Morgunblaðið - 26.03.1918, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
Til
Tveir til þrir
Duglegir drengir
geta fengið atvinnu nú þegar.
Upplýsingar gefur Morgunblaðið
frá kl. 12 til 2 í dag
Um páskana
veröa rakarastoíur bœiarins opn-
ar sem hér segir:
Á Skirdag kl. 9—11 f. h.
(en lokaöar ailan föstudaginn langa og Páskadag).
A annan í Páskuxn opið kl. 9—11 f. h.
pástanna.
Hveiti
og al sk. kökuefni,
Rúsínur, Sveskjur,
Appelsínur. Epli.
Avextir.
þurkað r allskonar,
Niðursoðnir, ótal teg.,
Asier,
Rödbeder,
Asparges,
Beauvais grænar baunir.
Bay. Pölser,
Forl. Skildpadde,
Beufcarbonade
o. fl.
Sardinur.
Lax,
Kjöt- og Fiskibollur,
Leverpostej.
Syltetöj, margar tegundir.
Saft á. fiöskum.
Kex
og kaffibrauð,
Búðingspúlver,
Husblas i pk.
þurkað grænmeti,
Kartöflumjöl,
Sagogrjón.
Ostar
margar tegundír nýkomnar,
og m. m. fl
Yerzlun
fiinars Arnas.
Aðalstræti 8.
Sími 49
Kafbátahernaðurinn.
Bretar 8n#ða of fá skip.
Mörgum kafbátum sökt.
Sir Eric Geddes flotaráðherra Breta
héfc ræðu um kafbátahættuna hinn
5. þ. mán. í þinginu. Þar gaf hann
þessar upplýsingar:
Skipum, sem skotin eru i kaf, fer
faakkandi. Tjónið sem kafbátarnir
unnu kaupskipaflota heimsins í
febrúarmánuði í vetur, var ekki nema
rúmur helmingur á móts við það
tjón, sem þeir unnu í febrúarmán-
uði í fyrra. Alheims-skipatjón fimm
síðustu mánaða — talið fram til
20. febrúar — var 10% minna en
á sama tima i fyrra.
í janúarmánuði hafa Bretar smíð-
að kaupför, er báru samtals 58.000
smálestir og menn vona. það að
helmingi meira verði smíðað i febrú-
ar. En ef eigi yrði mikill framför i
skipasmíðinni mjög bráðlega, mundi
það dragast hættulega lengi að Bret-
ar smíðuðu eins mikið af skipum
og þeir mistu.
Geddes tók það skýrt fram, að
Bretar yrðu að treysta eingöngu á
skipasmíð sina, þvi að enginn efi
væri á þvi, að þess mundi langt að
bíða að Amerika gæti smiðað eins
mikið af skipum og æskiiegt væri.
Hann bjóst við þvl, að Bretar mundu
með timanum geta smiðað á hverju
ári skip er bæru 5 miljónir smál.,
en þó þvi að eins, að skipasmíða-
stöðvarnar legðu fram alla krafta
sina. Stjómin mundi sýna bæði
vinnuveitcndum og vinnuþiggjend-
um fram á það, hve þýðingarmikið
það væri að unnið væri af kappi að
skipasmíðinni og kvaðst hann eigi
efast um að þjóðin mundi vandan-
anum vaxin.
Geddes sigði að kafbátahættunni
væri haldið i skefjum, en hún væri
eigi yfirunnin enn þá. Altaf færi
fjölgandi þeim kafbátum, sem ónýtt-
ir væru og þeim mundi fjölga eun
meira. Hann kvaðst vita það, að
þýzkir sjóliðsmenn gerðust æ tregari
til þess að vera á kafbátum þeim,
sem herjuðu í Norðursjó og norður-
hluta Atlarizhafs, erda færist fjórði
hver kafbátur, sem herjaði á þeim
slóðum.
Um þessa ræðu flotaiáðherrans
varð blöðunum tíðrætt. »Times« seg-
ir að alvarlegasti kaflinn i ræðunni
sé það sem ráðherrann segir um
skipasmíðina. Vér viljum eigi gera
neina tilraun til að neita þvi að
horfurnar séu iskyggilegar. Ef ekki
verður bráðum stórkoslleg breytirig
til batnaðar, getur farið svo að land-
ið iendi i stórháska. Aðalatriðið i
þessu máli er það að komast að því
hvernig sjændur á því. r,ð skipa-
smíðafyrirætlanirnar hjfr farið út
um þúfur. Það verður að komast að
þvi, hvernig stendur á óspektunum
i skipasmiðastöðvunumj og koma í
veg fyrir að þær endurtakist.
»Daily Telegraph* segir: Sem
stendur gerum vér eigi meira úr
hótunum óviuanna um það að svelta
oss, heldur en vér gerðum fyrir
mánuðum. En þó erum vér eigi
blindir fyrir þeirri hættu sem búin
er orustuþreki hersins og efnahags
legri velferð landsins. Land vort er
höfuðstöð bandamanna og ef vér
höfum nóg skip þá er sigurinn vis,
sagði Lloyd George, eu annars er
öll von úti. Skipasmíðaœálið er nú
jafn alvarlegt eins og hergagnamálið
var fyrir tveim átum.
»DaiIy News« segir: Skýrið þjóð-
inni frá öllu sem er. Óvinirnir vita
hvernig ástatt er og þeir vita það
betur heldur eu vér. Ef öll framtið
vor er í veði, þá varðar það alla
þjóðina og hún mun kunna að meta
hreinskilni frá stjórnarinnar hálfu.
Nýar vðrur
svo sem:
Mynda- og kortarammar
allar stærðir.
Spil,
Spilapeningar,
Pennar,
Pennasköft,
Pappír,
Umslög, allar stærðir,
Blek,
Skrifbækr r,
Vasabækur.
Bökv Fr. Hafbergs
Hafnarfirði.
Uppskipunarskip, stóit og vænt,
með eikaiby, ðing, tii sölu. Afgr.
vísar á.
Keðjur af öllum stærðum og teg-
undum til sölu. Afgr. vísar á.
Seiga
Húsnæði óskast til leigu eða kaups.
Dr. B|örn Bjarnarsor. Slmi 376.
Vandaður piltur getur fengið her-
bergi með öðrum og þjónustu nú
þegar. A. v. á.
csTiinóið
3 náttkjólar fundnir. Upplýsingar
i gamla Bankanum.
§§ z$apað
Týndur svipuhúnn merktur }. N.
Skilist á afgreiðsluna.
- ................----
cffíaravilla,
QoBóen,
og margar fleiri
vinóíaiapunóir,
fást i smáum og stórum kössum i
cTcGafishúsinu.
En vegna þeas að stjórnin hefir eigi
sýnt hreinskilni, erum vér nú komnir
í þennan hættulega vanda. Þegar
þjóðin sér hvað þarf að gerast, þi
þá munu henDÍ ekki fallast hendur.
Laumuspilið hefir valdið nógu mik-
illi bölvun. Reynum þess vegna að
draga sannleikano fram í dagslósið.
400 >rau6lr<
hermenn voru nýlega drepnir hjá
Rautu í Finnlandi á þann hátt, að
járnbrautarlest sú, er þeir voru með,
var sprengd í loft upp.