Morgunblaðið - 17.10.1917, Page 1
4. árgangr
Miðv.dag
17.
okt. 1917
H0R6DNBLAÐ1D
344.
tölublað
Ritstjórnarsimi nr. 500
RitstjAri: VilhjAltnur Fin en
ísafold.
aiprentsm’'ja
Afgreiðsiusími nr. 500
[> mjja Bíó
Evelyn fagra.
Skinan :i fallegur sjónleikur i 4 þáttum. Aðalhlutverkin leika
Rita Sacclietto,
Henty Seemann, Marie Dinesen og Philip Bech.
Kvikmynd þessi or talin með hinum allra beztu, sem Nordisk
Films Co. hefir tekið. — Og lengi munu menn minnast hins
snildarlega leiks Ritu Sacchetto, sem leikur hér Evelyn hina fögru.
Sýning stendur yfir hátt á aðra klukkustund. Tölusett sæti.
Stýrimannaskólinn
byrjnr 1. nóvember og teknr gamla og nýja nemendnr.
Reykjavík 15. okt. 1917.
Páll Halldórsson.
Dinl Reykjavikur |Rin
DlUj Biograph-Theater |OIU
Gullslangan.
Afarspennandi og áhrifamikill
leynilögreglusjóuleikur í 3 þátt-
um, 100 atriðum.
Það er falleg og vel leikin
mynd, um heilaga gullslöngu
og indverska leynifél. í London.
Erl. simfregnir
frí fréttaritara Isaf. og Morgunbi).
Khöfn, ódagsett.
| Friðarskilmálar Bulgara
eru þeir, að Búlgaría verði
stsersta rikið a Balkan-
skaga og tái landaukning-
ar trá Rúmeníu, Serbíu
cg Grikklandi.
Viðnám Rússa í Eysýslu
brotið á bak aftur. Arens-
burg brennur.
Widen hefir geflst upp
við að koma á fót sam-
steypuráðuneyti i Svíþjóð.
Prófessor Eden hefir nú
tekið við þeim starfa að
mynda ráðuneytið.
I»ýzku jafnaðarmennirn-
ir halda íund með sér í
Woryborg. Er talið lík-
legt að flokkarnir muni
sameinast aitur.
Arensburg er hafnarbær í Eysýslu
*og eru þar um 5000 fhúar.
Atvinnumálin
Og
landsstjórnin.
Öllum er það ljóst, að á næstu
timum sem í hönd fara, vofir yfir
atvinnuleysi. Sérstaklega kemur það
harðast niður á þeim mönnum, sem
lifa á daglaunavinnu — og af þeim
mönnum er mest hér i Reyjavik.
Alþingi gaf landsstjórninni víðtæka
heimild til atvinnubóta, svo sem til
vegagerða, námureksturs, vitabygg-
inga o. fl. Sömuleiðis til þess að
undirbúa stórbyggingar þessa lands,
svo sem landsspítala, háskóla, land-
Alúðarþökk til allra þeirra sem sýndu
samuð og hluttekningu við jarðarför föður
og tengdaföður okkar, Jóns Björnssonar
frá Ánanaustum.
Fyrír hönd aðstandenda.
Björn Jónsson.
simaslöð og landsbanka, þó banka-
stjórnin ráði auðvitað til um þá
byggingu.
Hvað er það þá, sem landsstjórn-
in getur látið gera til undirbúnings
þessum byggingum?
Það er þá fvrst og fremst teikning
húsanna; svo mætti viða að grjót-
mulningi og sandi. Sömuleiðis
mætti smiða hurðir og glugga og
margvísleg steypumót, tilheyrandi
þessum byggingum. Efniviði í það
væri ekki tilfinnanlegt fyrir stjórnina
að kaupa. En með því veitir hún
atvinnu og hittir sjálfa sig fyrir.
Það er haft eftir eitium mesta
trésmíðameistara þessa bæjar, eða
þeim manni, er mest hefir fengist
við að stjórna stórbyggingum þessa
bæjar, — og hagsýnastur er talinn
af mönnum sem þekkja hann fyrir
stjórnsemi og dugnað, — að fleiri
púsund króna tap sé fyrir stórbygg-
ingu, þegar stendur mikið á hurð-
um og gluggum í hana.
Menn eru þegar farnir að vonast
eftir röggsamlegum aðgerðum lands-
stjórnatinnar í þessum málum, þvi
að engin leið má ófarin nú á þess-
um tímum, sem bjargað geti mönn-
um frá atvinnuleysi.
Borgari.
Vélbátur ferst.
Talið er víst, að vélbáturinn
»Trausti«, eign þriggja manna
hér í bænum, hafi farist í norð-
anveðrinu mikla, sem geisaði
fyrri hluta þessa mánaðar. Hann
fór frá Kálfhamarsvik 1. þ. mán.
Kl. 5 að kvöldi; en nóttina eftir
skall veðrið á. Hefir síðan ekk-
ert til hans spurst. Eigendurnir
hafa í gær snúið sér til bæjar-
fógetans hér i bænum, sem hafði
lögskráð skipshöfnina, og tjáð
honum, að þeir væru vonlausir
um, að báturinn hefði komist af.
— Mennirnir á bátnum voru
þessir:
1. Skipstjóri Aðalbjörn Bjarna-
son ættaður af Vesturlandi, síðast
á Óðinsgötu 1 hér í bænum, ógift-
ur maður.
2. Stýrimaður Þorsteinn Ólafs-
son, ógiftur, Lindargötu 18.
3. VéÍ8tjóri Valgeir Guðbjarn-
arson, Þingholtsstræti 8, lætur
eftir sig ekkju og þrjú börn,
óuppkomin. Ekkjan heilsulítil og
fátæk. Fjölskyldan kynjuð vest-
an úr Ólafsvík.
4. Pétur Ásbjarnarson, Rauð-
arárst. 9, ógiftur, um tvítugt.
5. Guðjón Björn Ásmundsson,
ógiftur, um tvítugt, frá Brekku í
Mjóafirði. Á þar móður á lífl.
Allir voru mennirnir ungir og
mannvænlegir, og að þeim öllum
hin mesta eftirsjá.
Sagt er, að farþegar hafi verið
á bátnum, auk skipshafnarinnar;
en alt er það óljóst, hve margir
eða hverjir það hafa verið.
Dómsmálafréttir.
Yfirdómcr 15. okt,
Málið: Réttvísin gegn Guð-
mundi Kristjánssyni.
Mál þetta er úr Húnavatns-
sýslu, sauðaþjófnaðarmál. Var
ákærði G. Kr. dæmdur í héraði
eftir 250. (sbr. 249.) gr. hegning-
arlaganna í fangelsisrefsingu við
vatn og brauð 3y^ð daga, svo og
til þess að greiða allan kostnað
málsins.
Réttvísin áfrýjaði málinu, en
sekt sína hafði ákærði að mestu
leyti játað — hafði stolið lömb-
um og slátrað, svo og ullu (reif-
um) af fullorðnum kindum. —
Yfirdómur staðfesti héraðsdóminn
og greiði ákærði einnig 15 kr.
þóknun til hvors hinna skipuðu
málflutningsmanna við yfirdóm-
inn. ^
Dráttur allmikill hafði orðið á
prófum í málinu (byrjuðu 1914),
og dómur i héraði seint upp-
kveðinn (1916) og hafði undir-
dómari eigi fyllilega getað rétt-
lætt það, en eigi vildi yfirdómur
þó láta það varða sektum. Eigi
hafði heldur stefna verið gefin
löglega út, sem þó ekki var lát-
in varða frávísun
Málíð: Sigurður Briem gegn
frú Margréti Árnason.
Meiðyrðamál, dæmt í bæjar-
þingi Reykjavíkur þannig, að frú
Margrét Árnason skyldi greiða í
sekt til landssjóðs 100 kr. eða
fangelsi og ummæli hennar vera
dauð og ómerk; ennfremur greiði
hún 20 kr. sekt fyrir ósœmilegan
rithdtt í málinu og 30 kr. i máls-
kostnað. — Sigurður Briem áfrýj-
aði þessum dómi til staðfestingar
við yfirdóminn og dæmdi þar í
málinu prófessor Lárus H. Bjarna-
son í stað Eggerts yfírdómara
Briem, er vék sakir skyldleika
við áfrýjanda.
Stefnda frú Margrét Arnason
fékk þar fyrst frest til gagn-
áfrýjunar, en að því búnu mætti
hún eigi í málinu né neinn fyrir
hennar hönd. Lyktaði því svo,
að undirdómurinn var staðfestur
í öllum greinum og Margrét Árna-
son dæmd til að greiða málskostn-
að fyrir yfirdómi með 30 kr.
Málið: Helgi Jónsson verzlun-
arstjóri á Stokkseyri gegn
frú Margréti Árnason.
Sömu málsástæður og sama
dómsniðurstaða og í málinu næst
á undan.
Málið: Jóh. V. Daníelsson,
kaupm. á Eyrarbakka gegn
frú Margréti Árnason.
Sömu málsástæður og sama
dómsniðurstaða.
Málið: Þórður Jónsson, verzl-
unarm. á Stokkseyri gegn
frú Margréti Árnason.
Sömu málsástæður og sama
dómsniðurstaða.