Morgunblaðið - 16.01.1918, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
eftir á undanhaldinu, fullnægja alger-
lega þörfum hersveita vorra, að öllu
leyti nema þá að lítið er þar um kol.
• .
Malvy-málið.
Nii á þessu siðasta ári hafa kom-
ið upp mörg hneikslismál i Frakk-
landi. Má þar til nefna Ttirmel-
málið, sem nú er fyrir dómstólun-
nm, Bolo Pascha-málið, málið gegn
Malvy innanríkisráðherra og málið
gegn Cailloux, sem þó hjaðnaði nið-
ur jafnharðan.
Malvy krafðist þess sjálfur að mál
hans kæmi fyrir dómstólana. Hann
skoraði á þingið, að taka það fyrir,
svo að hann gæti hreinsað heudur
sínar af þeim ásökunum, sem þing-
maðurinn Leon Daudet hafði borið á
hann og eins blaðið »Aktion Fran-
caise«.
Malvy var mikið niðri fyrir, er
hann bar þetta mál fram í þinginu:
•Frakkland vill fá að vita«, hrópaði
hann, »hvort fyrverandi innanríkis-
ráðherra þess hefir svikið það og
seit, eða hvort hann er hafður fyrir
rangri sök. 1 nafni minnar góðu
samvizku, i nafni barna minna, sem
eg vil eftirláta óflekkað mannorð,
bið eg þingið að gefa mér tækifæri
til þess að hreinsa hendur minar af
þessum viðurstyggilegu ásökunum*.
Þingið varð við þessari beiðni og
skipaði 33 manna nefnd til þess að
dæma i málinu. Er það i fyrsta
skifti síðan núverandi stjómarskrá
Frakka gekk i gildi, að þingið hefir
orðið að skipa nefnd til þess að dæma
i sakamáli gegn fyrverandi ráðherra
þar.------
Þegar Clemenceau tók við stjórn-
artaumunum, hét hann þvi að gang-
skör skyldi ger að því að setja af
alla embættismenn, sem eigi hefðu
staðið vel i stöðu sinni, eða grun-
aðir væru um það að hafa unnið á
mótihagsmunum Frakklands. Oghann
hefir eigi látið lenda við orðin tóm.
Fjöldamargir hátt settirembættismenn
hafa verið reknir frá embætti sínu,
einkum þeir, er eitthvað eru við-
riðnir Bolo Pascha málin.
Hertling greifi.
Þýzkur friðarvinur, A. H. Fried
að nafni, hefir nýlega komið fram
með allmerkileg ummæli um Hertling,
hinn nýja kanzlara Þýzkalands. Seg-
ir Fried að Hertling hafi orðið fyrst-
nr til þess allra þýzkra stjórnmála-
manna að mæla i móti vigbúnaðin-
um. Það gerði hann 29. nóvember
1913 i bajernska þinginu. Segir
Fried enn fremur að það sé ótví-
xæður vottur um stefnubreytingu í
Þýzkalandi að Hertling er orðinn
kanzlari, og sé það viðurkenning
þjóðarinnar á því, að vopn séu ekki
einhlít.
í sambandi við þetta segir »SociaI
Demokraten« frá því, að þýzkur mað-
ur, bróðir hins kunna þýzka rithöf-
undar og stjórnmálamanns Friedr.
Naumanns, hafi verið á ferð í Kaup-
mannahöfn fyrir rúmu ári og þá
sagt:
— Gefið gætur að Hertling greifa.
Það verður hann sem kemur friði ál
Skrítin dýrtíðaruppbót
I bænum Nakskov í Danmörku
fóru kennarar nýlega fram á að fá
dýrtíðaruppbót á launum sínum. Bæj-
arstjórnin tók málið til athugunar og
samþykti að veita hverjum þeirra
roo kr. launauppbót. En auk þess
var samþykt tillaga um það að gefa
kennurunum kost á því að viana sér
inn alt að 300 kr. að auk með þvi
að taka þá nemendur, sem latastir
eru í skólunum, í aukatíma til þess
að reyna að betra þá. Verður öllum
letingjunum og trössunum safnað
safnað saman í sérstakan bekk eða
deild, og kensla þar látin fram fara
á kvöldin.
Það er ekki tekið íram hvernig
kennurunum hefir líkað ráðstöfun
bæj arst j órnarinnar.
Lýöveldið Finnland.
Samkvæmt ákvörðun finnska þings-
ins verður komið á lýðveldisstjórn
i Finnlandi. Forseta skal kjósa til
6 ára. Fyrsta forsetakosningin fer
fram í dag — 15. jan. — samkæmt
ákvörðun þingsins, en forsetinn tekur
eigi við embættinu fyr en 13. april.
Þangað til annast þingforsetinn störf
rikisforsetans.
9639 miljónir.
Fjármálaráðherra Frakka fór fram
á það við þingið í nóvembermánuði
að 5639 miljónir franka skyldu veitt-
ar til hernaðarframkvæmda síðustu
þrjá mánuði ársins 1917. Þó bjóst
hann við þvi, að i desember mundi
verða að bæta við að auki nokkrum
miljónum franka, vegna þess að lið-
sendingarnar til Ítalíu hefðu orðið
dýrari heldur en við var búist.
Nýtt kafbátabragð.
Fyrir nokkru sökti þýzkur kafbát-
ur norska skipinu Leander um 3
sjómilur undan Bretlandsströndum.
Skipverjum var bjargað af brezku
varðskipi, og var þeim sagt frá því,
að brezka herskipið hafi verið að
því komið að skjóta á Leander rétt
áður. Bretar hugðu skipið vera
þýzkan kafbát. Þeir biðu að eins
eftir því að Leander kveikti bál, sem
skip gera, er þau eru i háska. En
það hafa, sögðu brezku sjómennirnir,
þýzku kafbátarnir þráfaldlega gert
upp á síðkastið, og svo skotið tund-
skeyti á herskip það, sem keihur til
hjálpar.
Nýtt miljónafélag
í Danmörku.
í desembermánuði var myndað
nýtt verzlunarfélag i Kaupmanna-
höfn, sem nefnist A/s Det Syd-
amerikanske Piantageselskab. Hygg-
ur það að reka verzlun við Suður-
Ameríku, flytja þaðan ýmsan varn-
ing og hráefni til iðnaðar og selja
aftur skandinaviskar afurðir í Suður-
Ameriku, þar á meðal saltfisk.
Hlutaféð var 2 miljónir króna.
Dönsku blöðin spá félaginu góðs
og likja því við Östasiatiskt Kom-
pagni, sem orðið er eitt af öflug-
ustu verzlunarfyrirtækjum Dana.
Öskuhreinsun.
Margir húseigendur kvarta sáran
undan þvi, að erfitt sé að koma á
burt ösku og öðru skrani frá hús-
unum. Það eru vitanlega vissir menn
sem aðallega eða eingöngu gera það
að atvinnu sinni að flytja þessháttar
frá húsum, en koma þeirra til hús-
anna er mjög stopul, enda ber þeim
engin skylda til þess að tæma ösku-
kassanna í þeim húsum, þar sem
þeir eru óánægðir með borgun hús-
ráðenda. Þeir eru ekki »billegir«
mennirnir, og þyki þeir eigi
fá næga borgun einhversstaðar þá
auðvitað ganga þeir fram hjá því
húsi næst, þó öskukassinn þar sé
barmafullur.
Viða er mikill óþrifnaður af ösku-
kössum í bænum og ber einkum
mikið á því þegar kassarnir eru
orðnir fullir og haldið er áfram að
kasta ösku »hjá« kassanum. Er auð-
vitað þvi um að kenna, að engin
föst regla er höfð með tæmingu
kassanna, alveg eins og á sér stað
með hreinsun salerna. Bærinn hefir
tekið hana að sér og gefist vel. Þar
er farið eftir föstum reglum, sem
allir sætta sig vel við. Eins ætti að
vera með öíkuhreinsunina. Bærinn
ætti að láta flytja skran og ösku á
burt frá húsum og taka fyrir það
ákveð.ð árgjald. Með þvi móti
kæmist regla á þetta og húsráðendur
þyrftu ekki að vera að leita að
mönnum viðsvegar um bæinn til
þess að fá þá til að flytja öskuna
og skranið á burtu. Þrifnaður i
bænum mundi aukast.
Allir jafnir.
Nýlega gaf Lenin út boðskap um
það að öll flokkaskifting skyldi lógð'
niður í Rússlandi og titlar afnumdir.
Oll stéttanöfn, svo sem aðalsmaðurr
bóndi, kaup.maður, borgari, furstir
greifi og öll embættisnöfn, skulu af-
numin og í þess stað koma einn
sameiginlegur titill fyrir alla: Sam-
borgari rússneska lýðveldisins.
Eignir aðalsmanna og rikisins eiga
þegar í stað að leggjast undir hér-
aðsstjórnirnar (Semstvos), svo og allar
eignir kaupmanna, borgara og féiaga.-
Ríkið eitt á að eiga allar fasteignir.
Hitt og* þetta.
Sparnaður. I brezka þinginu var
það nýlega tilkynt að stjórnin hefði
gert þá ákvörðun að stigvélaleistar og
hælar á kvenstígvélum skyldu lækka,
til þess að spara leður. Einhver"
þingmanna spurði þá hvort eigi ætti
að gera pilsin tiltölulega síðari.
Var því engu svarað, en þingheimur
hló.
Luxbur? qreifi, sentfiherra Þjóð-
verja i Buenos Aires, er nú kominn
frá Ameriku. Kom hann með norsks
skipinu Bergensfjörð.
DAGBOK
Kveikt á Ijóskerum hjóla og blf
reiSa kl. 4.
Gangverð erlendrar myntar.
Bankar Póstb^
Doll. U.S.A. & Ganada 3,50 3,60
Franki franskur 59,00 60 00
Sænsk króna ... 112,00 110 00
Norsk króna ... 107,00 106,ð0
Sterlingspund ... 15,70 16,00
Mark ........... 67 00 62,0°
Holl. Florin ................. I 37
Austurr. króna.................. ° 20
Þorst Júl. Sveinsson biðar 080
að geta þeBS að hann sæki ekki o1®
hafnarstjórastöðuna.