Morgunblaðið - 10.04.1918, Page 2
2
MORGTJNBLAÐIÐ
Jóh. Jóhannesson með kr. 211.20.
Til þingkostnaðar er og talin heið-
ursgjöf, kr. 5000.00, handa Kletta-
fjallaskáldinu.
í hefti þessu, sem hér um ræðir,
eru og birtir samningar forsetanna
við prentsmiðjurnar um prentun fyrir
þingið, og önnur fylgiskjöl. Prent-
unarkostnaður nam kr. 58475.84,
þar með talin laun yfirskoðunar
manna landsreikninganna og próf-
arkalestur. Nefndakostnaður hefir
numið kr. 2527.05, viðhaldskostnað-
ur á Kringlu kr. 1591.70, aðstoð og
aukavinna kr. 1541.00.
Dýrastur þingmaður er Þorleifur
i Hólum. Hann hefir á báðum
þingunum fengið kr. 2065.00 í þing-
kaup og þingfararkostnað.
Verzlunin GULLFOSS
Nýkomnar Lundúnavörur:
Borgarinnar vandaðasta og fullkomnasta úrval af léreftum úr hör og baðmull, borðdúkum, serviettum, ágætum
handklæðum, og handklæðadreglum, hör- og tyllblúndum, bróderingum, pífum (hvítum og svörtum, smekk-
legum að vanda), óvenjulega fallegum dömukrögum, vasaklútum teygjudöndum, að einlitu haldgóðu stúfa-
sirtsi ógleymdu. — Gullfallega morgunkjólatau, drengjabuxur, og saumnálarnar viðurkendu mætti líka
nefna, ásamt mörgu fleira, er hér yrði of langt upp að telja. —
Sparið tíma og* peninga á meðan birgðir endast.
JTlimid sítna 599.
Kveldskemtun
verður í Iðnaðarmannahúsinu miðvikudaginn ro. apríl kl. 9.
SKEMTISKRÁ:
Leikið: Valeur & Co. — Einsöngur — Danssýning.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag frá kl. 10—7e. m. og kosta
beztu sæti kr. 1,50, alm. sæti kr. 1,00, standandi kr. 0,75, barnasæti o,50.
Tlánar á göfuaugíýsingum.
Sjúkrasamlag Reykavíkur
heldur aðaltuud í Bárunni (niðri) miðvikudaginn 17. þ. m.,
kl. 9 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt Sjúkrasamlagslögunum.
Lagabreytingar liggja fyrir fundinum.
Reykjavík, 9. april 1918.
Stjórnin.
Ný fataefni.
Blátt Cheviot (Yactklub) fl. tegundir.
Buxnaefni o. fl,
Nýkomið alt mjög ódýrt eftir gæðum.
Guðm. Sigurðsson
klœðskerl.
Þingmálafundur
í Vestmannaeyjum
í fyrradag var haldinn þingmála-
fundur í Vestmannaeyjum. Voru þar
ýms mál tekin fyrir og nokkrar
fundarsamþyktir gerðar.
Skorað var á þingmann Eyjaskeggja
að flytja frv. um siglingafána og
styðja það mál af krafti á þinginu.
Fundurinn lýsti vantrausti sinu á
núverandi stjórn. Var sú tillaga sam-
þykt með ofurlitlum meirihluta.
Tillaga um skipun bæjarstjórnar
í Vestmannaeyjum samþ.
Þess var krafist einum rómi, að
skora á landsstjórnina að láta skip
þau, sem hún hefir til umráða, koma
við í Vestmannaeyjum i hverri ferð.
Fundurinn skoraði á stjórnina að
sjá um að björgunarbátur yrði smið-
aður handa Vestmannáeyjum.
Loks krafðist fundurinn betra síma-
sambands við Reykjavíkur, einkum
með því að lagður yrði annar þráð-
ur milli Miðeyjar og Reykjavíkur,
sem kæmi Vestmannaeyjum í betra
samband við höfuðstaðinn.
Fundurinn var fremur fjölmennur
en þó voru margir menn á sjó. —
Hann fór hið bezta fram og var
örugur.
DAGBOK
Gangverð erlendrar myntar.
Banksr Doll. U.S.A. & Canada 3,50 Fóithúa 8,60
Frankl franskur 62,00 61,00
Sænsk króna ... 109,00 110,00
Norsk króna 104,00 105,00
Sterllngspund 16,00 15,50
Mark ... _ ... 68.00 65,00
Holl. Florin 1,55 1.55
Austurr. króna... — — —
- - -
Hljómleikar. A föstudagskvöldið
mun hr. P. Bernburg og hljóðfæra-
flokkur hans hafa hljómleika í Gamla
Bíó. Verða jafnframt sýndar kvik-
myndir. Eins og allir vita, þeir er
hljómlist unna, 'þá er hér um góða
skemtun að Jræða eins og altaf á
hljómleikum Bernburgs, þvf að það
er líklega sá maðurinn er mesta rækt
leggur við hljómlist og altaf er óþreyt-
andl við það að sameina sem bezt
þá krafta sem hér er á að skipa í þeim
efnum. Fer það orð með réttu af
Bernburg, að hann komi aldrei opin-
berlega fram nema því að eins að
hann og flokkur hans hafí upp á eitt-
hvað gott að bjóða.
Skákþinginu var lokið í fyrrakvöld.
Fórþaðsvo að þeir Eggert Guðmundss.
og Stefán Ólafsson sigruðu alla keppi-
nautana, en er þeir tefldu saman fór
svo að Eggert vann og er því skák-
meistari íslands og heldur verðlauna-
gripnum sem fyrir það er gefinn, en
það er skákborð og tafl.
Keppendur voru að þessu sinni átta.
Pétur Zophoniasson tók ekki þátt f
kappskákinni. ''
»AUiance«, danska seglskipið verð-
ur tekið á dráttarbrautina i kvöld til
eftirlits og ýmsra smáviðgerða.
Hörkufrost gerði hér i fyrrakvöld
Bkyndilega. Frost um alt laud í gær-
morgun, mest 16 stig á Grírasstöðum,
9,4 stig hér í bæ.
Alþingi verður sett eftir hádegi
í dag, líklega kl. 2. Fyrir þingsetn-
ingu verður guðsþjónusta f dómkirkj-
unni og prédikar þar sr. Eggert
Pálsson á Breiðabólstað.
B o t n i a. Samkvæmt símskeyti,
sem Sameinaðafélaginu barst í gær-
morgun frá Khöfn. á Botnia að leggja
á stað þaðan næstk. sunnudag, 14.
þ. m. áleiðis hingað.
Lagarfoss ervæntanlegurhing-
að í dag snemma.
Skipið fer héðan væntanlega á
föstudaginn áleiðis til Noregs með
um 7000 tunnur af kjöti. Gildir sama
regla um Lagarfoss sem önnur skip,
sem flutt hafa kjöt til Noregs, að
það má ekki taka póst né farþega.
S»G e i r« fer í kvöld vestur tif
Grundarfjarðar til þess að reyna að
ná Svaninum út'
Kvöldskemtun verður hald-
in í Iðnó i kvöld, sama skemtun og
haldin var hér fyrir skömmu. A-
góðanum verður varið til þess að
styrkja fátæka berklaveika stúlku
sem uauðsynlega þarf að komast á
heilBuhælið. Skemtunin þótti góð
þegar hún síðast fór fram og er þess
að vænta, að bæjarbúar fjölmenni
þangað nú, eigi síst þar sem til-
gangurinn er svo gúður.
S t e r 1 i n g var á þórshöfn f gær
og kemur væntanlega hingað í byrj-
un næstu viku.
Skipstjóri segir í símskeyti til Eim-
Bkipafélagsins að hafís sé töluverður
út af Sléttu.
Ný uppfynding.
Þegar skip eru kafskotin i vond-
um veðrum á vetrum, og skipverjar
verða að flýta sér í skipsbátana, ber
það oft við að þeir eru fáklæddir