Morgunblaðið - 11.12.1917, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
+
Arni Eiríksson, kaupmaður
Fánamálið
í dönskum blöðum.
Hinn 8. nóvember flutti »Poli-
tiken« simskeyti um stefnu blaðanna
hér á íslandi í fánamálinu, að þau
létu öll þá von í ljós að konungur
mundi samþykkja fánatillöguna, en
sæu að öðrum kosti eigi aðra leið
út úr málinu heldur en skilnað.
Danska blaðið »Köbennavn«, sem
þykist sjálfkjörið til þess að túlka
sjá fstæðismál íslands á réttan hátt 1
Danmörku og sýna fram á réttleysi
íslendinga, bæði í tíma og ótíma,
varð nú auðvitað að láta til sín
heyra. Og það segir svo:
— Þegar sambandsmál íslands og
Danmerkur hefir hleypt hita i báða,
hefir ógnunin um skilnað jafnan ver-
ið síðasta vopn íslendinga.
Þannig var það árið 1873. Þá
hélt Þingvallafundur því fram, að
ef konungur samþykti eigi stjórnar-
skrárfrumvarp Alþingis, yrðu Islend-
ingar að skilja við Dani.
Þannig var það árið 1907, rétt
áður en Friðrik 8. konungur kom
til íslands. Þá krafðist Þingvalla-
fundur þess að fá að eins konungs-
samband, eða þá skilnað.
í hvorugt skiftið stóðu þó íslend-
ingar við orð sín, þegar til alvöru
kom.
Þegar fánamálið átti að berast fram
i ríkisráði 1913 flutti »Politiken«
fregnir frá íslandi, þar sem skilnað-
arhótuninni var haldið fram, kröfu
íslendinga til styrktar.
Samkvæmt ummælum Zahles í
ríkisráði 1913, geta íslendingar eigi
fengið fullkominn siglingafána með
konunglegri tilskipun. En fyrst það
er ekki hægt, en á þó að gerast, er
það í samræmi við stefnu stjórnar-
innar í vandamálum, að skjóta þeim
til konungs. í þessu máli hefir stjórn-
in gengið fram hjá rikisráði. Og
simskeytið frá Islandi bendir til þess,
að stjórnin ætf^ekki að skifta sér
af málinu. Eftir er þá konungur
og íslendingar, sem vilja annaðhvort
fá fánann eða skilja. Og fyrst málið
kemur þannig eingöngu undir kon-
ung, verður hann að taka ákvörðun,
þ. e. a. s. viðurkenna fánann.
Og næst stendur konungur ef til
víll jafn glæsilega að vígi gagnvart
Færeyingum I
Slikt ástand sem þetta hlýtur að
vera eins dæmi, frá rikisréttar-sjón-
armiði. Og þótt reynsla fyrri tima
sé eigi sem glæsilegust, þá ætti mað-
ut þó að vona, að rikisþingið léti
það ekki viðgangast alveg steinþegj-
andi, að gengið væri fram hjá virð-
ingu þess og landsins, þá er tekin
er ákvörðun um islenzka fánann.
Hann andaðist á Landakotsspitala
í gærmorgun eftir all-ianga vanheilsu.
Fyrir um tveim mánuðum fór að
gera vart við sig illkynjaður maga-
sjúkdómur, heknar gerðu á honum
tilraunaskurð og síðan hefir hann
legið á spítalanum þungt haldinn.
Arni Eiríksson var með merkari
borgurum þessa bæjar. Hann byrj-
aði verzlun i Austurstræti 6 haustið
19x0, og naut hann þeirrar ánægju
að sjá hana blómgast fyrir dugnað
og hagsýni. Hafði hann áður um
margra ára skeið stundað verzlunar-
störf hjá N. Zimsen og siðan hjá Birni
Kristjánssyni og gar sér þar bezta
orð fyrir dugnað og lipurð.
Arni heitinn 'Var áhugamaður um
marga hluti og lét æfinlega töluvert
til sin taka þar sem hann vildi beita
Italir hjá Piave.
Eftir herskýrslum Miðríkjanna
höfðu þau handtekið 250.000 ítali
frá þvT^er sóknin hófst á Bainsizza-
hásléttunni og þangað til ítalir voru
hraktir vestur fyrir ána Ptave. Við
þessa tölu bætast svo allir þeir menn,
sem fallið hafa af ítölum og þeir
hermenn sem fiakka um í skógum
og fjöllum og hafa orðið viðskila
hernum. Það má þess vegna búast
sér. Mest og bezt mun þó hafa
borið á honum í Leikfélagi Reyja-
vikur. Unni hann leiklist mjög, var
lífið og sálin í leikfélögum bæjar-
ins, enda þótti hann meðal beztu
íslenzkra leikara. Hann var einn af
stofnendum Leikfélags Reykjavikur,
og formaður þess um margra ára
skeið, starf, sem hann leysti af hendi
með einstögum dugnaði.
Arni var ljúfmenni og einstaklega
lipur í allri umgengni. Vinsæll var
hann með afbrigðum, og lét þó ekki
hiut sinn fyrir neinum.
Kaupmauuastéttinn hefir á bak
að sjá eínum af, sínum beztu mönn-
um og þessi bær verður tómlegri
við fráfall hans.
Árni Eiríksson varð 47 ára gamall.
við því, að ítalir hafi mist % hluta
hers þess, er þeir höfðu á Isonzo-
vigstöðvunum, eða ef til vill alt að
2/5 hlutum. Og það er mjög alvar-
legt tjón. Auk þess má ganga út frá
sem vísu, að herinn, sem komst
vestur yfir Piave hafi verið mjög
i!la til reika og sundurlaus. Og það
er lengi verið að endurskapa hann
og bæta varaliðinu inn i skörðin.
Miðrikin hafa og tekið ógrynnin öll
af herfangi af ítölum. Undanhaldið
frá Tagliamento til Piave var svo
hratt, að engin regla gat á þvi verið.
Fóru ítalir þi vegalengd á nokkr-
um dögum, en hefðu þurft jafn-
margar vikur til þess, ef nokkur
regla hefði verið á. Þeir hafa þvi
sérstaklega mist mikið af hin’jm
stóru fallbyssum sínum, er þeir gátu
alls eigi haft neinn tíma til að koma
undan.
Um þá hjálp, sem Frakkar og
Bretar kunna að geta veitt þeim,
er ekki mikið að segja. Þeir geta
eigi, nú sem stendur mist mikið
lið, enda þótt þeir væru fúsir á það
að hjálpa ítölum. En á umrnælum
franskra og enskra blaða er eigi svo
að sjá sem þá langi mikið mikið til
þess. Og það tekur líka langan tima
að koma miklu herliði þangað suður-
eftir.
Það hefir orðið hlé á sókn Mið-
rikjanna um sinn. Er það skiljanlegt
að herir þeirra þurfi nokkra hvild
og ráðrúm til þess aðundiibúa nýja
sókn. En eftir siðustu simfregnum
að dæma virðist svo, sem sú sókn
muni nú hafin.
Undirbúningur hennar bendir tl
þess að ítalir muni eigi fá haldið
stöðvum sínum hjá Piave. Miðríkin
sendu fram sóknarher frá Tyrol og
Kárnthen og stefndi hann niður
fjöllin að upptökum Piave. Segja
útlend blöð, að ef ítalir fái eigi varn-
að Miðríkjahernum þess að komast
niður úr fjöllunum, þá verði þeir að
yfirgefa Piave-stöðvarnar. En Mið-
rikjaherinn hefir líka seilzt lengra
vestur. Seinast í nóvember hafði
hann náð á sitt vald dölunum, sem
þær ár renna um er falla í ána
Brenta, sem er fyrir vestan Piave
og er það enn hættulegra fyrir ítali.
Samskot.
Skilagrein fyrir gjöfum til veika
mannsins:
N. N. 3.00, N. N. 10.00, N. N,
100.00, H. Á. 30.00, N. N. 2.00,
M. 10.00, G. S. 5.00, N. N. 2.00,
N. N. 5.00, S. G. 5.00, G. O. 5.00,
í. O. 10.00, Guðm. Bjarnason i.oo,
G. E. 3.00, Áheit 2.00, Á. 25.00,
M. M. 1.00, K. 2.00, N. N. 30.00,
N. N. 5.00, J. S. 5.00, M. E. 5.00,
N. N. 5.00, G. B. 10.00, N. N. 5.00,
Bryn, B. Engey 5.00, N. N. 25.00,
N. N. 4.00, N. N. 2,oo; N. N. i.oor
N. N. 2.00, J. G. 2.00, H. 15.00,
L. G. L. 10.00, N. N. 6.10, N. N.
2.00, K. J. 4.50, Þ. Þ. 2 kr.
Samtals kr. 366.60.
Samskotunum er hér með lokið.
StLC Sigurjón Pjetursson
Simi 137.
Haf nar st *æ ti 13