Morgunblaðið - 30.10.1919, Síða 4

Morgunblaðið - 30.10.1919, Síða 4
4 MOB6UNBL A'Ð IÐ I Þýzkalandi. Fréttabréf frá Berlín. Danskur blaðamaður skrifar svo frá Berlín í septem'bermánuði: — 1 Rosmarinstrasse stöðvaði eg mann — alþýðumann, á þykkum, járnuðum tréskóm, í röndóttum buxum, bláum jakka'ogmeð gúmmí- flibba — og spurði hann hvar Trj- anon-leikhúsið væri. Hann horfði á mig um stund, síðan á konu mína og snéri svo við okkur baki og gekk á braut án þess að mæla orð frá munni. Það er sem sé segin saga, að allir útlend- ingar í Berlín eru álitnir Englend- ingar, nema því aðeins að þeir séu nógu svartir á húð og hár til þess áð geta verið Frakkar. En eitt var víst, maðurinn var fullviss um það, að eg væri frá óvinaþjóð . Ef til vill hefir hann legið í skotgröfum, ef til vi'll hefir kona hans og börn soltið heilu hungrinu og svelta enn, vegna hafnbannsins og þess, að Þjóðverjar hafá orðið að afhendá þandamönnum skip sín og járn brautarvagna. Ef til vill 'hefir hann hugsað sem svo, að þótt Þýzkaland eigi sök á stríðinu, þá sé það þó ekki s é r að kenna og að hann skilji ekki hvernig á því stendur, að hann 'verður að svelta nú, löngu eftir að þeir, sem upptök ófriðarins áttu, hafa orðið að hola sér niður í Hollandi. Franskur hermaður var drepinn fyrir það, að hann kallaði þýzka stúlku svín. Það kostaði miljón krónur. Mað- urinn í Rosmarinstrasse hefir ekki haft svo mikið fé handbært og þess vegna kaus hann heldur að snúa við mér bakinu og þegja. Honum kom ekki til hugar að eg væri Dani, því að ella hefði hann sýnt mér sömu kurteisi og allir aðrir, sem vissu um þjóðerni mitt. Berlínarbúar eru orðnir glögg- skygnir á útlendinga. Þó maður segi ekki eitt einasta orð, og komi þanng ekki upp um sig málsins vegna, en gangi einn sér á götu, þá er glápt á rnann úr öllum áttum með forvitns- og illgirnissvip. Oft hefir það komð fyrir í myrkrnu á kvöldin, að einhver vesalingur, sem ógnir stríðsins eða óþolandi búk- sorgir hafa gert sturlaðan, hefir kallað á eftir mér á götu. Margir hafa steytt framn í mig hnefana, eti lögreglumennirnir eru tveir og tveir saman, með 30 skrefa milli- bili og þeir halda fólkinu í skefj- um. Og yrði manni litið á hinár mörgu skinhoruðu konur, sem selja eldspýtur á hverju götuhorni, eða örkumla mennina, sem sitja undir húshliðunum með hermannshúfu með nokkrum járnpeningum í við hliðina á sér, þá getur maður ekki staðist hð gremjubiandaða tillit þeirra, en mann gdípur örmagna þrá til þess að reyna að bæta böl allra þessarra aumingja. Maður gleymir bæði Belgiu og kafbáta- hemaðinum, vegna þess að hegn- ingin er of hörð og kemur eigi síð- ur niður á saklausum en sekum. í Friedrichstrasse er búðum lok- að kl. 5 og eftir sólarlag grúfir þar myrkur yfir og fátt manna er þar á ferli. Akbrautin milli Dorotheen- strasse og Unter den Lnden er af- girt af lögreglunni ogútifyrir hom- inu á Café Yictori standa vopnaðir lögregluþjónar og þar eru hermen á verði með 5 skrefa mllibili. Ef fólk gerir sig nokkursstaðar líkiegt til þess að safnast saman í hóp, er því óðar tvístrað. Það er augljóst að engin maður er óhultur. En hitt er og jafn augljóst, að stjórnin vill hafa frið og reglu og að byltingun- um skuli vera lokið og að óþjóða- lýðurinn „að norðan“ skuli aldrei framar fá tækifæri til þess að hafa hús „Berliner Tage’blatts" að skot- spæni. En sú bygging ber merki eftir mörg þúsund véibyssukúlur. Það getur enginn sagt með sanni að óviðkunnanlegt sé í Berlín. Og þar fæst skýringin á því undri, • að enda þótt enskir og franskir liðsfofingjar búi hópum saman 1 hinu mikla veitingahúsi „Adlon“, niðri þá sjást þeir hér um bil aldrei niðri í veitingakránni eða kaffi- drykkjusalnum. Þeim er færður matur til herbergja sinna «og þar glíma þeir þöglir við hið seiga kart- Öflubrauð, sem þeir hafa með hafn- banninu sett á borð fyriröOmiljónir Þjóðverja. Þessir bandamannaliðs- fóringjar vilja ógjama láta Berlín- arbúa sjá hve illa þeim sjálfum lík- ar hafnbannsbrauðið. A götunum ber mest á óvináttu í garð útlendinga. Og ástandinu er bezt lýst með hinum mörgu auglýs- ingum, sem hvarvetna eru og hafa að yfirskrift „1000 mörk“ eða „Morð“ og segja frá þjófnaði og morðum og heita h'áum verðlaunum fyrir uppljóstanir. Einu sinni að morgunlagi mætti eg stórri bifreið sem ók með heilan spilaklúbb til lögreglustöðvanna, þar sem átti að dæma þá er brotlegir höfðu gerst við síðasta boðorð Noskes. Síðan hafa komið mörg önnur boð- orð. Manni verður þungt um andar- dráttinn í Berlín og það er eins og andrúmsloftið titri af ábyrgð. Borgin stendur á öndini og býst við því á hverri stunduaðeitthvaðkomi fyrir. En þrátt fyrir alt verður maður þó var við hinn aðdáunar- verða vilja þjóðarinnar til þess að koma fótum undir sig aftur og ná að verða leiðtogi annara þjóða eins og áður var og eins og hún á skilið að svo mörgu leyti. Stríðið er ef til vill Þjóðverjum að kena. En hver á sök á ófriðnum? Qg þegar sagan fer að gera upp reikningana að þúsund árum liðn- um, þá verður kannske þyngri syndabaggi þeirra, sem réðu friðn- um, heldur en hina, sem hleyptu ófriðnum á stað. 2 síúíkur óskasí að Vifils- sföðum, sfrax. Einnig 2 ntúlkur tU hreingerninga í 7« mánuð. Upplýsingar í gíma 101. Framtíðarstaða Abyggilegur skrifstofamaður, vanur bókfærslu, bréfaskriftum, skrifvél og ritfær í ensku og dönsku, getur strax fengið framtíðarstöðu. Umsókn, með launakröfu og meðmælum, sendist skr’fstofu þessa blaðs fyrir i. n. m. auðkend: Korrespondance. Mannslát. Nýlátinn er hér á Landakotsspít- ala Páll V. Jónsson verzlunarstjóri frá Akureyri. Páll heitinn Jónsson var fyrst við verzlun á Blönduósi, en fluttist til Akureyrar og gerðist þar stjórnandi verzlunarinnar Gudman’s Efterföl- ger. Páll dvaldi um tíma í Khöfn til þess að fullkomna sig í verzlunar- fræði. Hann var greindur maður, á- liugasamur um marga hluti og drengur bezti. - Tómir kassar verða seldír í dag kl 1 í Skólastræti 3. A. Obenhaupt Þjöðabandalagið. Gengi erlendrar myntar Khöfn, 28. okt. Sterling .... 19.45 Dollar .. . . 466.50 Mörk 15.35 Sænskar kr. . 112.10 London, 28. okt. Sterling .... 19.471/2 Dollars .... 417.7 Mörk 123.5 I D16BO 1 Reykjavík: A gola, hiti 4,8. ísafjörður: logn, hiti 2,2. Akureyri: S andvari, hiti 2,0. Seyðisf jörður: logn, hiti -f- 1,7. Grímsstaðir: logn, hiti -f- 7,0. Vestmannaeyjar: A gola, hiti 5,8. pórshöfn: NA gola, hiti 4,0. Nýtt dagblað, sem boðaö var að al- þýðuflokkurinn ætlaði aS gefa út hér í bæ, fæddist í gær. paS heitir „AlþýSu- blaSiS" og er í ofurlítiS stærra broti en KvennablaSiS. Ritstjóri og ábyrgS- armaSur er Ólafur FriSriksson rit- stjóri Dagsbrúnar. En þaS blaS mun balda áfram aS koma út vikulega. ísland fer héSan í dag áleiSis vest- ur og norSur um land til Khafnar. MeS skipinu fara aSeins fáir farþegar til útlanda, enda er gert ráS fyrir aS Gull- foss fari beina leiS eftir nokkra daga. En flest farþegarúm í því skipi eru upptekin. Flutningabifreiðum er altaf aS f jölga í bænum. Gömlu tvhjóluSu hestvagnarn- ir eru alveg aS hverfa úr sögunni. peir eru fremur sjaldséSir á strætum borg- arinnar sem betur fer. Um miðjan þennan mánuð var haldið mót eitt í London, þar sem 25 ríki gengu í þjóðabandalagið. Mótið sátu mörg helztu stórmenni álfunnar, svo sem Asquith, lord Robert Cesil, flestir fulltrúar er- lendra ríkja þar á meðal fulltrúi Frakklands, Ameríku, Belgíu, Nor- egs, Svisslands, Japans og Grikk lands, og margir nafnkunnir menn af verzlunarstéttinni. „Lord Mayor“-inn stjórnaði fund inum og las upp skevti frá kóngin um, þar sem hann leggur mönnum á hjarta að styðja af alefli fram- gang þjóðabandalagsins, því það væri skylda allra að finna einhver þau ráð, er trygðu varanlegan frið, en til þess væri ekke'rt líklegra en máttugt og fjölskipað þjóðabanda- lag. Lloyd George sendi og skeyti, þar sem hann lýsti því yfir, að stjórnir bandamanna vœru einhuga við hug- sjón bandalagsins. En það skifti mestu að vekja samvizku allra þjóða til þess að gera þjóðabandalagið að lifandi valdi. Ilann mintist sérstak- lega á Englendinga og hvatti þá til að styðja þetta af öllum mætti, svo áform bandalagsins gætu orðið að veruleika og mannkynið með því losnað við ok ófriðarins. Asquith kom fram með þá til- lögu, að 11. nóvember, ári eftir að vopnahléð komst á, skyldi verða haldinn hátíðlegur ttm alt England sem pjóðbandalagsdagur. Hann gat þess, að þegar vopnafriður var sam- hefði þjóðabandalagið verið ón ein. En í dag væri það stofnað og undirskrifað af 25 ríkj- um. Ilann gat þess, að hann vonaði cinlæglega að undirskrift Rússlands mundi bætast við, þegar það losnaði við þær óeirðir sem nú væru þar. Robert Cecil lávarður benti á hver munur væri á pjóðbandalaginu og fyrri tilraunum í sömu átt, þar sem Bandalagið vildi ekki einungis vinna þegar naðsyn krefði, heldur jafnframt lilúa sífelt að friðar- möguleikunum alstaðar í heiminum. Alstaðar væri eldsneyti fyrir ófrið- inn, og margt af því væri logandi uú. pað væri verk Bandalagsins, að f jarlægja þetta ófriðareldsneyti, svo það gerði aldrei framar vart við sig. Islendingasögur bandi, vil eg kaupa. Sigurður Kristjánsson, á skriíst. Morgunbl. Stúlka Stúdentafélagið heldur fund í Iðnó í kvöld. Verða þrjú mál á dagskrá. Próf. Ágúst Bjarnason talar um Nor- ræna stúdentasambandið, síra Jóhann- es L. Jóhannesson um íslenzku orða- bókina og þar að auki verður rætt um S túdentas j óð inn. Léreftituskur keyptar í Isafold. Leikarar í knattspyrnu. Nýlega boðuðu leikarar í Kaupmanna- höfn til knattspymuleiks og skyldu keppa við leikendur einkaleikhús- anna. Hinir fyrnefndu unnu með 5 mörkum móti einu. Aðsókn varð feikimikil að leiknum og ágóðinn 14000 kr„ sem gekk til hælis handa gömlum leikendjim. En íþróttafé- lagastjórnin danska leit homauga til leiksins, þóttihann vart boðlegur og ætlaði að banna hann. Urðu deilur nokkrar út af málnu. Meðal þeirra, sem þátt tóku í kappleikn- um voru merkir leikarar danskir, t. d. Jóhannes Poulsen og Carlo Wieth. sem kann að pressa og getur geit við föt, og stúlka, sem kann að sauma jakka, geta fengið atvinnu. Hátt kaup. Rydelsborg. Laugaveg 6. Herbergi vantar mig strax, má vera með öðrum. Björn Kristjánsson frá Sauðákrók. Göðar stúlkur Dusleg stúlka gétur fengið góða atvinnu á Álafossi I. október. Upplýsingar gefur Sigurjón Péturssou, Hafnarstræti 18. Ti 1 s ö 1 u með tækifáerisverði agæt byggingalóð nláægt miðbænum og höfn inni. — Upplýsingar gefur Siaingr. éSuÓmunósson, Amtmannsslg 4. Uppboð Fimtudaginn 6. nóvember næstkomandi verðnr opinbert uppboð haldið I Keflavík, og þar selt ýmislegt tilheyrandi sjávarútvegi, svo sem: Nýjar línur, taumar, önglar, þorskanet, uppsettar lóðir, lóðaibelgir, lóð- artrog, nppistöður, netakúlnr, handvagn og fiskhús og margt fleira. Uppboðið byrjar kl 12 á hádegi. Skautafélag Reykjavikur hefir aðalfund sinn I Iðnaðarmannahúsinu (uppi) íöstudaginn 31. október kl. 97*. Félagar eru beðnir að mæta stundvislega. Þeir, sem óska inn- töku 1 félagið, sendi upptökubeiðni á fundarstaðinn. Stjórnin. Ferskt I R M A Plöntusmjörliki Finasta Java blandað. Dauskt Smjör og Finasta Fplasmjör ferskt og nýkomið með s.s. Island, og selst með sanngjörnu verði. Smjörhúsið, Hafnarstræti 22. V efnaðar vörubúðin Aðalstræti 14 íar sem afgreiðsla Vísis hefir verið óskast strax. Frú Hansen, Laugaveg 15. Páll V. Jónsson verziunarstjóri frá Aknreyri andaðist á Landa- kotsspltala að kvöldi 28. þ. m. F. h ekkju og ástvina Sig. Björnsson. Sérstakar helgunarsamkomnr á hverjum fimtud. kl. Byrja i kvöld. Umtalsefni: Bréfin til safnaðanna 7 í Litlu-Asíu. Majór Grauslund talar. EKKJA með 2 uppkomnum son- um óskar eftir herbergi nú þegar. Afgr. vísar á. DIVAN óskast til leiku. Afgr. vísar á. Tlýkomið: Heilsusamlegar sápur Beuzoe-Borax, Salicyl-, Karbol-, Tjöru-, Glyserin.* Ladolín- Normal- og Barnasápa Þessar sápnr ern búnar til fyrir og notaðar i Rauðakrossinum í ýmsum löndum og á danska konungsheimilinu, Gallsapa til þvotta o. fl. JLrni £tirífís8on‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.