Morgunblaðið - 20.08.1918, Blaðsíða 1
Bæjarstjórnin í Kaupmannahöfn heflr á ýmsa lund leitast við
að bæta kjör hinna mörgu atvinnuleysingja í bænum og koma í
veg fyrir það að þeir leggist i leti og ómensku. I þvi augnamiði
hefir bæjarstjórnin látið hljómleika fram fara tvisvar í viku, þar
Bem allir atvinnulausir menn eru boðnir og velkomnir. Góður
hljóðfærasláttur og söngur hefir göfgandi áhrif á áheyrendur. í
fyrstu voru þeir fáir sem sóttu skemtanir þessar, en aðsóknin er
nú ákaflega mikil, svo mikil sem Cirkus-byggingin getur rúmað,
því þar fara hljómleikarnir fram.
Kostnaðurinn: Það er ekki lítill kostnaður í för með þessu.
Leiga salsins kostar 800 kr. i hvert skifti, sólosöngvarar fá 500 kr.
og hver maður í hljóðfærasveitinni 10 kr. En enginn sér eftir þvi
fé sem þannig er varið.
Erlendar
simfregnir.
(Frá trittaritsra Morgisabi.)
Khöfn. 18. ágúst.
Bmdamenn búast við því að Þjóð-
verjar hefji bráðlega undanhald á ný.
Þýzka blaðið Gertnania heldur því
fram, að pó! ka málinu hafi ekki
verið ráðið endanlega t;l lykta enn.
í Helsingfors óttast menn að við-
ureignin á Murmanströndinni leiði
til nýrrar styrjaldar i Finnlandi.
Her Bandaríkjanna er nú orðinn
2.600.000.
Kolaskip kafskotin.
Siðustu vikuna hafa borist
fréttir af þvi, að kolaskip, á leið
hingað hafi verið kafskotin á leið-
inni. Eitt þessara skipa var farið á
undan stóra kol'skipinu, sem nú
liggar hér á höfninni. Voru skip-
verjar þess komnir á land áður en hiit
lét úr höfn og áttu skipstjórarnir
tal saman. Sagði skipstjórinn á
»Mayfieldf — svo hét skipið — frá
Þvf að kafbátsforinginn hefði kraf-
lst Þess af sér, að hann segði frá
því hvenær þijú önnur skip, sem
hann nefndi með nafni, ættu að fara
á stað. Kvaðst hann vita um að þau
ættu að flytja kol til Island og hafa
skipun um það, að sökkva þsim.
Nöfnin, sem kafbátsforinginn nefndi,
voru öll rétt svo það er áreiðanlegt,
að Þjóðverjar hafa haft njósnir um
ferðir þeirra. En hvaðan? Skipin
vr»ru öll norsk, svo það getur venð
ni6snarar Þjóðve-ja í Noregi hafi
tilkynt þeim ag skipin væru leigð
i íslandsferðir. Hiiinig getur verið að
tilkynningin hnfi komið frá Bret-
landi. Eða þá — sem vitanlega er
ólíklegast en þó hugsanlegt — að
þeim hafi verið tilkynt það héðan
Þessi sami kafbátur, sem sökti
»Mayfield«, hefir að llkirdum náð
öllum skipunum, sem hingað áttu
að fara, nema þessu stóra selgskipi,
sem hér l'ggur nú.
Vátryggingargjald farmsitis og sk ps-
ins kvað nema 20—22 °/0 vegna
kafbátahættunnar.
— " " 1 11 ..........
Islenzkur flugmaður.
Willtam S. Stephenson, að 175
Syndicate Str. hér i bæourr, innrit-
aðist i iox. deiidina og fór með
henni í janúar, árið 1916. Til Frakk-
hnds var hann kominn 26. júlí sama
ár, særðist i orustu milli 26. júlí og
4- ágúst 1916. Þegar hann greri
sára sinna var hann í rúmt ár hern-
nðarkennari á Engiandi. í fiugliðið
sekk hann í rp'íl 1917, og fór til
Frakklands 1 febrúar 1918. Hefir
hann «ú fengið heiðursmerki fyrir
Iratnútskarandi fimleika og hugrekki
i fluglist, og var fyrsti íslendingur,
sem það hiaut. Haig hershöfði flutti
honnm sjálfur heillaóskir við þetta
tækifæri.
Mr. Stephenson er 21 áis að aldti,
fæddur í Winnipeg; eru foreldrar
hans þau hjónin Vigfús Stephenson
Og Kristfn kona hans.
(»Voröldc, Winnipeg).
Vörur frá Ameriku.
Það eru fleiri en íslendingar sem
eiga við erfiðleika að stríða með að
fá útflutnigsleyfi á nauðsynjavörum
frl Ameriku, þrátt fyrir alla veizlun-
arsamninga, sem bandamenn hafa
gert við hlutleysingja.
Frá Noregi kemur sú fregn, að
yfirvöldin i Washington hafi neitað
Norðmönnum um útflutningsleyfi á
miklum birgðum af kaffi, sem þeir
höfðu keypt þar og ennfremur tölu-
verðu af nýlenduvörum, sem Norð-
menn vanhagaði mjög um.
Það er ekki langt siðan Norðmenn
gerðu viðskíftasamning vtð Banda-
ríkin og samkvæmt honum áttu
Norðmenn að fá töluvert af nauð-
synjum að vestan. Eu nú liggja
skip þeirra aðgerðalaus í New York
og bíða eftir úrlausninni.
Varnir í Kristjanín,
Á fundi fyrir luktum dyrum í
Stórþinginu norska var samþykt með
82 : 24 atkvæðum að veita 1.300.000
kr. á auka fjárlögnnum til þess að
auka hervarnir við Kristjaníufjörð.
En áður á sömu fjárlögum höfðu
verið veittar i1/^ miljón kr. í sama
augnamiðí.
.. — ■ —i
,Columbia‘,
skip Acstur-Asíufélagsins,
ka fskotið.
Austur-Asiofélagið danska hefir orð-
ið fyrir því óhappi að missa eitt af
stærstu og beztu skipum félagsins,
»Columbia«. Þýzkur kaf bátur komst
í færi við það, er það var á siglingu
skamt frá Port Said. Skaut hann á
það þremur skotum, sprenging varð
í vélarúminu og skipið sökk á nokkr-
um mínútum. Skipverjar, 38 talsins,
komust alíir heilu og höldnu í land,
nema þriðji vélameistari, sem menn
hyg8Ía að farist hafi við sprenging-
una.
»Columbia« var bygð árið 1915
og fermdi 10 þús. smálestir dw.
Það var 425 feta langt og hið vand-
aðasta að smíði og útbúnaði öllum.
AusturAsíufélagið hefir komist
furðsnlega hjá kafbátahernaðinum.
Þegar undantekin eru t?ö smáskip,
sem sigidu milli Danmerkur og Eng-
lands, hefir félagið ekkert skip mist
fyr en »Columbia«. Skip félagsins
hin stóru hafa öll verið i siglingum
utan hættusvæðisins og hefir félagið
því grætt óhemju fé áhættulitið.
Það á nú eftir 12 stór mótorskip
auk tveggja minni, en tjón bíður
félagið við missir »Columbia«, sem
nemur mörgum miljónum króna.
Spænska veikin.
Hún hefir gengið afskaplega mik-
ið í Kaupmannahöfn, nokkur þúsund
manns lagst á degi hverjum undan-
farið þó að töluverðar ráðstafanir
hafi verið gerðar til þess að stemma
stigu fyrir útbreiðslu veikinnar. —
Læknarnir hafa verið að revtia að
finnna sóttkveikjuna. — í Breslau
býr læknir sá, dr. Pfeiffer, sem
fann influenzu-sóttkveikjunaáriði892.
í tnörgum tilfellum spænsku veik-
inuar hefir hann fundið sóttkveikjur,
sem nákvæmlega eru sama eðlis og
inflúenzu-sóttkveikjan, en aftur í öðr-
um tilfellum hefir hann ekkert fundið.
— Danski læknirinn Thorwald
Madsen, forstjóri serum-stofnunarinn-
ar, hefir aftur á móti komist að
þeirri niðurstöðu, að spænska veikin
sé nákvæmlega sama og inflúenza,
og að hér sé því alls ekki um nýj-
an sjúkdótr, að ræða.
— Politiken segir, aÖ hér eftir
sé það einkamál hvers sjúklings,
hvort hann viiji heldur þjást af
spænskri veiki eða inflúenzu!