Morgunblaðið - 13.11.1917, Qupperneq 2
2
MORÖUNBLAÐIÐ
Karlinn sómdi sér vel í leiknum
og hlaut hvað eftir annað viður-
kenningu áhorfenda.
Að öðru leyti fór leikurinn
prýðiiega fram, að því er virðist
þá var meira fjör og Jíf í hon-
um nú en siðast og veltust áhorf-
endur um af hlátri hvað eftir
annað. Leikstjórnin hafði auðsjá-
anlega náð hér góðum tökum.
Aðalhlutverkin er mest ríður
á og þau leika Jens Waage og
ungfrú Emilía, voru prýðisvel
leikin. Af aukahlutverkunum má
nefna vinnustúlkuna, sem féll
með réttu mjög vel í geð áhorf-
endanna. Sömuleiðis vakti skuld-
heimtumaðurinn talsverðan hlátur.
Eflaust verður mikil aðsókn að
þessum gamanleik enda er hann
fjörugur, fyndinn og vel þýddur.
Dómsmálafréttir.
Yfirdómar 12. uóv.
Málið: A/s Em. Z. Switzers
Bjergningsentreprise.
gegn
Axel Andersen f. h.
eigenda og vátrygg-
enda skipsvns »Asta*
frá Frederikshavn.
Árið 1915 rak skipið »Asta« á
grunn nál. Hrísey á Eyjafirði.
Björgunarskipið »Geir«, eign
Switzers var þá statt á Eyjafirði
og voru þá þegar gerðir samn-
ingar við það um að bjarga skip-
inu strandaða og skvldu björg-
unarlaun vera 33l/3 % af verði
skipsins eins og það yrði metið
á eftir. Tókst »Geir« síðan að ná
skipinu og dró það til Akureyrar,
og kafari frá »Geir« skoðaði það
einnig, hvort laskast hefði, sem
reyndist mjög lítið.
Hið bjargaða skip var metið á
yflr 20. þús. kr., en yfirmat var
heimtað og varð það rúm 27
þús. kr. Var siðan lagt löghald
á það, þar sem hin umsömdu
björgunarlaun eigi voru greidd.
Switzer krafðist nú fyrir sjó-
dómi kr. 9166,67 og var það 33 Vs
°/0, og síðan 10 þús. kr., með
því að gengið hefði verið inn á
að greiða þá upphæð, en eigi
gátu dómstólarnir viðurkent það
sannað. En undirréttur (sjódómur)
dæmdi honum kr. 7700 og máls-
kostnað. Þeim dómi var svo á-
frýjað, en A. A. gagnáfrýjaði.
Yfirdómur tók nú til greina kröfu
aðaláfrýjanda þannig, að eig-
endur og vátryggjeudur hins
bjargaða skips skyldu greiða
honum Tcr. 9166,67 með vöxtum,
og málslcostnað 300 lcr. fyrir und-
irrétti, en 80 kr. fyrir yfirdómi.
Þjófnaður.
Fyrir nokkrum kvöldum var
stolið saltkjötstunnu hjá húsum
SláturféJags Suðurlands við Lind-
argötu. Var það gert með tölu-
vert öðrum hætti en venjulega
er stolið hér í bæ og virðist sýna
það, að málið hafi verið betur
hugsað og undirbúið, en alment
mun vera hér á landi. Þess vegna
eru þjófar þessir hættulegir.
Sláturfélagið hefir ráðið mann
til þess að vaka yfir eignum fé-
lagsins. Þessi næturvörður varð
var við þrjá menn á slangri þar
irmfrá, eina nóttina. Einn röanna
þessara brá upp skyndilega skæru
rafmagnsvasaljósi, beint í augu
næturvarðarins, sem gerði það
að verkum að hann sá ekkert í
myrkrinu um stund. Nú skiftu
mennirnir sér og næturvörðurinn
elti einn þeirra, án þess þó að
ná í hann.
Þegar næturvörðurinn kom aft-
ur á vettvang, höfðu hinir tveir
stolið kjöttunnunni og flutt hana
á burt.
Málið var þegar kært fyrir lög-
reglunni, en það hefir eigi enn
telíist að ná í þjófana.
Þjófnaður er rajög að magnast
í bænum, Víða að heyrir maður
að stolið sé úr húsum ýmsu smá-
vegis. Væri óskandi að lögregl-
unni tæliist að ná í þá sökudólga
hið fyrsta.
Getur t. d. enginn gefið lög-
reglunni upplýsingar um hver
stal 240 punda sykurtunnu í
Veltusundi um daginn — um há-
bjartan dag?
Það er að komast stórborgar-
bragur á okkar litla bæ.
Um ofna cg eldsneyti.
Ef menn vilja fara sparlega
með eldsneyti sitt, þá mega þeir
aldrei kynda ofnana svo að heit-
ara verði inni en þægilegt er eða
heilnæmt. Finnist manni að 19
stiga hiti eiga vel við sig, þá má
þó aldrei verða heitara í herberg-
inu, heldur dálítið kaldara. Meiri
liiti er óhollur. Og með því að
hafa heitara hafa menn eitt miklu
eldsneyti til einkis og ver en til
einkis. Það verður því að gæta
vel súgspjaldanna í ofninum og
loka þeim áður en hitinn verður
of mikill. Það er mesta vitleysa
að smákynda. Menn eiga að fylla
ofnana af eldsneyti, en það á
ekki að brenna hraðara en svo
hæfilegur hiti haldist. Þeir sem
hafa mó til eldneytis, verða að
gæta þess, að ofnarnir séu altaf
hreinir, engin aska má safnast
fyrir í þeim, ristina verður að
hreinsa vel á hverjum morgni og
skafa alt sót úr ofninum og rör-
unum. Ef menn' brenna mó ein-
göngu mega ofnarnir eigi vera
þykkir og góður dragsúgur þarf
að vera í þeim.
DAGBOK
Kveikt á ljóskerum hjóla og bif-
reiða kl. 5.
Gangverð eriendrar iuyntar.
Bankar Pósthús
DolJ.U.S.A.&Canada 3,30 3,40
Fiaukl frauskur 55,00 53 00
Sænsk króua ... 120,00 122,00
Norsk króna 102,50 103,00
Starlingspund ... 15,00 15 00
Mark 43,00 46,00
Holl. Florin ... ... 1.29
Austurr. króna . ... 0.29
FyrirJestrar Háskóluns:
I kvöld: Alexander Jóhannesaon
dr. phil. Goetes Faust.
Brezkt hjá parskip kom hingað
í gærmorgun snemma. Ókunnuft um
erindi þess.
Syknrverðið. Frá Akureyri var
oss símað í gær að eigi hefði sykur-
verðið verið hælskað þar. Blaðið
»Islendingur« ritaði grein um sykur-
hækkunina og vítti mjög gerðir stjórn-
arinnar Atti ritstjórinn skömmu
síðar viðtal við bæjarfógetann þar,
sem sagði að »þetta hiyti að vera
misskilningur eða rangt, því að hann
hefði enga tilkynningu fengið frá
stjórnarráðinu um hækkun á sykur-
verðinu*.
Samkvæmt áreiðanlegri fregn, sem
Morgunbl. fékk í gær, hefir sykur-
verðið ekki verið hækkað enn í Hafn-
arfirði. En lausafregn úr Borgarnesi
hermir að þar sé hið sama verð á
landsverzlunarsykri eins og hér.
Eigi vita menn enn hvað stjórnin
ætlar að gera í þessu efni. það er
samt ótrúlegt að hún ekki þegar Iáti
lækka verðið aftur eða þá komi fram
með hinar sönnu ástæður fyrir hækk-
uninni. því enginn trúir því lengur
að það bóu innkaupin og flutnings-
gjaldið á Islandi, sem er ástæðan
fyrir hækkuninni.
Fáninn. það heyrist ekkert frá
forsætisráðherranum. Eru margir
farnir að örvænta og eru hættir að
búast við því að hann muni koma
heim með fánann. Eigi vita menn
heldur neitt um hvernig gengur að
fá þessar 10 miljónir króna, sem for-
sætisráðherra ætlaði að útvega í
Danmörku eða Noregi. það getur
þó tæpiega liðið á löngu áður eitt-
hvað fréttist, því að sögn fer að líða
að því að ráðherrann haldi heimleiðis.
Mórinn. Til upphitunar í hinu
nýja húsi þeirra Nathan & Olsen er
eingöngu notaður mór. Er miðstöðvar-
hitun f húsinu og hefir það gefist ali-
vel að kynda upp með mónum.
Sterling fer héðan í dag vestur um
land og norður.
Yerkamannaféiagið »Dagsbrún«
samþykti á íundi í fyrradag að kaup
verkamanna skyldi hér eftir vera 7ð
aurar á kl. stund fyrir daginn en
eina krónu fyrir nætur og helgidags-
vinnu. I haust hefir verkafólki oft-
ast verið borgað þetta kaup, enda er
það ekkert ósanngjarnt eftir því sem
nauðsynjar hafa hækkað í verði.
Fudtrúi borgarstjóia. ÓJafi Lár-
ursyni yfirdómslögmanni hefir verið
veitt staðan, sem fulltrúi borgar-
stjóra.
Atvinnubæturnar. Stjórn Alþýðu-
sambandsina og fuiltrúi alþýðuféiag-
anna fóru á fund ráðherranna í gær
til þess að ræða um atvinnubæturnar.
Einhvern næstu daga verður byrjað
að vinna að grjótvinnu, höggva og
mylja grjðt og búa undir byggingu
landsspítalans.
Tengdapabbi. það var troðfult
hús í Ióno í fyrrakvöld, er tengda-
pabbi var sýndur. Skemtu menn sér
ágætlega og yfirleitt þóttu leikendur
leysa hlutverk sín vel af hendi.
Ahorfendur klöppuðu mjög fyrir
Eyóifi Jónssyni rakara.
_ Vonarstræti er nú að verða ófært
eins og það er einlægt á vetrum er
hiákur ganga. Areiðanlega er engin
gata f bænum verri yfirferðar en
þessi, þvi að hér eru ekki einusinni
steinar til að stikla á, hvað þá nokk-
uð sem líkist gangstétt. petta er því
bagalsgra, sem einmitt í þessari
götu eru aðalsamkomuhús bæjarins,
og þar að auki á fjöidi kirkjufólks
leið þar um i báðar kirkjurnar. —
Einhverju litlu broti af dýrtíðarvinnu
yrði ekki öðruvísi betur varið en tíl
þess að gera þarna færa gangstétt
sem fyrst, og auðvitað má ekki Játa
nokkra götu sitja fyrir þessari þegar
farið verður að malbika aftur.
.... ^ 9 ---
Nordisk Fiims Co.
Svo sem fyr hefir verið getið
hér í blaðinu ætlaði Nordisk Films
Co. aé hætta öllum myndatökum
í haust og hafði sagt upp flestum
leikendum sínum. En nú hefir
eitthvað ræzt úr þessu, því að
félagið hefir endurráðið alla skop-
leikara sína, svo sem Lauritzen,-
Carl Alstrup, Frederik Buch og
Oscar Stribolt. Var félagið farið
að »filma« aftur seint í september.
Föt handa fátækum.
Hr. ritstjóri!
Viljið þér gera svo vel og leyfa
eftirfarandi línum rúm í blaði
yðar.
Við undirritaðar, fyrir hönd fé-
lagsins »Yngri deild Hvítabands*
ins«, viljum hér með tilkynna al-
menningi, að félagið hefir ákveðið
að beina aðal-starfsemi sinni í
vetur að því að bæta eftir mættí
úr klæðleysí þeirra, er bágast-