Morgunblaðið - 30.03.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.03.1919, Blaðsíða 1
Sunnudag 30 marz 1919 6. árgangur 137 tölublað ■■ ...... - ............. Ritstjórnarsími nr. 500 Utan af landi. Stórbruni á Seyðisfirði Seyðisfirði, í gær. í fyrrinótt kom upp eldur á Seyð- isfirði og brunnu þar þrjú hús, læknisbúsið og hinar svo kölluðu Nýjabúð og Nielsenslnið. 1 læknis- húsinu, brann alt innbú, en vörum bjargað að mestu úr búðunum. Um tíma var ekki annað sýnna en öll Aldan mundi brenna. Var á snarpur norðanvindur og bríð. Jarðarfðr Guðmundar Guðmundssonar skálds. Hfin fór fram í gær að viðstöddu meira fjölmenni en dæmi eru til, og sýndi það bezt live víða hami átti ítök í fólki, að svo margir urðu til þess að fylgja sögvaranum góða til hinstu hvíldar. Á heimili hins látna flutti séra Ólafur Ólafsson húskveðju, en bekkjarbræður hans, E. Claessen, Jón Proppé, Árni Pálsson, Ólafur D. Daníelsson, Einav Gunnarsson og S. Á. Gíslason háru hann að samkomuhúsi guðspekinga. Pór þar fram stutt kveðjuathöfn. Prú Aðal- björg Sigurðardóttir talaði nokkur prýðisfalleg orð eftir hinn látna formann félagsins, en Einar Viðar söng kvæði það eftir Bigurjón Jons- son, er birtist í Morgunbl. fyrir nokkrum dögum. Guðspekingar báru kistuna inn í húsið og út úr því, þeir L. Kaaber, Jón J- Aðils, Jón Áshjörnsson, Halldór Ilansen, Jón Árnason og Þork. Þorláksson. Iíistan var hvítmaluð og festur a hana silfnrskjöldur með nafni Cuð- mundar heitins. Hún var alþakin krönsum og einuig var á henni silf- urharpa frá Stórstúku íslands. Inn í dómkirkjuna háru kistuna skáldin Indriði Einarsson, Einar H. Kvaran, Þorsteinn Gíslason, Bjarni frá Vogi, Hannes Blöndal og Árni Thorsteinsson. Flutti séra Bjarni Jónsson ræðuna, en áður en ldstan var borin út söng karlakór, uudir st.jórn Sigfúsar Einarssonar, ljóð er Þorst. Gíslason liafði orkt, en Sigfús samið lag við. Sama kór söng einnig við gröfina og heima. 'Út úr kirkjunni báru cmbættis- ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen Leikfélaci H ijkjavíkur. Nei Og Hrekkjabrögð Scapins leik:n i kvöld og á morgun — Aðgöngumigar seldir i Iðnó. menn stórstúku íslands kistuna, en samsýslungar Guðmundar heitins, þeir A. J. Johnson, Halldór Sig- mðsson úrsm., Eyjólfur Eiríksson, Jón Ólafsson, Bogi Ólafsson og Brynj. Björnsson tannlæknir inn í kirkjugarðinn. Höfðu þejr heiðst þess, að Rangæingar mættu votta Guðmundi heitnum hugarþel sitt með því að sjá um útförina. 1 norðvesturhorni nýja kirkju- garðsins er upþmúruð gröf, alþak- in blómum og krönsum. Þar hvílir Gnðmundur Guðmundsson. En blómin visna fljótt. í þeirra stað á a,ð koma bautasteinn, er standist tímans tönn jafn vel og ljóð skálds- ins munu gera, og samboðinn þeim. Bæjarpósturínn. Verið er að koma nýju skipulagi á útburð bréfa í hænum. Er bænum skift í fjögur umdæmi og verða því framvegis 4 póstar í bænum, en hingað til mun sami maðurinn hafa séð um úthurð allra bréfa í hæinn. Það er eitt atriði bæjarpósti.mum viðvíkjaudi, sem rétt væri að vekja máls á nú. Það er það, að póstarnir eiga að hafa einkennisbúninga. Bærinn er orðimi stór og það kem- ur sér oft vel að geta þekt póst- ana. Onnur lönd hafa einkennis- búniuga handa póstunum og það er miklu nauðsynlegra að þeir séu ein- kennisbúnir, heldur en embættis- mennirnir. Þar ag auki er útgang- urinn á bæjarpóstunum sumum svo slæmur nú, og Póststjórninni ósam- hoðinn, að fyrir þá sök eina væri næg ástæða til þess að klæða þá fyrir opinhert fé. Þess vegna skal þeirri tillögu beint til póstmálastjornarinnar, að bæjarpóstunum verði hið fyrsta fenginn smekklegnr einkennisbún- ingur og er eigi síður ástæða til þess að fara fram á þetta, er burð- argjöldin hafa nýlega verið hækk- uð um helming. Messur í dag: í dómkirkjunni kl. 11 f. h., síra Frið- rik Friðriksson. I fríkirkjunni í Hafnarfirði kl- 2 síðd., síra Ól. Ólafsson. í þjóðkirkjunni í Hafnarfirði bí. 12, síra Arni Björnsson. Biskupinn flytur hið fjórða og síð- asta erindi sitt í dómkirkjunni i dag kl. 5. Efni þess er: „Hvað er kristin- dómur f ‘ „Botnía“ kom til Kaupmannahafn- ar þ. 28. þ. mán. M.b. „Faxi“ kom í fyrrínótt frá Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Hafði meðferðis mikið af vírbundno heyi frá Eyrarbakka. „Ýmir“ er nýkominn af fiskveiðum með ágætan afla (79 tnnnur lifrar). Enskur botnvörpungur kom inn í fyrrakvöld með brotið spil. Viðsjá. Ból og* jörð Það er margsannað, að loftslag hér á jörðunni hefir verið miklum breyt- ingum undirorpið. Fyrir 10—20000 ár- um var allur norðurliluti og nokkuð af Mið-Evrópu þakið ís. En lengra fram í aldir var svo milt loftslag á Spitz- bergen að það var líkast því sem ná er í norðurhluta Ítalíu. Þá óx þar pálmaskógur og þar spruttu valhnet- ur, Þessi dæmi sýna það ljóst, hve stórkostlegum breytingum loftslagið hefir tekið og allar líkur eru til þess að aðrar eins breytingar mnni verða í framtíðinni. En a£ hverju stafa svo þessar breyt- ingar? Verður þeirra vart nú á dög- nm f Margar getgátur hafa komið fram um það. Sumir hafa haldið fram, að hafstraumar mundu valda breytingun- um, aðrir álíta að þær stafi af því, að heimskautin flytjist til, enn aðrir að jarðskorpan skriki til o. s, frv. All- ar þessar getgátur eru nú taldar rang- ar. Vísindamenn halda því fram, að ástæðurnar til loftlagsbreytinganna sé að leita utan við jörðina, í sjálfri hitalind jarðarinuar, sólinni. En þá kemur spurningin um það, hvort geislun sólarinnar sé breytingum undirorpiu. Og því svara vísindamenn- irnir játandi. Á yfirborði sólar verða stórkostlegar breytingar, en þær hafa aftur áhrif á loftslag jarðarinnar. Hafa ameríksku vísindamennifnir Langley og Abbots auðgað vísindin mikið á þessu sviði hin síðari árin. Af breytingunum á yfirborði sólar- innar eru sólblettirnir merkastir. Stærð þeirra er mismunandi, sumir eru 100 sinnum stærri heldur en yfirborð jarð- arinnar, en menn hafa þó tekið eftir sólblettum, sem eru 2—300 sinnunx stærri en yfirborð jarðar. En auk sól- blettanna verða ýmsar aðrar breyting- ar á yfirborði sólar, til dæmis hinir svo nefndu sólkyndlar (protuberans) og sólgígir (solpore). Sólkyndlarnir eru ógurleg gos, að meðaltali 36,000 km. há, en stundum alt að 500,000 kíló- metra há, og goshraðinn er frá 400—- 900 kílómetrar á sekúndu hverri. En verður nú þessarar breytinga vart hér á jörðunni'? Já — sólblettirnir standa í nánu sambandi við segulafl jarðar og norðurljósin. Þetta sézt glögt á því, að misvísun áttavita stend- ur í nánu sambandi við aldur sólblett- anna, þ. e. a. s. þau 11,2 ár, sem sól- blettirnir eru að vaxa og þverra aftur. En það er ekki að eins rafgeislun sól- arinnar, sem hefir áhrif á jörðunní, heldur einnig ljósgeisluu og hitageisl- un hennar. Það getur hvert barnið skilið, að hitageislun hennar hafi áhrif á lofts- lag jarðarinnar. Norsku vísindamenn- irnir Friðþjófur Nansen og Helland- Hansen hafa um mörg ár verið að rannsaka þetta og rannsóknir þeirra hafa sannað ]?að, að náið samband er milli meðalhita jarðarinnar á ári og hins, hvað sólblettirnir eru stórir. Þegar sólblettirnir stækka eykst hitageislun sóiarinnar, en þrátt, fvrir það kólnar loftslagið á jörðunni sam- tímis. Menn hefir stórfurðað á þessu, og ekki skilið slíkt undur. En það er vegna þess, að þeir hafa gleymt hreyf- ingunni í gufulivolfi jarðarinnar og hinu, að það eru ekki nema 12% af sólarhitanum, seyi komast í gegn um gufuhvolfið. Hitabreytingar valda vindum í gufuhvolfinu og þess vegna er það, að aukin hitageislun sólar verð- Einlitt KADETTATAU og MORGUNK J ÓLATAU. H. P. Dnus. A-deid. Svart ALPACCA og GARDÍNUTAU. H. P. Duns. A-deid. BORÐDÚKAR og SERVIETTUR. KVEN-NÆRFATNAÐUR. H. P. Duus. A-deid. Stórt úrval af Blúndum, svörtum og hvítum, mjóum og breiðum. H. P. Duus. A-deild.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.