Morgunblaðið - 15.03.1918, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
,Safem TJleikum'
Hraðlestiu frá Berlín er nýkomin til Miklagarðs og soldininn er
kominn til járnbrautarstöðvanna til þess að taka á móti þýzkum liðsfor-
ingjum. Að baki hans sést hinn ungi og Qtuli hermálaráðherra Tyrkja,
Enver Pasca.
Soldáninn er maður ófríður og eigi sérstaklega nermannlegur, þótt
hann heilsi á tyrkneska hermanna vísu með því að lyfta hendinni og
rétta hma fram. Er sd kveðja köilum »Salem Aleikumc.
Leihfélcg Reijhjavíhur.
Frænka Charíay’s
verður leikin föstudaginn 15. marz kl. 8 síðdegis i Iðnó.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó
á föstudaginn frá kl. io árdegis með venjulegu verði. —
Siðustu simfregnir
Odessa fallin.
Khöfn 14. marz
Þjóðverjar hafa tekið Odessa.
Nýja stjórnin í Póllandi er and-
vig Miðríkjunum.
Álandseyjabúar hafa aftur óskað
eftir því að fá að sameinast Svíþjóð.
Rússneska stjórnin er farin til
Moskva, en Trotzky er eftir í Petro-
grad til þess að verja borgina.
Dýrtfðarvinnan.
Svo sem kunnugt er fékk bæjar-
sjóður 100 þúsund króna dýrtíðar-
lán til bráðabirgða hjá landsstjórn-
inni, til þess að veita mönnum at-
vinnu, þeim sem helzt þurftu á henni
að halda, en atvinnu gátu eigifeng-
ið annarsstaðar. Hefir bæjarsjóður
Iátið vinna undanfarna mánuði að
ýmsum framkvæmdum, einkum að
undirbúningi gatnagerðar hér í
Reykjavík, grjótmulningi o. fl.
Sem stendur eru í vinnu fyrir
bæinn um 225 menn. Er unnið i
Fossvogi. Þar hafa verið gerðir
tveir stórir skurðir í mýrinni fyrir
vestan Hafnarfjarðarveginn. Eru
skurðir þessir allbreiðir, og er ætl-
unin að gera mönnum hægra fyrir
að taka þar mó á sumri komandi.
Munu bæjarmenn geta fengið þar
land til mótekju. Þá er og unnið
að undirbúningi mótekju i Kringlu-
mýri og mun ráðgert að bærinn
lát taka þar mó i sumar svo sem i
fyrra. Eru nú horfur ágreiðri mó-
tekju miklu betri þar, en í fyrra,
og má því búast við góðum
árangri af því Og loks vinna marg-
irgmenn að undirbúningi viðgerðar
á Lækjargötu, Laufásvegi og Skot-
húsvegi.
— Svo sem við er að búast
hrökkva 100 þús. krónur skamt,
þegar veita þarf mörgum mönnum
atvinnu. Svo telst mönnum til, að
90 þús. kr. séu þegar borgaðar fyr-
ir vinnu, en 10 þús. krónurnar, sem
eftir eru af láninu, duga eigi nema
rúma vikn. Eftir svo sem viku eru
engir peningar til, til þess að greiða
með vinnu, og er því útlitið ekki
sem glæsilegast, nema bærinn fái
meiri peninga hjá landsstjórninni.
Það má vitanlega ganga að því
vísu, að brátt fari eitthvað að rakna
úr atvinnuleysinu, sem hér hefir
verið í vetur. Botnvörpungar, vél-
bátar og þilskip stunda nú tiskveið-
ar, og þegar tíðin batnar, sem allir
vona að verði brátt, hlýtur að ber-
ast á land mikið af fiski, en það
veitir mförgum fjöhkyldum atvinnu.
Byrði sú, sem bæjarsjóður hefir orð-
ið að bera vegna hius almenna at-
vinnuleysis, mun því vonandi brátt'
verða töluvert léttari, enda eigi sýni-
legt, að b>ejarfélagið gæti risið und-
ir þunga hennar mikið lengur.
Landssjóður lætur nú vinna af
kappi að vegagerð milli Hafnaifjarð-
ar og Reykjavikur. Að honum hafa
unnið 90—100 manns undanfarið,
en ráðgert er að fækka þar mönn-
um um helming nú um næstu helgi,
þannig, að verkamönnum verði skift
i tvo flokka, og fær, hvor flokkur
vinnu aðra hvora viku. Kostnaður
hefir orðið mikill við undirbúnig
þessa vegar, en þó mun ráðgert að
vinna að vegagerðinni í sumar.
Margt, sem að vegagerðinni lýtur,
er þess háttar, að það er eingöngu
hægt að gera að sumrinu. Lands-
verkfræðingurinn hefir tjáð oss, að
sumar vikur hafi verið borgað út
nokkuð á 7. þúsund krónú til verka-
manna, og má það heita all-álitleg
upphæð.
ú dagbok I
Hjálparstarfsemi Bandalags
k v e n n a. Viðtalstfmi miðvikud. og
föstud, kl. 2—4 á lesstofu kvenna,
Aðalstrætl 8.
Baran heitir færeyiskt þilskip, sem
Helgi kaupm. Zoega hefir keypt frá
Færeyjum og hingað kom nýlega.
Skipið er um 63 smálestir að stærð,
og á að stunda fiskiveiðar í vor.
Gangverð jerlendrar myntar.
Bankar Doll. U.S.A. &Canada 3,50 Pústhús 3,60
Franki franskur 62,00 60,00
Sænsk króna ... 109,00 110,00
Norsk króna ... 104,00 106,50
Sterlingspund ... 16,00 16,00
Mark 68 00 ...
Holl. Florin ... ••• »•« ... 1.37
Austurr. króua .. • • • • • • < • . ■
Njörður kom af fiskiveiðum í gær
Hafði aflað lítið, því aldrei varnæði.
Stöðugur stormur í hafi.
„Sterling". Símskeyti barst hing-
að í gærmorgun frá Kböfn þess efn-
is að Sterling hafi farið þaðan þriðju-
daginn 12. þ. m. beina leið til Reykja-
vlkur.
„Villemoes“ kom frá Norðurlandi
í gær. Mun skipið bráðlega halda
héðan áleiðis til Noregs með kjötið.
„Borg" fór frá Bretlandi í fyrra-
dag áleiðis hingað.
„Svanurinn“ fór í gærkvöldi til
Stykkishólms.
„Ingólfnr“ fer í dag til Keflavíkur,
Valdimar Briem vígslubiskup á
Stóra-Núpi hefir sótt um lausn frá
brauðinu frá næstu fardögum.
Ag. Flygenring landsverzlunarfor-
stjórí er nú á góðum batavegi eftir
byltuna, sem hanu fekk um daginn.
Dvelur hann samt enn á heimili
sínu i Hafnarfirði. Er búist við því,
að hann bráðlega muni geta byrjað
aftur starfið við landsverzlunina.
Slys. Maður föil niður um ís á
Hvammsfirði nýlega og druknaði.
Ætlaði hann að ganga yfir fjörðin á
isnum og vissu menn það síðast til
haDS, að hann var kominn spölkorn
frá landi.
Hjúkrunarfélagið ,Lskn‘
hélt aðalfund fimtudaginn 7. þessa
mánaðar.
Formaður gaf skýrslu um starf-
semi iébgsins um síðastl. almanaks-
ár. Tala félaga núna um áramótin
var 139. Hagur þess er tiltölulega
góður sem stendur. Félagið hefir
alstaðar orðið fyrir velvild, bæði hjá
félagskonum,semauk árgjalds, margaí
hafa gefið því gjafir, föt og mat
handa sjúklingunum, og jafnvel peO'
ingagjafir, sem áheit eða á annao
hátt.
Hjúkrunarkona félagsins fór alls í
2j6j hcimsóknir til sjúklinga, ofur'
lítið færri en árinu áður, sem var