sé frumvarp stjórnarinnar um
hækkun á ellistyrktarsjóðsgjöldum og
á landssjóðstillagi til ellistyrktarsjóða.
. Morgunblaðið mun, eins og að
undanförnu, hafa vakandi auga á at-
höfnum þingsins og skýra almenn-
ingi frá öllum helztu nýungum
þaðan.
Árásir i Churcliill.
Þegar það vitnaðist í Bretlandi að
Winston Churchill átti aftur að taka
sæti í stjórninni — að þessu sinni
sem hergagnaráðherra — varð óá-
nægja mikil og almenn. Hinn aldni
flotaforingi Beresford ritaði grein í
»Daily Mailc hinn 11. júli og ræðst
þar harðlega á Churchill. Segir
hann að þjóðin geti eigi treysthon-
um og séu margar ástæður til þess.
»Dugnaðurc hans í þvi efni að gera
glappaskot meðan hann sat i stjórn-
inni, hafi kostað ríkið margar milj-
ónir í fé og mörg þúsund manns-
lif. Minnir hann siðan á nokkur
dæmi þessu til sönnunar. Þar á
meðal herfarirnar til Antwerpen og
Hellusunds. Til Antwerpen hafi
verið sent óæft og illa búið lið.
Hellusunds herförin hafi kostað Breta
rúmlega 300 miljónir sterlingspunda,
mörg þúsund mannslíf og auk þe$s
lagt haid á mikinn kaupskipaflota
sem hefði haft nóg að gera annars*
staðar.