Morgunblaðið - 18.01.1920, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.1920, Blaðsíða 1
J&ei/ifdlag dleyRjavifiur: Sigurður Braa eftir Jot)Qn Bojer verðnr leikinn í Iðnó sunnudaginn 18. þ. mán. kl. 8 siðd. Aðg.m. seldir i Iðnó i dag. gami A RIO mmm UBERTY V kafli (6 þættii) Sýningar í kvöld kl. 6,7Vá og 9 Aðgöngnmiðar seid r í Gamla Bio frá kl. 2—4 síðd Ekki tekið móti pöntnnum! Nýkomið: HAMOND RITVJELAR. „Bygðar öðruvísi en liinar“. Skrifa öll tungumál og allar leturteg- undir á eina og sömu vél. Vigta aðeins 5 kg. í leðurhylki fyrir ferðalög. Ereu endingar- beztar allra ritvéla. Vanta ekk- ert sem aðrar ritvélar bafa en eru ótal kostum búnar fram- yfir þær. Skifta um leturteg- und á svipstundu. Skrifa ávalt sjálfkrafa jafn þungt. G. EIRÍKSS, Reykjavík. Einkasali á íslandi. Erl. símfregnir. (Frá fréttaritara Morgunblaðsins). Kböfn 16. jan. Fjármálaráðstefna. Helztu stjórnmálamenn og fjár- málamenn frá Englandi,Danmörk, Noregi, Svíþjóð, Hollandi og Sviss, hafa í gær sent stjórnum sínum uppástungur að því, að kalla saman á ráðstefnu fjármálafulltrúa Mut- aðeigandi þjóða, til þess að athuga hvernig hægt verði að koma á sam- eiginlegri hjálp handa þeini, sem hjálpar þurfa, hverjir sé hjálpar- þurfandi og hvernig hjálpin skuli veitt. Seinna mun og slík uppá- stunga lög'ð fyrir stjórnirnar í Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu og Spáni. í skjali þessu segir, að Evrópa eígi nú hættulega tíma fyrir hönd- um og úrræði meigi alls ekki draga á langinn, ef forða eigi álfunni frá hruni. Er síðan í stuttu máli skýrt frá því, að ætlunin sé að koma á skilyrðisbundinni hjálp, sem bygg- ist aðallega á takmörkun óhófs og eyðslu og sköttum. Forsetakosning í Frakklandi. Frá London er símað, að Lloyd George verði við forsetakosning- una í Frakklandi á morgun. Hefir hann fært Olemeneeau heillaóskir sínar og fyrsta forsetaverk 'Ole- menceau verður það,aðsæma Lloyd George stórkrossi heiðursfylkingar- innar. Frá París er sírnað, að Poul, sem um margra ára skeið hefir verið forseti þjóðþingsins, verði í kjöri við forsetakolsningarnar. Ctlemen- ceau hefir enn eigi gefið svör við því, hvort hann muni taka við for- settigninni. Flokksmenn hans hafa því til vara útnefnt Leon Bourge- ois sem forsetaefni. ' ' . :-J( . v," ’ 1 || Þjóðbandalagúnu ofaukið. „Westmiuster Gazette“ skýrir frá því, að Bretar, Frakkar og ítal- ir hafi myndað nýtt þríríkjasam- band, sem muni gera þjóðbanda- lagið óþarft. Frá Washington er símað,að full- trúar verkamanna, bænda og trú- málaflokkanna, sem alls hafa 20 miljóii meðlimi, krefjist þess af for- kóifum republikana og demokrata, að friðarsamningamir verði stað- festir. Suður-Jótland. Alþjóðanefnd hefir nú tekið við stjórninni í Suður-Jótlandi. Danska atkvæðabaráttan hófst þar í gær. Skipstrand við Færeyjar Fréttaritari vor í Færeyjum sím- aði oss í gær, að danska seglskipið Esther hafi strandað við Svíney og einn hásetanna hafi druknað. Skip- ið er gereyðilagt. Skip þetta var á leið frá íslandi til Englands. Það fór frá Siglufirði í byrjun desember tómt eða með seglfestu. Fjármál Frakka að ófriðnum loknum. Daginn fyrir gamlársdag hélt K'lotz f jármálaráðherra Frakka ræðu í franska þinginu og skýrði þar frá því, að útgjöld Frakka í ó- friðnum hefði numið 220 miljörðum franka. Hann kvað stjórnina þó ekki ætla að vinna þetta upp með auknum sköttum. Tekjur ríkisins 1919 mundu verða 3472 miljón frönkum hærri en tekjumar árið 1914, eða nær 90% hærri. Alls mundu þær nema 11 miljörðum. Þetta kvað fjármálaráðherrann ljósastan vott þess, hvað gjaldþol þjóðarinnar væri óbilandi. Þrátt fyrir það, þótt Frakkland hefði kvatt 89% af vígfæram karlmönn- um ti'l vopna, (England 52% og Bandaríkin 6%), hefði það getað aukið tekjur sínar um helming. Kvað hann þjóðina mega miklast af þessu. Hann sagði ennfremur, að fjár- lögin eftir stríðið mundi að meðal- tali verða 3—4 sinnum hæ-ri heldur er fjárlögin fyrir stríðið. Frakkar hefði gert skyldu sína í stríðinu og þeir ætti að sýna heiminum, að þeir kynni einnig að gera skyldu sína í friði. „Við munum snúa okkur að auðkýfingunum, en fyrst og fremst að óvinunum. Við ætlum að draga úr sköttum þeim, sem nú eru, hegna smy glum miskunnarlaust og try gg ja mönnum rétt til þess að fara með •eigur sínar eftir geðþótta. En við munum leggja háan aukaskatt áþá, sem safnað hafa fé í ófriðnum4 ‘. Síðan mintist hann á friðarsamn- ingana og sagði að franska stjórnin gerði ráð fyrir því, að Þjóðverjar uppfylti þá að öllu leyti. Frakkar mundu ekki fá nema lítinn hluta af þeim 20 miljörðum marka, er Þjóð- verjar ætti að gjalda. Hinar árlegu afborganir byrjuðu ekki fyr en eftir 1921 og yrði svo 'litlar, að þær hrykki ékki nándar nærri fyrir út- gjöldum Frakka. Hann kvað Frakka hafa gert fé- lf g við Breta um lántöku í marz. Enn fremur væri þeir að reyna að fá lán í Bandaríkjunum til langs tíma, en það gengi heldur tregt. Síðan mintist hann á það, að járnbrautir og póstsamgöngur gæfi alt of lit'lar tekjur. Og hinar slæmu horfur nú fyrir ríkið kvað hann dýrtíðinni og lágu gengi að kenna. Ástæðan til þess, að gengið væri svo lágt, væri sú, hve mikill munur væri á innfiluttri og útfluttri vöru. „Við verðum þess vegna að auka útflutninginn og framleiðsluna. En til þess verðum við að kaupa vélar og hrávörur í Þýzkalandi, Austur- ríki og Czeckoslavíu, þar sem þær eru ódýrastar. Og við verðum að hætta því að flytja inn óhófsvörur. Ekkert f jármálaráðuneyti og engin fjármálastjórn getur þolað það, að þióðin, sem neitaði sér um alt í stríðinu, haldi áfram þeim óhófs- vörukaupum, sem hún hefir byrjað á síðan stríðinu lauk“. Lagði hann síðan fyrir þingið frumvarp til laga um útgafu 5% ríkisskuldabréfa, sem skuli endur- greiðast á 60 árum. Á að draga út ákveðinn fjölda þeirra á hverju misseri og greiðast þau skuldabref með 150 frönkum, þ. e. a. s. 150% af nafnverði. Af þessum skuldabréf um eiga handhafar eigi að greiða neinn skatt. Var frumvarp þetta samþykt með miklum atkvæðamun, þvert ofan í vilja jafnaðarmanna. -----o------ Thor E, Tulinius og útflufningsnefndin Herra Thor E. Tulinius hefir birt grein í blaðinu „Vísi“ hinn 24. okt. sem að nokkru leyti varðar mig, bæði sem forstjóra eimskipafél. „Thore“ og meðeiganda þess firma sem Útflutningsnefndin hefir átt viðskifti við hér í Kaupmannahöfn. Út af téðri grein finn eg ástæðu til þess að gera þær athugasemdir, sem hér fara á eftir: Það er ranghermi að herra Tuli- nius hafi höfðað mál á móti eim- skipafélaginu „Thore“ í þessu sam- bandi. Hitt er rétt að hann réðist í að láta vitnaleiðslu fara fram út af upplýsingum, sem hann fullyrti að eg hefði gefið fulltrúum erlends ríkis hér í Kaupmannahöfn. Áttu þær upplýsingar að hafa bakað honum tjón og örðugleika. En svo reyndist, þegar fyrir réttinn 'kom, að þessi fullyrðing hans var ósönn og á engum rökum bygð. Eg bar fram fyrir réttinum, og lagði eið við, að eg hefði aldrei gefið þær upplýsingar sem herra Tulinius hermdi á mig. Hann leiddi mörg vitni fyrir réttinn, en gat þó ekki fært hinar minstu sönnur á áburð sinn, enda var hann áreiðanlega eingöngu sprottinn af rótgróinni öfund og óvild hans til mín, sem eg hefi talsvert orðið var við hin síð- ustu ár. Eftir að vitnaleiðslan hafði farið fram hörfaði herra Tulinius frá málshöfðun, og mun sannleikur- inn vera. sá, að málaflutningsmað- ur hans uppgötvaði, að sakarefnið var hvergi til nema í ímynd herra Tuliniusar sjálfs. Annars hafði eg ekki ætlað mér að hefja ritdeilur við herra Tuli- nius. Mín vegna má hann lifa og láta eins og hann vill, mér er ná- kvæmlega sama hvoru megin hryggjar hann liggur. Ekki æfcla eg heldur að fara í mál við hann. Eg veit að það er hans líf og yndi að ösla í málaferlum, en hann verður að útsjá sér einhvern annan en mig til þess að friða þá ástríðu sína. Þó get eg ekki orða bundist um það, að mér eru prédikanir hans um ráð- vendni í viðskiftum í mesta lagi ó- gcðfeldar. Ef einhver kynni að hafa gaman af að athuga hvemig breytni hans og vandlætingsemi standast á, þá vil eg til leiðbein- ingar taka fram þau atriði, sem nú skal greina: I. Það er sannað að herra Tuli- nius hefir sem framkvæmdastjóri eimskipafélagsins „Thore1 II. III. IV. V. ‘ van- rækt skyldur sínar við félagið í eiginhagsmuna skyni, og var hann ....... tú't bióbmbhh HneyksliD I Sackville »Triang'ec-kvikmynd ! 4 þáit. Aðalhlutverkið, kenslukonuna Nanny, sem verður fyrir svo miklu óréttlaeti, leikur hin stór- fræga og gullfagra ameriska leikkona Lillian Gish. Nýkomið: EXCELSIOR Diktieráhöld og alt þeim tilheyrandi. Spara hrað- ritara og gera yður hægt um að svara bréfum yðar flótt og á hvaða stundu sem hentugust er. Vinna kauplaust og nákvæmt. G. EIRÍKSS, Reykjavík Einkasali á fslandi. þess vegna dæmdur til að greiða félaginu allmi'klar skaðabætur. II. Það er sannað, að meðan herra Tulinius var framkvæmdastjóri „Thore“ félagsins, þá réði hann skipstjóra í þjónustu félagsins, með þeim skildaga að þeir keyptu vissa upphæð af hlutabréfum félagsins. Síðan afhenti hann þeim hlutabréf, sem hann sjálfur átti, og stakk borguninni fyrir þau í sinn eigin vasa, en skuldbatt þó um 'leið oft- lega félagið til þess að endurkaupa hlutabréfin undir vissum kringum- stæðum. Hlutabréfin seldi herra Tulinius fyrir nafnverð, en þau voru þá 50% virði og féllu mikið eftir það. III. Það er sannað, að meðan. herra Tulinius var framkvæmd- stjóri „Thore“ félagsins, seldi hann viðskiftamönnum (Leveran- dörer) félagsins nokkuð af sínum eigin hlutabréfum, og skuldbatt um leið félagið til þess að birgja sig að tilteknum vörutegundum hjá sömu viðskiftamönnum um ótak- markaðan tíma. IV. Það er sannað, að meðan herra Tulinius var framkvæmda- stjóri „Thore* ‘ félagsins, hefir hann tekið á móti „Returkommission“ af vörum til félagsins og stungið' henni í sinn eigin vasa. V. Það er sannað, að herra Tuli- nius sem framkvæmdastjóri ,Thore‘ félagsins, hefir oft og einatt látið haga bókfærslunni á óleyfilegan. hátt, til þess að svo gæti litið út sem hagnaður væri á rekstrinunn Hann hefir þannig í ýmsum til- fellum fært eignakonto skipanna til skuldar ýmsar upphæðir, sem með öllu hafa verið gripnar úr lsusu lofti, sem hann svo meðal annars hefir fært reksturskonto skipanna til tekna. En með þessn móti var hægt að sýna reksturs- hagnað á pappírnum. Sönnunargögn fyrir I. lið er að finna í dómi uppkveðnum af Sö- og Handelsretten, 17. desember 1915. )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.