Morgunblaðið - 03.01.1919, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Smápeningar
yðar endast (engsf ef þið
kaupið i
Vðruhúsinu!
Trolle & Rothe h.f.
Brnnatryggingar.
Sjó- og striðsYátryggingar
Talsimi: 235.
Sjótjóns-erindrekstnr og
skipaflntningar.
Talsími 429.
Glitotnar
ABREIÐUR
[eða gömul söðulklæði verða keypt
háu verði.
Ritstjóri vísar á.
Geysir
Export-Kaffi
er bezt.
Aðalumboðsmenn:
0. J0HNS0N & KAABER.
tffiaupié fMorgunBL
Flugfiskurinn,
Skáidsaga úr heimeatyrjöldinni 1921
Eftir Övre Richter Frich.
---- 46
— Eg veit það, kelli mín. En Asev
á sér líka marga vini hér í White-
ehapel. Lofið mér inn, því að Anna
Nikolajevna bíður mín.
Kerlingin hló, en það var enginn
keilingarhlátur, heldur ungrar stúlku.
Asev hvesti á hana augun og roði
kom fram í gult andlit hans.
— Ertu þetta sjálf, Anna? mælti
hann.
Kerlingin rétti úr sér, strauk af sér
þunna vaxgrímu og tók af sér hæru-
kolluna. Og fyrir framan Asev stóð
nú há og tíguleg kona, með tindrandi
augu.
Breytingin varð svo snögg, að Rúss-
jnn stóð sem steini lostinn.
— Kæri vinur, mælti hún og dró
hann inn í herbergið. Fyrirgefðu þenn-
an litla hrekk. Eg verð að fara eins
varlega og framast er unt.
Asev svaraði ekki þegar. Hin dökku
augu hans voru orðin kolsvört af geðs-
hræringu, sem hann gat ekki við ráðið.
Allar flöskur
samkvæmt áðurgefnum nótum, sem vér höfum lánað til vorra
heiðruðu viðsk'.ftavina, verða sóttar næstu daga.
SANITAS. Simi 190.
Það tilkynmst hérmeð að jarðarför minnar kjartkæru konu. Jónínu
Þórðardóttur, fer fram laugardaginn 4. janúar og hefst með húskveðju
frá heimili okkar, Skólavörðustíg 29, kl. 11 f. h.
Eyvindur Þorsteinsson.
Drensur
getur fengið atvinnu strax A v.á.
Se n di 1
vantar nú þegar á landssímastöðina
Gísli J. Olafson
c2ezt aó auglýsa í tJItorgunBlaóinu
Þau komu inn í bjart og snoturt
herbergi, sem stakk mjög í stúf við
annað útlit hússins. A veggjum héngn
pálmagræn tjöld, á gólfinu, sem hall-
aðist alla vega, var þykkur dúkur og
stór lampi varpaði björtu ljósi um her-
bergið. Úti í horni stóð ósélegt járn-
rúm. Beint á móti því var skrifborð
og á því óhemju ósköp af skjölum og
ofan á þeim tvær silfurbúnar marg-
hleypur.
— Kæra vinkona, mælti Asev eftir
langa þögn, þú verður að fyrirgefa að
eg get eigi dulið gleði mína út af
því að sjá þig. Þegar eg horfi á þig,
veit eg að þú ert eina konan, sem eg
hefi elskað.
Það kom dálítill leiðindasvipur á
leikmeyna fögru. En svo brosti hún.
— Þú ert alt af líkur sjálfum þér,
mælti hún með uppgerðarkæti. Þó
veiztu sjálfur, að þú hefir aldrei mátt
sjá kvenmann. Kvenfólkið hefir steypt
þér í glötun áðnr. Hvers vegna getur
þér aldrei skilist það, að jafnvel hinn
sterkasti Samson er glataður þegar
hann hallar sér í skaut Dalila? ....
En eg er engin Dalila.
Asev varð þungur á svip.
— Eg vildi að þú værir Dalila, mælti
hann lágt. Eg vildi fórna öllu fyrir
þig, bæði völdum og auði.
— Það er til annað, sem er rneira
virði en fórn, mælti hún. Það ættir
þú að vita. í Rússlandi er ekki til
annar eins hæfileikamaður og þu. Ell
samt ertu ástsjúkur eins og skólapilt-
ur.
Rússinn beit á vörina. Svo fleygði
Iiann sér í stól og skellihló.
— Það er gamla sagan, mælti hann.
Þú ert Diana og eg er Aktæon. En
það er hart að svo fögur kona sem þú
ert skuli vera svona kaldlynd. Það er
að eins eitt, sem á allan hug þinn, og
það eru glæpir. Fyrir þá fórnar þú
öllu nema hreinleika þínum .... Og
vertu ekki reið, Anna Nikolajevna ....
Þú veizt að þetta er satt. Þú ert ekki
nema 26 ára gömul .... þú ert fegursti
dutlungur skaparans — þú ert eíns og
myndir Murillos af Maríu mey. Og
hvað ertu svo ? .... Þú ert gömul í
anda, þú hatar okkur mennina, þú hef-
ir í frammi alla klæki kvenbreddanna.
Hendur þínar eru ataðar í blóði, hinar
fögru, hvítu hendur, sem aldrei hafa
verið lagðar um háls á neinum karl-
manni ....
Hún stökk á fætur.
Og þá fyrst kom það fullkomlega
í ljós, hve fögur hún var. Augu henn-
ar voru stór og tindrandi. Þau höfðu
þennan einkennilega grásvarta lit, sem
títt er um Litlu-Rússa og hún var bæði
tíguleg og vel vaxin. Dökkbrúnt hár
- 6 Yátryggingar
Trondhjems Yáíryggiiigarféli^ L
Ailsk. brunatrygglngar
Aðalamboðsmaður
Carl Flitven,
Skólavðrðustíg 25
Skriístofut. sVs—^Visd. Tals %\s
Síunnar Cgilson,
skipamiðlari,
Hafnarstræíi 15 (uppi)
Skrifstofan opin kl. 10—4. Slmi 60I
Sjé-, Stríðs-, 3runatrygg!ns&r,
Talslmi heima 479.
Det Uí octr, Brandassnrtasi
Kaupmannahöfn
vátryggir: hús, húsgðgn, alis-
kdnar TÖruforða o.s.frv g«gt
eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.
Heima kl. 8—12 f. h. og 2—8 e.b,
1 Austurstr, 1 (Búð L. Nielsen).
N. B, Nictlsen.
>SUN INSURANCE OFFIGE«
Heimsins elzta cg stærsta vátrygi -
ingarfélag. Tekur að sér sliskös.; r
brunatryggicgar.
Aðlumboðsmaður hér á landi
Matthías Matthiasson,
Holti, Tslslmi 49*''
Ærunafrgggingar,
sjó- og striðsvátiyggingar.
O. Joþnson & Tiaaðar.
hennar var greitt mður með vöngun-
um og fól til hálfs hin litlu og bognu
eyru — hið eina glæpamerki, sem á
henni var. Þannig var hún Anna
Nikolajevna Speranski, hin ókunna
blóðsuga í myrkviði alheims-glæpafé-
lagsins — hin hættulegasta af öllum.
— Hvað viltu ? spurði hún. Kosni-
jeff sagði að þú þarfnaðist hjálpar
minnar. Þess vegna hlýtur þú að vera
í einhverjum kroggum. Hefir stríðið
kollvarpað starfsemi vorri ?
— Já, svaraði Asev og laut nær
henni. Eg kem frá orustnstöðvunum.
Það var með herkjum, að eg komst
yfir Norðursjó. Þar flutu mannabúk-
ar sem þéttast. Aldrei hefi eg fyr séS
slíka sjón. Það var dásamleg orusta,
en svo kom þoka og skildi flotana.
Hvorugur sigraði. Það var eins og tvö
villidýr skreiddust hálfdauð hvort frá
öðru, til þess að draga sviðann úr ó-
lífissárum sínum .... En hvað kom
mér það við? Mér stendur alveg á
sama hvort hundurinn etur svínið eða
svínið hundinn. Eg hugsa ekki um ann-
að heldur en að hefna fyrir þá hrak-
för, sem Rússar fóru. Hið ójarðaða
lík Besukhovs hrópar á hefnd ...
Og Garschin ....
Hann þagnaði, því að Anna Niko-*
lajevna varð náföl.