Morgunblaðið - 21.03.1919, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Saumastofan
Ágætt vetrarfrakkaeÍDÍ — Sömuleiðis
stórt úrval af allskonar
Fataefnum
Komið fyrst i
Vöruhúsið.
Trolle & Rotbe h.f.
Brunatryggmgar.
Sjð- og striðsYátryggingar
Talsimi: 235.
SjótjóDS-eriDðrekstnr e£
skipaflutnisgar
Talsími 429.
Geysir
Export-Kaffi
er bezt.
AðalumboðsmeQn:
Q. JOHNSON & KAÁBER.
Consum Chocolade
ódýrara en áðnr nýkomið
í verzlun
O. Amundasonar,
Sími 149. — Laugavegi 22 a.
Leyst úr læðing
Ástarsaga
j> eftir Cnrtis Yorke.
----- 49
Nú var hringt bjöllu niðri. Það var
merki þess, að miðdegisverður væri
kominn á borð. Hún f'lýtti sér að hafa
fataskifti og hljóp svo niður stigann.
. jþað var enginn maður í borðstofunni
er hún kom niður, en rétt á eftir kom
Ronald. Hann var fölur og þreytuleg-
ur, eins og. hann hafði oftast verið
nú að undanförnu.
— Ó, Ronald, mælti hún og var
henni mikið niðri fyrir. Hvað mér þyk-
ir vænt um að mér gefst tækifæri til
þess að tala við yður í einrúmi. Eg —‘
eg þarf að leita ráða yðar.
— Þér vitið, mælti hann blátt áfram,
að eg er ætíð reiðubúinn að gera alt
fyrir yður, sem eg get.
:— Ó, segið ekki þettá. Það er svo
1— svo formlegt.
—: Mér þykir fyrir því. En þér vitið,
að þetta er satt.
Hún settist niður og neri hendur sín-
Aialumboi
fyrir Island
á mótopnum
„ D E N SILAalbin
hefir
B. G. Tómasson
skipaverkfræðingur á Isafirði (sími nr. 10) sem gefur allar upplýsingar
viðvíkjandi vélinni. Af vélinni eru aðeins fáar stærðir, þessvegna er
hún ódýr og smíðið fljótt og vel af hendi leyst. Leiðbeiningar um
niðursetDÍng vélarinnar allar gefins. í Reykjavík veitir Tómas Tóm-
asson Bergstaðastræti 64 allar upplýsingar viðvíkjandi fyrnefndri vél.
Tilboð óskasf
f að byggja hafskipabryggju (pelabryggju) í Hafnarfirði. Upplýsingar hjá
Bookfess Broffjers.
Det kgl. oktr. Söassurance - Kompagni
tekur að sér aliskonar sjóvátpyggingar.
Aðalumboðsmaður fyrir ísland:
Eggert Claessen, yfirréttarmálaflutningsmaðnr.
ar eirðarlaust. En alt í einu mælti hún
í hálfum hljóðum:
— Radmore lávarður hefir beðið
mín.
Það kom eínkcnnilegur svipur á
hann, en hvarf aftur áður en hún gat
gert sér g-rein fyrir hverju hann mundi
lýsa. Var það fögnuður, undrun,
gremja, eða sambland af öllu þéssu?
Hann sagði að eins:
— Og þér Iiafið heitið horium eigin-
orði?
— Ronald! hrópaði hún í ásökunar-
rómi. Hvernig getur yður komið til
hugar, að eg hafi afráðið það án þess
að — ráðgast um við yður 1
— Hvað er þetta ? Það eruð auðvitað
þér ein, sem eigið að taka ákvörðun
í'því máli.
— Ef til vill, mælti hún lágt — ef
öðru vísi stæði á. En hér eigum við
bæði í hlut — og þess vegna er öðru
máli að gegna.
— Elskið þér hann?
— Elska eg hann? endurtók hún og
mátti heýra; að henni þótti tilfinning-
um sínum misboðið. Getur nokkur
stúlka elskað tvo menn samtímis?
Hann svaraði engu.
Hún gekk þá nær honum.
— Mundi yður "árna það ef — eg
giítist honum? spurði hún svo lágt að
það var rétt að hann heyrði það.
Hann brá litum.
— Mér mundi þykja vænt um, ef
eg vissi að yður liði vel og þér væruð
elskuð, mælti hann. Það vitið þér.
— En hvernig mundi yður falla það;
mundi yður sárna, ntunduð þér reið-
ast mér eða þykjast vonsvikinn?
— Auðvitað ekki. Hvernig getið þér
ætlað mér slíka heimsku?
— Ó, — elskið þér mig ekki lengur?
Hún mælti þetta svo sárt, að hann
komst við.
— Kæra — eg elska yður 'ekki svo,
að það komi því neitt við, hvort þór
viljið giftast eður eigi.
Hún brosti angurvært og andvarpaði
þunglega.
Nú varð leiðinleg þögn. Að lokum
rauf Estella hana:
-— Eg hygg, mælti hún hægt og slitr-
ótt — að þér hafið þó ekki — ein-
hvern veginn — fengið ást á —-konu
yðar? -
Hann þagði við.
Varir hennar kipraðust dálítið, svo
að sá í tennumar. Það var líkast því
þegar rándýr ætlar að hremma bráð
sína.
— Ronald! hrópaði hún með ákefð.
f§j Vátryggingat Jjg
Tniljems Tátry^iuísríélsg fcf.
Allsk. brunatryggingftr,
Aðalnmboðsciaður
Cftvl Fisfiswsi,
Skólavörðustig 2;.
Skrifstofut, s*/s—ðV*sd. Tais. 331
Sunnar <Sgifoon,
skipamiðlari,
Haínarstræti 1$ (uppi)
Skrifstofan opin kl. ro—-4. Simi £oS
814-, Strífis-, Brunatrygflnnar.
Talsími heima 479.
Det kgt octr. BnDdtsiimú
Kaupmannahðín
vitryggir: hÚS, húsgOgn, alLfi-
konar vöruforða o.s.frv gega
eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.
Heima kl. 8—12 f. h. og 2—S t.h.
i Austurstr. 1 (Búð L. Nielstm),
N. B. Niöiscwi.
»SUN INSURANCE OFFICE«
Heimsins elzta og stærsta vitrýgí*
ingarfélag. Tekur að sér allskonar
brnnatryggingar.
Aðlumboðsmaður hér á hndi
Matthiast Matthiasson,
Hold. Talsimi 497
Srunatryggingar,
sjó- og striðsvitryggingar.
0. Jo&asoa S Kaafior.
Það getur ekki verið! Segið að það
sé ekki satt!
Hann strauk hendinni um enni sér.
— Eg veit það ékki, svaraði hann.
Guð hjálpi mér — eg veit það ekki.
Hún varð náföl og greip um arin-
hylluna eins og hún þyrfti að styðja
sig. Ronald brá þá við og greip utan
um hana.
— Hvað gengur að yður? spurðí
hann áhyggjulega. Er yður ilt?
Hún hristi höfnðið og hrosti ofur-
lítið.
— Nei, nei! Þetta líður frá. ó, þetta
kom eins og reiðarslag yfir mig. — Æ,
hvað eg get verið heimsk — eg á það
skilið, að mér hefnist fyrir það. En
mér kom þetta aldrei til hugar. Ó, Ron-
ald, eg treysti í blindni á ást yðar. Eg
vissi það, að við mundum aldrei fá að
njótast — en mér datt ekki í hug aS
yður mundi nokkum tíma þykja værit
nra nokkra aðra ....
í sama bili opnuðust dyrnar og Pene-
lope kom inn.
Þegar Penelope var að búa sig tíl
míðdegisverðar, misti hún hring sinn
og rann hann út í hom og fanst ekkí
fyr en eftir fimm mínútna leit.