Morgunblaðið - 11.12.1917, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
yðar jafnan hvitu sem snjó
með því að nota ávailt
Sunlight sápu.
LeiftbeJnÍnpror viðvikjandi notkun
sápunnar fylgja hverri sápustöng.
DAGBOK
Jóla- og Nýárs-kort, með íslenzk-
um erindum íást hjá Friðfinni Guð-
jónssyni Laugavegi 43 B.
Cigarettur,
margar ágætar tegundir
nýkomnar
í tóbaksverzlun
R. P. Leví.
Nýkomið:
Epli, Appelsínur,
Laukur.
Yerzlnn Helga Zoéga.
Sími 239.
Kveikt á Ijóskerum hjóla og bif-
reiða kl. 4.
Gangverð erlendrar myntar.
Bankar Pósthús
Doll.U.S.A.&Canada 3,40 3,40
Frankl franskur 59,00 56,00
Ssensk króna ... 120,00 120,00
Norsk króna ... 102,50 103,00
Sterlingspund ... 15,50 15,00
Mark ........... 62 00 53,00
Holl. Elorin ................ 1.37
Austurr. króna.................. 0.29
Farþegar á Gullfossi voru John
Fenger stórkaupm., Jón Bergsveins-
son síldarmatsmaður, Friðrik Gunnars-
son stórkaupm., Einar Hjaltested
söngvari, Aðalsteinn Kristinsson
kaupm., Friðnk þorsteinsson og hjón
með dóttur frá Kanada.
,Elgin-úr
kaupa allir þeir, sem eignast vilja
gott úr.
Fást hjá úrsmiðum.
Steinolíu
selur
Kauplél. veíkamanna
(Afgreidd að eins við dagsbirtu).
Málverk
er ágæt jólagjöf.
Útsala á málverkum mínum hefst
í dag kl. 10 á Hverfisgötu 50.
Gisli Jönsson.
Gerpúlver
fæst í
Verzl. V ON
Allskonar
Blómlaukar
nýkomnir til
Marie Han :en,
Bankastr. 14.
Epli,
Ágæt teguud, 75 aura >/a kg.
Verzl. Vísir.
Islaud og Gullfoss liggja nú bæði
við uppfyllinguna fyrsta sinn og er
Verið að afferma þau.
Umhleypingasamt er nú í meira
lagi, I fyrramorgun var hér 10—12
stiga frost, í 'yrrakvöld var hrfð, en
í gærmorgun var komin hláka með
3—4 stiga hita.
Islands Falk fer héðan kl. 11 í
kvöld. Eru það tilmæli yfirmanna
í’álkans að farþegar, sem með skip-
‘Qu fara, láti flytja farangur sinn
'hn borð Bem fyrst í dag.
Hkipið tekur póst til flntnings til
^estmannaeyja og Eæreyja, en ekki
^ Danmerkur.
Farþegar eru þessir.
Hannes Hafstein bankastjóri, dóttir
l/kns þórunn, Jón Aðils docent,
^atthías þórðarson fornmenjavörður,
r~aPt. Trolle, Kirk verkfræðingur,
ebell forstjóri, bræðurnir Arni og
^chard Riis, Rich. Thors framkv.-
®tjóri. Stefán Jónasson framkv.stjóri,
óh Norðmann pianoleikari, Guðjón
amúeIsson byggingameistari, Hjörtur
F^steinsson verkfræðingur og frú
0ftQs’ Gunnlaugur Blöndal, skipstjóri,
6 vélameistari (á iBorgt, Rostgaard
kolanámumaður, útlendir menn úr
hafnarvinnunni, stúdentarnir: Emil
Thoroddsen, Óskar Borgþórsson, Lúð-
vig Guðmundsson og Björn Sigur-
bjarnason, frú Kristín Thunwald (f.
Petersen), frú Nielsen frá Baldurs-
haga með 5 börn, ungfrú Sigríður Sig-
hvatsdóttir og ungfrú Tvedð hjúkr-
unarkona.
Söngskemtnn m. m. hélt Ingi-
mundur Sveinsson í G.-T.húsinu á
sunnudagskvöldið og kom þangað
margt manna. þar hermdi Ingi-
mundur eftir ótal fuglum, mjólkaði,
skildi mjólkina og setti á stað mótor
— alt á flðluna. Var krökkum skemt,
en fæstir fullorðnir gátu setið nndir
allri skemtaninni.
Á morgnn verður afhjúpaður minn-
isvarði Tryggva heit. Gunnarssonar
bankastjóra, í Alþingishúsgarðinum.
Minnisvarðann hefir verzlunarstéttin
í Reykjavík gefið. Athöfnin hefst
með því, að komið verður saman á
Lækjartorgi á hádegi og þaðan geng-
ið suður í Alþingishúsgarðinn, sbr.
auglýsingn Kaupmannafélagsins hér
í blaðinu.
Ræningjaklær, hin ágæta skáld-
saga eftir norska skáldið Övre Richter
Frich, er nú komin út sérprentuð og
fæst á afgreiðslu Morgunblaðsins.
þeir, sem hafa pantað bókina, geri
svo vel að vitja hennar sem fyrst.
Upplagið var að eins lítið og má
búast við, að bókin seljíst upp á
Ék &
f Maupsnapur
Agæt rúmföt fást keypt á Berg-
staðastræti 45.
fáum dögnm, því að hún stendur eigi
að baki hinum öðrum sögum þessa
fræga höfundar.
Maður horfinn.
Síðastliðið miðvikudagskvöld hvarf
maður hér i bænum, Pétur Sigurðs-
son skipstjóri frá Stykkishólmi. Var
hann með skip sitt hér á höfninni
og gekk á land seint um kvöldið.
Vita menn það siðast um hann, að
hann sat á kaffihúsi eitthvað fram
eftir — en síðan hefir ekkert til
hans spurst. Eru menn hræddir um,
að hann hafi gengið fram af upp-
fyllingunni i myrkrinu. Tilraun
hefir verið gerð til þess að slæða á
höfninni, en það hefir komið fyrir
ekki.