Morgunblaðið - 30.03.1919, Side 4

Morgunblaðið - 30.03.1919, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ i Ji Havsfee Heildsala. Reykjavlk. Nýkomnar mlklar birgðir af: Saumastofan Agætt vetrarfrakkaefoi — Sömnieiðis stórt úrval af allskonar Fataefoum Komið fyrst í Vöruhúsið. Trolle & Rothe h.í, Brunatryggingar. Sjó- og striðsYátryggisga? Talsimi: 235. Sjótjðns-erindreksííif tg skipaflutmngar Talsíml 42ö. Geysir Export-Kaffi er bezt. Aðalnmboðsmean: 0. JOHMSðM & KAA8KR. Nd ér Shinola skósvertan búin, en betri teg. til ú 50 aura, dósin hjá DaníelMdórssyni Leyst úr læðing Ástarsaga eftir Curtis Yorke. ----- 57 — Hr. Conyers, mælti Kathleen Hamlyn — því það var hún, sem inn kom — með angistarkreim og ákefð í röddinni. — Eg — eg — er komin — eg hefi heyrt — eg er nýkomin heim — Hún komst ekki lengra, en fór að hágráta. Ronald stóð upp og horfði á hana. — Þér eigið víst við að þér hafið heyrt að konan mín er skilin við mig, mælti hann kuldalega. Já, það er al- veg rétt. Viljið þér ekki fá yður sæti ? bætti hann við og strauk hendinni þreytulega um ennið. En Kathleen gekk eirðarlaus íram og aftur um gólfið; kinnar hennar voru blóðrauðar, augun tindrandi og tár í hvörmunum. — Ó, það er skammarlegt — grimm- úðlegt af yður og þessári konu, að hafa neytt veslings Penelope út í þetta! hrópaði hún í æsingu. Hún var alt af mikils til of góð handa yður. Eg skil ekki , að hún skyldi ekki vera farin frá yður fyrir löngu. Faiaefni misl. fjöldi teg. Flónel einlit og mislit, Sinz feibna birgðir Morg unkjólaefni. Cadbunj’s kókó, fif- qq suöit-'iúkkulaði, Lakkrís, Jiex oq kökur. Skófíur, Bdrujdrn, Hann svaraði engu. Það var efamál, hvort liann tók það, sem hún sagði, í fullri alvöru. Eftir dálitla stund mælti hann dauflega: — Hvernig vissuð þ é r það ? — Stúlkan hérna sagði mér það. Eg kom fyrst heim í dag og brá mér hing- að strax, til þcss að finna hana, því mér var órótt vegna þess að eg hafði ekkert frétt af henni meðan eg var að heiman. Eg sá, að ekki var alt með feldu, undir eins 0g Bayliss opnaði dyrnar, svo eg gekk á hana og hún sagði mér það. Þetta kom yfir mig eins og reiðarslag. — Já, svaraði hann ósjálfrátt. Eg trúi því. — Og hafið þér enga hugmynd um, hvar hún er ? Hafið þér ekki reynt að finna hana? Hún hlýtur að vera dáin — eða veik — eða peningalaus — ó, eða eitthvaðl — Eg hefi gert allar hugsanlegar eftirgrenslanir, rannsakað þar sem nokkur líkindi voru. En eg varð einsk- is vísari um hvar hún muni vera niður komin. Hitt veit eg, að hún er lif- andi. Hún nam staðar rétt í svip, er hún heyrði þetta. — Ha? Hvað eigið þér við. Hvers vegna sögðuð þér mér það ekki strax 1 Frakkaefni. Flónelskend efni^ alI&VOga. Kadet Saieen og fleira og fleira. Cíarnico’s Honfekf og Brjóstsijkur, Vindíar, Föfur, mælti hún og röddin titraði af reiði og ekka. Hann skýrði henni stuttlega frá sím- talinu dularfulla. — Kvenrödd! endurtók hún. Hvers konar rödd? Ung eða gömul? — Hvernig get eg sagt um það ? svar- aði hann óþoliirmóður. Það var ekki rödd, sem eg þekti. Það held eg ekki, að minsta kosti. — Guði sé lof að hún er þó lifandi. Kathleen andvarpaði mæðulega. Eg var svo hrædd — eg vissi ekki hvað eg átti að halda. Ronald sat álútur, studdi alnbogun- um á hné sér og höndunum undir kinnarnar. Kathleen liorfði undrunaraugum á hann. — Yður hefir þá þótt vænt um hanri? spurði hún, máske án þess að vita um harðneskjuna, sem lá í orðum heimar. Hann leit til hennar og örvænting- areymdin, sem andlit hans bar vott um, var fullnægjandi svar. — Hafið þér munað eftir frú Dall- ington? spurði hún eftir nokkrar sek- úndur. — Já, hún er veik. Eg hefi spurst þar fyrir tvisvar sinnum, en enginn veit neitt um Penelope. Hún er lif- andi — og heilbrigð. Eg býst við að eg verði að láta mér það nægja. En — Handsápur - llmvðin Yœntanlegt bráðlega: og fieira og fleira. Simar 268 og 684. Pósthólf 397. gawwasg! «5W8S wm •«« vtjgmpr ■■■nTfiiMinii irniiii 11 niiiiiia ■[■w 111 n *pr,onHÍih- ífOBffijeaií libjggBjtíiiiá li Allsk. bruwatrygífissg»r, tðdamboðsKiaðnr Caa?l Skóhvðrðustig 1%. Skrifstofut. 5 */*■—61/*?',-.. Tal*. ; Dai Uí octr. Bristoiniii Kanpmannaltöfn rátryggir: húa, húsgðgu, koaar vðrsiíorða. o.sirv gags eldsvoða fyrir lsegsta iðgjald. Heima kl, 8—12 f. h. og 2—I s.k, I Ansturstr, 1 (Bdð L. Nielsss). N. B. Niais@vt. >SUH IMSUHAHCE OFFICE* Heimsins elxta og st*rst;i váttýgg" ingarfélsg. Tekur að sér dlakmcr i»raijatryggingar. Aðinmboðsmaðisr bér á hadi Matthías Mattt'/assvm, Holti. Talsiaaí 41'; sffinsnairifgg mga rp. sjð- og stríðsvátryggiagar. O. lofjmm & Jimiðer. skipamiðlarip Hainarstrseti ij (uppjj Skriístofan opin kl. 10—4. Simí éui Sjé-, Strl®8-, Brun&tf^igliifar. Talsími heima 47$. ef hún er heilbrigð, hvers vegna hefir hún þá ekki skrifað í Hvers vegna læt- ur hún einhverja ókunna manncskjn hringja til mín. Guð minn góður — eg held eg missi vitið! Ásýnd Kathleen mildaðist. — Mér þykir leitt, að eg var bitnr- yrt, mælti hún angurvær. Eg eg tók mér þetta svo nærri — og eg — og eg hélt í rauninni, að yður þætti ekki vænt um hana. — .Jú, víst elskaði eg hana, svaraði hnnn sorgbitinn, — Þetta er verk þessarar djöfullegn Estellu, það get eg svarið fyrir, hróp- aði Kathleen upp og steytti hnefana. Hvers vegna hafið þér hana hérna. — Hún er farin, svaraði hann..Hiin er lijá wárren og er í þann veginn að giftast Radmore lávarði. — Svo! Vissi Penelope það ? — Ekki svo eg viti. Eitthva? tíu mínútum síðar gekk hún hratt heim til sín og liugleiddi það sem Ronald hafði sagt henni og braut heil- ann. Alt í einu datt lienni ráð í hug.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.