Morgunblaðið - 29.12.1917, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
,EI|in‘-úr
kaupa allir þeir, sem eignast vilja
gott úr.
Fást hjá úrsmiðum.
verið brotist inn þrisvar. Hafði þjóí-
urinn þaðan með sér nokkuð af
peningirm, hve mikið vita menn
eigi með vissu. í ráðhúsið hefir
einnig verið farið að næturþeli, í
brauðsölubúð- Schiöth bakara, 1 sölu-
turninn og tvisvar í Kjötbúðina.
Þaðan var stolið 15—20 krónum í
peningum.
Kötbúðin er í sömu byggingu og
Sláturhúsið. Eftir að tvívegis hafði
verið brotist þar inn, þótti varlegra
að láta menn vera á verði þar á
nóttunni.
Aðfaranótt aðfangadags sáu verð-
irnir (þeir voru tveir) tvo menn
koma að húsinu, ganga að dyrun-
um og reyna að komast þar inn.
Þeim tókst það ekki, svo þeir genga
kringum bygginguna, að glugga ein-
um og tóku að brjóta hann upp.
Nú hlupu varðmennirnir úr fylgsn-
um sinum, og hófst eltingaleikur
með þeim og hinum, sem lauk
svo, að annar mannanna náðist. —
Hann er norskur, heitir Sundsör og
kvað vera nokkuð efnaður, svo að
það eru eigi bágar ástæður, sem
hafa neytt hann út í innbrotstilraun
þessa.
Sundsör kvað segja að hann viti
ekkert hvað hann hafi farið. Hann
hafi verið drukkinn og muni einu
sinni ekki hver hinn maðurinn hafi
verið. — Réttarhald hefir eigi farið
fram enn, en væntanlega skýrist
málið bráðlega.
Hver félagi Sundsörs var vita rnenn
eigi með vissu, en maður nokkur
er grunaður og mun hann einnig
verða tekinn fyrir rétt.
.,Stenbukken“.
Hafnarverkamenn í Frederiksstad
í Noregi hafa nýlega fundið merki-
legar minjar um hinn fræga sigur,
er Tordenskjöld vann á Svium í
Dynekilen. Eru það leifar freigát-
unnar »Stenbukken<, sem Torden-
skjöld tók herfangi og flutti til
Frederiksstad árið 1718 eða fyrir
nær 200 árum.
Kafarar, sem sendir hafa verið
niður á mararbotn til þess að skoða
skipsflakið, hafa komist að raun um
að það er eigi mikið skemt. Timb-
urstokkarnir eru að vísu orðnir kol-
svartir og hálfgerðir steingjörvingar,
en talið er þó vist að hægt muni
að bjarga skipinu, með því móti
að taka það alt sundur í smáhluta,
og setja það svo saman á landi.
Daeatalið
er nú komið út. Pantendur geta vitjað eintaka sinna í dag eða á mánu-
dag á
Skrifstofu ísafoldar.
6. skilagrein
fyrir gjöfum og áheitum til hús-
byggingarsjóðs Dýraverndarfélags
Islands.
Safnað af:
Þ. Ólafssyni, Asgerði kr. T7.50
Þ. Jónsd., Reynish. — 22.70
Ragnh. Jakobsd., Ögri — 94.25
Lilju Kristjánsd., Ak. — 58.00
Þorsteinn Þórarinsson
(ungm.fél. Bisk.t.hr.) — 54.45
Frím. Jóhannssyni — 19 00
J. Jónsson, Fífilbrekku — 2ð.oo
Jón Jónsson beykir — 5.00
Aheit — 1.00
Jón Þórarinsson, frmstj. — 50.00
Frá Ögursmæðgum — 100.00
Sigr.Guðmundsd., Áshól — 0.25
Einar Simonarson, Jötu — 1.00
Þ. Guðmunds., Hvg. 90 — ’ 2.00
G. Jónsson, Sauðakoti — 3.00
Sig. Guðbrandss. Eyrarb. — 5.00
A. Fjeldsted augnl. — 10.00
M. K. Sigurðss., Seljal. — 4.00
Jón Vigfiisson, Njálsg. — 1.00
G. Eyjólfss., St.-Skiph. — 2.00
G. Ólafsson, Helgafelli — 2.00
Bened. Gröndal skrifari — 2.00
G. Brynjólfss., Sólh. — 1.00
J. Sigurðsson járnsm. — 10.00
Jóh. Gíslason, Bitru — 2.00
Nanna Guðsteinsd. — 2.00
Guðni Magnússon, Haga — 5.00
Bj. Jónsson, Skeiðháholti — 5.00
Þorl. Jónsson, Kaupangi — 1.00
Asmundur Gestsson — 2.00
Aheit — 10.00
Þórólfur — 5.00
Guðni Þorþergsson — 1.00
Sigr. Gíslad.' ráðskoua á
Laugarnesspítala — 5.00
Guðleif Oddsdóttir — 1.00
M. J. — 1.00
A. Forland — 10.00
Gunnl. Ólafsson — 10.00
Þ. Jóhannsd., Hvg. 94 — 30.00
J, Jónsson, Fífilbrekku — 5.00
Sigr. Gunnarsd., s. st. — 2.00
Þorst. Björnss., Þjótanda — 20.00
Kr. 602.15
Aður auglýst — 2087.87
Alls kr. 2690.02
í síðustu skilagrein stóðu hjá 01-
geir Friðgeirssyni 5 kr. en áttu að
vera 10 kr.
Rvík 17. des. 1917.
Samúel Olaýsson,
(gjaldkeri nefndarinnar).
Utan af landi.
Akureyri í gær.
Hlákan hefir bætt ástandið til
sveita mjög mikið. Sumstaðar kom-
in dágóð j rð hér í Eyjafirði.
Hingað kom fyrir jólin maður
vestan úr Skagafirði. Sagði hana að
horfur væru mjög ískyggilegar
meðal bænda. Bændur ætluðu flestir
að skera fé og hesta um nýárið ef
eigi kæmi hláka.
LikLga hefir blotinn komið í veg
fyrir niðurskurð alls staðar hér á
Norðurlandi. Hann var óumflýjan-
legur ef frostin hefðu haldið áfram.
Skip ferst í Ishafinu.
Það er nú talið víst, að selveiða-
skipið »Herkules 11« frá Haugasundi
í Noregi, muni hafa farist norður í
Ishafi, með allri áhöfn, 30 manns.
Hefir verið leitað að skipinu og
spurnum haldið fyrir um það, en
hvergi hefir orðið vart við það.
Selveiðarnar i íshafinu hafa þvi
orðið Norðmönnum dýrkeyptar á
þessu ári. Er þetta fimta eða sjötta
skipið sem feist og á þeim hafa
samtals týnst hátt á annað hundrað
manna.
Hjálpið fátækum!
Tveim dögum fyrir jól misti
kona hér í bænum manninn sinn.
Hann, mesti sæmdar og dugnaðar-
maður, sem vann baki brotnu fyir
konu og börnum, andaðist skyndi-
lega, fékk slag og dó nær sam-
stundis.
Þannig byrjaði »jólagleðin« fyrir
konunni og börnunum — en pau
eru 8 talsins, fimm þeirra ófermd,
það yngsta að eins 2 ára Þegar
einn þeirra þriggja sona, sem hjálp-
að hafa til þess að halda heimilinu
uppi, kom frá vinnu sinni um kvöld-
ið, var verið að leggja föður hans
til. En einn sonanna, sem er dag-
launamaður, er nú atvinnulaus, get-
ur ekki komist að dýrtiðarvinnunni,
af því hann er of ungur.
Þröngt var í búi á heimilinu
meðan maðurinn lifði og vann fyrir
fjölskyldunni, en menn geta hugsað
sér hvernig nú muni vera ástattr
fyrir konunni, ef hún ekki þegar
fær einhverja hjálp. Ofan á sorgina,
sem hið skyndilega fráfall mannsins
hefir bakað henni, bætist nú óendan-
leg fátækt og örvænting um hag
barnanna.
Ahyggjuþyngslin gera skammdeg-
isnæturnar enn lengri, myrkur fá-
tæktar og örvæntingar hvílir yfir
heimili ekkjunnar, bjargarleysið vofir
yfir. Litlu börnin, sem höfðu hlakk-
að til jólanna, eins og öll önnur
börn, fá eigi skilið hvers vegna alt
er svo dapurt og myrkt í kringum
þau.
Er ekki ástæða til þess að senda
einhverja Ijósglætu inn í þetta fá-
tæka heimili nú um nýárið? Því er
fljótsvarað. Morgunblaðið hefir oft
beðið lesendur sína að rétfa fátæk
lingum hjálparhönd, og þeir hafa
æfinlega orðið vel við þeirri bón
vorri. En vér fulivissum lesendurna
um, að aldrei hefir verið stofnað til
samskota hér í bæ, þar sem þörfin
hefir verið meiri en hún er hér.
Vilja ekki lesendur Morgunblaðs-
ins rétta þessu fólki hjálparhönd?
Gjöfum er veitt móttaka næstu, daga
á skrifstofunni.
DAGBOK
Kveikt á Ijóskerum hjóla og blf-
relða kl. 31/.,.
Qsngverð erleudrar myntar.
Banknr PósthíB
Doll. U.S.A.&Ganada 3,40 3,60
Franki franskur 59,00 59,00
Sænsk króna ... 120,00 110,00
Norsk króna ... 102,50 106,50
Sterlingspund ... 15,50 15,70
Mark ........... 62 00 62,00
Holl. Florin ................. 1.37
Auaturr. bróna....... ... ... 0.29
Kartöfluskipið liggur nú við
hafnaruppfyllinguua og er verið að
afferma það, Búiat er við því, að
eitthvað af kartöflunum muni vera
dálítið skemt.
Þjóðvísnakvöldið, sem norræna
Btúdentasambandið hafði ákveðið að
efna til í kvöld, verður að hætta
við vegna veikinda eins söngmanna.
Jón Halldórsson bankaritari veiktist
hastarlega af lungnabólgu.
Skemtuninni er frestað um ó-
ákveðinn tíma.
Magnús Kristjánsson, einn lands-
verzlunarráðsmanna, ætlaði að kouia
hingað til bæjarins með Lagarfossi-
En nú er ekki að vita hvenær haui1
kemur hingað, nema ef Sfcerliug
skyldi fara austur um land og
koma við á Akureýri.
Trúlofun. Ungfrú Lára Magnú0"
dóttir, Hverfisgötu 71, og Jporvald0*
Ó. Jónsson, Njálsgötu 20.